Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1996, Blaðsíða 5
28
29
+
MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1996 MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1996
íþróttir
DV
Iþróttir
Sigurliö Sundfélags Hafnarfjaröar sem tryggöi sér sigur í bikarkeppninni í sundi um helgina annaö áriö í röö. SH barðist um titilinn viö Ægi og vann gulliö eftir spennandi keppni.
DV-mynd S
Rúnar ræðir við
forsetann hjá AIK
Rúnar Kristinsson, landsliðsmaöur í knattspyrnu, hefur fengið leyfi
hjá Örgryte til að ræða við forseta AIK á morgun.
Forráðamenn AIK hafa mikinn áhuga á að kaupa Rúnar frá Örgryte
en ákvæði í samningi hans við Örgryte virtist á tímabili ætla að koma í
veg fyrir að hann kæmist til annarra liða. Með þvi að leyfa Rúnari að
ræða við AIK virðast forráðamenn Örgryte hafa mildast í afstöðunni. til
Upplýsingar veita:
Birgir Örn í síma
588 2239 eftir kl. 20.30
og Eggert í síma
586 1213 eftirkl. 20.00.
Sundfélag Hafnaríjarðar bcu- sigur úr býtum í bik-
arkeppninni í sundi sem lauk í Sundhöll Reykjavíkur
í gærkvöld. SH háði harða keppni um sigurinn viö
Ægi en hafði betur i síðustu greinum mótsins. Ágæt-
ur árangur náðist í mörgum greinum miðað við árs-
tíma en ekkert íslandsmet var sett. Hins vegar litu
nokkur meyja- og sveinamet dagsins ljós. Þetta er
annað árið í röð sem bikarinn fer í Hafnarfjörð og
greinilegt á öllu að vel er haldið á spöðunum í sund-
málum í Hafnarflrði. Góð breidd skilar bikarnum aft-
ur til SH og ungt og efnilegt sundfólk setur skemmti-
legan svip á þetta sterka lið Hafnfirðinga.
Unglingalandsliðsmaðurinn Öm Arnarson tryggði
sér sæti í A-landsliðshópi meö góðum árangri í 200
metra baksundi. Hér er á ferð mikið efni sem keppir
ásamt fjórum sundmönnum á Evrópumóti í
sprettsundum í Rostock í næsta mánuði. Hann sló
gamalt met Eðvarðs Þórs Eðvarðssonar.
Takmarkiö aö komast á Ólympíuleikana í
Sydney áriö 2000
„Ég stefndi að því að synda 200 metra bakið undir
2,05 og það gekk eftir. Ég bjóst hins vegar ekki við
svona góðum árangri í öðrum greinum. Auðvitað var
takmarkið alltaf að komast einhvem tímann í lands-
liðið og það var gaman að það tókst í þessari keppni.
Að baki þessa árangurs okkar í SH liggja þrotlausar
æfingar og erfiði. Það er ágætlega hlúð að okkur í
Hafnarfirði og efniðviðurinn er góður þannig að við
getum sagt að bjart sé fram undan í sundinu i bæn-
um. Takmark mitt í framtíðinni er að komast á
Ólympíuleikana í Sydney árið 2000. Ég er bjartsýnn á
að þau áform mín gangi eftir. Það fer mikill tími í æf-
ingar en það er þess virði,“ sagði Öm Arnarson, hinn
15 ára gamli sundmaður, í samtali við DV eftir bikar-
keppnina í gærkvöld.
Lokastaöan í 1. deild
SH sigraði bæði í karla- og kvennaflokki og hlaut
samtals 27.742 stig. Ægir var í öðm sæti með 27.212
stig, Keflavík í þriðja sæti með 25.727 stig, ÍA í fjórða
sætinu með 22.657 stig, UMSK í fimmta sætinu með
21.443 stig og B-lið Ægis rak lestina með 21.210 stig og
féll í 2. deild.
Knattspyrnudeild Austra, EskifiröL V#
óskar eftir framkvæmda-
stjóra og þjálfara
yngri flokka.
Upplýsingar
gefur Jóhann
ísíma 476 1101
eöa 476 1110.
Jöfn og spennandj keppni var í mörgum greinum í bikarkeppninni í sundi sem fram fór í Sundhöll Reykjavíkur um helgina.
Ekkert íslandsmet féll í flokki fullorðinna en yngra sundfólkið var iðið við að bæta íslandsmetin í sínum aldursflokkum.
DV-mynd S
t ■
Knattspyrnuþjálfari óskast
Knattspyrnudeild Víkings í Ólafsvík
óskar eftir aö ráöa
þjálfara fyrir meistaraflokk
karla og yngri flokka félagsins.
í bikarkeppninni.
Richard Kristinsson og Sigurgeir Þór Hreggviðsson
náðu báðir góðum árangri í 1500 metra skriðsundi
sem nægði þeim til að komast í A-landsliðshópinn.
Eydís Konráðsdóttir og Hjalti Guðmundsson keppa
einnig á EM í Rostock.
-JKS
Ármann vann sig upp í 1. deild en liðið hafði betur
í slagnum við Selfoss. Armann hlaut 21.692 stig og Sel-
foss 21.390 stig í öðru sætinu. UMFN lenti í þriðja sæti
með 18.496 stig, KR í fjórða sætinu með 18.031 stig, Óð-
inn í fimmta sæti meö 16.351 stig, Vestri í sjötta sæti
með 9.677 stig, UÍA í sjöunda sætinu með 8.157 stig,
Þór, Þorlákshöfn, í áttunda sætinu með 6.438 stig, ÍBV
í níunda sæti með 5.531 stig og Kormákur
í tíunda sæti með 4.555 stig en liðið var
aðeins með kvennasveit í keppninni.
Allt viömót gagnvart sundinu
hefur gjörbreyst í Hafnarfiröi
„Æfmgar eru alltaf að aukast og þær
skila okkur þessum bikar i annað sinn í
röð. Við stefndum að því að verja bikar-
inn og ég vil meina að hópurinn sé
sterkari í dag en hann var í fyrra. Það er
unnið gott starf í sundmálum í Hafnar-
firði og enn fremur er foreldrastarfið öfl-
ugt sem er ekki lítis virði. Allt viðmót
gagnvart sundinu hefur gjörbreyst í Hafn-
arfirði eftir að við unnum bikarinn í fyrsta sinn í
fyrra. Ég hvíldi ekkert fyrir bikarkeppnina en ég á eft-
ir að gera það fyrir Evrópumótið í næsta mánuði. Ég
er bjartsýn á góðan árangur þar. Umfram allt er það
takmarkið hjá okkur öllum sem fara þangað," sagði
Elín Sigurðardóttir úr SH í samtali við DV eftir mót-
ið, en hún halaði inn mörg dýrmæt stig fyrir félag sitt
1. deild kvenna:
Valur náði
jafntefli
í Víkinni
Víkingur og Valur skildu
jafnir, 14-14, í leik liðanna í 1.
deild kvenna í handknattleik um
helgina. Víkingar höfðu
frumkvæðið í fyrri hálfleik og
leiddu í hálfleik með þremur
mörkum, 8-5. Valsstúlkur mættu
beittar til leiks i síðari hálfleik
og unnu upp forskot Víkings.
Kristín Guðmundsdóttir og
Heiða Erlingsdóttir skoruðu
flögur mörk hvor fyrir Víking en
Sigurlaug Kristjánsdóttir var
markahæst Valsstúlkna með
fjögur mörk.
Haukastúlkur, sem sitja í
toppsætmu, unnu yfirburðasigur
á Fylki, 13-30, og hafa tekið
fjögurra stiga forskot í deildinni.
Hulda Bjarnadóttir skoraöi 9
mörk fyrir Hauka, Thelma
Árnadóttir 7, Judith Estergal 4,
Kristín Konráðsdóttir 3, Harpa
Melsteð 3, Auður
Hermannsdóttir 3 og Ragnheiður
Guðmundsdóttir 1.
Anna G. Halldórsdóttir var
markahæst hjá Fylki með 5
mörk.
-JKS
1. DEILD KVENNA
17 Haukar9 8 1 0 238-145
Stjarnan 8 6 0 2 195-145 12
Víkingur 9 5 2 2 160-147 12
FH 8 4 2 2 158-150 10
KR 7 4 1 2 130-137 9
Fram 7 2 2 3 120-122 6
ÍBV 8 3 0 5 153-178 6
ÍBA 9 2 2 5 169-208 6
Valur 9 1 2 5 139-164 4
Fylkir 8 0 0 8 140-207 0
2. deild karla:
Hörður lá
tvívegis
Fjórir leikir vora í 2. deild
karla í handknattleik um
helgina. ÍH sigraði Hörð frá
ísafirði, 27-21, í Hafnarfirði.
Þór frá Akureyri vann HM,
27-23. Hörður lék annan leik í
suðurferðinni, mætti þá
Víkingum og tapaði stórt, 35-14,
og KR sigraöi Ármann, 38-26.
Vikingur og Þór era með fullt
hús stiga, Víkingur er með 16
stig eftir átta leiki og Þór með 14
stig eftir sjö leiki.
í þriðja sæti kemur
Breiöablik með 10 stig og KR í
fjórða sæti, einnig með 10 stig.
-JKS
Blak:
Þróttur N.
í efsta sæti
Lið Stúdenta í blakinu gerði
góða ferð til Akureyrar um
helgina þegar liðið sigraði KA,
1-3, á íslandsmótinu. Sömu liö
áttust við í 1. deild kvenna og
þar sigruðu Stúdínur, 0-3.
Staðan í 1. deild karla er sú að
Þróttur Neskaupstað er í efsta
sæti með 18 stig, Þróttur úr
Reykjavík er í öðra sæti með 13
stig, ÍS 7 stig, KA 6 stig og
Stjaman 2 stig.
í 1. deild kvenna eru Stúdínur
í efsta sæti með 13 stig, Þróttur
Neskaupstað 11 stig, Víkingur 0
stig ogKAO stig.
-JKS
6 ára uppbyggingarstarf að skila sér
„Þegar liða fór á haustið gerðmn við okkur
grein fyrir að það væri vel hægt að vinna sigur
í bikamum annað árið í röð. Þetta var spenn-
andi keppni og ekkert var öraggt fyrr en í lok-
in. 5-6 ára uppbyggingarstarf er farið að skila
sér. Auðvitað koma fleiri þættir inn í þennan
árangur, eins og foreldrastarf og gott stjórnar-
samstarf þar sem unnið hefur veriö markvisst
að þvi að koma þessum árangri í höfn. Áhuginn
á sundinu í Hafnarfirði jókst töluvert eftir að
Elín Sigurðardóttir fór á Ólympíuleikana í Atl-
anta og sigurinn í bikarnum í fyrra ýtti einnig
á áhuga unga fólksins. Við erum þegar búnir að
sprengja utan af okkur alla hópa og vantar orð-
ið nýja laug. Við eigum í dag eina bestu aðstöð-
una á landinu - tvær sundlaugar alveg út af fyr-
ir okkur. Vandamálið er að okkur vantai- tíma
þegar við eram með flestar æfingar í gangi. Við
höfum gantast með það að það þurfi orðið nýja
laug i Hafharfirði en það era ábyggilega tíu ár í
þaö. Sundið í Hafnarfirði hefur meðbyr og enn
fremur hefur það fengið góðan stuðning frá
styrktaraðilum sem ber að þakka fyrir," sagði
Magnús Þorkelsson, formaður SH.
„Eigum stórefnilegt sundfólk"
„Við verðum að hlúa að okkar unga sundfólki
eins og kostur er. Við eigum stórefnilegt
sundfólk sem við megum alls ekki missa frá
okkur. Þetta var góð keppni og öllum til sóma,“
sagði Sævar Stefánsson, formaður SSÍ, í samtali
viö DV.
-JKS
Tímabilið
búið hjá
■■■ JC ■ *
Eiði Smara
- þarf í annan uppskurð
„Það lítur út fyrir að keppnistímabilið sé búið hjá mér. Ég get ekki séð
aö ég nái að vera með á tímabilinu eftir að þetta kom í ljós,“ sagði knatt-
spymumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen í samtali við DV í gærkvöld en
hann leikur sem kunnugt er með hollenska félaginu PSV Eindhoven.
í ljós hefur komið að Eiður Smári þarf að fara í aðra aðgerð en hann
ökklabrotnaði þann 7. maí sl. vor og hefur ekkert æft eða leikið síöan.
„Það sem hefur gerst er að sperrileggurinn og sköflungurinn hafa gróið
saman og það gengur vitanlega ekki. Það þarf að skera í þetta og fjarlægja
stykkið þama á milli. Ég verð i gifsi í sex vikur og mun ekki geta byrjað
að æfa fyrr en eftir þrjá mánuði, eða í lok febrúar. Það eru því allar likur
á að þetta tímabil sé úr sögunni hjá mér en það kemur annað timabil eftir
þetta,“ sagði Eiður Smári í gærkvöld. -SK
Patrekur og
Róbert með tvö
Patrekur Jóhannes-
son skoraði tvö mörk
þegar Essen sigraði lið
Hameln í þýska hand-
boltanum um helgina.
Lokatölur urðu 26-25
fyrir Essen.
Róbert Sighvatsson
og Schutterwald eiga
ekki sjö dagana sæla í
deildinni og töpuðu
enn einum leiknum
um helgina. Nieder-
wurzbach sigraði
Schutterwald, 35-22,
og skoraði Róbert tvö
markanna fyrir
Schutterwald.
GWD Minden lék
gegn Magdeburg á úti-
velli og sigraði, 23-32.
Sigurður Bjamason
var ekki á meðal
markaskorara í leikn-
um. Loks tapaði
Fredenback fyrir Dor-
magen, 21-19.
Lemgo er enn efst
með 18 stig. Minden er
í 7. sæti með 12 stig og
Essen i 8. sæti með 11
stig. Fredenbeck og
Schutterwald era sem
fyrr á botninum með 4
stig.
-SK
Bikarinn aftur til
- hörð keppni um sigurinn á milli SH og Ægis. Margt ungt og efnilegt sundfólk að koma fram í sviðsljósið