Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
DV
Fréttir
SR-mjöl, Seyðisfirði:
Loðnan að nálgast 50.000 tonn
DV, Seyðisfirði:
Loðnan hefur verið að veiðast
undan öllu Suðurlandi, frá Stokks-
nesi að Reykjanesi, undanfarna
daga. Gunnar Sverrisson, verk-
smiðjustjóri hjá SR-mjöli, sagði að
þrjú skip hefðu komið á mánudag
til löndunar hjá verksmiðjunni.
Það vekur nokkra athygli að ekkert
þeirra kom af sömu veiðislóðinni.
Björg Jónsdóttir fékk sinn afla á
miðunum út af Ingólfshöfða en þar
hefur fengist nokkru vænni loðna
en annars staðar og því vænlegri til
frystingar. Gullherg VE kom af
miðunum vestan Vestmannaeyja og
Bjsumi Ólafsson AK af miðunum út
af Stokksnesinu. Loðnu var landað
í flestum Austfjarðahöfnum í gær.
SR-mjöl hefúr nú tekið á móti 44
þúsund tonnum til bræðslu og þar
að auki hafa verið flokkuð 5 þús-
und tonn fyrir frystistöðvamar hér.
Það eru því miklar líkur á því að á
þessum eða næsta sólarhring hafi
verksmiðjan tekið á móti 50 þúsund
tonnum frá síðustu áramótum. -JJ
Loðnuvertíöin í hámarki:
Alveg mögu-
leiki á að
taka allan
kvótann
- segir Lárus Grímsson
Dy Akuieyri:
„Það er talsvert mikið um loðnu
hér á þessum slóðum, sérstaklega
miðað við árstíma," sagði Lárus
Grímsson, skipstjóri á nótaskipinu
Júpíter ÞH, þegar DV ræddi við
hann í gær. Júpiter var þá á miðun-
um milli Stokksness og Eystrahoms
en þar fannst umtalsvert magn af
loðnu um helgina.
„Eigum við ekki að segja að þetta
sé fjórða gangan, það er best að
segja það því slíkt er ekki þekkt í Is-
landssögunni. Það veit svo sem eng-
inn hvað er að gerast, en það er
óvenjulega mikið af loðnu hér, tölu-
vert mikið af torfum en nokkuð
flókið að veiða loðnuna."
Láms segir að þessi loðna sé svip-
uð þeirri sem veiðst hefur í allan
vetur, mjög blönduð og fremur smá.
„Þetta er bæði stór og smá loðna en
léleg til flokkunar og þetta gefur
enga Japansloðnu, sýnist mér.“
Láms er þrautreyndur loðnuskip-
stjóri en hann segir mjög erfitt að
segja fyrir um hvemig lokasprettur
vertíðarinnar muni þróast. „Það er
hefðbundið að við veiðum til um 20.
mars, en síðan hafa menn veitt
hrygnt síli og einnig náð óhryngdri
loðnu í einhverjum túrum austur
um í einhvem tíma.
Ef allt er eðlilegt eigum við eftir
3-4 vikur, og það em mjög margir
bátar sem eiga lítið eftir af kvótan-
um og geta bætt við sig umfram-
loðnu. Sennilega em 4-5 skip að
komast í vandræði vegna kvótaleys-
is en ef það væri hægt að deila kvót-
anum niður á skipin gætum við
hugsanlega tekið allan kvótann.
Flotinn er orðinn mun öflugri en í
fyrra og ætli burðargetan sé ekki
orðin um 40 þúsund tonn.
Við búum hins vegar ekki við það
kerfi að menn geti fengið meiri
kvóta án þess þá að kaupa hann af
öðrum. Það em að meðaltali um 10
þúsund tonn eftir á bát og það er
ekkert óraunhæft að við náum því.
í fyrra veiddum við rétt um 700 þús-
und tonn í febrúar og mars og við
ættum að geta það núna ef vel geng-
ur. Það hefur líka sitt að segja að af-
kastagetan í landi hefur stóraukist,
bræðslum hefur fjölgað og aðrar
hafa aukið afkastagetu sína mjög,
sem þýðir að oft þurfa menn ekki að
sigla jafn langt og löndunarbið er
ekki eins algeng," segir Lárus
Grímsson. -gk
smáskór
I Barnaskóútsölunni lýkur á
fimmtudaginn.
Ný sending
af stígvélum.
/V*
Skórfra
500 kr.
Etum í bláu húsi við Fákafen. með Do-Re-Mi.
smáskór
Vtkingur AK að leggjast við bryggju SR-Mjöls drekkhlaðinn.
SV-mynd Jóhann
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar á eftirtöldum gjöldum: Staðgreiðslu og
tryggingagjaldi til og með 12. tímabili með eindaga 15. janúar 1997 og virðisaukaskatti til og með
48. tímabili með eindaga 5. febrúar 1997 og öðrum gjaldföllnum álagningum og ógreiddum hækkunum
er féllu í gjalddaga til og með 15. febrúar sl. á staðgreiðslu, tryggingagjaldi og virðisaukaskatti, virðis-
aukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi
þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila,
skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt
skráningargjöldum, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eft-
irlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan
tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, skipulagsgjaldi, sldpagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi
og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra,
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar bamabætur, ofgreiddur bamabótaauki og
ofgreiddar vaxtabætur.
Fjámáms verður krafíst án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxt-
um og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á kostnað gjaldenda að þeim tíma
liðnum.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjámám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjaldanda.
Fjámámsgjald í ríkissjóð er allt að 10.000 kr. fyrir hvert fjámám. Þinglýsingargjald er 1.000 kr. og stimp-
ilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera
full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, tryggingagjald, vömgjald og virðisaukaskatt, búast við
því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara.
Reykjavík, 25. febrúar 1997.
Gjaldheimtan í Reykjavík
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurjnn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgamesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
Sýslumaðurinn
á ísafirði
í Bolungarvík
á Patreksfirði
á Hólmavík
á Blönduósi
á Sauðárkróki
á Siglufirði
á Ólafsfirði
á Akureyri
á Húsavík
á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Neskaupstað
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyj um
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta VestQarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum