Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Side 21
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
29
Fréttir
Vegabætur í ísaQarðardjúpi:
Bylting til
hins betra
DV, Hólmavík:
Unnið var að nokkrum endurbót-
um, svo og nýlagningu vega í ísa-
fjarðardjúpi innanverðu á síðasta
ári og 1995. Um er að ræða 12,7 km
vegakafla milli Ögurs og Gilseyrar á
Djúpvegi og endurbætur og nýlagn-
ingu um fjögurra km kafla við bæ-
ina Rauðamýri og Hamar á Snæ-
fjallastrandarvegi.
Verktaki við báðar þessa fram-
kvæmdir var Fylling hf. á Hólmavík
og að sögn Karls Þórs Bjömssonar
framkvæmdarstjóra hljóðaði tilboð
verktaka i veginn milli Ögurs og
Gilseyrar upp á 39 milljónir króna.
Endanlegur kostnaður varð nokkra
meiri eða um 44 milljónir króna.
Framkvæmdir við hann hófust í
september 1995 en vegna ótíma-
bærrar vetrarkomu síðari hluta
október, með meiri snjóalögum á
þessum tíma árs en dæmi eru um
áður, var minna unnið fyrri hluta
þess vetrar en áform voru uppi um.
Aftur var svo hafist handa á maí sl.
og verkinu skilað í ágúst. Þá var
lagt yfir hann slitlag af vinnuflokki
Vegagerðar eftir að gengið hafði
verið frá viðbótarsamningi um und-
irbúning vinnu fyrir slitlag við Fyll-
ingu hf. og sú vinna verið af hendi
leyst. Vegurinn er að mestu lagður
á sama stað og sums staðar alveg en
annars staðar réttur af hvað varðar
beygjur og mishæðir.
Karl Þór segir að vinnusvæðið
hafi verið verulega erfitt. Þeir hafi
nær allan tímann haft umferðina
um það og verulega mikið hafi þurft
að sprengja. Upphafleg ágætlun
gerði ráð fyrir að það yrðu 36 þús-
und rúmmetrar en varð þó heldur
minna þegar upp var staðið. Þetta
mulda grjót var svo flutt til nota
sem þurrlag og ávinningurinn af
því verður traustari og að öllum lik-
indum endingarbetri vegur vegna
þess hve undirlag hans er úr góðu
efni. Á Snæfjallastrandarvegi var
unnið við þrjá aðskilda vegakafla
eftir að brú yfir Hvannadalsá við
Rauðsmýri hafði verið endurbyggð.
„Þó þetta sé ekki mikil fram-
kvæmd sem þarna var unnið að er
þetta nánast bylting til hins betra.“
Um útlitið með verkefni næstu
mánuði eru ekki bjartar horfur að
mati Karls Þórs. Áf því sem fyrir
liggur er aðeins um að ræða um
vikuvinnu í ísafjarðardjúpi og litlu
Keflavíkurflugvöllur:
Farþegar
yfir milljón
DV, Suöurnesjum:
Áningarfarþegum um Keflavíkur-
flugvöll fjölgaöi um 34.459 í fyrra frá
1995 og voru alls 276.958. Farþegar
sem komu til landsins og fóra af
landi brott í fyrra ásamt áningarfar-
þegum voru samtals ein milljón 24
þúsund 650. Það er í fyrsta skipti í
sögu vallarins sem farþegar eru
fleiri en milljón sem fara um Leifs-
stöð. 1995 voru þeir 930.486.
Umferð um flugvöllinn hefur auk-
ist á hverju ári síðan Flugstöð Leifs
Eiríkssonar komst í gagnið. Lend-
ingum á vellinum í fyrra fjölgaði
um 529 frá 1995. Voru 7782 og flestar
í júlí. Þá 952 en voru 804 árið 1995.
Þá varð aukning í vöruflutning-
um á síðasta ári. Voru 13.519 tonn en
1995 voru þeir 11.175 tonn. Aukning
varð einnig í flutningum til lands-
ins. Voru 7.743 tonn en 6.060 tonn
1995. Úr landi voru flutt 569 tonn af
pósti á móti 564 árið 1995. Hins veg-
ar minnkaði póstur til landsins frá
1995 um 33 tonn. -ÆMK
meira vestur á Barðaströnd. „Útlitið
hefur sjaldan eða aldrei verið verra
hjá okkur, nánast ekkert liggur fyr-
ir af ókláruðum verkefnum og lítið
er vitað hvort eitthvað verður um
ný verk í ár,“ segir Karl Þór. -GF
VORNAMSKEIÐ
Aikikai Reykjavík
GYM 80
Suðurlandsbraut 6
upplýsingar og skráning í símum
588-8383 & 898-3493
Tveir úr framvaröasveit Fyllingar. Aðalbjörn Sverrisson og Karl Þór Björns-
son til hægri. DV-mynd Guöfinnur
Bílar á besta aldri
bíða eftir nýjum eigendum
KAUPDAGAR
-19. janúar
Þessa daga bjóðum við mikið úrval af góðum
notuðum bílumE I Líttu við
því þú getur verið viss um að gera góð kaup.
#
¥
Lyklarnir okkar ganga aðeins
að góðum notuðum bílum.
NOTAÐIR BILAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI: 568 1200 BEINN SÍMI 581 4060
ATHUGIÐ!
Opið til kl. 21 á virkum dögum.
Laugard. 10-17. Sunnud. 13-16.