Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Blaðsíða 2
26
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
Iþróttir______________________________________________ ________ dv
Borðtennis:
A-lið Víkings
í efsta sæii
1. deildar
A-liö Víkings er í efsta sæti
þegar fyrri umferðinni í 1. deild
karla í borðtennis er lokið. A-lið
Víkings er með 8 stig, C-lið Vík-
ings er í öðru sæti með 7 stig og
KR er í þriðja sæti einnig með 7
stig.
Guömundur efstur
Punktahæsti leikmaðurinn í
meistaraflokki karla er íslands-
meistarinn Guðmundur Steph-
ensen, Víkingi, með 72 punkta.
Ingólfur Ingólfsson, Víkingi,
kemur næstur með 33 punkta og
Kristján Jónasson, Víkingi, er í
þriðja sæti með 24 punkta.
-GH
Keila:
Lærlingar með
mjög örugga
forystu
Eftir 11 umferðir í 1. deild
karla í keilu er lið Lærlinga í
efsta sæti með 70 stig. Storm-
sveitin er í öðru sæti með 58 stig,
PLS í þriðja sæti með 56 stig, A-
lið KR í fjórða sæti með 54 stig
og Keilugarpar í fimmta sæti
með 46 stig. í 11. umferðinni,
sem var sú síðasta fyrir jól, urðu
úrslitin þannig: Keilugarpar-A-
lið KR 8-0, A-lið Keflavíkur-Úlf-
arnir 8-0, Stormsveitin-Keilu-
landssveitin 6-2, PLS-KR-b 8-0,
Lærlingar-Þröstur 8-0, Keilu-
böðlar-RT 4-4.
Freyr á hæsta skorið
Freyr Bragason úr Lærlingum
á hæsta skor vetrarins eða 279
stig. Ásgrimur Helgi úr Storm-
sveitinni á hæstu seríu eða 677
stig, Jón Ólafur Árnason úr A-
liði Keflavíkur á hæsta meðaltal,
199 stig, og hann á einnig flestar
fellur að meðaltali eða 8,5.
-GH
Knattspyrna:
Gunnar þjálfar
Aftureldingu
Gunnar Örn Gunnarsson hef-
ur verið ráðinn þjálfari 4. deild-
ar liðs Aftureldingar í knatt-
spyrnu. Gunnar Öm þjálfaði
Víkinga síðustu vikurnar í sum-
ar og var áður með Leikni úr
Reykjavík.
Meistarar Jap-
ans eru úr leik
Asíumeistararnir í knatt-
spymu, Japanar, ná ekki að
verja titil sinn því þeir töpuðu
fyrir Kúveit, 2-0, í 8 liða úrslit-
um Asíubikarsins í Sameinuðu
furstadæmunum í gær. Kúveit
mætir gestgjöfunum í undanúr-
slitunum en þeir sigruðu írak,
1-0, í gær.
íran mætir Suður-Kóreu og
Sádi-Arabía mætir Kína í dag í
leikjum um hin tvö sætin í und-
anúrslitunum.
-VS
Handbolti:
Montpellier
í þriðja sæti
í Frakklandi
Geir Sveinsson og félagar í
Montpellier eru komnir í þriðja
sæti frönsku 1. deildarinnar í
handknattleik eftir sigur á
V’dAsco á útivelli, 15-20. Creteil
hefur unnið alla 14 leiki sína og
er með 42 stig, US d’Ivry er með
40 stig og síðan koma Montpelli-
er og Paris SG með 32 stig.
-VS
Þýski handboltinn:
Patti skoraði sjö
gegn Flensburg
- dugði þó skammt og Essen tapaði, 24-27
Sjö mörk frá Patreki Jóhann-
essyni dugðu skammt þegar Essen
tapaði á heimavelli fyrir Flensburg,
24-27, í þýsku úrvalsdeildinni í
handknattleik um helgina. Patrekur
var markahæstur hjá Essen en hjá
Flensburg var danski landsliðsmað-
urinn Christian Hjermind marka-
hæstur með 7 mörk og þýski lands-
liðsmaðurinn Jan Fegter skoraði 6.
Eftir gott gengi framan af mótinu
hefur Essen gengið frekar illa og er
liðið um miðja deild.
Sigurður Bjamason og félagar
hans í Minden hafa verið að gera
Patrekur Jóhannesson.
ágæta hluti upp á síðkastið. Liðið er
í efri helmingi deildarinnar eftir
jafntefli, 25-25, gegn Nettelstedt. Sig-
urður var ekki á meðal markaskor-
ara hjá Minden.
Héðinn Gilsson og samherjar
hans í Fredenbeck eru í botnsætinu
en liðið tapaði enn einum leiknum i
gær, nú fyrir Grosswallstadt á
heimavelli, 33-25.
Schutterwald, lið Róberts Sig-
hvatssonar, átti frí um helgina, svo
og lærisveinar Kristjáns Arasonar í
Wallau Massenheim.
-GH
ÞYSKALAND
Nettelstedt-Minden.........25-25
Essen-Flensborg............24-27
Lemgo-Magdeburg ...........22-20
Dormagen-Hameln............24-19
Niederwtirzb.-Rheinhausen . . . 28-21
Grosswallstadt-Fredenbeck . . . 33-25
Gummersbach-Kiel...........28-26
Staöan eftir 12 umferðir (Lemgo og
Massenheim innbyrðis leik til góða):
Lemgo 11 327-241 22
Niederwtirzbach 12 305-266 17
Flensburg 12 304-267 16
Massenheim 11 287-277 15
Kiel 12 317-275 15
Minden 12 319-300 15
Nettelstedt 12 317-303 14
Grosswallstadt 12 310-314 12
Essen 12 296-303 11
Magdeburg 12 285-299 11
Dormagen 12 250-286 10
Gummersbach 12 271-289 9
Rheinhausen 12 279-310 9
Schutterwald 12 294-326 6
Hameln 12 272-309 5
Fredenbeck 12 253-321 4
Handknattleikur:
Þær dönsku
urðu meistarar
Teitur aftur til
Grikklands
DV, Suðurnesjum:
Teitur Örlygsson, landsliðsmaður í
körfuknattleik, hélt til Grikklands i gær
eftir að hafa fengið staðfestingu á þvi að
hann hefði fengið greidd laun frá félagi
sínu, Larissa. Teitur hefur dvalið hér
heima undanfarna daga en nú er ljóst
að hann heldur áfram að spila með
gríska liðinu.
Grindavík og Njarövík voru í
startholunum
Að minnsta kosti tvö íslensk lið voru
í startholunum með að fá Teit til liðs
við sig ef hann hefði ekki farið aftur
utan. Grindvíkingar höfðu mikinn hug
á að krækja í Teit, samkvæmt heimild-
um DV, og að sjálfsögðu hans gömlu fé-
lagar í Njarðvík. -ÆMK
Teitur Örlygsson.
Danska kvennalandsliðið í hand-
knattleik bætti enn einni skraut-
fjöðrinni í hatt sinn í gær þegar lið-
ið tryggði sér Evrópumeistaratitil-
inn á heimavelli sínum í Dan-
mörku.
Dönsku stúlkurnar, sem áttu Evr-
ópumeistaratitil að verja auk þess
sem þær urðu ólympíumeistarar í
Atlanta í sumar, unnu sigur á
Norðmönnum í úrslitaleik, 25-23.
Kvennhandknattleikur á miklum
vinsældum að fagna í Danmörku og
hafa stúlkurnar í landsliðinu algjör-
lega skyggt á karlaliðið enda hafa
þær náð frábærum árangri i grein-
inni á undanfömum árum.
í leik um bronsverðlaunin sigraði
Austurríki lið Þýskalands, 30-23.
Rúmenar báru sigurorð af Króöt-
um í leik um 5. sætið, 23-17. Rússar
lögðu Svía, 32-28, i leik um 7. sætið.
Ungverjarland sigraði Úkraínu í
leik um 9. sætið, 27-22, og Pólland
vann sigur á Litháen í leik um 11.
sætið, 30-27. -GH
ROMftHm
tAiúrnót *
Evrópumeistari í víðavangshlaupi
lulia Negura frá Rúmeníu tryggir sér sigurinn á Evrópumeistaramótinu í
víöavangshlaupi kvenna sem fram fór í Charleroi í Belgíu í gær. Hún hljóp 5
km á 16,58 mínútum og varð sex sekúndum á undan Söru Wedlun frá Sví-
þjóö. Julia Vaquero frá Spáni varö þriðja. Símamynd Reuter
Norömenn fagna sigri á Ítalíu
Norömenn fagna sigri á heimsbikarmóti í 4x10 km skíöagöngu á Ítalíu í gær.
Frá vinstri: Kristen Skjeldal, Björn Dæhlie, Anders Eide og Egil Kristiansen
Símamynd Reuter
Brunað út úr brautinni
Max Rauffer frá Pýskalandi missir jafnvægiö og keyrir út úr brautinni meö
tilþrifum á heimsbikarmóti í bruni sem fram fór í Val d’isere í Frakklandi í
gær. Sigurvegari í bruninu varö Fritz Strobl frá Austurríki.
Símamynd Reuter