Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.1997, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 1997 8 ’3’\T
★
22 ★
★
um helgina
* *
Árbæjarkirkja: Bamaguðsþjón-
usta Ú. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestamir.
Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Kaffi eftir
messu. Ámi Bergur Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Dr.
Siguijón Ámi Eyjólfsson héraðs-
E;ur messar. Samkoma Ungs
með hlutverk kl. 20. Gísli Jón-
asson.
Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Pálmi Matthí-
asson.
Digraneskirkja: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Bamaguðsþjónusta á
sama tíma.
Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 11 í
tdlefhi átaks Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga, „Fóm á fóstu“.
Friðrik Hilmarsson prédikar. Prest-
ur sr. Hjalti Guðmundsson. Baraa-
starf kl. 13. Bænaguðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Hjalti Guðmondsson.
EUiheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Baldur Sigurðsson.
FeUa- og Hólakirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur
Karl Ágústsson. Bamaguðsþjónusta
á sama tíma í umsjón Ragnars
Schram. Prestamir.
Gauiverjabæjarkirkja: Messa kl.
14. Úlfar Guðmundsson.
Grafarvogskirkja: Barnaguðs-
þjónusta kf. 11. Umsjón hafa Hjört-
ur og Rúna. Bamaguðsþjónusta í
Rimaskóla kl. 12.30 í umsjón Jó-
hanns og Ólafs. Guðsþjónusta kl.
14. Fundur með foreldmm ferm-
ingarbarna úr Húsa- og Hamra-
skóla eftir guðsþjónustuna. Prest-
amir.
Grensáskirkja: Fjölskyldumessa
kl. 11. Prestur sr. Halldór S. Grön-
dal. Eimý, Sonja og Þurfður verða
með bamaefni. Bamakór Grensás-
kirkju syngur.
Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjónarmenn sr. Þór-
hildur Ólafs, Natalía Chow og
Katrín Sveinsdóttir. Sunnudaga-
skóli í Hvaleyrarskóla ld. 11. Um-
sjónarmenn sr. Þórhallur Heimis-
son, Bára Friðriksdóttir og Ingunn
Hildur Hauksdóttir. Guðsþjónusta
kí. 14. Prestur sr. Gunnþór Ingason.
Sr. Helgi Hróbjartsson kristniboði
prédikar við lok kristniboðsdaga í
Hafnarfirði og segir frá starfi sínu í
opnu húsi í Strandbergi eftir guðs-
yónustuna. Taize-tónlistarguðs-
vjónusta kl. 20.30. Prestur sr. Þór-
vallur Heimisson. Prestar Hafnar-
fjarðarkirkju.
Hallgrimskirkja: Fræðslumorg-
unn kl. 10. Tómasarguðspjall:
Gunnar J. Gunnarsson lektor.
Messa og bamasamkoma kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjömsson.
Hátcigskirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Messa kl. 14. Sr. Helga Soffia
Konráðsdóttir.
Hjallakirkja: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Krislján Einar Þor-
varðarson þjónar. Bámaguðsþjón-
usta kl. 13 í umsjá sr. frisar Krist-
jánsdóttur. Prestamir.
Kópavogskirkja: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Ægir Fr. Sigur-
geirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr.
Bragi Skúlason.
Langholtskirkja: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Gylfi Jónsson. Kaffisopi eftir
messu. Bamastarf kl. 13 I umsjá
Lenu Rósar Matthíasdóttur.
Laugarneskirkja: Messa kl. 11.
Væntanleg fermingarböm aðstoða.
Félagar úr kór Laugameskirkju
syngja. Bamastarf á sama tíma.
Guðsþjónusta kl. 14 í Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12. Kvöldmessa kl.
20.30. Kór Laugameskirkju leiðjr
söng. Lifandi tónlist frá kl. 20. Olaf-
ur Jóhannsson.
Lágafellskirkja: Messa kl. 14.
Bamastarf í safnaðarheimilinu kl.
11. Jón Þorsteinsson.
Neskirkja: Bamastarf kl. 11. Opið
hús frá Ú. 10. Sr. Frank M. Hall-
dórsson. Frostaskjól: Starfið flyst í
Neskirkju. Kirkjubíllinn ekur á
milli. Messa kl. 14. Prestur sr. Hall-
dór Reynisson. Sr. Sigurður Ámi
Þórðarson flytur erindi að lokinni
messu um bænir og trúarlíf.
Irmri-Njarðvíkurkirkja: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 sem fram fer í Ytri-
Njarðvíkurkirkju, Brúðuleikhús.
Umsjón Haraldur Gíslason og Sara
Vilbergsdóttir. Böm sótt að safhað-
arheimilinu kl. 10.45. Baldur Rafn
Sigurðsson.
Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Brúðuleikhús.
Baldur Rafn Sigurðsson.
Seljakirkja: Bamaguðsþjónusta kl.
11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir
Ástráðsson prédikar. Sóknarprest-
ur.
Seltjarnameskirkja: Messa kl.
11. Prcstur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Barnastarf á sama
tíma.
iði söfnuðurinn: Guðsþjónusta
kl. 14. Bamastarf á sama tíma.
Kaffi eftir messu.
Villingaholtskirkja í Flóa: Messa
nk. sunnudag kl. 13.30. Nýjum org-
anista fagnað. Vænst er þátttöku
fermingarbama. Kristinn Á. Frið-
finnsson.
Úvenjuleg list á Mokka:
Það er síminn til
Mokka ríkir alltaf ró og næði.
Engin tónlist, ekkert stafrænt
áreiti, aðeins malið í kaffikvöm-
inni, skvaldrið í gestunum,
skrjáfið í dagblöðunum. Dag-
setning þeirra er það eina sem
virðist minna okkur á nálægð
nýrrar aldrar enda hefur
Mokka ekki breyst frá dögum
módemismans.
En nú hringir
loksins síminn!
Listamaðurinn
Magnea Ásmunds-
dóttir hefur hengt
upp 24 síma til að
ná betra sambandi
við áhorfendur.
Þetta er svar við
kalli tímans. Gest-
ir staðarins geta
bókstaflega rætt
við verkið um
Þetta er Magnea Ásmunds-
dóttir, listamaöurinn á bak
viö símaverkiö á Mokka.
DV-mynd GVA
hvað sem er. Símamir hanga á
veggjum umhverfis salinn og fólk
getur hringt inn og rætt við gest-
ina í síma 561 9080, gestir staðar-
ms
hringt
á milli
borða og
jafnvel út í bæ.
Klukkan 15 á
laugardögum,
þriðjudögmn og fimmtudögum
verða listamenn á beinni línu inn
á staðinn og taka fóstum tökum á
ýmsum viðbrenndum málum í
myndlistarlífinu.
Ráðamenn í mennta- og menn-
ingarmálmn munu sitja fyrir
svörum, hver í sínum embættis-
tumi og er umræðunni útvarpað
út í sal á Mokka I gegnum ráð-
stefnukerfi Pósts og síma. Auk
þeirra verða ýmsir aðrir málsmet-
andi aðilar fengnir á línuna. Lista-
menn og aðrir góðir gestir staðar-
ins geta nú lagt orð í belg til
lausnar á vanda myndlistarinnar.
Hringdu í gesti á Mokka í síma
561 9080.
Komdu á Mokka og það er sím-
inn til þín.
-ilk
Islenskt kvöld
Kaffileikhúsið í Hlaðvarpanum
státar iðulega af skemmtilegum og oft
óvenjulegum uppákommn. Nú um
helgina verður í fyrsta sinn sýningin
„íslenskt kvöld ... með Þorra, Góu og
þrælum“ í þessu athyglisverða kaffi-
leikhúsi.
Um venjulegt þorrablót er ekki að
ræða heldur dagskrá og kvöldskemmt-
un þar sem leitast er við, með frásögn,
leikatriðum og tónlist, að varpa ijósi á
forna og nýja þorra- og góusiði á fræð-
andi og sprellfyndinn hátt. Ýmsar per-
sónur, sem allir hafa heyrt um en fáir
þekkja og enginn hefur séð, skjóta
upp kollinum. Hér er stillt saman list
leikaranna og tónlistarmannsins og
frásögn fræðimannsins.
Sögumaður sýningarinnar og jafn-
framt höfundur frásagnarinnar er
Ámi Bjömsson. Harald G. Haralds og
Vala Þórsdóttir em leikaramir en það
var Vala sem samdi leikatriðin. Diddi
fiðla er tónlistarmaðurinn og hann er
sá sem samdi og útsetti sönglögin. Um
búninga sá Þórunn E. Sveinsdóttir,
ljósahönnun er í höndum Jóhanns
Bjama Pálmasonar en það er Brynja
Benediktsdóttir sem leikstýrir verk-
inu.
Fram til loka marsmánaðar verður
þessi dagskrá öll fostudags- og laugar-
dagskvöld en frumsýningin er á
sunnudaginn. Boðið verður upp á
kvöldverð fyrir sýningu, matreiddan
af hinum íslensk-spænska kokki Edu-
ardo Perez. Sýningamar hefjast alltaf
kl. 21.00 en húsið er opið frá kl. 19.00.
-ilk
með Þorra, Góu og þrælum
„Góa kemur meö gæöin sfn / gefst þá nógur hitinn. / Fáir sakna Þorri, þín. / Þú hefur veriö skitinn." Úr Góukvæöi
sem flutt er á sýnlngunni.
DV-mynd Pjetur
Listasafn Kópavogs:
Þrír listamenn opna sýningar
Listasafh Kópavogs er stórt og
glæsilegt. Á morgun ætla þrír lista-
menn að opna sýningar þar á verk-
um sínum sem allar munu standa til
2. mars.
í vestursal safnsins mun Ásdís Sig-
urþórsdóttir sýna lágmyndir en í
verkum sínum sameinar hún skúlpt-
úr og málverk. Lágmyndimar em
mótaðar úr bómullarpappír sem fest-
ur er á tré. Pappírinn gefur myndun-
um lífræna áferð og á þennan grunn
málar Ásdis ýmist með olíu- eða
akrýllitum eða vaxi. Þetta er fimmta
einkasýning Ásdísar en hún hefúr
tekið þátt í mörgum samsýningum,
hér heima og erlendis.
Táknmyndir hugans - minningar-
brot nefhir Sólveig Helga Jónasdóttir
myndlistarkennari sýningu sína sem
verður á neöri hæð safnsins. Verkin
hennar eru unnin í olíu á striga.
Maðurinn og fjöllin eru meginstefið í
minningaheimi listakonunnar en
eðli minninganna ólíkt. Sumar eru
sléttar og stoknar, aðrar þokukennd-
ar og enn aðrar túlkaðar af tilfinn-
ingahita með snöggum pensildrátt-
um. Þetta er fyrsta einkasýning Sól-
veigar Helgu.
Mannslíkaminn
meginviðfangsefnið
Þarna verður líka myndhöggvar-
inn Helgi Gíslason. Hann mun sýna
sjö höggmyndir, unnar í gifs, og fjór-
ar mannlýsingar úr bronsi og gifsi.
Einnig mynda þijár stórar kolateikn-
ingar, sem vísa til fyrri verka lista-
mannsins, eins konar ramma utan
um sýninguna. Mannslíkaminn er
meginviðfangsefhið í verkum Helga
að þessu sinni. Þetta er 14. einkasýn-
ingin hans en útilistaverk hans eru
víða um land. Helgi hefur fengiö
margar viðurkenningar fyrir verk
sín, þar á meðal bjartsýnisverðlaun
Bröstes árið 1991.
Sýningamar eru allar opnar frá kl.
12.00 til 18.00 nema á mánudögum.
-ilk
Úr landslagi í af-
strakt á Kirkjuhvoli
í tileöii þess að nú hefur Lista-
setrið Kirkjuhvoll á Akranesi sitt
þriðja starfsár verður á morgun
opnuð sýningin „Úr landslagi í af-
strakt“. Sýning þessi er úr safiú
Hafnarborgar, menningar- og lista-
stofhunar Hafnarfjarðar. Sýnd
verða verk eftir Ágúst Petersen, Ás-
grím Jónsson, Benedikt Gunnars-
son, Bjöm Roth, Eirík Smith, Jón
Þorleifsson, Júlíönnu Sveinsdóttur,
Nínu Tryggvadóttur, Sigurð Sig-
urðsson, Svein Bjömsson og Vetur-
liða Gunnarsson. Viðfangsefhi sýn-
ingarinnar er landslag sem verður
kveikja að afstraktmyndum og af-
straktmyndir sem kvikna af lands-
lagi. Sýningin stendur til 23. febrú-
ar en Listasetrið er opið frá kl.
19.00-21.00 virka daga og frá kl.
15.00-18.00 um helgar. -DVÓ
t