Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1997, Page 36
44
MÁNUDAGUR 13. JANÚAR 1997
Er verið að biðja
um verkfall?
„Miðað við málflutning fram-
kvæmdastjóra VSÍ þá er engu
líkara en að samtök atvinnurek-
enda séu að biðja um verkfóll.“
Sigurður Ingvarsson, form. Al-
þýðusambands Austurlands, í
Degi-Tímanum.
Þrjú prósentin
„Ég var ekki sendur af stað á
eftir einhverjum þremur pró-
sentum.
Kristján Gunnarsson, form.
Verkalýðs- og sjómannafél.
Keflavíkur, í Alþýðublaðinu.
Glottandi þingmenn
„Á sama tíma og þingmenn
taka sér launahækkanir, glott-
andi framan i lýðinn, segja þeir:
Þið megið ekki riðla efnahags-
stefnunni með því að fara fram á
óraunhæfar launakröfur."
Eiríkur Stefánsson, form.
VerkaJýðs- og sjómannafélags
Fáskrúðsfjarðar, í Alþýðublað-
inu.
Ummæli
Lífsstíl rústað
„Alltof oft eru menn að rústa
allan lífsstíl sinn í mataræði,
fara í ákveðið svelti og reyna síð-
an að djöflast eins lengi og lík-
aminn leyfir og ná sem bestu
skori á 6-8 vikna tímabili.“
Einar Vilhjálmsson íþróttamað-
ur, í DV.
Að selja sig fyrir
peninga
„Þegar ungir menn ákveða
sjálfviljugir að færa sig yfir á
sjálfsfróunarstigið á frystitogur-
um eru þeir auðvitað að selja
fleira en vinmma sína. Þeir eru
að selja fjölskyldufaðminn, fé-
lagslífið og kynlífið fyrir pen-
inga.“
Jonnni á Uppsölum, sjómaður,
í Degi-Tímanum.
Körfuboltinn er tiltölulega ung
íþrótt miöaö við margar aörar
keppnisíþróttir.
Körfubolti
Körfubolti er meðal þeirra fáu
íþróttagreina sem ekki eiga
langa sögu. Árið 1891 afréð
Bandaríkjamaðurinn James
Naismith, kennari við
International College í Springfi-
eldd í Massachusetts, að búa til
íþrótt sem hægt væri að æfa inn-
anhúss á kvöldin og að vetrar-
lagi. Hann setti upp plötur með
körfum á endaveggi íþróttasalar-
ins og samdi leikreglur. Fyrsti
leikurinn fór fram 20. janúar
1892. Sjö leikmenn voru í hvoru
liði og var leikurinn þrisvar
sinnum 20 mínútur.
Blessuð veröldin
Keiluspil
Keiluspil er öfugt við körfu-
boltann ævafom íþrótt. Hægt er
að rekja keiluspil til ársins 5200
f.Kr. Á miðöldum er svo hægt að
rekast á keiluspil í Þýskalandi
og þar var það raunar athöfn
með trúarlegu ívafi. Fiskimenn
reistu tréstaf, Kegel, við endann
á hellulögðum stignum að
klausturkirkju þeirra. Síðan
vörpuðu þeir steini að stafnum
og sá sem velti honum fékk fyr-
irgefningu synda sinna. Þegar
árin liðu var sífellt erfiðara að
öðlast fyrirgefninguna, þar sem
stafir þeir sem þurfti að fella
gátu verið allt að sautján talsins.
Að sögn var það Martin Luther
sem skar úr um það að keilum-
ar ættu að vera níu.
Stinningskaldi sunnaniands
Um 500 km austnorðaustur af
Langanesi fjarlægist 970 mb lægð en
980 mb lægð 900 km suðsuðvestur af
Reykjanesi hreyfist norðnorðaust-
ur.
Veðrið í dag
í dag er búist við allhvassri eða
hvassri norðaustanátt með snjó-
komu eða éljum og vægu frosti
norðan- og norðvestanlands en aust-
ankalda eða stinningskalda og
slyddu eða rigningu sunnan- og
austanlands. Á höfuðborgarsvæðinu
má gera ráð fyrir norðaustanstinn-
ingskalda og slyddu eða rigningu.
Hiti á höfuðborgarsvæðinu verður á
bilinu 0-2 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 16.15
Sólarupprás á morgun: 10.56
Síðdegisflóð í Reykjavík: 21.51
Árdegisflóð á morgun: 10.16
Veöriö kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri skýjaö -6
Akurnes alskýjaö 0
Bergstaóir alskýjaö -4
Bolungarvík skýjaö -1
Egilsstaðir skýjaö -1
Keflavíkurflugv. skýjaö 2
Kirkjubkl. skýjaó 0
Raufarhöfn snjóél -2
Reykjavík úrkoma í grennd 2
Stórhöföi hálfskýjaö 2
Helsinki léttskýjaö -7
Kaupmannah. léttskýjaó -4
Ósló skýjaö -11
Stokkhólmur hálfskýjað -9
Þórshöfn skýjaö 2
Amsterdam kornsnjór -3
Barcelona léttskýjaö 11
Chicago snjókoma -6
Frankfurt kornsnjór -3
Glasgow skýjaö 3
Hamborg skýjaö -1
London alskýjaó 0
Madrid alskýjaö 9
Malaga skýjaö 17
Mallorca hálfskýjaó 13
París þokumóóa -2
Róm rigning 10
Valencia léttskýjaö 15
New York alskýjaö 3
Orlando léttskýjaö 11
Nuuk heiöskírt -1
Vín Washington snjókoma -2
Winnipeg skafrenningur -23
Baldur Konráðsson, formaður Bílstjórafélagsins Fylkis:
Áhugamálið er að fá tvöfalda Reykjanesbraut
DV, Suðurnesjum:
„Áriö 1981 keypti ég mér 8
manna bíl sem var ekki vel liðið
hjá kollegum mínum sem héldu að
vinnan myndi minnka hjá sér. Það
lá við að ég þyrfti að ganga með
veggjum fýrstu árin. Síðan þróaðist
þetta í þá átt að menn fóru meira
út í að kaupa stóra bíla. Ég held að
menn séu nú búnir að sjá að það
eru meiri möguleikar að fá atvinnu
með því að eiga stóran bíl,“ sagði
Baldur Konráðsson, leigubílstjóri
og formaður Bílstjórafélagsins
Fylkis, sem ekur á Aðalstöðinni í
Keflavík.
Maður dagsins
Baldur segir að það sé margt
sem herji á stéttina. „Vinnan hefur
minnkað mikið í gegnum hinn al-
menna borgara. Á mörgum heimil-
um eru 2-3 bílar. Um leið og ung-
lingurinn er kominn með bílpróf er
hann kominn með bíl. Áður fyrr
þurfti fólk meira á leigubílum að
halda. Aöaluppbygging vinnunnar
okkar er að keyra fyrir fyrirtæki.
Þá er þetta skrölt um helgar þegar
fólk er að skemmta sér. Það er ekki
bjart fram undan hjá okkur. Það
helsta sem gæti skapað okkur
Baldur Konráðsson.
meiri atvinnu er í kringum flug-
stöðina. Þar er mikil yfirlega og
eigum við nánast aldrei frí. Draum-
urinn hjá okkur er að koma upp
sætaferðum með ftugfarþega tU
Reykjavíkur. Þar yrði sætagjald á
góðu verði og farþegum ekiö heim
að dyrum hjá sér.“
Baldur er vélstjóri að mennt.
Hann var á sjó í 18 ár áður en hann
gerðist leigubílstjóri. Baldur slas-
aðist á fæti og sneri sér að akstrin-
um 1982. Hann ekur flugáhöfn Atl-
anta frá Keflavíkurflugvelli til
Reykjavikur. Baldur byrjaði með 8
manna bíl en hann varð of lítill
þegar áhöfnin stækkaði og keypti
Baldur þá 14 manna bíl. Hann seg-
ir að það henti sér vel að vera með
fasta vinnu með leiguakstrinum.
Vinnan tekur mikinn hluta af
tima Baldurs. „Aðaláhugamál mitt
er að fá Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra til að skilja það að tvö-
falda þarf Reykjanesbrautina. Um
hana fara miklir þungaflutningar
og meiri en nokkum grunar.
Eiginkona Baldurs er Guðrún
Agnarsdóttir sem vinnur einnig
sem leigubílstjóri og er eini kven-
leigubílstjórinn í Keflavik. Hún
keyrir sinn bíl og hefur sitt at-
vinnuleyfi.
„Það er mjög gott að hafa kon-
una með sér í þessu. Við getum
meðal annars rætt vinnuna saman.
Sumar eiginkonur hafa ekki skilið
vinnuna, hvemig hún er stunduð.
Bílstjórar þurfa að vera mikið að
heiman, meðal annars um helgar
og langt fram á nótt. Þetta hefur
valdið misskilningi á milli hjóna.“
Baldur á þrjú börn frá fyrra
hjónabandi, Sigríði, 33 ára, Lín-
eyju, 30 ára, og Sævar, 21 árs. Guð-
rún átti einn son fyrir, Agnar
Gunnarsson, aðstoöarstöðvarstjóra
hjá Atlanta. -ÆMK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1707:
EyÞcfR-
Haldbærar tölur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
DV
Njarövíkingar, sem hér sjást í
leik gegn Keflvíkingum, leika við
Breiðablik í Kópavogi.
Breiða-
blik-Njarðvík
í körfunni
Einum leik var frestað i 12.
umferð í úrvalsdeildinni í körfu-
bolta. Var það leikur Breiðabliks
og Njarðvíkur sem átti að vera
síðastliðið fimmtudagskvöld. Sá
leikur hefur verið settur á í
kvöld kl. 20.00 og er hann leikinn
í Kópavogi. Njarðvíkingar verða
að teljast sigm-stranglegri en
Kópavogsbúar leika á heimavelli
og það hefur alltaf mikið að
segja. í kvöld verður einnig leik-
ið í unglingaflokki í körfunni og
eru fjórir leikir á dagskrá.
íþróttir
Mikill fjöldi leikja er í hand-
boltanum í kvöld þótt ekki leiki
meistaraflokkar karla og
kvenna. Þrír leikir era á dagskrá
í 1. flokki karla og einn í 1.
flokki kvenna. Sex leikir verða
leiknir í 2. flokki karla og tveir í
2. flokki kvenna. Leikimir eru
flestir á höfúðborgarsvæðinu en
þó er einn leikur á Akureyri i 2.
flokki karla.
Fyrir þá sem heima sitja er
vert að benda á tvo þætti í sjón-
varpinu, Mörk dagsins á Stöð 2,
þar sem ítalska knattspyman er
í fyrirrúmi, og Markaregn í
Sjónvarpinu þar sem enska bolt-
anum um helgina eru gerð skil.
Bridge
Keppni er nú komin á lokasprett-
inn í riðlakeppni Reykjavíkurmóts-
ins í sveitakeppni. Að loknum 11
umferðum af 13 virðist sem mótið sé
mun meira spennandi í B-riðli en A-
riðli. Fíórar efstu sveitirnar í hvor-
um riðli vinna sér rétt til þátttöku í
útsláttarkeppni um Reykjavíkur-
meistaratitilinn. Sveit VÍB hefur
forystu í A-riðli með 228 stig, Hjól-
barðahöllin 219, Eurocard 212, Júlli
199 og Fjölritun Daníels Halldórs-
sonar hefur 188 stig. 1 B-riðli hefur
sveit Samvinnuferða-Landsýnar 214
stig, Landsbréf 213, Halldór Már
Sverrisson 199, Búlki sömu sti-
gatölu, Símon Símonarson 192 í
fimmta sæti og Roche 191 í sjötta
sæti. Síðustu tvær umferðirnar
verða spilaðar á morgun, þriðjudag.
Hér er spil úr 11. umferð mótsins.
Það er ekki oft sem menn fá 9 spila
lit á eina hendi. Eins og við mátti
búast var algengasti samningurinn
fimm tíglar doblaðir:
* 10
» ÁG10975
* 7
* Á10752
* G
V K8
* KD10986432
* K
* D987652
D62
•f ÁG
* 4
* AK43
•* 43
* 5
* DG9863
Ef vestur opnar á spilin á einu
laufi og norður kemur inn á einu
hjarta er langeðlilegasta sögnin að
stökkva beint í fimm tígla. Sú sögn
er sögð til vinnings eftir opnun vest-
urs, þó að margir tapslagir virðast
sjáanlegir á hendi austurs. En með
bestu vöm er hægt að setja þann
samning tvo niður. Suður spilar út
einspili sínu í laufi og norður upp-
færir tígulslag hjá suðri með því að
spila laufi aftur. En það voru ekki
allir sem fundu þá vörn og sumir
sagnhafa sluppu einn niður.
ísak Öm Sigurðsson