Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Síða 4
28
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
29
íþróttir
Grindavík(Sl) 111
KR (48) 106
5-2, 23-2, 26-15, 35-22, 35-29, 49-12
(51-18), 53-53, 64-57, 64-67, 87-84,
94-84, 101-99, 107-99, 111-106.
Stig Grindavíkur: Helgi Jónas
Guðfinnsson 32, Herman Myers 31,
Marel Guðlaugsson 21, Páll Áxel Vil-
bergsson 16, Unndór Sigurðsson 5,
Jón Kr. Gíslason 4, Bergur Hinriks-
son 2.
Stig KR: David Edwards 38, Jónat-
an Bow 22, Hermann Hauksson 21,
Birgir Mikaelsson 10, Hinrik Gunn-
arsson 6, Óskar Kristjánsson 5, Ingv-
ar Ormarsson 4.
Fráköst: Grindavík 42, KR 23.
3ja stiga körfur: Grindavík 23/12,
KR 24/10.
Vítanýting: Grindavík 18/12, KR
21/16.
Dómarar: Helgi Bragason og Ge-
org Andersen, áttu ekki góðan dag.
Áhorfendur: Um 200.
Maöur leiksins: Helgi Jónas
Guðfinnsson, Grindavík.
Spenna í
Grindavík
DV, Suðurnesjum:
Grindvlkingar lögöu KR-inga i
æsispennandi leik í gærkvöldi
eftir að hafa náð fráhærum kafla
í byrjun leiks og komist í 23-2.
KR-ingar sýndu hins vegar mik-
inn styrk með því að jafna leik-
inn og komast yflr. Grindvíking-
ar léku hins vegar agaðan körfu-
bolta á lokakaflanum á meðan
KR-ingar voru of æstir og tóku
léleg skot.
Helgi Jónas Guðfinnsson átti
frábæran leik með Grindavík og
skoraði 6 þriggja stiga körfur og
Herman Myers var drjúgur. Páll
Axel Vilbergsson átti góðan
seinni hálfleik og gerði þá þrjár
3ja stiga körfur í röð.
Hjá KR var David Edwards í
miklum ham. Hermann Hauks-
son stóð sig vel, sem og Jónatan
Bow í seinni hálfleik. Gamlir ref-
urinn Birgir Mikaelsson kom
skemmtilega inn í leikinn, sem
og Óskar Kristjánsson í fyrri
hálfleiknum. -ÆMK
Skallagr. (44)94
Breiðabl. (31) 65
8-2, 17-7, 28-20, 38-27 (44-31), 56-32,
65-38, 73-46, 85-55, 94-65.
Stig Skallagrfms: Curtis Rey-
mond 37, Bragi Magnússon 16, Tómas
Holton 13, Ari Gunnarsson 13, Gor-
don Woods 6, Sigmar Egilsson 5,
Þórður Helgason 4.
Stig Breiðabliks: Andrei Bovain
33, Einar Hannesson 13, Einar
Bjamason 7, Baldvin Einarsson 4,
Rúnar Sævarsson 4, Eggert Baldvins-
son 2, Ingi Harðarson 2.
Fráköst: SkaBagrimur 41, Breiða-
blik 24.
3ja stiga körfur: Skallagrimur 4,
Breiðablik 3.
Vítanýting: Skallagrímur 8/12,
Breiðablik 3/9.
Dómarar: Einar Einarsson og Jón
Eðvaldsson, náðugur dagur hjá þeim.
Áhorfendur: 192.
Maður leiksins: Curtis Ray-
mond, Skallagrimi.
„Enginn
súperleikur"
DV, Borgarnesi:
Skallagrímur átti ekki í vand-
ræðum með að leggja Breiðablik
að velli í úrvalsdeildinni í Borg-
arnesi í gærkvöldi. Lokatölur
uröu 94-65 í leik sem heimamenn
áttu frá byrjun.
„Við vorum ekkert að spila
neinn súperleik og ég efa að
svona frammistaða hefði dugað
gegn hinum liðunum í deild-
inni,“ sagði Sigmar Egilsson
Borgnesingur eftir leikinn.
Skallagrímur tók strax völdin
á vellinum og Blikamir náðu
ekki að veita þeim neina keppni.
Curtis Raymond og Tómas
Holton léku best í liði Skalla-
gríms en Bovain var bestur
Blikanna og var raunar allt i
öllu hjá liðinu. -EP
Tindast. (38)85
Keflavík (53)90
6-2, 10-4, 15-9, 20-19, 21-26, 29-32,
32-45 (38-53), 47-59, 52-69, 61-69,
73-75, 83-88, 85-90.
Stig Tindastóls: Amar Kárason
21, Ómar Sigmarsson 19, Jeffrey
Johnson 10, Cesare Piccini 10, Skarp-
héðinn Ingason 9, Lárus D. Pálsson 8.
Stig Keflavíkur: Ðamon Johnson
24, Albert Óskarsson 23, Guðjón
Skúlason 16, Kristinn Friðriksson 10,
Birgir Öm Birgisson 4, Kristján Guð-
laugsson 4, Gunnar Einarsson 4, Fal-
ur Harðarson 3, Elentínus Margeirs-
son 2.
3ja stiga körfur: Tindastóll 5,
Keflavík 9.
Vítanýting: Tindastóll 7/10, Kefla-
vík 13/19.
Dómarar: Kristján Möller og
Rögnvaldur Hreiðarsson.
Áhorfendur: 240.
Maður leiksins: Albert Óskars-
son, Keflavík.
Spennandi
á Króknum en
Kefi avík vann
DV, Sauðárkróki:
Flestir vora á því að Keflvík-
ingar hefðu tryggt sér öruggan
sigur gegn Tindastóli á Krókn-
um í gærkvöldi eftir að hafa náð
mjög góðum leikkafla undir lok
fyrri hálfleiks. Bandaríkjamað-
urinn í liði Tindastóls var þá
kominn með 4 vilur og útlitið
ekki bjart hjá heimamönnum.
En með góðum leik í seinni
hálfleiknum tókst Stólunum að
minnka muninn, án Bandaríkja-
mannsins að mestu, og leikurinn
var hörkuspennandi á lokamin-
útunum. Gestirnir reyndust þó
sterkari er upp var staðið. Al-
bert Óskarsson var bestur í liði
Keflvíkinga og Damon Johnson
var illviðráðanlegur. Hjá Stólun-
um voru Amar og Ómar einna
bestir.
-ÞÁ
Akranes (39) 79
Njarðvík (17)62
13-0, 30-7, 37-13, (39-17), 47-23, 57-44,
62-51, 69-55, 79-62.
Stig ÍA: Brynjar Karl Sigurösson
21, Alexander Ermlonski 19, Ronald
Bayless 12, Dagur Þórisson 10, Harald-
ur Leifeson 8, Brynjar Sigurðsson 4, El-
var Þórólfsson 3, Bjarni Magnússon 2.
Stig Njarðvikur: Torrey John 16,
Jóhannes Kristbjömsson 16, Páll Krist-
insson 10, Friðrik Ragnarsson 5, Jón J.
Ámason 5, Sverrir Þór Sverrisson 4,
Rúnar Ámason 3, Kristinn Einarsson 3.
3ja stiga körfur: ÍA 3, Njarðvík 7.
Dómarar: Leifur S. Garðarsson og
Kristinn Albertsson, dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Brynjar Karl Sig-
urðsson, Akranesi.
Frábær
Skagasigur
DV, Akranesi:
„Þetta er allélegasti leikur sem
liðið hefur spilað undir minni
stjóm og ég efast um að Njarðvík
hafi leikið eins illa og við vorum
að leika í fyrri hálfleik. Það virt-
ust sitja eftir í mannskapnum
mikil vonbrigði eftir tapið gegn
KR í bikamum og við náðum okk-
ur ekki af stað. í síðari hálfleik
lékum við af eins miklum krafti
og við gátum en það dugði ekki
til. Skagamenn léku vel og áttu
sigurinn skilinn," sagði Hrannar
Hólm, þjálfari Njarðvíkinga, eftir
skell á Akranesi.
Skagamenn geta íyrst og fremst
þakkað sigurinn aö þeir léku frá-
bæran vamarleik og þeir náðu að
gera nánast út um leikinn í fyrri
hálfleik. Brynjar Karl, Ermol-
inski og Bayless léku stærstu
hlutverkin hjá ÍA en í slöppu liði
Njarðvíkur var Torrey John
einna skástur. -DVÓ
„Geysilega
ánægður“
- Haukar fóru létt meö ÍR, 78-95
„Ég er geysilega ánægður með
mína menn eftir þennan leik,“ sagði
Reynir Kristjánsson, þjálfari
Hauka, eftir góðan sigur hans
manna, 78-95, á ÍR-ingum i Selja-
skóla í gærkvöldi.
„Mér fannst þetta öruggt í okkar
höndum allt frá byrjun. Vömin var
sterk og menn voru allir að spila
vel, og með þessu framhaldi er ég
mjög bjartsýnn," sagði Reynir.
Sigur Hauka var svo sannarlega
öruggur. Þeir tóku leikinn strax í
sínar hendur og réðu lögum og lof-
um í fyrri háfleik þegar þeir fóru
hreinlega hamföram, og þá sér í lagi
Shawn Smith. ÍR-ingar fengu ekki
ÍR (35) 78
Haukar (57) 95
64, 2-4, 6-11, 17-23, 23-37, 26-45
(35-57), 37-57, 37-61, 46-65, 57-76,
65-80, 78-95.
Stig ÍR: Tito Baker 37, Eggert
Garðarsson 10, Márus Amarson 8, Ei-
ríkur önundarson 5, Atli Bjöm Þor-
bjömsson 5, Gisli Hallsson 5, Jasin
Dowsch 4, Hjörleifur Sigurþórsson 2,
Atli Sigurþórsson 2.
Stig Hauka: Shawn Smith 35, fvar
Ásgrímsson 11, Jón Amar Ingvarsson
10, Pétur Ingvarsson 9, Þór Haraldsson
7, Bergur Eðvarðsson 7, Sigfús Gizurar-
son 6, Sigurður Jónsson 4, Björgvin
Jónsson 4, Þröstur Kristinsson 2.
Fráköst: ÍR 19, Haukar 36.
3ja stiga körfur: ÍR 10/3, Haukar
9/2.
Vítanýting: ÍR 36/24, Haukar
22/15.
Dómarar: Bergur Steingrímsson
og Sigmundur Már Herbertsson, dá-
lítið mistækir á köflum.
Áhorfendur: Um 200.
Maður leiksins: Shawn Smith,
Haukum.
KFÍ (41) 85
ÞórA. (28) 70
10-1, 19-9, 31-20, 39-27 (41-28), 48-38,
65 47, 74-61, 76-64, 85-70.
Stig KFÍ: Derrick Bryant 33, Frið-
rik Stefánsson 19, Guðni Guðnason
13, Baldur Jónasson 9, Magnús Gísla-
son 8, Ingimar Guðmundsson 2,
Andrew Vallejo 1.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 19,
Hafsteinn Lúðvíksson 18, Fred Willi-
ams 17, Högni Friðriksson 10, Böðvar
Kristjánsson 6, John Cariglia 3, Þór6
ur Steindórsson 2.
Fráköst: KFÍ 43, Þór 28.
3ja stiga körfur: KFÍ 15/9, Þór
9/3.
Vítanýting: KFÍ 15/7, Þór 18/11.
Dómarar: Þorgeir Jón Júlíusson
og Björgvin Rúnarsson, ágætir.
Áhorfendur: Um 500.
Maður leiksins: Derrick Bryant,
KFÍ.
Góð byrjun
isfirðinga
DV, Ísaíirði:
KFÍ vann nokkuð öruggan sig-
ur á Þórsuram í gærkvöldi. Þar
munaði mestu að heimamenn
byrjuðu mun betur, með Derrick
Bryant í fararbroddi, og hann
hitti mjög vel úr 3ja stiga skot-
um á þeim tíma. Þórsarar vora
grimmari í seinni hálfleik en sig-
ur KFÍ var aldrei í teljandi
hættu.
Bryant átti góðan leik i sókn
og vöm hjá KFÍ og Friðrik Stef-
ánsson var einnig mjög sterkur,
sérstaklega í vöminni. Andrew
Vallejo tók stöðu Hrafns Krist-
jánssonar sem leikstjórnandi og
skilaði henni ágætlega.
Hafsteinn Lúðvíksson og Kon-
ráð Óskarsson voru sterkir í liði
Þórs og Fred Williams var góður
á köflum i seinni hálfleiknum.
-PG
við neitt ráðið og það var sama hver
gætti Smiths, hann raðaði niður
körfunum. Haukamir voru sterkir í
vörninni, stigu ÍR-inga vel út og
fengu mikið af hraðaupphlaupum
sem þeir nýttu vel.
Lítið gekk hjá ÍR-ingum i fyrri
hálfleik. Hittnin var slök og barátt-
an lítil. Þeir komu heldur hressari
til síðari hálfleiks en náðu þó aldrei
að ógna veralega góðu forskoti
Haukanna.
Smith var bestur Hauka en ann-
ars lék allt liðið geysilega vel. Hjá
ÍR var Tito Baker sem fyrr fremstur
í flokki en hinir áttu frekar erfiðan
dag. -ÖB
ÚRVALSDEILDIN
Keflavik 11 9 2 1105-931 18
Grindavík 11 9 2 1064-985 18
Haukar 11 8 3 948-886 16
Akranes 11 7 4 836-824 14
Njarðvík 11 7 4 947-900 14
ÍR 11 6 5 969-935 12
KR 11 6 5 999-929 12
Skallagr. 11 4 7 876-956 8
KFÍ 11 4 7 871-942 8
Tindastóll 11 3 8 886-920 6
Þðr, A. 11 3 8 858-938 6
Breiðablik 11 0 11 808-1021 0
12. umferðin verður leikin þann 9.
janúar 1997. Þá mætast Akranes-KR,
Grindavík-Haukar, Tindastóll-Þór,
ÍR-Keflavík, Breiöablik-Njarðvík og
KFÍ-Skallagrímur. Síðastnefndi leik-
urinn er reyndar 10. janúar.
David Edwards hjá KR fékk brott-
vísun eftir leikinn í Grindavík í gær-
kvöldi en þá lét hann dónaleg orð
falla í garð Helga Bragasonar dóm-
ara. Benedikt Guðmundsson, þjálfari
KR, þurfti að stöðva Edwards og reka
hann inn í búningsklefa. Edwards á
liklega leikbann yflr höfði sér og tæki
það væntanlega út i bikarleiknum
gegn Grindavík 5. janúar.
Grindvíkingar efndu á dögunum
til hugmyndasamkeppni um nafn á
íþróttahúsið. „Röstin" varð fyrir val-
inu.
Fred Williams, Bandarikjamaður-
inn hjá Þór, hreinlega fraus í „ísjak-
anum“ á ísafiröi i gærkvöldi og skor-
aði bara eitt stig i fyrri hálfleik. Ak-
ureyringunum tókst þó að þíða hann
í hálfleik og Williams var grimmur í
þeim síðari.
Sigfús Gizurarson úr Haukum
fékk dæmda á sig mjög svo vafasama
villu eftir aðeins 5 mínútna leik gegn
ÍR i gærkvöldi. Hann mótmælti kröft-
uglega, fékk fyrir vikið líka tækni-
villu og var því tekinn út af með 4
villur. Hann kom ekki aftur inn á
fyrr en 10 minútur voru eftir af leikn-
um.
Áhorfendur hafa aldrei verið eins
fáir á úrvalsdeildarleik í Borgamesi
og í gærkvöldi. Aðeins 192 greiddu
aðgang og slæmu gengi liðsins að
undanfömu er eflaust um að kenna.
Curtis Raymond átti sinn besta
leik með Skallagrími í vetur. Hann
skoraði úr 10 glæsilegum troðslum i
öllum regnbogans litum.
Njarðvíkingar skomöu aðeins 9
stig á fyrstu átján mínútunum gegn
Akranesi í gærkvöldi og bara 17 í öll-
um fyrri hálfleiknum. Þeir hafa
aldrei, fyrr né síðar, skorað svona lít-
ið 1 einum hálfleik.
Andre Bovain skoraði 20 af fyrstu
22 stigum Blika í Borgamesi í gær-
kvöldi.
Albert Óskarsson var í miklum
ham með Keflavík á Sauðárkróki.
Hann skoraði meðal annars fjórar 3ja
stiga körfur í fyrri hálfleik.
Tómas Holton átti finan leik með
Skallagrími gegn Breiðabliki. Hann
lék félaga sína vel uppi og átti 12
stoðsendingar.
íþróttir
Pétur Ingvarsson, Haukamaður, sækir að körfu ÍR-inga í gærkvöldi en Tito Baker er til varnar. Pétur og félagar unnu ótrúlega öruggan sigur i Seljaskólanum.
DV-mynd ÞÖK
Magic segist
hafa sigrast
á eyöni
- engin merki lengur um HlV-veiruna
Earvin „Magic“ Johnson,
körfuknattleiksmaðurinn heims-
frægi, segist hafa sigrast á eyðni -
engin merki um veiruna sem or-
sakar sjúkdóminn finnist lengur i
blóði hans. Þýska blaðið Bild am
Sonntag skýrði frá þessu í gær.
Fyrir fimm árum skýrði þessi
frábæri íþróttamaður alheimi frá
því að hann væri með HlV-veiruna
í blóði sínu. Magic hætti að spila
körfúbolta um hrið en hefur síðan
tekið skóna tvívegis fram á ný og
hefur allan tímann verið með sér-
stakt stjörnulið í gangi og ferðast
með það um heiminn.
Magic segir að lyíjameðferð sem
hann hefur gengist undir hafi haft
þessi áhrif. „Ég hef sigrast á eyðni.
Læknirinn minn segir að það séu
engin merki lengur um veiruna í
blóði minu. Lyfin era stórkostleg
og hafa gert kraftaverk,“ segir
Magic.
Þýskir sérfræðingar segja að sé
þetta rétt sé Magic fyrsti maðurinn
sem fái fullan bata eftir að hafa
smitast af HlV-veirunni. Þeir vilja
þó slá vamagla við fréttinni og
frægasti sérfræðingur Þjóðverja
segir að mögulegt sé að vefran sé
horfin en hún geti skotið kollinum
upp á ný eftir nokkur ár þegar
áhrifa lyflanna gæti ekki lengur.
-vs
Erwin Magic Johnson segist hafa læknast af eyðniveirunni.
Maldini ráðinn
þjálfari ítala
Cesare Maldini, faðir Paolo Mald-
ini hjá ACMilan, var í gær ráðinn
landsliðsþjálfari ítala í knattspymu í
staö Arrigos Sacchi sem á dögunum
sagði starfi sínu lausu og tók við sínu
gamla starfi sem þjálfari AC Milan.
Maldini er 64 ára gamall og á lang-
an feril að baki sem leikmaður og síð-
an þjálfari. Han fór feril sinn sem
knattspymumaður með Triestina
árið 1953 en ári síðar gekk hann til
liðs við AC Milan. Hann varð meist-
ari með liðinu 1955, 1957 og 1959 og
lék sinn fýrsta landsleik fýrir Ítalíu
árið 1960. Tveimur árum síðar var
hann gerður að fýrirliða landsliðsins.
Hann varð Evrópumeistari með AC
Milan árið 1963 þegar liðið vann Ben-
fica í úrslitaleik og sama ár lék hann
sinn síðasta landsleik. Þá gekk hann
til liðs við Torino og lék með liðinu í
eitt keppnistímabil.
Þjálfaraferill hans hófst árið 1974
þegar hann tók við liði Foggia. Hann
var rekinn frá félaginu ári síðar og
gerðist þjálfari hjá Temana sem
hann þjálfaði í eitt ár. Þaðan fór hann
til Parma og undir hann stjóm komst
félagið úr 3. deild í 2. deild. Árið 1980
var hann rekinn frá félaginu. Hann
gerðist þá aðstoðarmaður Enzc Be-
arzot landsliðsþjálfara og saman
gerðu þeir ítali að heimsmeisturum
árið 1982. Árið 1986 var hann gerður
að þjálfara U-21 árs landsliðs ítala og
þar hefur hann verið við stjómvölinri
síðan. Undir hans stjóm hafa ítalir
þrívegis orðið Evrópumeistarar í
þessum aldursflokki.
-GH
Jiirgen Klinsmann til Englands?
Forest býður 3,4
milljonir i
Fjögur ensk knattspymufélög era
tilbúin tri að kaupa Júrgen Klins-
mann, fyrirliða þýska landsliðsins,
frá Bayern Múnchen. Klinsmann
hefur ítrekað lýst yfir óánægju með
dvölina hjá Bayern og knattspym-
una sem liðið spilar.
Nottingham Forest, sem situr á
botni ensku úrvalsdeildarinnar, hef-
vikulaun
ur boðið Klinsmann 3,4 milljónir
króna í laun á viku, samkvæmt frétt
í blaðinu Bild am Sonntag í gær.
West Ham, Blackburn og Everton
eru einnig sögð hafa sýnt Klins-
mann mjög mikinn áhuga en sem
kunnugt er lék hann eitt tímabil
með Tottenham og naut gífurlegra
vinsælda i Englandi. -VS5