Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Fréttir Utandagskrárumræða um Æsumálið á Alþingi i gær: Bjartsýn eftir að hafa hlýtt á þingmenn - segir Kolbrún Sverrisdóttir - ráðherra of mikið í vörn, segir Kristinn H. n w m 1 j 11 ; ! 11 I WJ Fjöldi vina og ættingja Kolbrúnar Sverrisdóttur fylgdist meö umræöunum í þinginu í gær. DV-mynd ÞÖK „Það athyglisverðasta sem ég heyrði hér í þinginu í dag var að í dag eru hundrað skip á sjó sem ekki ættu að vera það. Það bendir ekki til þess að við sköpum sjó- mönnunum okkar öryggi. Barátta okkar fyrir því að skipinu verði náð upp hefur helgast af þvi að þetta er framkvæmanlegt og það kom berlega í Ijós hér í dag. Það sem nú vantar er vilji,“ segir Kol- brún Sverrisdóttir, konan sem missti eiginmann og föður með skelfiskbátnum Æsu IS sl. sumar, að loknum utandagskrárumræðum um fjárframlög til rannsókna sjó- slysa á Alþingi í gær. Fjölmargir þingmenn stigu í pontu og létu allir sem einn í ljós vilja sinn til þess að auknum fjár- munum yrði varið til rannsókna sjóslysa. Kolbrún segist bjartsýn eftir að hafa hlýtt á þingmennina en segist hefði viljað fá skýrari svör frá samgönguráðherra, Hall- dóri Blöndal, um málið. Kem aftur ef þarf „Lög kveða á um að sjóslys skuli upplýst og þetta tiltekna slys verð- ur aldrei upplýst nema með getgát- um ef skipið verður ekki híft upp. Ég mun fylgja málinu eftir og ef til þarf kem ég aftur,“ segir Kolbrún en fjöldi vina og ættingja fylgdi henni á þingpalla í gær. „Allir ræðumenn aðrir en ráð- herra voru mjög fýsandi þess að við tækjum okkur tak, þing og rík- isstjóm, og settum aukið ijármagn í rannsóknir og legðum aukna áherslu á að upplýsa mál af þessu tagi,“ sagði Kristinn H. Gunnars- son, þingmaður Alþýðubandalags- ins á Vestfjörðum, málshefjandi ut- andagskrárumræðunnar í gær. Kristinn segir sér hafa fundist ráðherra hafa verið fullmikið í vöm, rétt eins og hann hefði verið gerður ábyrgur í málinu. Ekki hafi verið meiningin að veitast að hon- um sérstaklega, málið hafl verið lagt fram og skorað á menn að gera betur en hingað til. Valdiö í höndum ráöherra „Eins og málið stendur er valdið í höndum ráðherra og ég vonast til þess að látið verði til skarar skríða. Ég spái því að þingmenn muni vinna að málinu í framhald- inu og þess muni sjá stað við gerð næstu fjárlaga að hugarfarsbreyt- ing hefur orðið,“ segir Kristinn H. Gunnarsson. Ámi Johnsen var meðal þeirra sem tóku til máls í þinginu í gær og hann sagði sögu af 59 brúttó- lesta bát úr Vestmannaeyjum. Þeir sem keyptu skipið sáu mjög fljótt að eitthvað var að því og treystu sér ekki til þess að gera það út. Þeir báðu því um úttekt frá Sigl- ingamálastofnun. „í ljós kom við þá skoðun að skipið var alls ekki hæft til þess að vera á sjó og var undarlegt að það skyldi ekki sokkið fyrir löngu. Það er með ólíkindum að þessi niður- staða skyldi ekki liggja fyrir því þegar það var keypt hafði það haf- færisskírteini frá Siglingamála- stofnun og engar athugasemdir gerðar. Tíu tonn vom fjarlægð af þilfari þessa litla skips til þess að ráða bót á vandanum," sagði Árni. Hann hvatti samgönguráðherra til þess að láta framkvæma hallamæl- ingar á öllum íslenskum skipum, lengri en 15 metrar. Skylt aö upplýsa Kristján Pálsson, þingmaður Reyknesinga, sagði í umræðunum í gær að lög nr. 21 1986 skylduðu Rannsóknamefnd sjóslysa til þess að upplýsa mögulegar ástæður fyr- ir sjóslysum. Hann sagði að þær 7 milljónir sem veittar væm til þess verkefnis árlega dygðu ekki einu sinni til þess að gefa árlega út bók um sjóslys. „Lög í Noregi kveða á um að skylt sé að ná upp skipum sem sökkva. Þjóð sem byggir afkomu sína á fiskveiðum á að sýna að- standendum og minningu drukkn- aðra sjómanna þá sæmd að allt sé gert sem hægt er til að upplýsa slík mál. Á liðnum sjö árum liggja fjög- m- mál óupplýst þar sem fómst tiu sjómenn. í dag er viðurkennt að yfir hundrað skip séu á floti sem ekki ættu að vera það,“ segir Krist- ján Pálsson. Áhersla á leit Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði að fram til þessa hefði höfuðáhersla verið lögð á leit og björgun en menn ekki treyst sér til þess að ná upp skipsflökum. Hann sagði að ef menn vildu að gengið yrði lengra í rannsóknum sjóslysa en gert hefði verið til þessa þá kost- aði það tugi, jafnvel hundmð millj- óna. Svara þyrfti því hvemig ætti að afla fjár til slíkra rannsókna. Halldór sagði að eitt tilboð sem samgönguráðuneytinu hefði borist í verkið hljóðaði upp á 32-33 millj- ónir og að enginn hefði haft sam- band við ráðuneytið til þess að taka þátt í þeim kostnaði. „Það hefur mikið áunnist í slysa- vömum sjómanna og það er gagn- legt fyrir okkur þingmenn að íhuga með hvaða hætti við viljum standa að rannsóknum á sjóslys- um. Til þess höfum við haft góðan tíma frá því að Æsan sökk og ég held að öllum hér hafi átt að vera það ljóst að óskir væm uppi um að skipinu yrði náð upp. Ef áhugi þingmanna hefði verið fyrir hendi sæi þess stað í fjárlögum þessa árs,“ sagði Halldór. í þinginu í gær var upplýst að varnarliðið á Keflavíkurflugvelli hefði ekki þann búnað sem til þyrfti og að það væri ekki tilbúið til þess að leggja í þann kostnað sem nauðsynlegur væri til þess að fá hingað til lands búnað og mann- skap til þess að vinna verkið. -sv Dagfari Hinir vanhelgu og vanhæfu Eitt helsta og mesta fréttaefni fjölmiðla dag hvem em frásagnir úr réttarsölum, þar sem verið er að dæma skúrka og skálka fyrir mis- gerðir, fjárdrætti og ofbeldi. Er þar ekkert lát á og nóg fram undan ef marka má þær niðurstöður kann- ana að heimilisofbeldi fari vax- andi. Ekki veitir því af lögfræðing- um og dómurum í framtíðinni. Þess vegna er það miður að nú er fariö að tíðkast að höfða mál gegn vanhelgum lögfræðingum og vanhæfum dómurum, þannig að það fer að verða spuming um söku- dólga utan eða innan dómsala. Tvö mál hafa vakið sérstaka at- hygli Dagfara að undanförnu af þessu tagi. Annað er mál Vífilfells sem ný- lega var dæmt til að greiða á þriðja hundrað milljónir króna í tekju- skatt, vegna þess að tap sem fyrir- tækið keypti var ekki frádráttar- bært til skatts. Vífilfell borgeir ekki rúmar tvö hundruð milljónir þegjandi og hljóðalaust og hefur nú höföað mál til ógildingar á dómi Hæstaréttar vegna þess að Pétur Hafstein hæstaréttardómari hafi verið van- hæfur til aö dæma í málinu. Pétur mun víst hafa fariö fram á styrk í kosningasjóð sinn í forsetakosning- unum í sumar en ekki fengið. Víf- ilfell telur að dómarinn sé að ná sér niðri á fyrirtækinu fyrir að tíma ekki að borga styrkinn. Hitt málið snýst um lögfræðing hjá Húsnæðisstofnun, sem er sak- aður um að hafa dregið sér fé. Lög- fræðingurinn mótmælir þessum ásökunum og segir að hér sé um launagreiðslu að ræða, sem for- stjóri Húsnæðisstofnunar hafi heimilað. Þannig háttar til að stofnunin hefur haft lögfræðing á sínum snærum og á föstum launum, en lögfræðingurinn hefur verið í góðri trú um að þau störf sem eru lögfræðilegs eðlis hjá stofnuninni skuli greidd sérstaklega sam- kvæmt taxta Lögmannafélagsins. Honum kemur því á óvart að vera rukkaður um fé sem hann telur sig eiga vegna starfa sem hann innti af hendi í vinnutíma sínum á fullum launum. Forstjórinn kannast ekki við samþykki sitt og vísar að öðru leyti til undirmanna sinna, sem hafa með mál lögfræðingsins að gera, enda annast forstjórinn ekki daglega umsjón með störfum starfsfólks stofnunarinnar að eigin sögn. í báðum þessum málum er úr vöndu að ráða. Pétur Hafstein, dómari í Hæstarétti, verður nú að sanna fyrir réttinum að hann hafi ekki verið fúll út í Vífilfell þótt fyr- irtækið hafi ekki borgað í kosn- ingasjóð og lögfræðingurinn hjá Húsnæðisstofnun verður að sanna að Sigurður hafí sagt það sem Sig- urður segist ekki hafa sagt. Eðlilegast væri að sönnunar- byrðinni væri snúið við, þannig að Vífílfell sanni að Pétur hafi verið fúll og forstjóri Húsnæðisstofnunar sanni að hann hafi ekki sagt það sem lögfræðingurinn segir að hann hafi sagt en Sigurður segist ekki hafa sagt. Að öðrum kosti er hætta á að hæstaréttardómarinn verði talinn vanhæfur og dómurinn um Vífilfell ógiltur og eins hitt að lögfræðing- urinn verði að greiða til baka það fé sem hann hélt að forsfjóri Hús- næðisstofnunar hefði leyft sér að greiða í eigin vasa. Ef svo fer, fækkar þeim löglærðu mönnum sem geta kveðið upp dóma um þá skúrka og skálka sem stöðugt eru dregnir fyrir rétt og þá getur þjóðfélagið ekki komið lögum og refsingu yfir þá einstaklinga sem sífellt eru að brjóta af sér og eru miklu hættulegri samfélaginu en löglærðir menn sem eru ýmist fúlir eða í góðri trú um að þeir séu að gera rétt. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.