Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1996, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 tækni 31 Nýjungar hjá RÚV: Margt í deiglunni Fylkir Þórisson hjá tæknideild Ríkisútvarps og sjónvarps sagði að menn væru að huga aö mörgum nýj- ungum þó að engin formleg ákvörð- un hefði verið tekin um hvenær nýj- ungarnar kæmu til eða hvernig þær yrðu framkvæmdar. Það sem einna helst væri verið að athuga núna í útvarpsmálum væri nokkuð sem kallað er RDS sem eru upplýsingar í FM-merkinu í út- varpssendingunni. Þar kemur fram um hvaða sendi er að ræða, hvert sé innihald dagskrárinnar og annað í þeim dúr. Með útvarpstækjum, sem eru útbúin fyrir þetta, má ná þess- um upplýsingum og nú þegar er þetta kerfi mikið notað I Þýskalandi og öðrum Evrópuríkjum. Stöðvaleit gerð óþörf RDS vinnur þannig að út- varpstækið færir sig sjálfkrafa yfir á næsta sendi um leið og einn dett- ur út sem kemur t.d. í veg fyrir að leita þurfi að næsta sendi á útvarp- inu þegar verið er að keyra á lands- byggðinni. Útvarpstækið heldur sig því við sömu dagskrá en leitar jafn- óðum uppi hvaða sendi skal nota. Eins og gefur að skilja er þetta mjög til þæginda þeim sem ferðast í bíl. Framhald á þessu sama er að það eru settar inn svokallaðar „dínamískar" upplýsingar sem eru um hvað viðkomandi dagskrá inni- heldur, hvort það eru fréttir, létt tónlist, sígild tónlist eða hvað ann- að. í framhaldi af því má stilla út- JBL á afmæli í tilefni af hálfrar aldar afmæli sínu hefur JBL aftur komiö með á markaðinn hina sigildu Century hátalara en nú í sérstakri lúxusútgáfu sem nefnist Century Gold. Century Gold hátalaramir eru með 5 tommu Kevlar miðdrægi og einnar tommu titanium hátíðnihom. Rathlöðnu víxltengingamar eru síðan sagðar halda minnstu afbökun á hljóði í skefjum. Og svona fýrir glæsileikann | er ytri umbúnaður úr mahoníi. En þessir há- j talarar eru ekki gefnir; j settið af þeim kostar rúma 5 þúsund dollara út úr búð í Bandaríkjun- um. miHHK mummmmmvmmtmimmrn Stöð 3: Leggjum áherslu á greiðsluvarp - segir Þórarinn Ágústsson hjá Stöð 3 Þórarinn Ágústsson, yfirmaður tæknideildar Stöðvar 3, sagði að stöðin stefndi að því að verða öflug- asti og áhrifamesti ljósvakamiðill- inn hér á landi þar sem sérstaða og styrkur félagsins byggðist á því að vera ábyrg íslensk stöð þar sem vönduð íslensk dagskrá og valfrelsi viðskiptavinarins væri haft að leið- arljósi. „Eins og nafn félagsins bendir til hyggst það bjóða upp á margvísleg- ar nýjungar sem ný tækni í miðlun afþreyingar, fræðslu, menningar- efnis og frétta býður upp á.“ „Gengið hefur nú verið frá kaup- um á einu fullkomnasta myndlykla- kerfi sem fáanlegt er á almennum markaði í dag og eru um sjö milljón- ir myndlykla þessarar gerðar í notk- un í Evrópu. Myndlyklarnir eru með sérstakan búnað sem gefur áhorfandanum kost á að velja sér kvikmyndir eða þætti, svokallað „pay per view“ eða greiðsluvarp. Slík þjónusta nýtur nú viða vaxandi vinsælda. Þannig er lögð áhersla á að áhorfendur geti valið sér efni sem þeim hentar á þeim tíma sem þeir óska sér með einstökum val- möguleikum sem nýr myndlykill Stöðvar 3 býður upp á. Áskrifendur munu hringja í sérstakt símanúmer stöðvarinnar, gefa upp myndlykla- númer, leyninúmer og númer þeirr- ar kvikmyndar eða dagskrárliðs sém þeir kaupa sérstaklega. Ólíkt öðrum áskriftarkerfum á markaðin- um er þetta kerfi mjög einfalt og varpstækið þannig að það finni t.d. bara stöðvar sem eru með fréttir og þá leitar leitartækið að fréttum ein- göngu. Enn sem komið er er þessi tækni ekki orðin mjög algeng en menn eru að byrja að þreifa sig áfram með þetta. Tæknin er til en það sem helst vantar er að fram- leidd séu útvarpstæki sem geti nýtt sér hana. Annað sem er á leiðinni hvað varðar útvarpssendingar er svokall- að DDAB (Digital Audio Broa- dcasting) en nú er verið að gera til- raunir með DDAB í Evrópu. Þama er um að ræða stafrænar útvarps- sendingar sem hafa þann kost að möguleiki gefst til að hafa marga senda á sömu tíðninni en þá er kom- ið í veg fyrir að þeir trufli hver ann- an auk þess sem tóngæði eru mun meiri. Þetta er mikill kostur, sérstaklega í þéttbýli, og eins að það er hægt að koma mörgum sendingum á sama sendinum. Þannig gætu rásir 1, 2, 3 o.s.frv. verið allar verið á sama sendinum. Byrjað er að gera til- raunir með þetta en tæknin er ekki langt komin. Þó er farið að senda út með þessu kerfi á Indlandi og í Sví- þjóð en það sem helst stendur aukn- ingu fyrir þrifum er að útvarps- tækjaframleiðendur em tiltölulega stutt á veg komnir og em tækin enn sem komið er stór og þunglamaleg í sniðum. Fylkir segir að mikið sé verið að hugsa um DDAB núna, þó svo að við sé að búast að nokkur ár Fylkir Þórisson hjá tæknideild Ríkisútvarps og sjónvarps. DV-mynd ÞÖK séu í að það verði algengt. Breiðtjaldsform á myndum Fylkir segir að sömu hugmyndir séu uppi hvað sjónvarpið varðar. Þar er til nokkuð sem heitir DVB (Digital Video Broadcasting) og býð- ur upp á margar rásir á sama send- inum. Gallinn er að slíkt kerfi kall- ar á nýtt sendinet um landið allt sem er mjög stórt skref. Það sem liggur nær i tíma eru hlutir eins og annað form á mynd, þ.e. að hún verði 16x9 í stað þess að vera 4x3 eins og hún er í dag. Það er svona nokkurs konar breiðtjaldsskjár þannig að hlutföllin eru önnur og eru slíkar sendingar hafnar í Evr- ópu. Fylkir segir það umhugsunarefni hvenær þessi tækni komi hingað þannig að á því verði að taka. En þetta kostar ný tæki hjá notendum og breytingu á sendum. Ekkert er þó búið að ákveða hvað verður gert og hvenær. Fylkir segir að núna sé verið að ræða hugmyndir enda sé tæknin í stöðugri þróun. Ríkisútvarpið er nú komið með heimasíðu á Internetinu þar sem hægt er hlusta á fréttir. Einnig stendur til að setja þar inn texta- varpið og segir Fylkir þessa þjón- ustu vinsæla hjá íslendingum er- lendis. -ggá skilvirkt fyrir notandann og getur það þjónað mjög mörgum áskrifend- um á stuttum tíma.“ Þórarinn sagði að íslenska sjón- varpið hf., fyrri rekstraraðili Stöðv- ar 3, hefði stefnt frá upphafi að því að bjóða upp á fjölrásamyndlykil með PPV-möguleika. Sökum van- efnda framleiðenda var samningi við hann rift vegna þess að sú lausn sem í boði var takmarkaðist við mjög þröngt útsendingarsvið. „Það hefur það í för með sér að mikill minnihluti sjónvarpstækja getur móttekið sjónvarpsefni á því tíðnisviði,“ sagði Þórarinn. Misvísandi upplýsingar Nokkur umfjöllun hefur verið um það í fjölmiðlun að hér á landi sé í notkun afruglarabúnaður sem bjóði upp á fjölrásamöguleika. Þórarinn sagði þær upplýsingar vera mjög misvísandi því þeim búnaði fylgdi ofangreindur annmarki, þ.e. að ein- ungis lítUl hluti sjónvarpstækja á markaðnum getur móttekið sjón- varpsefhi um kerfið. „Gríðarlegir möguleikar liggja í nýrri tækni á sviði margmiðlunar, þótt of snemmt sé að upplýsa um einstaka þætti og fyrirætlanir Stöðvar 3 á því sviði. Þó munu áskrifendur stöðvarinnar smám saman verða varir við nýjungar sem ekki hafa hingað til staðið til boða á íslenskum sjónvarpsmark- aði,“ sagði Þórainn að lokum. -ggá TOSHIBA Pro - Drum myndhausin NOl á Topp 10 listanum hjá WHAT VIDEO «5 Topp 10 á forsíðu TOSHIBA videotækin eru meö PRO-DRUM myndhausnum - bylting frá eldri geröum, betri myndgæði, 40% færri hlutir, því minni bilanatíðni. Kynntu þér TOSHIBA tækín - 6 gerðir. Toshiba V-205w, PRO - Drum, Long play, NTSC afspilun Kr. 38.610 ttgr. Borgartúni 28 g 562 2901 og 562 2900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.