Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1997, Qupperneq 6
26 MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1997 íþróttir Sextán ára Húnvetn- ingur stökk 2,11 - efnilegasti hástökkvari sem komið hefur fram á íslandi Einar Karl Hjartarson, sextán ára piltur úr Ungmennasambandi ''Austur-Húnvetninga, náði frábær- um árangri á meistaramóti íslands 15-18 ára í frjálsum íþróttum í Laugardalshöllinni í gær. Einar Karl stökk 2,11 metra sem er nýtt drengjamet og unglingamet innan- húss og aðeins fjórum sentímetrum frá íslandsmeti fúllorðinna innan- húss. Það er 2,15 metrar og í eigu Gunnlaugs Grettissonar. Einar Karl stökk fyrir skömmu 2,06 metra og þá setti hann drengja- met og jafnaði imglingametið. Drengjametið, 2,05, átti Einar Kristjánsson, og unglingametið, 2,06, átti Unnar Vilhjálmsson. „Ég bjóst alls ekki við þessu, sér- staklega ekki eftir fyrsta stökkið sem mistókst illa,“ sagði Einar Karl í spjalli við DV eftir aö hafa sett metið. „Ég er byrjaður að æfa hjá Jóni Sævari Þórðarsyni á Akureyri og hef bætt mig mjög mikið hjá hon- um. Ég á honum mikið aö þakka. Hástökkið er aðalgreinin mín en ég er líka að leika mér í blaki með meistaraflokki KA. Ég stefni að því að bæta karlametið utanhúss í ár, og byggi það á því hve nálægt ég var því að stökkva 2,13 á þessu móti,“ sagði Einar Karl, sem stund- ar nám við Menntaskólann á Akureyri. íslandsmet fúllorðinna utanhúss er 2,16 metrar og handhafi þess er Einar Kristjánsson. -Hson/VS NM í keilu: Heiðrún setti íslandsmet Þrátt fyrir ágætan árangur varð ís- land í botnsætunum á Norðurlanda- rfíótinu í keilu, bæði í karla- og kvennaflokki, en mótinu lauk í Eskilstuna í Sviþjóð í gær. Heiðrún Bára Þorbjömsdóttir setti íslandsmet kvenna i þremur leikjum þegar hún fékk 671 stig, eða 223,7 stig að meðaltali. í einstaklingskeppni náði Ingi Geir Sveinsson bestum árangri en hann varð í 19. sæti af 30 keppendum í karlaflokki með 201,4 stig að meðal- tali. Ásgeir Þór Þórðarson varð í 22. sæti, Freyr Bragason í 23., Ásgrímur H|slgi Einarsson í 26., Jón Helgi Bragason í 27. og Davíð Löve í 29. sæti. Elín Óskarsdóttir náði bestum ár- angri í einstaklingskeppni kvenna, fékk 189,1 stig að meðaltali og varð í 20. sæti af 30 keppendum. Heiðrún varð í 25. sæti, Sólveig Guðmunds- dóttir í 27., Guðný Helga Hauksdóttir í 28., Theodóra Sif Pétursdóttir í 29. og Ragnheiður Þorgilsdóttir í 30. sæti. Karlaliðið lék á 200 pinna meðaltali í fimm manna liðakeppni og kvenna- liðið á 181,3 að meðaltali. Þetta er góð- ur árangur hjá báðum en dugði skammt, enda em Norðurlandaþjóð- imar ávallt í fremstu röð á Evrópu- og heimsmeistaramótum. -VS Badminton: Þrefatt hjá Haraldi Haraldur Komelíusson, TBR, varð í gær þrefaldur íslandsmeistarai í öðlingaflokki í badminton. íeinliðaleik sigraði hann Gunnar Bollason, TBR, í úrshtum, 15-5 og 15-10.1 tvíliðaleik sigr- uðu hann og Steinar Petersen þá Sigfús Ægi Ámason og Gunnar Bollason, 8-15, 15-9 og 15-7. Þá sigmðu Haraldur og Sigríður M. Jónsdóttir þau Sigfús Ægi og Emu Franklin i tvenndarleik 15-3 og 15-6. í tvfliðaleik kverrna sigmðu Sig- riður M. Jónsdóttir og Stella Matthías- dóttir þær Emu og Sigríði Rut Sigurðardóttur, 15-2 og 15-10. í æðstaflokki sigraði Hörður Bene- difttsson, TBR og í tvfliðaleik sigruðu Þorsteinn Þórðarson og Agnar Ár- mannssoa í heiðursflokki sigraði Frið- leifúr Stefansson og hann ásamt Viðari Guðjónssyni unnu tvfliðaleikinn. -GH 1. DEILD KVINNA KR-Stjaman . 15-16 Valur-Haukar 28-42 sHaukar 13 10 2 1 344-249 22 Stjaman 12 10 0 2 277-215 20 Vikingur 12 7 2 3 217-206 16 FH 12 6 2 4 246-234 14 Fram 13 5 3 5 242-236 13 KR 13 4 1 8 225-263 9 Valur 13 3 2 8 220-265 8 ÍBA 11 2 2 7 207-256 6 ÍBV 13 2 0 11 236-290 4 ^Fylkir hætti keppni. Sú ungverska vann í Kópavogi Adrian Hegedus, 19 ára stúlka frá Ungverjalandi sigraði hina 16 ára Marylene Losey frá Sviss, 6-2 og 6-4, í úr- slitaleiknum á alþjóölega kvennamótinu í tennishöllinni í Kópavogi á laugardaginn. Sigur ungversku stúlkunn- ar var nokkuð öraggur en hins vegar var frammistaðan híá Losey óvænt og hennar besti árangur á ferlinum. í tvíliðaleik var Hegedus líka í úrslitum ásamt löndu sinni, Nora Koves. Þær biðu lægri hlut fyrir Annicu Lind- stedt frá Svíþjóö og Lindu Jansson frá Finnlandi, 4-6, 6-1 og 6-2. -VS/DV-mynd ÞÖK 1. deild kvenna í handknattleik: Stjarnan lenti í miklu basli meö KR-stúlkur Stjaman lenti í miklu basli með hið unga og efnilega lið KR í 1. deild kvenna á Seltjamamesi á laugar- daginn en náði að knýja fram sigur í lokin, 15-16. KR-stúlkumar vora yfir lengi vel, komust í 9-5 og voru 9-7 yflr í hálf- leik. Stjaman náði að jafha um miðjan síðari hálfleik, 11-11, og komst síðan yflr. KR jafnaði á ný, 15-15, en Ragnheiður Stephensen skoraði sigxmnark Stjömunnar á síðustu mínútunni. KR átti loka- sóknina en hún nýttist ekki. Besti leikmaður vallarins var Vigdís Finnsdóttir, markvörður KR, sem varði 16 skot en Sóley í marki Stjömunnar varði líka mjög vel. KR nýtti ekki 4 vítaköst í leiknum og Sóley varði tvö þeirra. Mörk KR: Edda Kristinsdóttir 4, Val- dís Fjölnisdóttir 4, Brynja Steinsen 3, Harpa Ingólfsdóttir 2, Selma Grétarsdótt- ir 1, Saeunn Stefánsdóttir 1. Mörk Stjömunnar: Ragnheiðm- Stephensen 8, Nína Bjömsdóttir 4, Herdis Sigurbergsdóttir 1, Sigrún Másdóttir 1, Björg Gilsdóttir 1, Ásta Sölvadóttir 1. Sjötíu mörk í Haukasigri aö Hlíðarenda Vamarleikur var ekki í hávegum hafður þegar Haukar sigraðu Val að Hlíðarenda, 28-42. Staðan í hálfleik var 15-19 fyrir Hauka sem skoraðu 23 mörk í seinni hálfleik. Þetta era liðin sem mætast í bikarúrslitunum eftir hálfan mánuð og miðað við þennan leik er ekki útlit fyrir mikla spennu þar. Thelma Ámadóttir skoraði 15 mörk fyrir Hauka en Sigurlaug Rúnarsdóttir hjá Val var líka í ham og gerði 14 mörk. Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 14, Hafrún Kristjánsdóttir 7, Souja Jóns- dóttir 3, Liija Valdimarsdóttir 1, Júlíana Þórðardóttir 1, Gerður Jóhannsdóttir 1, Ágústa Sigurðardóttir 1. Mörk Hauka: Thelma Ámadóttir 15, Hulda Bjamadóttir 9, Andrea Atladóttir 6, Harpa Melsteð 4, Kristín Konráðsdótt- ir 3, íris Guðmundsdóttir 2, Judith Esztergal 2, Hanna G. Stefánsdóttir 1. -VS DV 1. DEILD KVENNA Keflavík-Njarövík . 104-48 Grindavík-ÍR . 87-37 Breiðablik-ÍS . Keflavík 12 12 0 1056-603 24 KR 13 10 3 946-631 20 Grindavík 14 9 5 973-338 18 Is 14 9 5 837-651 18 Njarðvík 14 5 9 782-972 10 ÍR 14 2 12 589-1144 4 Breiðablik 13 0 13 579-923 0 1. DEILD KARLA Selfoss-Reynir S. . 98-69 Þór Þ.-Höttur . 80-86 Valur-Snæfell . 75-85 Leiknir R.-Höttur . 78-74 Snæfell 15 12 3 1329-1118 24 Valur 14 11 3 1389-1160 22 Leiknir R. 14 10 4 1328-1208 20 Stjaman 13 9 4 1047-1001 18 Höttur 14 8 6 1217-1185 16 Selfoss 14 8 6 1160-1184 16 Þór Þ. 14 7 7 1126-1097 14 Stafholtst. 15 3 12 1135-1420 6 Reynir S. 13 1 12 1064-1276 2 ÍS 14 1 13 976-1122 2 Snæfell með góða stöðu Snæfell stendur vel að vígi í 1. deild karla í körfuknattleik eftir sigur á Val, 75-85, í uppgjöri toppliðanna að Hlíðarenda á laugardaginn. Hólmarar hafa því unnið báðar viðureignir liðanna í vetur og það gæti ráðið úrslit- um um efsta sætið í lokin. Dalon Lamar Bynmn skoraði 36 stig fyrir Snæfell og Bárður Eyþórsson 13 en Ragnar Þór Jónsson skoraði 21 stig fyrir Val og Bjarki Guðmundsson 15. Leiknir vann mikilvægan sig- ur á Hetti i gær og á alla möguleika á að komast í úrslita- keppnina. Stjaman stendur líka vel að vígi. -VS 2. DEILD KARLA Ármann-Breiðablik .........14-37 Hörður-Fylkir ...........frestað KR-Þór A...................22-23 Víkingur 15 15 0 0 473-293 30 Þór Ak. 16 13 2 1 482-345 28 Breiðablik 14 11 0 3 434-290 22 KR 14 9 0 5 379-309 18 HM 13 7 2 4 333-293 16 Fylkir 12 5 2 5 293-261 12 ÍH 12 3 2 7 259-326 8 Ármann 13 3 1 9 296-410 7 Keflavík 13 1 1 11 291-413 3 Hörður 12 1 0 11 257-391 2 Ögri 14 1 0 13 283-149 2 'ÍH og Víkingur leika i kvöld kl. 20. Vonir KR-inga nánast slökktar KR-ingar era nær öragglega úr leik í baráttunni um sæti í 1. deildinni í handknattleik eftir ósigur gegn Þór frá Akureyri, 22-23, í mikilvægum leik á Sel- tjamamesi á laugardaginn. Þórsarar styrktu hins vegar stöðu sína í öðra sæti og fram undan er einvígi þeirra við Breiðablik um hvort liðið fylgir Víkingum í 1. deildina. Bæði lið eiga eftir að mæta Vikingi og eigast síðan við á Akureyri í lokaumferðinni. Samúel Ámason skoraði 6 mörk fyrir Þór og Andrés Magn- ússon 5 en Gylfi Gylfason skor- aði 8 mörk fyrir KR og þeir Óli B. Jónsson og Eirikur Þorláks- son 3 hvor. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.