Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 ]D"V i8 tækni * * ★ Vínsæl handa unglingnum Margmiðlun er tískuorðið í dag enda lifum við á upplýsingaöld. Margmiðlun felur í sér að hægt er að njóta hljóðs, texta og myndar í einum og sama pakkanum. Meðal þess sem er á markaðnum í dag eru svokölluð sjónvarpskort sem gera notendum tölva með geisladrif mögulegt að horfa á sjónvarp í tölv- unni. Sjónvarpskortin eru ekki al- veg ný af nálinni, þau hafa verið í gangi í nokkur ár, en á þessum tíma hafa gæðin verið að aukast og hafa auknar vinsældir fylgt í kjölfarið. Kortin vinna þannig að þau nema merkin sem sjónvarpið gefur frá sér og umhreyta þeim í tákn sem tölvan skilur. Margmiðlimarsjónvarpið er loftnetstengt á mjög svipaðan hátt og venjulegt sjónvarp - sérstakt stykki er fest aftan i tölvuna sem tekur við tengingu við loftnet. Sjón- varskortin eru sömuleiðis aftiota- gjaldsskyld hjá Ríkissjónvarpinu eins og önnur sjónvörp. Hér er um frekar flókinn búnað að ræða enda þarf að umbreyta um 50 myndarömmum á sekúndu til að myndin verði svo skýr að hennar sé með góðu móti hægt að njóta. Þetta gerir það að verkum að sjónvarpsút- sendingar í gegnum tölvu geta aldrei náð þeim gæðum sem nútíma sjónvarpstæki bjóða upp á, jafhvel þó svo að þróunin hafi veriö ör. Margir vilja þó meina að hægst hafi á þróuninni enda eru kortin öll orð- in mjög svipuð. Ef fúll gæði ættu að nást þyrfti tölvan að umbreyta 25 megahætum á sekúndu sem er mun meira en nokkur PC-tölva ræður við. DV ræddi við nokkra aðila sem selja sjónvarpskort og spurði hvem- ig þeir mætu stöðu sjónvarpskorta i dag. Halldór Már Sæmundsson, sölu- maður hjá Einari J. Skúlasyni, sagöi að sjónvarpskortin hefðu ver- ið seld hjá þeim í nokkum tíma - hér væri ekki um nýja vöm að ræða. Halldór sagði að salan á þeim væri misjöfn eftir því að hveiju fólk væri að leita. T.d. væri það sífellt al- gengara aö þeir sem eyddu löngum tíma á skrifstofunni keyptu sjón- varpskort til að geta kíkt á fréttim- ar eða annað til að fylgjast með á meðan unnið er. Reyndar em gæöi myndarinnar alltaf betri eftir því sem hún er minni. Einnig væru sjónvarpskortin töluvert mikið stíluð upp á tölvu unglingsins þannig að allur pakk- inn væri i einu tæki, þ.e. sjónvarp, stereógræjur, geislaspilari og tölv- an, allt í einu tæki. Slíkur pakki væri t.d. mjög vinsæl fermingargjöf enda er þá komið á einn stað flest það sem unglingurinn telur sig þurfa. Halldór Már sagði að það væri aftur á móti minna um að sjón- varpskort væra keypt í tölvur sem öll fjölskyldan notar í sameiningu. Einar J. Skúlason hefur boöið upp á sjónvarpskort í tölvur í nokkurn tíma og hafa gæðin sífellt verið að aukast. Starfsmenn EJS segja sjónvarpskortin vinsæl í tölvu unglingsins, auk þess sem þeir sem eyði miklum tíma á skrif- stofunni sæki í þau til að fylgjast meö efni, eins og t.d. fréttum. DV-mynd ÞÖK Halldór sagði aö lítið væri um að fólk notaði tölvuna alfarið sem sjón- varp enda væri það staðreynd að ekki fengjust sömu gæói og þegar verið væri að horfa á sjónvarps- tæki. Þó að gæðin hefðu batnað mjög mikið næmi augað alltaf ein- hvem mun, jafnvel þó að hann sé mjög lítill. En einmitt vegna þessar- ar stöðugu þróunar sagði Halldór Már að þó að fólk fengi sér ekki sjónvarpskort þegar tölvan væri keypt þá vildu flestir halda þeim möguleika opnum að kaupa sér það síðar. Halldór benti á að þegar keypt væri sjónvarpskort fylgdi að PHIUPS skjákort tölvunnar væri fullkomn- hver og einn á að geta séð um teng- ara. ingu sjálfur,“ sagði Halldór Már að „í dag geta flestar tölvur nýtt sér lokum. þessa tækni og hún er svo einfold að -ggá Kenwood umhverfismagnari verðlaunaður: Betri hljómur og meiri kraftur meðAC-3 Sjónvarpskort í tölvur: PHIUPS 1 Stöðugar framfarir eiga sér stað í gerð umhverfísmagnara, magnara sem sjá um að dreifa hljóði kvikmynda um allt her- 1 bergið svo áhorfandanum flnnist I hann vera í kvikmyndahúsi. | Nýjasta afurðin er AC-3 tæknin sem leysir gömlu dolby pro-logic S tæknina af hólmi. En hver er munurinn og er hann heyranleg- 1 ur? Svo sannarlega. í stað þess að umhverfismerkið er falið inni í víöómsmyndinni í dolby pro-log- ; ic býður A-3 tæknin upp á sex rása stafrænt kerfi sem dreifir hljóðinu á annan og betri hátt en áður. í AC-3 kerfmu em sérrásir j fyrir hægri og vinstri framhátal- Iara, fyrir miðjuhátalara og sér- rásir fyrir hægri og vinstri bak- hátalara. Þessar rásir verða á öllum mynddiskum framtíðar- innar, bæði Laserdisc og DVD, en em ekki á hefðbundnum myndbandsspólum eins og eru enn ráðandi á hérlendum mark- I aði. Sá sem hlustar á hljóð í gegn- um AC-3 kerfið finnur sérstak- | lega mun þar sem víðómur er Verölaunamagnarinn frá Kenwood sem er með hinni nýju AC-3 tækni. hmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmummm kominn í bakhátalarana og mun meira afl en áður. Hljóðið getur nú „hlaupið" í hringi um áhorf- andann í stað þess að fara fram og til baka milli t.d. fram- og bakhátalara eins og í pro-logic kerfinu. Hið nýja kerfi býður enn fremur upp á notkun mun öflugri bak- og miðjuhátalara. í báðum tilfellum má nota „full- range“ hátalara með tíðnisvið- inu 20-20.000 Hz. Miðjuhátalarar í pro-logic eru 100-20.000 Hz og bakhátalaramir 100-7000 Hz, eða hálfgert miðjumoð. Kenwood hefur sett á markað umhverfishátalara með hinni nýju tækni og má bæði heyra hann og sjá í Takti við Ármúla. Hjá Kenwood geta menn verið ánægðir en umhverfismagnari frá þeim með AC-3 tækninni, Kenwood KR-V990D, var valinn besti umhverfismagnari ársins af úrvali gagnrýnenda frá evr- ópskum hljómtækjablöðum. Seg- ir í úrskurði dómnefndar að magnarinn veiti fólki alveg nýja og mun kraftmeiri upplifun en umhverfismagnarar hafa gert til þessa. PHILIPS VR151 ervandaö og áreiöanlegt myndbandstaeki sem er einfalt og þægilegt í notkun. íslenskur leiðarvísir fylgir. Þaö er búiö 2 myndhausum, hraöspólun, kyrrmynd, tímastillingu á upptöku og einfaldri og góöri fjarstýringu. Staðgreitt Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO umboösmenn um tand allt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.