Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.1996, Qupperneq 8
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 1996
íþróttir
NBA-DEIIDIN
Vlade Divac, Júgóslavínn öflugi hjá
Charlotte, tekur frákast af Dennis Rodman
hjá Chicago í leik liðanna í fyrrinótt.
Rodman haföi þó yfirleitt betur, tók 23
fráköst, og Chicago náði að knýja fram
sigur.
Símamynd Reuter
Penny Hardaway, hinn snjalli
leikmaður Orlando, er meiddur á ný.
Hann var sendur til sérfræðings í Hou-
ston um helgina vegna meiðsla á hásin.
Patrick Ewing er kominn á svartan lista
hjá stuðningsmönnum New York. Á dögun-
um munaði litlu að liðið missti niður mik-
iö forskot gegn Clippers og áhorfendur
létu óánægju sina í ljós. Ewing gagn-
rýndi framkomu þeirra og í staðinn var
baulað á hann í hvert skipti sem hann
fékk boltann í næsta heimaleik. Nú
spá margir því að Ewing yfirgefi New
York þegar samningur hans rennur
út næsta sumar.
Allen Iverson, nýliðinn frá-
bæri, missti af leikjum Phila-
delphia um helgina þar sem meiðsli
á öxl tóku sig upp á ný. Iverson er
stigahæsti nýliöi deildarinnar með
22,2 stig að meðaltali í leik.
Spud Webb, bakvörðurinn lágvaxni sem
hefur verið á mála hjá Minnesota síðan í sumar,
gekk um helgina til liðs við italska félagið Mash
Verona. Indiana, Charlotte og Houston höfðu öll
sýnt áhuga á að fá hirrn 33 ára gamla Webb til liðs
við sig.
Dennis Rodman lék á ný með Chicago gegn
Charlotte í fyrrinótt eftir tveggja leikja bann hjá
félaginu. Rodman tók 23 fráköst, þar af 9 sóknar-
fráköst, sem er það besta hjá honum á tímabilinu.
Darrick Martin hjá LA Clippers tók 15 vítaskot
gegn Sacramento og skoraði úr þeim öllum. Hon-
um gekk ekki eins vel utan af velli en þaðan hitti
liann ekki úr einu einasta skoti.
Bill Fitch, þjálfari LA Clippers, fagnaði sínum
900. sigri í NBA. Aðeins Lenny Wilkens, Red Auer-
bach og Dick Motta hafa náö fleiri sigrum á ferl-
inum.
Toronto var rétt búið að skella einu toppliðinu
enn og beið nauman ósigur í Miami, 89-88. Kan-
adaliðið hefur sigrað Lakers, Houston og Chicago.
„Þeir ná þessu með gífurlegri pressu en þeir réðu
ekki við Alonzo Mouming, maður gegn manni,"
sagði Pat Riley, þjálfarinn snjalli, sem er kominn
með Miami á toppinn í Atlantshafsriöli.
Miami hefur unnið 13 af síðustu leikjum sínum
og það er fyrst og fremst frammistaða Dan Majerle
sem er talin hafa gert útslagið fyrir liðið í vetur.
Ekki var búist við miklu af Majerle þegar hann
kom til Miami fyrir þetta tímabil en hann hefur
sýnt og sannað að hann á mikið eftir enn.
Nate McMillan, hinn fjölhæfi leikmaður
Seattle, verður enn frá vegna meiðsla. McMillan
missti af 27 leikjum síðasta vetur og er aðeins
búinn að spila 6 leiki á þessu tímabili. Hann á
flestar stoðsendingar og „stolna bolta“ i sögu
Seattle.
I>V
NBA-DEILDIN
Aöfaranótt laugardags
New Jersey-Chicago......92-113
Pack 25, Kittles 20 - Jordan 32,
Pippen 24, Harper 12, Parish 12.
Washington-Denver .... 108-104
Webber 25, Howard 22, Strickland 18
- D.Ellis 22, L.EllÍs 21, Stith 18.
Charlotte-Philadelphia .... 84-75
Rice 24, Divac 20, Curry 14, Mason 13
- Coleman 20, Stackhouse 18.
Cleveland-Golden State .. 101-87
Sura 22, Hill 20, Brandon 12, Phills 12
- Sprewell 22, Mullin 21, Smith 20.
Indiana-Boston............97-94
Miller 25, Mckey 17, Best 15, A.Ðavis
11 - Wesley 18, Williams 17, Radja 14.
Minnesota-Phoenix......108-105
Gugliotta 25, Marbury 21, West 15 -
Cassell 21, Williams 19, Manning 19.
LA Lakers-Portland .... 120-119
Shaq 34, Van Exel 26, Jones 17 - And-
erson 34, Wallace 29, C.Robinson 18.
Vancouver-Orlando ........95-93
Reeves 27, Rahim 21, Peeler 17 - Seik-
aly 25, Wilkins 15, Strong 14, Shaw 13.
Aðfaranótt sunnudags
New York-Denver ..........89-82
Childs 20, Ewing 18, Starks 11, John-
son 11 - McDyess 29, L.EUÍS 23, Stith 13.
Miami-Toronto.............89-88
Mouming 26, Danilovic 15, Hardaway
15 - Williams 18, Christie 17, Rogers 15.
Atlanta-Philadelphia .... 106-81
Laettner 17, Blaylock 17, Smith 16 -
Coleman 21, Weatherspoon 10.
Chicago-Charlotte ........87-82
Jordan 29, Kerr 14, Kukoc 12, Pippen
10 - Rice 25, Geiger 20, Mason 13.
Milwaukee-New Jersey .. 101-91
Baker 27, Robinson 27, Douglas 12 -
Pack 23, Gill 21, Massenburg 14.
Minnesota-Cleveland .... 93-101
Gugliotta 21, K.Gamett 19, Marbury
14 - Brandon 22, Mills 19, Phills 19.
San Antonio-Dallas.....106-105
Robinson 27, Elliott 19, Wilkins 15 -
McCloud 28, Gatling 18, Miller 11.
Utah-Orlando.............101-68
Ostertag 16, Stockton 16, Eisley 14,
Carr 14 - Seikaly 23, Armstrong 16.
LA Clippers-Sacramento . . 106-94
Dehere 16, Martin 15, Sealy 14,
Outlaw 14 - Richmond 33, Owens 18.
Seattle-Houston ........100-109
Kemp 28, Payton 16, Perkins 14 -
Barkley 26, Drexler 23, Maloney 14.
Atlantshafsriöill
Miami 18 5 78,3%
New York 15 6 71,4%
Orlando 9 10 47,4%
Washington 9 11 45,0%
Philadelphia 7 15 31,8%
New Jersey 5 13 27,8%
Boston 5 15 25,0%
Miöriöill
Chicago 20 3 87,0%
Detroit 16 4 80,0%
Cleveland 14 8 63,6%
Atlanta 13 8 61,9%
Milwaukee 12 9 57,1%
Charlotte 12 10 54,5%
Indiana 9 11 45,0%
Toronto 7 15 31,8%
Miövesturriðill
Houston 20 2 90,9%
Utah 18 3 85,7%
Dallas 8 13 38,1%
Minnesota 8 15 34,8%
Denver 5 19 20,8%
San Antonio 4 17 19,0%
Vancouver 4 19 17,4%
Kyrrahafsriðill
LALakers 18 7 72,0%
Seattle 16 9 64,0%
Portland 13 10 56,5%
LA Clippers 9 14 39,1%
Golden State 8 15 34,8%
Sacramento 8 15 34,8%
Phoenix 6 15 28,6%
Stigahæstir
Michael Jordan, Chic. 709/23 1 30,8
Shaquille O’Neal, Lak. 642/25 i 25,7
Karl Malone, Utah 532/21 25,3
Latrell Sprewell, G.St. 544/23 1 23,7
Hakeem Olajuwon, Hou. 423/18 1 23,5
Shawn Kemp, Seattle 586/25 i 23,4
Glenn Robinson, Port. 450/20 l 22,5
Vin Baker, Port. 401/18 i 22,3
Allen Iverson, Phil. 378/17 1 22,2
Tom Gugliotta, Minn. 508/23 i 22,1
Mitch Richmond, Sacr. 501/23 : 21,8
NBA-deildin í körfuknattleik um helgina:
„Fullkomið nema
vítaskotin mín“
- Houston vann Seattle í 14. tilraun og stendur best aö vígi
Houston Rockets er með besta
vinningshlutfallið í NBA-deildinni,
20 sigra í 22 leikjum, og í fyrrinótt
vann liðið mikinn sálfræðilegan sig-
ur. Houston heimsótti þá Seattle,
sem hafði unnið hvorki fleiri né
færri en 13 síðustu viðureignir lið-
anna og sigraði, 100-109, í hörku-
leik.
Charles Barkley er staðráðinn í
að vinna meistaratitil með Houston
í vetur og hann skoraði 26 stig og
tók 15 fráköst í leiknum. „Við erum
með mjög gott lið og þetta var mik-
ilvægt skref. Við spiluðum mjög vel,
fulikominn leik ef vítaskotin mín
eru frátalin," sagöi Barkley. „Viö
vissum að þeir myndu setja tvo
menn á stóra strákinn (Olajuwon)
og það gaf okkur meira næði til að
skjóta,“ sagði Clyde Drexler en Hou-
ston skoraði 12 þriggja stiga körfur
í leiknum.
Sigurkarfa frá aðmírálnum
gegn Dallas
David Robinson er byrjaður að
koma San Antonio á sigurbraut á
ný. „Aðmírállinn“, sem missti af
fyrstu 18 leikjum timabilsins vegna
bakmeiðsla, skoraði sigurkörfuna
gegn Dallas, 106-105, þegar hálf ní-
unda sekúnda var eftir. Robinson
skoraði 27 stig en varð að fara af
velli um tíma í fyrri hálfleik þar
sem bakið var að angra hann.
Geiger rétt búinn aö skella
Chicago
Chicago slapp með skrekkinn á
heimavelli gegn Charlotte og sigr-
aöi, 87-82. Matt Geiger tók leikinn í
sínar hendur í fjóröa leikhluta,
skoraði þá 18 stig fyrir Charlotte,
þar af 16 stig liðsins í röð. Michael
Jordan náði að stöðva hann á ör-
lagastundu með því að verja skot
frá honum.
„Jordan kemst upp meö
margt“
„Við vorum heppnir að vinna.
Geiger var rétt búinn að hirða af
okkur sigurinn í lokin,“ sagði Jord-
an. Dave Cowens, þjálfari Charlotte,
var mjög óhress með dómgæsluna.
„Jordan kemst upp með margt. Und-
ir lokin barði hann einn okkar
manna í gólfið og komst upp með
fleiri brot,“ sagði Cowans.
Utah lék vængbrotið lið Orlando
grátt, 101-68, og hafði algera yfir-
burði eins og tölumar gefa til
kynna.
Shaq tók til sinna ráöa í
framlengingunni
Aðalleikurinn aðfaranótt laugar-
dags var slagur Lakers og Portland.
Þar þurfti framlengingu og þá tók
Shaquille O’Neal til sinna ráöa.
Shaq skoraði 8 stig í framlenging-
unni, sigurkörfuna þegar 16 sekúnd-
ur voru eftir, og síðan varði hann
skot frá Kenny Anderson þegar hálf
önnur sekúnda var til leiksloka.
Shaq skoraði 34 stig, tók 10 fráköst,
átti 7 stoðsendingar og varði 6 skot.
„Kenny er háll sem áll og ég réð
ekki við hann allan leikinn, En þeg-
ar hann reyndi síðasta skotið vissi
ég hvað hann ætlaði að gera og sá
við honum,“ sagði Shaq eftir leik-
inn. „Shaq lætur ekki endalaust
vaöa yfir sig og hann varði frá
Kenny þegar það skipti mestu
máli,“ sagði félagi hans, Nick Van
Exel.
Glæsileg tilþrif Millers
tryggöu Indiana sigur
Reggie Miller tryggði Indiana sig-
ur á Boston í hörkuleik, 97-94, með
þriggja stiga körfu þegar 1/10 úr
sekúndu var eftir. Indiana hafði tek-
ið leikhlé þegar 1,2 sekúndur vom
eftir. Miller fékk boltann frá
Vincent Askew og náði glæsilegu
skoti og fagnaði gríðarlega að von-
um.
Vancouver náði að leggja Orlando
sem vantaði bæði Penny Hardaway
og Nick Anderson vegna meiðsla.
„Við hefðum átt að vinna en byrjuð-
um ekki nógu vel. Það er ekki nóg
að spila vel á lokamínútunum,"
sagði Dennis Scott hjá Orlando.
-VS