Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1996, Side 12
» myndbönd ** * NDl ÍJi íJ i 11 Qefore and After flst og siðfræði Þessi hádramatíska mynd er gerð eftir metsölubók eftir Rosellen Brown og fjallar um fjölskyldu i smábæ í Bandaríkjunum sem gengur í gegnum erfiða tíma. Ben og Carolyn Ryan eru miðstéttarhjón sem eiga son og dóttur. Sonur þeirra hverfur á sama tíma og lík unglingsstúlku finnst úti á víðavangi. Hefst þá lögreglurannsókn og leit að syninum sem er grunaður um ódæðið. Ben viil standa með syni sínum, sama hvað hann hefur gert. Hann eyðileggur sönnunargögn, lýgur að lögreglunni og neitar að bera vitni, allt til að reyna að koma í veg fyrir að hægt sé að sakfella soninn. Carolyn hins vegar viil að sannleikurinn komi fram og að sonur þeirra taki ábyrgð á gerðum sínum hafi hann gert eitthvað rangt. Myndin veltir fram nokkuð áleitnum spurningum og tekur ekki afgerandi afstöðu heldur eftir- lætur það áhorfendunum. í lok myndarinnar má segja að sannleikurinn sigri en fjölskyldan verður að gjalda nokkuð fyrir. Ennfremur er mestan part stýrt fram hjá óþarfa væmni sem gefur sögunni aukinn trúverðugleika. Edward Furlong stendur sig vel í hlutverki sonarins en stjömurnar eru Meryl Streep og Liam Neeson í hlutverki foreldranna. Meryl Streep er traust að vanda en Liam Neeson ber af í magnaðri túlkun á ráðvilltum og örvæntingarfuilum föðumum. Before and After er mjög umhugsunarverð mynd. Úgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Barbet Schroeder. Aðalhl: Liam Neeson, Meryl Streep og Edward Furlong. Bandarísk, 1995. Lengd: 104 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ Down Periscope: Gamlar lummur Kelsey Grammer, sem flestir þekkja sem komplexaða sálfræðinginn Frasier úr samnefiidum þáttum og Staupasteini, er loksins orðinn nógu vinsæll til að fá kvikmynd gerða utan um sig. Hann leikur snjallan en agalausan kafbátaforingja með áhöfn sem samanstend- ur af fautum, fíflum og furðufúglum. Einn af yfirmönn- um hans hefur horn í síðu hans og vili losna við hann. Yfirmaðurinn býr því svo um hnútana að Frasier, ég meina John Dodge, er fenginn í hendur dísilryðkláfur og látinn fá hér um bil ómögulegt verkefni í heræfingu nokkmri. Frasier og áhöfnin yfirvinna auðvitað allar hindranir og plata fúlu yfirmannahræsnarana upp úr skónum. Svona til að áhafharmeðlimum leið- ist ekki er fengin íðflfögur snót til að vera fyrsta kona í áhöfn kafbáts í sögu bandaríska kafbátaflotans. Eins og sést að ofan er söguþráðurinn mjög í stfl Police Academy myndanna og fleiri slíkra og grínið er litlu fágaðra. Mynd- in er fremur lítið fyndin, þó eru nokkrar persónumar broslegar. Kokkurinn og lúðinn, sem heyrir aflt, era einna skástir. Frasier er bara Frasier eins og vanalega en sorglegt er að sjá Harry Dean Stanton þarna þótt hann lífgi upp á þau fáu atriði sem hann kemur fram í. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: David S. Ward. Aðalhlutverk: Kelsey Grammer. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ Sgt. Bilko: ■trtrk Herbúðafarsi Steve Martin náði miklum vinsældum á tímabili eft- ir mörg kostuleg hlutverk í frábærum grínmyndum en ferifl hans hefúr dalað nokkuð eftir leik í miðlungs- myndum. Sgt. Bilko er skref upp á við því að myndin er frískleg og skemmtileg og sömuleiðis Steve Martin í sinu hlutverki. Liðþjálfinn Bilko er yfirmaður á bif- reiðaverkstæðinu í rannsókna- og þróunarstöð hersins í Fort Baxter. Hins vegar veit hvorki hann né neinn annar á verkstæðinu neitt um bfla en því meira um veðmál, fjárhættuspil og ýmsa aðra auðgunarklæki. Tvöföld ógn vofir yfir staðnum í formi majórs nokkurs, sem kemur tfl stöðvarinnar til að meta gagnsemi hennar, en skýrsla hans gæti orðið til að stöðinni yrði lokað. Ennfremur er hann gamafl erkióvin- ur liðþjálfans Bilkos og reynir hvað hann getur tfl að klekkja á honum. Eft- ir miklar hrakfarir nær Bilko loks að snúa leiknum sér i hag, stöðin fær að standa, Bilko verður hetja og vondi majóriim fær makleg málagjöld og er sendur til Grænlands (gott að það var ekki ísland). Formúlan er kunn- ugleg og aukaleikaramir þetta dæmigerða samansafn furðufugla en grínið er gott. Myndin stendur og fellur með Steve Martin sem bregst ekki í þetta skiptið og tekur hlutverk sitt öruggum höndum. Útg.: CIC myndbönd. Leikstjóri: Jonathan Lynn. Aðalhlutverk: Steve Martin. Bandarísk, 1995. Lengd: 90 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -PJ Tár úr steini Lrfshlaup tónskálds ★★* Tár úr steini segir frá islenska tónskáldinu Jóni Leifs, sem giftist Annie Riethof, sem var þýskur píanisti og gyð- ingur. Við upphaf myndarinnar er kona Jóns fræg og eft- irsótt en Jón Leifs, þótt eftirsóttur sé sem stjómandi fýr- ir klassísku verkin, fær engin tækifæri til að stjórna eig- in verkum. Svo fer að hann snýr heim til íslands um hrið en á meðan taka nasistar völdin í Þýskalandi. Þegar Jón kemur aftur til Þýskalands kemst hann að því að konan hans fær engin verkefni lengur og dætur hans eru ofsótt- ar. Með þáttöku í nasistaáróðri fær Jón frið fyrir nasist- unum og tækifæri tfl að stjóma verkum sínum með atvinnumannahljóm- sveit. Að lokum tekst honum að komast með fjölskyldu sína úr landi en þá er hjónabandið ónýtt þvi kona hans getur ekki sætt sig við gjörðir hans í Þýskalandi. Myndin gerir sig seka um groddalega hetjudýrkun og gerir nán- ast dýrling úr Jóni Leifs. Fyrir vikið verður hún fremur ótrúverðug sem söguleg mynd. Einnig er hún nokkuð hæggeng á köflum en í staðinn er hún mjög fagmannlega unnin. Listræn atriði em vel útfærð og þá sérstaklega tónlistaratriðin. Þá er leikur í flestum tilvikum tfl fyrirmyndar sem er afar óvanalegt í íslenskum myndum. Þröstur Leó Gunnarsson er öflugur, sér- staklega í byrjun, en persónunni hrakar þegar fegrun hennar kemst í há- mæli. Best er þó Bergþóra Aradóttir, sú yngsta í leikhópnum, og hreint ótrú- legt að horfa upp á dramatíska leikhæfileika hennar. Útg.: Stjörnubíó. Leikstj.: Hilmar Oddsson. Aðalhl.: Þröstur Leó Gunnars- son. Þýsk/íslensk, 1995. Lengd: 98 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ IfiSfe a assaa gpg' Tar l,Rí>l cjNI FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1996 26.nóv.-02.desember SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 1 3 2 ’ Executive Decision i Warner -myndir Spenna 2 2 ■PBbBSl bbmmbBBMB Money Train ' mmm Skífan % ' - ~ - Spenna NY 1 Primal Fear ClC-myndbönd Spenna 4 3 t}J£'í£í3S±l 2 Dead Presidents Sam-myndbönd Gaman 5 9 2 j Nick of Time ClC-myndbönd Spenna 6 4 5 Birdcage Warner -myndir Spenna 7 5 3 Rumble in the Bronx . Skífan Spenna 8 Ní 1 1 Down Periscope j Skrfan Gaman 9 8 3 Vampire in Brooklyn ClC-myndbönd Spenna ttmgggm 10 - 2 Dracula: Dead and Loving it Háskólabíó Gaman n 6 6 12 Monkeys ClC-myndbönd Gaman 12 18 2 Santa Clause Sam-myndbönd Spenna 13 7 7 Broken Arrow Skífan Gaman m * ■ 1 1 Hackers Warner -myndir Gaman 15 n 4 ....... Two Much Stjömubío I Drama A' 16 13 i : ' ' ‘ 8 Get Shorty Wamer -myndir Spenna 17 12 5 Things To Do In Denver... Skrfan Spenna 18 öKsöílÍi&l?* M Grumpier Old Men Warner -myndir Gaman 19 15 6 Up Close And Personal Myndform Spenna 20 17 2 White Squal Myndform Spenna Spennutryllirinn Executive Decision heldur enn fyrsta sætinu og annar spennutryllir, Money Train, er áfram í öðru sæti. í þriðja sæti kemur ný mynd, Primal Fear, réttarhaldsdrama með Richard Gere í aðalhlutverki og á myndinni sjáum við hann í réttar- salnum. Tvær aðrar nýjar myndir koma inn á listann. í 8. sæti er gamanmyndin Down Periscope með hin- um vinsæla sjónvarpsleikara Kelsey Grammer í aðal- hlutverki. Hann leikur kafbátaforingja sem þarf að sanna sig á gömlum jálki úr síðari heimsstyrjöldinni. í 14. sæti er svo Hackers, sem fjallar um tölvuséni, heiðarleg og óheiðarleg. DECISION Slip Sf|tSl o Executive Decision Kurt Russell og Steven Seagal Hryðjuverkamenn hafa náð Boeing 747 þotu á sitt vald og eru með óaðgengileg- ar kröfur. Um borð er sprengja og er ekkibaralíf farþega í hættu heldur 40 milljóna manna sem búa á austurströnd Bandaríkjanna, en sprengjan er fyllt með taugagasi sem fer út í andrúmsloft- ið. Eina færa leiðin tfl að koma í veg fyr- ir þessa hættu er að lauma rnn. borð sex manna liði meðan vélin er á flugi og af- vopna hryðjuverka- mennina. Money Train Wesley Snipes og Woody Harrelson Þeir frægu leikar- ar Wesley Snipes og Woody Harrelson leika vini sem eiga sér þann draum að ræna „peningalest- ina“, en það er sú lest sem safúar sam- an peningum af neð- anjarðarjámbrautar- stöðvum í New York. En ekki er nóg með að það sé erfitt, það gerir málið enn flóknara að þeir em lögreglumenn. Stóra vandamálið er þó yfirmaður þeirra, en hans stolt er að aldrei hefur lestin verið rænd og hann mun veija lestina með kjafti og klóm. Primal Fear Richard Gere, Ed- ward Norton og Laura Linney Dag einn er ungur altarisdrengur hand- tekinn á flótta eftir morð á biskupi borg- arinnar. Refurinn Martin Veil þykir með snjöllustu lög- fræðingum borgar- innar og hann sér þarna frábært tæk- ifæri til að komast í sviðsljósið og sækist þvi eftir að gerast verjandi pfltsins. Málið verður þó flóknara en hann hélt í byijun þar sem það er eitthvað í fari piltsins sem segir að hér séu maðkar í mysunni. Hann hef- ur því sína eigin rannsókn á málinu. Dead Presidents Larenze Tate og Chris Tucker Anthony er skarp- ur átján ára drengur sem býr í Bronx- hverfinu í New York. Honum standa flest- ar dyr opnar en í stað þess að halda námi áfram ákveður hann að ganga í her- inn. Þegar hann snýr tfl baka er veröld hans gjörbreytt. Þeg- ar Anthony missir vinnuna ákveður hann að taka þátt í áætlun til að næla sér í nokkra „dauða forseta" en það er slanguryrði yfir seðla sem á em myndir af forsetum Bandaríkjanna. Nick ofTime Johnny Depp, Christopher Wal- ken og Marsha Mason Bókarinn Gene Watson er staddur á lestarstöð í Los Ang- eles ásamt sex ára dóttur sinni þegar glæpamenn taka dóttur hans í gísl- ingu. Honum er gert ljóst að eftir 90 mín- útur verði dóttir hans líflátin fari hann ekki að vilja þeirra. Honum er af- hent öflug byssa og mynd af þingkon- unni Elenor Grant sem á að halda ræðu skammt frá. Hann á að myrða hana. Þá hefst spennandi kapphlaup við tím- ann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.