Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Blaðsíða 4
2» tækni
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 JD‘\T
Stafræn myndatækni er mest spennandi
- segir Eysteinn Arason
Elnet:
Fjölrása af-
ruglarakerfi
Mikið hefur verið rætt um
fjölrása afruglarakerfi sem gera
notendum kleift að horfa á sína
sjónvarpsrásina í hverju her-
bergi. Enn fremur er hægt að
horfa á eina rás á meðan horft
er á aðra. Fjölrásaafruglarar
bjóða enn fremur upp á að taka
upp á einni rás en horfa á aðra.
Elnet í Kópavogi er með slíkan
búnað sem býður einnig upp á
svokallaða stakmyndasölu. Þá
getur notandi einfaldlega pant-
að sér það sjónvarpsefni sem
hann getur notið hvenær sem
er. Það eina sem áhorfandinn
þarf að gera, fyrir utan að koma
sér notalega fyrir í stofusófan-
um með poppskálina, er að
hringja í viðkomandi sjón-
varpsstöð og panta það sem
hann vill horfa á. Elnet hefur
þegar selt þrjú kerfi með þessa
notkunarmöguleika og eru þau
í notkun hjá Húsvískri fjölmiðl-
im á Húsavík, Fjölsýn í Vest-
mannaeyjum og Sunnlenskri
fjölmiðlun á Selfossi.
Samantekt JHÞ
„Það sem er mest spennandi hjá
okkur hér í Faco er stafræn mynd-
tækni. Þar myndi ég segja að nýja
stafræna myndavélin frá JVC sé
það allra besta,“ segir Eysteinn Ara-
son.
Smá en kná
Nýja myndavélin frá JVC ber
heitið GR-DVl og er svo lítil að
hana má vel geyma í venjulegum
skyrtuvasa. „Fyrir hinn almenna
notanda skiptir mestu máli að notk-
unarmöguleikar vélarinnar eru því
sem næst óþrjótandi og gildir það
sérstaklega þegar menn nýta sér
kosti tölvutækninnar," segir Ey-
steinn. Myndavélin hefur í raun
þrjá grunnnotkunarmöguleika. í
fyrsta lagi eru teknar hreyfimyndir
á hana, í ööru lagi má taka kyrr-
myndir á hana og í þriðja lagi er
hægt að taka hljóð upp á hana. All-
ar upptökur eru stafrænar og full-
yrðir Eysteinn að hljómgæðin séu
sambærileg við þau gæði sem DAT-
upptökutæki gefa. „Hún tekur upp á
allt að fjórum rásum og myndgæðin
eru slík að myndir teknar á þessa
litlu og ódýru vél eru útsendingar-
hæfar i sjónvarpi. Það er því engin
furða að JVC-vélin skuli hafa slegið
í gegn svo um munar erlendis.
Fyrir marga
Hér á landi hefur hún þegar ver-
ið notuð af okkar færustu kvik-
myndagerðarmönnum þegar þeir
eru að finna tökustaði og slíkt,“ seg-
ir Eysteinn. Hann segir að það sé í
rauninni erfitt að benda á einhvern
hóp sem þessi vél sé sérsniðin fyrir.
„Þetta tæki er í rauninni fyrir
hverja þá sem vilja festa upplýsing-
ar á stafræna spólu án þess að þurfa
að hafa of mikið fyrir því eða burð-
ast með óhandhæg og fyrirferðar-
mikil. tæki. Það má segja að þessi
vél sé eitt af þeim tækjum sem sam-
eina vel atvinnunot og einkanot.
Það má geta þess að keppinautar
JVC eru að selja sambærilegar vél-
ar sem eru mikið stærri, fyrirferð-
armeiri og dýrari en GR-DVl kostar
um 189 þúsund krónur," segir Ey-
steinn.
Allt mögulegt hægt
Samruni sjónvarpstækninnar og
tölvutækninnar sést vel í tæki eins
og nýju JVC-vélinni. Auðvelt er að
taka myndir sem teknar eru á hana
og setja hana yfir í tölvu. Þetta þýð-
ir að hægt að vinna með myndir af
JVC-vélinni á heimilistölvunni.
„Þar er hægt að vinna bæði kyrr-
myndir og hreyfimyndir á þá vegu
sem fólk vill. Það má til dæmis taka
einn ramma úr hreyfimynd, segjum
til dæmis fjölskyldumynd, og búa til
kyrrmynd úr henni. Svo má setja
texta inn á myndina með venjulegu
umbrotsforriti og prenta hana út í
fullum litum í stað þess að vera að
fara endalaust með myndir í fram-
köllun. Það má til dæmis búa til
skemmtileg og persónuleg jólakort
með þessum hætti,“ segir Eysteinn.
Faco gerir líka meira en bjóða ein-
göngu upp á myndavélina því að
fyrirtækið býður einnig upp á það
sem þarf til þess að hægt sé að gera
þessa hluti og má þar á meðal
myndakort fyrir tölvur sem gerir
þeim kleift að vinna með stafrænar
myndir.
Aldrei meira
fyrir peningana
Eysteinn segir að kaupendur hafi
aldrei fengið jafn mikið fyrir pen-
ingana en einmitt nú. „Það sem er
helst að gerast á þessum mynd-
bandsmarkaði er það að 1997-línan
er komin og þar er mikið úrval
myndbandstækja með mörgum
notkunarmöguleikum. Það sem er
eftirtektarverðast er að nú er hægt
að fá myndbandstæki fyrir tæplega
30 þúsund sem voru helmingi dýr-
ari fyrir ekki lengri tíma en 3-4
árum. Gæðin á þessum tækjum eru
líka mjög góð og það er alveg greini-
legt að neytandinn er að vinna á,“
segir Eysteinn.
Fólk horfir í verðið
Að hans sögn eru neytendur mun
veraldarvanari í kaupum sínum á
tækjum eins og myndbandstækjum
og sjónvarpstækjum. „Fólk horfir
alltaf í verðið en það má segja að
það geri það meira nú en áður,“ seg-
ir Eysteinn að lokum.
Hljómco:
Sjónvarpið er ekki bara fyrir augað
- segir Arnór Hannesson
„Þeir sem hafa séð góð sjónvörp
eða heimabíókerfi hjá vinum eða
kunningjum sætta sig ekki við að
eiga lággæða sjónvörp: Krafan um
gæðatæki verður sífellt háværari
hjá fólki enda hefur framboðið á
gæðatækjum aukist mjög,“ segir
Amór Hannesson hjá Hljómco.
Lágmarkskröfur
Arnór segir að þeir kaupendur
sem hafi kynnt sér sjónvarpskaup
geri ákveðnar lágmarkskröfur um
hvað fylgi með í kaupunum. „Meðal
þessa eru hlutir eins og flatur skjár
og svartur myndlampi, bassahátal-
ari, dolby pro-logic með tveimur
bakhátölurum og 100 riða skjá,“ seg-
ir hann. Amór segir að svartur
myndlampi geri það gagn að i stað
dökkgrás litar og gulrar slikju þar
sem liturinn á að vera hvítur era
hvíti og svarti liturinn skarpir.
„Fólk ætti að gæta sín á því að
kaupa ekki sjónvarpstæki nema að
það fái að sjá stillimyndina fyrst en
þá reynir mest á myndgæðin í sjón-
vörpum. Stundum gerist það að þeir
sem eru að selja lággæða sjónvörp
sýna eingöngu textavarpið en það er
ekki nóg,“ segir Arnór. Hvað varðar
bassahátalara þá eru það svokallað-
ir djúpbassar sem gefa kvikmynd-
um ákveðna spennu með því að
leggja sérstaka áherslu á spennu-
hljóð. Dolby pro-logic hljómkerfi
með tveimur bakhátölurum gefa
síðan „bíótilfinningu“ inn í stofu.
„Sjónvarpsáhorfendur eru að átta
sig á þvi að sjónvarpið er ekki ein-
ungis til þess að skila mynd,“ segir
Amór. Að síðustu má nefna 100 riða
skjá en Arnór segir að til þess að sjá
muninn á slíkum skjám og öðram
verði menn að koma og skoða þau.
„Það sem helst vinnst við að vera
með 100 riða skjá er að þá flöktir
Arnór Hannesson hjá Hljómco segir mikilvægt aö þeir sem kaupi sér sjónvarpstæki gæti þess aö skoöa myndgæöi
meö stillimynd.
myndin ekkert og menn þreytast
miklu síður. En það gildir um þetta
og dolby pro- logic heimabíókerfin,
fólk verður að koma og skoða,“ seg-
ir Arnór. Enn fremur segir Amór
að góð sjónvörp komi einnig með
nicam stereo og tveimur scarttengj-
um.
Heildin skiptir máli
Hann segir að það sama gildi í
raun um sjónvörp og bíla. „Það er
heildin sem skiptir máli. „Það er lít-
ið varið í að eiga bíl sem hefur
kröftuga vél ef gírskiptingin er
ónýt. Til þess að þetta gangi allt upp
verður svo margt að koma saman,“
segir Amór. Að hans sögn hafa
sjónvarpstæki frá Mitsubishi og
Nokia, sem á Finlux sjónvarpslin-
una, verið vinsælust.
-JHÞ