Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 32 myndbönd - lék í átta ár barþjóninn í Staupasteini Allt frá þvi hin vinsæla sjón- varpssería, Staupasteinn (Che- ers), hætti hefur Woody Harrelson einbeitt sér að kvikmyndaleik og náð bestum árangri á þeim vettvangi af þeim þekktu sjónvarpsleikurum sem léku í Staupasteini. Nýtur hann í dag bæði vinsælda og virðingar sem áræðinn og dug- mikill leikari. Það er víst óhætt að segja að Woody Harrelson hafi ekki farið troðnar slóðir í vali stjamanna í Hollywood og gerði hann mun eftirsóttari en áður. Hef- ur hann nú leikið i hverri mynd- inni á fætur annarri og þótt ekki sé búið að frumsýna Larry Flynt vs. the People þá er þegar farið að tala um að leikur Harrelson sé óskarsverðlaunanna virði. Það kemur svo fljótt í ljós hvort satt er því myndin verð- ur frumsýnd í þessum mán- uði í Bandaríkjunum, hún er ein af stóm jólamyndunum vestra. Hermdi eftir Elvis Presley „Woodrow Harrelson fæddist í Midland, Texas, en ólst upp í Le- banon, Ohio. Þegar hann var sjö ára var faðir hans dæmdur fyrir manndráp og tíu árum síðar var hann dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að drepa dómara. í fyrstu fengu Woody og bræður hans tveir aðeins að vita að faðir þeirra væri farinn að heiman en eftir seinna morðið var ekki hægt að leyna sann- leikanum fyrir drengjunum og skiljan- lega á hlutverkum, hann hefur leikið hverja furðupersónuna á fætur annarri á undanfömum misserum. Er skemmst að minnast hins sam- viskulausa morðingja í Natural Bom Killers, fyrmm atvinnuspil- ara í keilu í Kingpin og nú síðast Larry Flynt í Larry Flynt vs. the People. Flynt er milljarðamæring- ur sem varð ríkur á útgáfú karla- tímaritsins Hustler. Á hann að baki dramatískan og furðulegan feril í einkalífinu. Aftur á móti í Money Train, sem er í öðru sæti myndbandalistans þessa vikuna, má segja að Harrelson sé á kunnug- legri slóðum en í henni leika hann og Wesley Snipes tvær löggur sem freistast til að ræna lest með mik- illi peningaupphæð. Það hefur kostað Harrelson ýmislegt að leika persónur sem eru ógeðfelldar. Hann sóttist til að mynda eftir því að fá hlutverk lög- fræðingsins unga í A Time to Kill en höfundur bókarinnar, John Grisham, sem hafði úrskurðarvald um hvaða leikarar léku í mynd- inni, sagði það ekki koma til greina að Harrelson léki lögfræðinginn og var það vegna óbeitar á Natural Bom Killers sem Grisham segir að hafi leitt til vofbeldisöldu og grimmdar hjá ungu fólki. Hefur hann staðið í ritdeilum við Oliver Stone út af boðskap þeirrar mynd- ar. Woody Harrelson hefur ekki skipt sér af þessum ritdeilum en þótt hann hafi vegna myndarinnar misst af tækifærinu til að leika í A Time to Kill þá er það staðreyndin að það var Natural Born Killers sem festi hann í sessi meðal stóm hafði þetta mikil áhrif á uppeldi bræðranna. Woody Harrelson var villtur unglingur og fljótur að koma sér í vandræði. Leikhæflleikar hans komu þó snemma í Ijós og í einu villtu samkvæmi, sem hann tók þátt í, fór hann upp á borð og hermdi eftir Elvis Presley. Honum tókst svo vel upp að félagar hans sögðu honum endilega að reyna fyrir sér í skemmtanabransanum. Af því varð þó ekki strax þar sem Woody fór í framhaldsnám í Hannover háskólann í Indiana. Bóklegt nám átti þó ekki við hann og hann innritaði sig í leiklistar- deild. Þegar námi lauk ákvað hann að reyna fyrir sér í New York. í eitt ár barðist hann við að hafa fyrir mat og fötum án þess að nokkuð gengi á leiklistarsviðinu. Þegar hann var tilbúinn að gefa allt upp á bátinn og fara heim var honum boðið hlut- verk í Biloxi Blues eftir Neil Simon. Hjólin fóru nú að snúast honum í hag og eftir að hafa leikið nokkur hlutverk fékk hann boð um að leika barþjóninn Woody Box í Staupasteini. Heillaður af leikhúsinu Það kom fljótt í ljós að aðstand- endur Staupasteins höfðu valið rétt þegar þeir völdu Woody Harrelson, hann jók á vinsældir þáttanna og brátt fóru kvikmyndaframleiðend- ur að bjóða honum hlutverk. Áður en Woody Harrelson tók að sér að leika í Staupasteini hafði hann leikið smáhlutverk í einni kvik- mynd, Wildcats, sem Michael Ritchie leikstýrði með Goldie Hawn í aðalhlutverki. í Wildcats var einnig annar leikari að leika eitt sitt fyrsta hlutverk í kvikmynd, Wesley Snipes, en þeir félagar áttu svo eftir að gera garðinn frægan saman í tveimur kvikmyndum, White Men Can’t Jump og Money Train. Fyrsta kvikmyndahlutverk Harrelson eftir að hann var orðinn frægur sjónvarpsleikari var í L.A. Story þar sem hann lék á móti Steve Martin. Woody Harrelson er í dag meðal hæst launuðu kvikmyndaleikara en það hefur samt ekki komið í veg fýrir að hann leikur jöfnum hönd- mn á sviði. í fyrra fór hann meira að segja I heimabyggð sína og lék aðalhlutverk í uppsetningu leik- ritsins The Diviners á vegum há- skólans sem hann stundaði nám í. í Los Angeles lék hann í Furthest From the Sun, leikriti sem hann samdi og leikstýrði. Þá lék hann í Brooklyn Laundry á móti Glenn Close og Laura Dem og í Zoo Story eftir Edward Albee, svo að eitthvað sé nefnt. Hér á eftir fer listi yfir þær kvik- myndir sem Woody Harrelson hef- ur leikið í en þær er flestar hægt að fá á myndbandaleigum: Wildcats, 1986 L.A. Story, 1991 Doc Holliwood, 1991 White Men Can't Jump, 1992 Indecent Proposal, 1993 The Cowboy Way, 1994 Natural Born Killers, 1994 Money Trains, 1995 Kingpin, 1995 The Sunchaeser, 1996 Larry Flynt vs. the People, 1996 -HK Þegar Woody var sjö ára var faðir hans dæmdur fyrir mann- dráp og tíu árum síðar var hann dæmdur í ævilangt fang- elsi fyrir að drepa dómara. í fyrstu fengu Woody og bræður hans tveir aðeins að vita að faðir þeirra væri farinn að heiman en eftir seinna morðið var ekki hægt að leyna sann- leikanum fyrir bræðrunum. Snorri Steinn Guðjónsson: Voðaverk 2. Hún var allt í lagi. Torfi G. Yngvarsson: Pocahont- as á ensku. Hún var tryllt. Bjarney Guðmundsdóttir: Kids. Hún var rosalega góð. Hrafhhildur Sigurðardóttir: Birdcage. Hún var mjög góð. Sköllóttur Woody Harrelson ásamt Randy Quaid í Kingpin. Larry Flynt vs. the People gerist að hluta til í réttarsölum og eins og sjá má kom Larry Flynt ekki alltaf fram í hefðbundnum klæðum. Á myndinni eru Ed- ward Norton og Woody Harrelson í hlutverkum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.