Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Page 5
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996
Rúnar Júlíusson lætur ekki deigan síga
Hjartastyrkjandi stuðplata
„Það voru einir fjórtán til fimmt-
án höfundar sem ég leitaði til um
efhi. Nokkrir voru svo önnum kafn-
ir við eigin plötur að þeir höfðu
ekki tíma til að semja fyrir mig,
menn eins og Magnús Eiríksson og
Megas. En þeir tóku vel í hugmynd-
ina og það getur vel verið að ég geri
svipaða plötu einhvem tíma síðar.
Þá verða þeir áreiðanlega með.“
Þetta segir Rúnar Júlíusson um
hvemig það atvikaðist að sundur-
leitur hópur lagasmiða leggur hon-
um til efni á nýrri plötu hans, Með
stuð í hjarta, sem var að koma út.
Þama koma við sögu
menn á borð við
Bubba Morthens,
Sverri Stormsker,
Kristján Hreins-
son, Þorstein Eg-
gertsson, Larry
Otis, KK og
fleiri. Sjálfur set
ur Rúnar mark
sitt á flest lögin,
ýmist sem laga-
eða textahöfund-
ur.
„Ég var
búinn að
ir hjartaaðgerð í sumar. Hann segist
óðum vera að ná sér eftir þá þol-
raun, spilaði til dæmis á þriggja og
hálfrar klukkustundar dansleik í
einni striklotu um síðustu helgi og
segist ekkert hafa haft fyrir því.
„Ég gekk á öllum á eftir,“ segir
hann og hlær.
Kirkjutónleikar
Rúnar segist þó eingöngu láta sér
nægja að koma fram um helgar. Á
föstudags- og laugardagskvöldum er
hann á skemmtistöðum - verður til
að mynda fastamaður á Hótel ís-
landi fram til jóla. En á sunnu-
dögum í desember kemur
hann fram á tónleikum í
Keflavíkurkirkju og syng-
ur jólatónlist með kór og
hljómsveit. Auk þess
vera
nokk-
„Það koma út hjá mér þrjár
geislaplötur til viðbótar núna fyrir
jólin,“ segir hann. „Þetta eru safn
tuttugu þekktra laga með Gylfa Æg-
issyni í tilefni þess að hann varð
fimmtugur núna í nóvember. Hann
nefhist Tuttugu bestu köstin. Þá gef
ég aftur út þrjú ævintýri sem Gylfi
samdi tónlist við á sínum tíma og
loks kemur út síðasta plata hljóm-
sveitarinnar Trúbrots. Hún nefnist
Mandala og kom upphaflega út árið
1972.“
Þegar Mandala er komin út á
geisladiski eru öll lög sem Trúbrot
hljóðritaði á ferli sínum komin út.
Rúnar segir að það hafi tafist um
nokkur ár að gefa hana út þar eð
fjölrásabönd, sem platan var hljóð-
rituð á, voru týnd og komu ekki í
leitimar þrátt fyrir ítarlega eftir-
grennslan. Rúnar segir að hehning-
hafi reyndar fundist en á
endanum hafi verið
ákveðið að
vinna geisla-
disksútgáf-
una eftir
svo-
nefndu
master-
bandi.
Rúnar Júlíusson: Gefur út fjórar plötur á Geimsteinsmerkinu fyrir þessi jól.
lengi með þá hugmynd í kollinum
að gera plötu sem þessa og lét loks-
ins verða af því eftir að ég neyddist
til að taka mér dálítið frí frá störf-
um,“ segir Rúnar og vísar með þeim
orðum til þess að hann gekkst und-
að leika og syngja tónlist sinnir
Rúnar einnig útgáfumálum hjá fyr-
irtæki sínu, Geimsteini. Hann gefur
að sjáifsögðu sjálfur út plötu sína,
Með stuð í hjarta, og hann er með
fleiri jám í eldinum.
DV-mynd GVA
„Ég læt mér nægja að gefa þessar
fjórar plötur út að þessu sinni,“ seg-
ir gamla kempan Rúnar Júliusson,
„en held að sjálfsögðu ótrauður
áfram á næsta ári.“
-ÁT
Todmobile af stað á ný:
Jólagjöf til Selfyssinga
Todmobile er aftur komin í sviösljósiö og þó aö liöskipan sveitarinnar sé
nokkuö breytt er greinilegt aö hún á sér enn mikinn fjölda aödáenda. Ekki er
viö öðru aö búast en aö þeim fjölgi enn eftir aö hún hefur dansleikjahald á
nýjan leik.
Það verður stuð á Selfossi laugar-
daginn 7. desember enda ætlar
hljómsveitin Todmobile að halda
fyrsta dansleik sinn í þrjú ár þar í
bæ. Dansleikurinn verður haldinn
á Hótel Selfossi enda hefur sveitin
Stjömugjöf
tónlistargagnrýnenda
Óútgáfuhæf
★ Slæm
Slök
★★ í meðallagi
★ ★^V Sæmileg
★★★ Góð
★★★★ Frábær
★★★★ Meistaraverk
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu þegar
plata Dúettsins Tromp, Myndir,
var dæmd í síðsta Fjörkálfi að of
margar stjömur vom settar við
plötudóminn. Gefið var til kynna
að platan Myndir ætti að fá þijár
og hálfa stjömu þegar hún átti
einungis að fá tvær. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
verið þekkt fyrir að slá í gegn þar.
Slíkur er völlurinn á aðstandend-
um dansleiksins að þeir tala um
jólagjöf til Selfyssinga.
Full ástæða er fyrir íbúa Suður-
lands að skella sér á tónleika Tod-
mobile enda hafa margir dansleikir
hljómsveitarinnar á Hótel Selfossi
þótt vera mjög skemmtilegir. Það er
annars helst að frétta af Todmobile
að í gær hélt sveitin eftirminnilega
tónleika í íslensku Ópemnni og
geislaplata sveitarinnar, Perlur og
svín, hefur gengið mjög vel í tónlist-
arþyrsta ísléndinga. Sérstaklega
hefúr lagið Voodooman vakið at-
hygli en lagið prýðir nú íslenska
listann sem er í Fjörkálfi DV í dag.
Sennilega munu fleiri lög sveitar-
innar komast þangað ef að líkum
lætur.
-JHÞ
27
HLJÓMPLpTU
Jóhann Helgason - KEF
Poppmeistari ★★★
Einfaldar, ljúfar og gríp-
andi laglinur hafa alla tíð
verið aðalsmerki Jóharms
Helgasonar frá þvi að hann
kom fram á sjónarsviðið
fyrir aldarfjórðungi með
Magnúsi Þór félaga sínum
og söng braginn um Mary
Jane. Lögin tíu á KEF eru
úr sama mótinu, tímalaust
popp, jafn nútímalegt eða
gamaldags og alla jafna, í
svipuðum anda og Diane
Warren, Patrick Leonard og
fleiri höfundar senda frá sér eins og væru þau í ákvæðisvinnu. Það
sanna sér í lagi ópusar eins og Think It Over og Bid Me to Live.
Jóhann Helgason hefur verið lítt áberandi hin síðari ár, átt lag og
lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins og víðar en ekki látið frá sér fara
einherjaplötu i langan tíma. Fyrir vikið var kominn tími á plötu eins
og KEF. Hópur ungra hlustenda veit varla hver Jóhann er og aðra
rámar kannski í hann þegar gamalt Change-lag hljómar eða eitthvað
með Magnúsi og Jóhanni. KEF færir okkur hins vegar engan nýjan
sannleika um lagahöfundinn, söngvarann og hljóðfæraleikarann Jó-
hann Helgason. Hann er jafhlaginn við poppmelódíuna og fyrr,
hvorki betri né verri. Ásgeir Tómasson
Ýmsir - Jólahátíð:
Vel heppnuð jólablanda ★★★
Torfi Ólafsson er tónlistar-
maður sem ekki hefur mikið
farið fyrir, en af og til, allt
frá því um miðjan áttunda
áratuginn, hefúr hann látið
að sér kveða. Það sem grein-
ir Jólahátíð frá öðrum jóla-
plötum er að inni á milli er
upplestur á Ijóðum og sögum
sem tengjast jólahátíðinni og
þar munar um minna en að
hafa jafn frábæran upplesara
og Hjalta Rögnvaldsson leik-
ara.
Á plötunni eru fjögur frumsamin lög eftir Torfa Ólafsson, hvert
öðru betra, og er ástæða til að nefna sérstaklega Jólakvöld, sem hann
samdi við hið þekkta ljóð Davíð Stefánssonar. Pálmi Gunnarsson
flytur það lag mjög vel og strax á eftir les Hjalti ljóðið upp og skap-
ast þar góð tenging. Sama aðferð er einnig viðhöfð við hið klassíska
jólalag Sigvalda Kaldalóns, Nóttin var sú ágæt ein, við ljóð Einars
Sigurðssonar.
I raun hefur hvert lag og hver upplestur það mikla sérstöðu að
vert hefði verið að Qalla um hvert fyrir sig en það yrði of langt mál.
En sérstaklega ber að geta frábærs flutnings Sigrúnar Hjálmtýsdótt-
ur á Ave Maria eftir Schubert og þátt flautuleikarans Martials Nar-
deau í einstaka lögum. Platan er löng eða rúmar 70 mínútur en að-
eins gat ég fundið eitt lag sem hefði mátt sleppa. Er það er Herra Jóli,
jólatexti við gamla slagarann Mr. Sandman. Það er erfitt að tengja
þetta lag jólunum. Jólahátið endar eins og vera ber á því að Hjalti
Rögnvaldsson les Jólaguðspjallið. Þegar öllu er á botninni hvolft þá
er hægt að mæla með Jólahátíð sem jólaplötunni í ár.
Hilmar Karlsson
Dog Eat Dog - Play Games
Rapp-rokk-skrimsli!
Hljómsveitin Dog Eat Dog á
sér breiðan aðdáendahóp þar
sem bæöi rapparar og hörð-
ustu rokkarar finna sig í tón-
list sveitarinnar. Á síðustu
árum hafa komiö fram hljóm-
sveitir sem hafa reynt að
bræða saman þessar hörðu
tónlistarsteftiur með misjöfn-
um árangri, t.d. Rage Against
the Machine, Faith no more
og Red Hot Chily Peppers.
Dog Eat Dog skipa sér í hóp
þessara sveita en auk hinnar
hefðbundnu rapprokk-blöndu
koma þeir með sterk áhrif úr nýju bandarísku pönkbylgjunni þannig
að á köflum minnir tónlist sveitarinnar á tónlist Offspring, Weezer
o.fl. Auk þess er hijóðfæraskipan Dog Eat Dog æði óvenjuleg - yfir
öllu rapprokkinu flýtur iðulega nettur tenórsaxófónn með melódíska
blúsfrasa!
Á þessari plötu Dog Eat Dog reynir hljómsveitin virkilega á þan-
þol þessarar frumlegu tónlistarsteftiu, án þess þó að fara nokkru
sinni út fyrir hana. Það sem vekur fyrst eftirtekt er margbreytilegur
söngur en auk aðalsöngvara hijómsveitarinnar, Johns Connors, eru
tveir aðrir liðtækir söngvarar innan sveitarinnar, þeir Dave Nea-
bore bassaleikari og saxófónleikarinn/hljómborðsleikarinn Scott
Mueller. í laginu Games fá þeir síðan til liðs við sig rokkgoðið
Ronnie James Dio og einnig íþróttafréttamanninn Ian Eagle sem lýs-
ir frammistöðu sveitarinnar í laginu... ótrúleg blanda!
Hljóðfæraleikurinn er þéttur og kraftmikill og gengur allur út á
að mynda öflugan rytma undir rappið. Sérstakt hrós fær trommu-
leikarinn sem sína snilldartakta í kaflaskiptingum og kúvendingum
tónlistar Dog Eat Dog. Lögin eru stutt og kraftmikil og vekja undar-
lega hreyfiþörf hjá hlustendum. Textar Dog Eat Dog eru hnitmiðaðir
og undirtónninn er mjög alvarlegur þrátt fyrir spaugilegan og fjörug-
an flutning. Magnús Þór Ásgeirsson