Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Side 10
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 TIV
★ *
- nýtur mikillar virðingar, bæði sem leikari og leikstjóri
Clint Eastwood í hlutverki lífvaröar forsetans í In the Line of Fire.
Clint Eastwood er nánast orðinn
að þjóðsagnapersónu í Hollywood.
Þessi fyrrum sundlaugarvörður og
slökkviliðsmaður hefur unnið sér
sess meðal þeirra allra virtustu
bæði sem leikari og leikstjóri og er
óhætt að segja að fáir hafi farið jaöi
skynsamlega að hlutunum og hann
á löngum og farsælum ferli. Þekktur
bandarískur gagnrýnandi, Molly
Haskell, sagði að Clint Eastwood
væri á sama stalli og Gary Cooper,
John Wayne, Marilyn Monroe og
Katharine Hepburn og eru það orð
að sönnu. Eins og fyrrnefndir leik-
arar er Clint Eastwood eitthvað
miklu meira en frægur leikari.
Eastwood verður aldrei talinn
mikill skapgerðarleikari, en hann
hefur skapað stíl sem hæfir honum
og valið sér hlutverk í samræmi við
það. Hæfileikar hans sem leikstjóri
eru ótvíræðir og á þeim vettvangi
sýnir hann mun meiri breidd og
hefur leikstýrt allt frá harðsvíruð-
um vestrum upp í rómantískar ást-
arsögur.
Clint-Eastwood þótti takast mun
betur upp í The Bridges on Madison
County heldur en flestir bjuggust
við, enda hefur kappinn verið
þekktur fyrir annað en að leika í
rómantískum ástarmyndum. í
fyrstu ætlaði hann sér alls ekki að
leikstýra myndinni, en eitthvað
kom þeim illa saman á fyrstu dög-
um kvikmyndatökunnar Bruce Ber-
esford og honum og lét Eastwood,
sem einnig er einn framleiðanda
myndarinnar, Beresford fjúka og
tók sjálfur við leikstjóminni og ár-
angurinn varð góð kvikmynd sem
að mestu er laus við þá væmni sem
sagan býður upp á.
Var rekinn
frá Universal
Clint Eastwood er ekkert ung-
lamb lengur, en þótt hann sé orðinn
sextíu og sex ára er alls ekki hægt
að fullyrða að hann sé kominn á há-
tind ferils sins, síðustu kvikmyndir
hans eru svo góðar og krafturinn
enn svo mikill í honum.
Clinton Eastwood jr. fæddist 31.
maí árið 1930 í San Francisco. Hann
lauk aðeins skyldunámi og fór síðan
að vinna alls konar verkamanna-
vinnu, meðal annars sem smiður,
slökkviliðsmaður, sundlaugarvörð-
ur og margt fleira. Hann sagði síðar
að vinna hans á þessum árum hefði
hjálpað honum síðar á ævinni til að
geta dæmt um hvað almenningur
vildi sjá sér til skemmtunar.
Leið Eastwoods lá í herinn og þar
hitti hann fyrir leikara sem lögðu
að honum að reyna fyrir sér í Holly-
wood og þangað fór hann árið 1953.
Eftir að hafa gengið á milli kvik-
myndafyrirtækjanna fékk hann
tveggja ára samning hjá Universal,
en var rekinn eftir átján mánuði.
Tveimur árum síðar fékk Clint
Eastwood boð um að leika i nýjum
sjónvarpsmyndaflokki, Rawhide.
Þar lék hann unga kúrekann Rowdy
Yates í þessum vinsæla mynda-
flokki í nokkur ár og segir
Eastwood að sú reynsla sem hann
fékk þar sé ómetanleg.
Þættirnir runnu sitt skeið og þótt
þeir væru vinsælir streymdu ekki
tilboðin til hans. Hann þáði því til-
hoð frá Ítalíu um að leika í vestra
gerðum þar í landi. Eastwood hefur
sagt að það hafi verið með hálfum
huga að hann fór til Ítalíu, en hvað
gerir atvinnulaus leikari ekki í
neyð. Leikstjórinn sem bauð honum
hlutverk var Sergio Leone og kvik-
myndin var A Fistful of Dollars og í
þeirri mynd skapaði Clint Eastwood
ódauðlega persónu, sem hafði ekk-
ert nafn. í kjölfarið fylgdu tvær aðr-
ar kvikmyndir um sömu persónu,
For a Few Dollar More og The Good,
the Bad and the Ugly.
Nú var Ameríka tilbúin að taka
við Eastwood og má segja að vestan-
hafs hafi leikstjórinn Don Siegel
komið í stað Sergio Leone og hjá
þessum tveimur leikstjórum lærði
Eastwood sitt fag og leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, Play Misty For
Me, árið 1971. Kom hann þar flest-
um á óvart með að skila frá sér
mjög svo stíliseraðri sakamálamynd
sem enn þann dag í dag stendur vel
fyrir sínu.
Clint Eastwood hefur jöfnum
höndum leikstýrt og leikið í kvik-
myndum. Hann byrjaði mjög vel
sem leikstjóri, en gerði nokkrar
daprar myndir í röð á níunda ára-
tugnum (undanskilin er Bird sem
hann lék ekki i). Ef einhverjir hafa
verið farnir að missa trúna á
Eastwood þá fengu þeir hana aftur
þegar hann gerði The Unforgiven,
sem sópaði að sér verðlaunum og
viðurkenningum. Clint Eastwood
hefur leikstýrt átján kvikmyndum,
hefur hann leikið í þeim öllum
nema tveimur, Breezy (1973) og Bird
(1988). Hér á eftir fer listi yfir helstu
kvikmyndimar sem Clint Eastwood
hefur leikið í, en áður en hann lék í
Fistful of Dollars lék hann lítil hlut-
verk í mörgum kvikmyndum sem
flestum eru gleymdar í dag:
A Fistful of Dollars, 1964
For a Few Dollar More, 1966
The Good, the Bad and the Ugly,
1966
Hang 'Em High, 1967
Coogan's Bluff, 1968
Where Eagles Dare, 1968
Paint Your Wagon, 1969
Two Mules for Sister Sara, 1970
Kelly's Heros, 1970
The Beguiled, 1971
Dirty Harry, 1971
Joe Kidd, 1972
High Plains Drifter, 1973
Magnum Force, 1973
Thunderfood and Lightfoot, 1974
The Eiger Sanction, 1975
The Outlaw Josey Wales, 1976
The Enforcer, 1976
The Gauntlet, 1977
Every Which Way but Loose, 1978
Escape From Alcatraz, 1979
Bronco Billy, 1980
Any Which Way You Can, 1980
Firefox, 1982
Honkytonk Man, 1982
Sudden Impact, 1983
Tlghtrope, 1984
City Heat, 1984
Pale Rider, 1985
Heartbreak Ridge, 1986
The Dead Pool, 1988
Pink Cadillac, 1989
White Hunter, Black Heart, 1990
The Rookie, 1990
The Unforgiven, 1992
In the Line of Fire, 1993
Perfect World, 1993
The Bridges of Madison County,
1995
The Bridges of Madison County. Clint Eastwood og Meryl Streep í hlutverkum elskendanna.
Eastwood verður
aldrei talinn mikill
skapgerðarleikari, en
hann hefur skapað
stíl sem hæfir honum
og valið sér hlutverk í
samræmi við það
N
I TÆKINU
Jón Heiðar Þorsteinsson
Apocalypse Now. Hún er frábær
og stöðugt í tækinu.
Inga Lind Karlsdóttir Thin
Line Between Love and Hate.
Hún var í lagi.
Guðrún Helga Sigurðardóttir
Bebe. Hún var æðisleg og ég fll-
aði hana í botn.
Helga Björk Sigvaldadóttir
Stella í orlofi. Hún var stórfin.
-HK