Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 JLJ"V 3o (tækni___________________________ Örar breytingar í sjónvarpstækni: Framtíðin er gagnvirkni - segir Torfi H. Leifsson hjá Stöð 2 Video on Demand „Með VOD er stigið lengra en PPV. Með VOD getur þú raðað upp þinni eigin dagskrá og horft á alla þá dagskrárliði sem þig langar til, hvenær sem þess er óskað. Til að þetta verði mögulegt þarft allt dag- skrárefni að vera á stafrænu formi, áhorfandinn þarf að nota gagn- virkni til að koma upplýsingum um óskir sínar til sjónvarpsstöðvarinn- ar og siðast en ekki síst þarf dreifi- kerfið að geta borið alla þessa um- ferð. Allt tengt þessari tækni er til í dag og er verið að skoða það í ýms- um tilraunaverkefnum en þetta kostar mikla peninga. Því má reikna með að einhver bið verði á að þetta bjóðist almenningi." Tæknibreytingar á sjón- varpsstöovum „Fjölmargar tækninýjungar verða á sjónvarpsstöðvum í framtíð- inni. Það sem er stærsta málið er breyting úr hliðrænni, eða analog vinnslu, yfir í stafræna vinnslu og þar með einnig útsendingar á staf- rænum formi með mikilli þjöppun. Stafræn útsending með mikilli þjöppun gefur möguleika á að nýta þau tíðnisvið sem fyrir eru miklu betur. Því verður hægt að senda út hundruð rása með stafrænni út- sendingu. Allt efni verður unnið í staffænu formi. Þetta þýðir að í vaxandi mæli mun öll vinnsla með myndefni og hljóð færast yfir á tölvur og netþjón- ar með gríðarlega mikið diskapláss og/eða minni munu taka yfir spólu- geymslur og spólutæki sem notuð eru í dag til að vinna myndefni. Þessi búnaður er þegar til og er óðum að koma í staðinn fyrir eldri tækni. Spólur verða samt notaðar eitthvað áfram þvi að spáð er að umbreyting yfir i fullkomlega staf- ræna tækni muni taka a.m.k. 5-10 ár. Einnig eru I notkun í dag spólu- tæki sem vinna með staffænt mynd- efni þannig að stafræn vinnsla er ekki eingöngu bundin við tölvur. Eitt af þeim vandamálum sem menn standa frammi fyrir er að ef þeir ætla að geyma mikið af staf- rænu efni á tölvum er slík geymsla mjög kostnaðarsöm. Verð á diskum er enn ekki orðið svo hagstætt að það geti keppt við geymslu efnis á spólum. Mikið af myndefni er nú klippt í tölvum og öll grafik er unnin þar líka. Mjög fljótlega mun almenning- ur hafa aðgang að öflugum tölvum og hugbúnaði sem bæði getur klippt mynd og hljóð. Hægt er að fá svokölluð „Virtual Studio“. Þar er leikmyndin alger- lega sett upp í tölvu en t.d. fréttaþul- ir eða aðrir sem verið er að mynda eru í nánast auðum sal. Myndin af þeim og leikmyndin, sem búin er til í tölvu, er síðan skeytt saman af mjög öflugri tölvu í rauntíma og út- koman síðan sent út. Þetta þýðir að enginn kostnaður er við leikmynda- gerð en tækjabúnaðurinn er mjög dýr þannig að það eru bara stærstu sjónvarpsstöðvamar sem nota þetta, stöðvar á borð við BBC, sem býr til leikmynd fyrir fréttatíma sína með þessari tækni. Með allri þessari tækni mundi síðan útsendingarstjórnin verða nánast mannlaus. Þá munu tölvur og þar til gerður hugbúnaður ná í efni og gögn af diskum stórra net- þjóna eftir fyrirframgerðum dag- skrárlista og búa efhið til útsending- ar,“ sagði Torfi H. Leifsson, hjá tæknideild Stöðvar 2, að lokum. Þróunin í sjónvarpsmálum er geysilega hröð um þessar mundir og auðvelt er að missa sjónar á öllum nýjungunum þegar yfir mann dem- -* bast orð og skammstafanir á borð við gagnvirkni, DVD, gagnvarp, PPV, VOD og annað í þeim dúr. Torfi H. Leifsson, yfirmaður tölvudeildar Stöðvar 2, tók vel í að upplýsa blaðamann um hvað væri hér að ræða. „Framtíðarsjónvarp mun að miklu leyti byggjast á gagnvirkni, þ.e. að notendur geti sent upplýsing- ar til baka um dreifinet. Leikir, þátttaka áhorfenda í dagskrárefni, t.d. spennuþáttum, uppsetning á eig- in dagskrá og sýndarverslanir munu setja mark sitt á framtíðina og þykja þar sjálfsagður hlutur. Engu máli skiptir hvemig gögnin koma, hvort það verður á Intemet- inu, þráðlaust með sjónvarpsútsend- ingum eða á annan hátt. Fólk mun geta mótað og tekið þátt í dag- skránni. Einfold mötun verður þó ekki úr sögunni því sumir vilja bara láta mata sig og hafa engan áhuga á gagnvirkni. Það breytist þó hægt og sígandi með komandi kynslóðum sem alast upp i tölvuheimi," sagði Torfí. Digital Video Disks * (DvD) „DVD-diskar (Digital Video Disks) munu taka við af hinum hefðbundnu CD-diskum mjög fljót- lega. Hægt er að sækja gögn margf- alt hraðar út á DVD-disk heldur en hefðbundinn CD-disk. DVD-diskarn- ir eiga að vera bæði hljóð- og mynd- geymsla. Það sem háir CD-diskum er að upphaflega vora þeir hannað- ir fyrir geymslu á hljóði en ekki sem gagnageymsla fyrir t.d. tölvu- gögn. í dag er verið að vinna að staðlag- erð fyrir DVD, en þessi vinna er á lokastigi. Framleiðendur eins og Philips og Toshiba leggja mikla áherslu á að hægt sé að spila gömlu ** CD-diskana í nýju DVD-spilurun- um. Þessir spilarar munu fara í sölu á þessu eða næsta ári og talið er að um aldamótin verði búið að selja um 100 milljón tæki. Til samanburð- ar má geta þess að í dag hafa verið seldir um 40 milljón CD-spilarar.“ Data Broadcasting „Data Broadcasting, sem kannski má kalla gagnavarp, felst í því að gögn eru send með sjónvarpsmerk- fylgjast með ýmsum vísbendingum sem koma jafnt og þétt inn. Og hvað auglýsingar varðar er hægt að ná í aukaupplýsingar, t.d. um bíl. Hægt væri að skoða fleiri liti, önnur mód- el, myndir af bíl með aukahlutum, skoða bílinn í þrívídd o.s.frv. Sjón- varpsstöðin NBC er núna með til- raunaverkefni í gangi í Bandaríkj- unum.“ Pay PerView „Bein þýðing er „greitt fyrir áhorf ‘ " og byggist á því að sjónvarpsstöðvar auglýsa að ákveðnir atburðir eða bió- myndir verði sýndar á tilteknum degi og tíma. Áhorfendur geta pantað áhorf á atburðinn eða myndina en fá þá eingöngu að horfa á þann dag- skrárlið. Þetta virkar eins og að fá sér vídeóspólu, nema hvað ekki þarf að fara út á vídeóleigu. Hins vegar er fólk bundið af þeim tima sem atburð- tn-inn er auglýstur á. Þetta hefúr ver- ið leyst með því að sýna sömu mynd- ina, sé um bíómynd að ræða, mjög ört, jafnvel á hálftima fresti. PPV er í notkun víða um heim.“ inu, samanber textavarpið, og síðan er sérstakur móttakari, t.d. kort í tölvu, sem tekur við þessum hluta merkisins, eða samhliða sjónvarps- útsendingu væri „upplýsingaút- sending“ á Internetinu. Þetta býður upp á marga möguleika til að auka við þær upplýsingar sem koma fram á skjánum. Tökum sem dæmi frétt- ir. Samhliða eða eftir fréttinni er hægt að skoða mjög ítarlegan texta, t.d. alls konar bakgrunnsupplýsing- ar eða myndir sem tengjast fréttinni á einhvem hátt. Þegar horft er á iþróttafréttir má fá ítarlegar upplýsingar um allt sem tengist atburðinum sem verið er að sýna, t.d. upplýsingar um leikmenn, tölfræði, leiki liðanna, pöntun á miða á leiki og fjöldamargt annað sem maður sér t.d. núna á Intemet- inu. Þegar horft væri á spennuþætti gætu áhorfendur leyst gátuna með- an á þættinum stæði með því að Torfi H. Leifsson, yfirmaöur tölvudeildar Stöövar 2, útskýröi undraheima nútímatækni í sjónvarpi. Snjöll geisladiskageymsla Radíóbær hefur umboð fyrir CD Projects en það fyrirtæki framleiðir geymslur fyrir geisladiska. Fyrir- tækið var stoftiað af bandarískum hönnunamema sem fékk það verk- efni að búa til geymslur fyrir geisla- diska. Tillaga hans var svo vel heppnuð að hann stofnaöi fyrirtæki um hana. í dag er CD Projects stórt nafn á þessu sviði þannig að snilli hins unga hönnunamema hefur heldur en ekki borgað sig. Það segir meira en mörg orð að fyrirtækið framleiðir meðal annars geymslur sem geta geymt 150 diska og bækumar sem fylgja með þeim. CD Projects framleiðir einnig fjöldann allan af töskum og stöndum fyrir geisladiska.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.