Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Side 9
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996
helgina >
Húsgögn úr rekaviði
Frank Reitenspiess, þýskur myndlistarmaður, opnar á morgun sýn-
ingu á húsgögnum unnum úr íslenskum rekaviði í gullsmiðju og list-
munahúsinu Ófeigi á Skólavörðustig 5.
Frank er búsettur hér á landi og hefur undanfarið ár hannað og
smíðað húsgögn úr íslenskum reka. Hönnun þessi hefur þá sérstöðu að
ekki er um fjöldaframleidda hluti að ræða, hver hlutur er einstakur og
efhið í hann sérstaklega valið af kostgæfiii. Frank leggur áherslu á að
veðrað yfirborð rekans njóti sín og kallar hráleika efnisins enn fremur
fram með því að tefla saman ólíkum efnum. Hver hlutur hefur sína sér-
stöku sögu þrátt fyrir að vera nýsmíðaður.
Sýningin verður opnuð kl. 17.00 en annars opin á verslunartima og
lýkur 23. desember.
-ilk
Sögustund fyrir
börnin
Hún amma í Réttarholti býður
yngstu kynslóðina velkomna í sögust-
und á morgun. Amma, sem hefði orð-
ið 100 ára 2. desember, veit ekkert
skemmtilegra en að fá góöa gesti og
nú hefur hún fengið til liðs við sig þau
Aðalstein Ásberg, Önnu Cynthiu og
Harald S. Magnússon. Aðalsteinn og
Anna munu lesa úr eigin verkum en
úr bók Haralds mun söguhetjan sjáif,
hann Ragnar Tómas, flytja valda
kafla. -ilk
Vertíðarskáld lesa í
Akraborginni
Á morgun ætla nokkur vertíðar-
skáld á siglingu í jólabókaflóðinu.
Þau Bragi Ólafsson, Elísabet Jökuls-
dóttir, Linda Vilhjálmsdóttir og Öss-
ur Skarphéðinsson stiga þá á skips-
fjöl og lesa úr verkum sinum um
borð í Akraborginni. Þá mun Hrafn
Jökulsson lesa úr bók Iliuga bróður
síns og þjóðsögum Jóns Múla Áma-
sonar. Lesið verður í hálffjögur ferð-
inni upp á Skaga og fimm feröinni
til Reykjavíkur. Allir eru velkomnir
svo lengi sem skipsrúm leyfir.
-ilk
Skúlptúrsýning
framlengd
Skúlptúrsýning Guðbjargar
Hlífar Pálsdóttur, myndhöggv-
ara, í Listasafni Kópavogs, hefur
verið framlengd til 16. desember.
Sýningin var opnuð 16. nóvem-
ber og ætlunin var að henni lyki
1. desember. Hún hefur vakið
mikla og verðskuldaða athygli
svo ákveðið var að framlengja
hana. Guðbjörg Hlíf hefur tekið
þátt í tveimur samsýningum en
þetta er önnur einkasýning
hennar. Öll verkin á sýningunni
eru unnin úr birkikrossviði og
jámi. -ilk
Öll verkin á sýningunni eru unn-
in úr birkikrossviði og járni, þar á
meöal þetta.
Kúrekaball á
Selfossi
Það nýjasta í skemmtana-
flóm landans í dag eru kúreka-
línudansamir. Fólk flykkist í
þúsundavís i dansskólana að
læra þá en hefur hingaö til haft
fá tækifæri til að iðka fót-
menntina. Nú á að bæta úr því.
Jóhann Örn danskennari og
Danssmiðja Hermanns Ragnars
ásamt hljómsveitinni The
Farmalls mun halda kúrekaball
á Inghóli á Selfossi á morgun.
Þess má til gamans geta að
hljómsveitin The Farmalls er
eina alvöru línudansahljóm-
sveitin á íslandi.
Jóhann Öm og DHR verða
með glæsilega línudansasýn-
ingu og á eftir verða undir-
stöðuatriðin i dansinum kennd
en sagt er að fólk læri þau á
einni mínútu. The Farmalls
mun svo halda uppi stuðinu
fram á nótt.
-ilk
Hópdáleiðari á heimsmælikvarða
Terry Ranch heitir dávaldur nokkur sem mættur er til íslands til að sýna
Islendingum listir sínar. Hann er útskrifaður sem dávaldur úr alþjóðlegum
skólum á Englandi og á Spáni og er talinn vera einn fljótasti hópdáleiðari í
heiminum í dag. Terry hefur hjálpað þúsundum manna að hætta ýmsum
ósiðum eins og til dæmis reykingum.
Undanfarinn áratug hefur áhugi dávaldsins beinst að sýningarstörfum og
kemur hann reglulega fram á alþjóðavettvangi er hann skemmtir við stór-
sýningar, svo sem í Las Vegas og Atlantic City. Hann hefur einnig verið með
fasta dagskrá á skemmtiferðaskipinu Queen Elisabeth.
Terry þessi mun standa fyrir sýningum í Loftkastalanum um helgina þar
sem hann hyggst sýna listir sínar með aðstoð áhorfenda. Áhorfendur sem
koma upp á svið þurfa því að vera viðbúnir ýmsu!
Sýningamar verða sem hér segir: í kvöld kl. 23.00, á morgun kl. 20.00 og
23.00 og á sunnudag kl. 17.00.
Terry Rance verður einnig á Café Royale, Strandgötu 28 í Hafnarfirði, á
sunnudaginn og hefst sýning hans þar kl. 21.00.
-ilk
Síðustu sýningar á Gullna hliðinu
Halaleikhópurinn hefur undanfarið verið með sýningar á Gullna
hliðinu eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. Fatlaðir jafnt sem ófatl-
aðir hafa tekið þátt í sýningunni og hefur hún hlotið frábærar viðtök-
ur. Nú um helgina verða síðustu sýningar á verkinu og því ekki
seinna vænna að fara að sjá þaö.
Sýnt verður í kvöld klukkan 20.30 og á sunnudaginn klukkan 15 og
20.30. Miðaverð er 1000 krónur.
-ilk
Söngsveitin Fílharmónía veröur meö aöventutónleika í Grensáskirkju á sunnudaginn klukkan 20.30. Sigrún Hjálm-
týsdóttir sópransöngkona mun syngja einsöng en einnig verður kammersveit Grensáskirkju á staönum. Stjórnandi
er Bernharður Wilkinson. Aögöngumiöar aö tónleikunum veröa seldir í bókabúðinni Kilju, Háaleitisbraut 58-60, hjá
kórfélögum og viö innganginn. Miöaverö er 1200 krónur. Á mánudag og miövikudag veröa tónleikarnir svo endur-
teknir.
jBOÐ
Takt’anatieim
* £t . _ - m/2 áleggst. +
16 pizzu
franskar
(bara þegar sótt er)
NÝBÝLAVEGI 16