Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
lyndbönd
25
Executive Decision
Hasar í háloftunum
Executive Decision er frumraun
Stuart Baird sem leikstjóra, en
hann hóf feril sinn sem klippari við
rokkóperuna Tommy. Hann hefur
oft átt samstarf við framleiðandann
Joel Silver sem klippari í hasar-
myndum sem Joel Silver hefur
framleitt, en hann er einnig fram-
leiðandi Executive Decision. Þar á
meðal eru Lethal Weapon, Lethal
Weapon 2, Die Hard 2, Tango &
Cash, The Last Boy Scout og
Demolition Man. Joel Silver er einn
af áhrifamestu framleiðendum í
Hollywood og hefur framleitt tíu
myndir sem hafa náð að hala inn
meira en 100 milljón dollara, en þær
eru allar þrjár Lethal Weapon
myndirnar, fyrstu tvær Die Hard
myndirnar, Predator, Commando,
48 Hrs., The Last Boy Scout og
Demoliton Man.
Hryðjuverkaógn
Myndin segir frá því þegar þraut-
þjálfaður hópur hryðjuverkamanna
rænir flugvél á leið til Washington
með 400 bandaríska farþega innan-
borðs og krefst þess að leiðtogi sam-
takanna, sem er í ensku fangelsi,
verði látinn laus. Doktor David Gr-
ant hryðjuverkasérfræðingur setur
fram tilgátu um að hryðjuverka-
mennirnir ráði yfir stórhættulegu
taugagasi sem þeir ætli að nota á
Washington. Það er því ákveðið að
reyna tæknibúnað sem enn er á til-
raunastigi og nota flugvél, sem ætl-
uð er til að flytja áhafnir milli flug-
véla í miðju flugi, til að koma sér-
sveit yfir í flugvél ræningjanna.
Meðan sérsveitin er að komast um
borð í farþegaþotuna losnar til-
raunavélin frá og ferst, þannig að
sérsveitin er föst í farþegaþotunni
og sambandslaus við umheiminn.
Stjómvöld gera ráð fyrir að aðgerð-
in hafi misheppnast og búa sig und-
ir að skjóta þotuna niður, en á með-
an reyna sérsveitarmennirnir i ör-
væntingu að aftengja taugagas-
sprengju í vélinni og yfirbuga
hryðjuverkamennina áður en þotan
flýgur inn í bandaríska lofthelgi.
Myndin var framleidd í sam-
vinnu við varnarmálaráðuneyti
Bandaríkjastjómar, en sjaldgæft er
að það veiti aðstoð við kvikmynda-
gerð. Tæknin sem myndin segir frá
er ekki til enn þá, en kvikmynda-
gerðarmennirnir fengu lánaða F-117
Stealth-orrustuþotu (sem kostar
enga smáaura) og settu búnað ofan
á hana til að fá rétt útlit. Mestöll
myndin fer fram í háloftunum en
var tekin í kvikmyndaveri Warner
Brothers í Burbank í Kaliforníu.
Skrifstofublók og
vöðvabúnt
Kurt Russel er í aðalhlutverki í
myndinni og leikur David Grant,
sem er skrifstofumaður sem treyst-
ir á heilabúið fremur en vöðvana,
en finnur sjaldnast sjálfur fyrir af-
leiðingum ákvarðana sinna. Hann
lendir óvænt i miðju átakanna þeg-
ar hann þarf að taka við stjórn sér-
sveitarinnar er foringi hennar fell-
ur frá. Kurt Russel byrjaði feril
sinn 12 ára gamall í sjónvarpsþátt-
um og lék í ýmsum Disney-mynd-
um og sjónvarpsþáttum áður en
hann lék undir stjóm John
Carpenter í sjónvarpsmyndinni El-
vis og hlaut mikið lof fyrir. Hann
hefur síðan leikið undir stjórn
Carpenters í The Thing, Escape
from New York, Big Trouble in
Little China og nú síðast Escape
from L.A. Meðal annarra mynda
sem Kurt Russel hefiu- leikið í em
Silkwood, Tequila Sunrise, Tango &
Cash, Backdraft og Stargate.
Steven Seagal leikur Austin Trav-
is, yfirmann sérsveitarinnar, sem er
eins konar andstæða við David Gr-
ant. Hann er bardagamaður sem
framkvæmir ákvarðanir yfirvalda
og finnur óþyrmilega fyrir því þeg-
ar menn eins og David Grant gera
mistök. Steven Seagal er einn af
fremstu hasarleikurum Hollywood,
á eftir Schwarzenegger og Stallone.
Hann hóf leikferil sinn með glans í
myndinni Above the Law 1988, en
auk þess að ieika aðalhlutverkið
framleiddi hann myndina og átti
þátt í að skrifa handritið. I kjölfarið
fylgdu myndirnar Hard to Kill,
Marked for Death og Out for Just-
ice, en síðan kom Under Siege sem
festi hann í sessi sem þriðju stærstu
hasarhetju Hollywood. Á undan Ex-
ecutive Decision lék hann í On Dea-
dly Ground, sem hann leikstýrði
einnig, og framhaldsmyndinni Und-
er Siege 2: Dark Territory, en næsta
hlutverk hans er í myndinni The
Glimmer Man, sem hann einnig
framleiðir.
-PJ
Kurt Russell stendur í stórræðum í farþegaflugvél og fær aðstoö hjá einni flugfreyjunni.
UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT
Bryndís Schram
Þegar ég er nýbúin að sjá ein-
hverja góða mynd situr hún að
sjálfsögðu ofarlega í huganum og
er þess vegna í ákveðnu uppá-
haldi. Ég er búin að fara á
nokkrar myndir á
Kvikmyndahátíð-
inni sem nú
stendur yfir og
þar eru marg-
ar frábærar
myndir. Þrjár
sitja efst í huga
mér núna en tvær
þeirra eru sýndar á
Kvikmyndahátíðinni.
Önnur heitir Braking
the Waves eftir Lars
Von Trier og ég verð
að segja að fáar
myndir hafa haft
önnur eins áhrif á
mig og hún. Hin
myndin á Kvik-
myndahátiðinni
heitir Shanghai Tri-
ad og hún var frá-
bær að mínu mati.
Þriðja myndin er
svo Djöflaeyjan sem er á margan
hátt sambærileg við þær bestu
sem verið er að framleiða í heim-
inum í dag. Ég horfi ekki mikið á
myndbönd. Mér finnst mynd-
irnar missa allan glans þeg-
ar horft er á þær á litlum
skermi. Sérstaklega ef
um er að ræða virki-
lega góðar myndir.
Reyndar er sjón-
varpið á heimilinu
mínu frekar lítið
og það er ekki alls-
ráðandi í
heimilislíf-
inu. Á það
er horft eins
lítið og hægt
er. Þess
vegna reyni
ég að vera
frekar dug-
leg við að
fara í kvik-
myndahús-
in.
The X-Files:
Master Plan
X-Files sjón-
varpsmynda-
flokkurinn eða
Ráðgátur, eins
og nafnið á
honum er hér á
landi, er eitt-
hvert allra vin-
sælasta sjón-
varpsefnið í
heiminum og
er ekki síður
vinsælt hér en
annars staðar.
The X-Files: Master Plan er önnur
myndin í flokki mynda um þau
Mulder og ScuOy sem er í kvik-
myndarlengd og gefin er út hér á
landi. Sem fyrr lenda þau í miklum
hremmingum við óskýrð öfl. I þetta
skipti er það dularfullur maður sem
þau velta vöngum yfir en hann kem-
ur inn á veitingastað þar sem geð-
veikur maður hefur skotið á allt
sem lifandi er og græðir sár þeirra
sem særðir eru. Að því búnu hverf-
ur hann á brott. Þar sem móðir Fox
Mulder er mjög veik og tvísýnt um
líf hennar reynir hann sem mest
hann má að hafa uppi á þessum dul-
arfulla manni um leiö og hann tekst
á við annan óþekktan aðila sem
myrðir fólk.
Skifan gefur út X-Files: Master
Plan og er hún bönnuð bömum inn-
an 12 ára. Útgáfudagur er 6. nóv-
ember.
Danger Zone
Danger Zone er spennu-
mynd með fjölda þekktra leik-
ara í aðal-
hlutverkum.
Fjallar
myndin um
námuverk-
fræðinginn
Rick Morg-
an, sem
reynir í
frumskógum
Afríku að
koma í veg
fyrir að vin-
ur hans Jum
Scott feli í einni námunni
geislavirkan úrgang. Rick
veit ekki að Jim er með heil-
an her á hælunum sem ásæl-
ist úrganginn. Til átaka kem-
ur og Rick heldur að félagi
hans hafi fallið. Þegar Rick
snýr aftur til New York
kemst hann að því að málið
er mun flóknara en hann hélt
og að Jim er lifandi. Hann
ákveður því að fara aftur til
Afríku til að fá botn í málið.
Með helstu hlutverk fara
Billy Zane, Robert Downey,
jr., Lisa Collins og Ron Silver.
Bergvík gefur út Danger
Zone og er hún bönnuð börn-
um innan 16 ára. Útgáfudagur
er 5. nóvember.
Two Much
MUCH
Fáir frægir leikarar eru eins mik-
ið í fréttum um þessar mundir og
hjónakomin
Antonio Bander- 3S úMú újSúDí uáu
as og Melanie
Griffith. Fjöl-
miðlar hafa
fylgst náið með
þeim alveg frá
því þau urðu par
og síðan hafa
þau gifst og eiga
bam saman. Nú
er tækifæri til að
sjá á myndbandi
Two Much en
það var einmitt við gerð þeirrar
myndar sem þau kynntust. Þetta er
bráðfjörug gamanmynd þar sem
Banderas leikur listaverkasalann og
svikahrappinn Art Dodge sem selur
léleg málverk og eftirprentanir fyrir
miklar upphæðir. Melanie Griffith
leikur eitt fórnarlamb hans, en
hann velur alltaf ríkar ekkjur sem
fórnarlömb, en málin æxlast á þann
veg að ekkjan verður hrifin af hon-
um og hann ákveður að setjast í
helgan stein. Vandamálin byrja fyr-
ir alvöru þegar systir ekkjunnar
kemur og listaverkasalinn fellur''"
fyrir henni.
Stjörnubíó gefur Two Much út og
er hún leyfð öllum aldurshópum.
Útgáfudagur er 7. nóvember.