Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Akureyringar sækja kaffihús í auknum mæli: „Riddarar hringborðsins" eru óumdeilanlega frumkvöðlarnir DV, Akureyri:__________________________ Þótt það vefjist fyrir mörgum að skilgreina hvað „kaffihúsamenn- ing“ sé, er hægt að segja með nokkurri vissu að Akureyringar hafl verið að tileinka sér þann sið undanfarin ár að fara á kaffihús í þeim tilgangi að drekka kaffi og spjalla við samferðamenn stna. Veitingastöðum sem selja kaffi hefur fjölgað mjög í bænum og sennilega eru þeir í dag um 15 talsins. Þótt ekki hafi verið mikið um kaffihús á Akureyri lengi vel, eru um 30 ár síðan hópur karlmanna fór að hittast reglulega á Hótel KEA til að drekka kaffi og ræða málin, bæði bæjarmál og landsmálin almennt. Þeir kalla sig „Ridd- ara hringborðs- ins Nokkrir „riddaranna" við hringborðið. F.v: Hreiðar Jónsson, Kristinn G. Jóhannsson, Gunnar Jakobs- son, Sæmundur Pálsson og Níels Halldórsson. DV-mynd gk og hittast alla daga vikunnar, fyrst á tímabilinu 8-10 á morgnana og síðan aftur síðdegis. í þessum óform- lega og síbreyti- lega hópi eru lenn úr flest- um stéttum þjóðfélags- ins, verka- menn, iðnað- armenn, forstjórar, listamenn og verslunarmenn, svo einhverjir séu nefndir, og þeir sem lengst hafa mætt hafa komið nær daglega í um 20 ár. „Riddaramir" láta öll mál til sín taka og eru umræður þeirra yfir kaffibollunum oft hinar lífleg- ustu. Brottfluttir Akureyringar sem sátu við hringborðið áður en þeir fluttu úr bænum líta inn eigi þeir leið til bæjarins og er í flestum tilfellum tekið fagnandi. ( i Komum til að ræða málin DV, Akureyri:___________________________________ Á hverjum laugardags- og sunnudags- morgni allt árið um kring hittast þeir á Súlna- bergi á Hótel KEA á Akureyri og drekka saman kaffi, Aðalsteinn Jóhannsson og Karl Viðar, og segjast þeir hafa haldið þeim sið í a.m.k. tvö ár. „Ég drekk kaffi aðallega heima hjá mér en fæ mér yfirleitt eitthvað annað að drekka þegar ég kem hingaö," segir Karl Viðar. Aðal- steinn er hins veg- ar meiri kaffimaður, segist alltaf drekka kaffi á Súlnabergi og þyki það gott. „Ætli megi ekki segja að ég sé kaffimaður, ég er búinn að drekka kaffi í áratugi og geri mikið af því,“ segir Aðalsteinn. En það er ekki bara drykkjan sem dregur þá á Súlnaberg á hverjum morgni um helgar. „Það má alveg eins segja að ástæðan sé fyrst og fremst sú að koma hingað og hittast en við forum ekki á önn- ur kaffihús. Það er gott að koma sam- an og ræða málin. Ég held að þetta sem er kallað kaffihúsamenning sé ekki áberandi héma á Akureyri og ekki mikið um að fólk sæki svoleiðis staði sérstaklega," sagði Aðalsteinn. Félagarnir Karl Viöar og Aöalsteinn Jóhannesson viö boröiö sitt á Súlnabergi á Akureyri. DV-mynd gk Gunnar Jakobsson hefur drukkiö kaffi á Hótel KEA í 25 ár. Hér er hann t.v. á myndinni ásamt Sæmundi Pálssyni sem finnst víöa þar sem hann kemur lítiö bragö aö kaffinu. DV-mynd gk í morgunkaffi á Hótel KEA í 25 ár Akureyringar fara í auknum mæli á kaffihás - segir Vignir Már Þormóðsson DV, Akureyri: Vignir Már Þormóðsson ræður ríkjum í Café Karolínu í Listagilinu á Akureyri sem margir vilja meina að sé eina „alvöm" kaffi- húsið í bænum. Víst er a.m.k. að þar er kaffið í öndvegi og staðurinn ber þess merki að vera í hring- iðu listalífsins í bænum, listamenn em þar áberandi oft á tíðum þótt fjölmargir aðrir bæjarbúar leggi leið sína „á Karólínu". „Ég hafði verið i veit- ingarekstri og bauðst að taka þátt í uppbyggingunni í Listagilinu. Það var líka kominn tími til að opna svona stað á Akureyri,“ segir Vignir, sem opnaði Café Karolínu í júní 1993, en hann rekur einnig Kaffi List sem er kaffistofa með á Café Karolínu. meiru í versluninni Bókval í Hafnarstræti. „Það er auðvitað hægt að fá kaffi mjög víða hér í bænum en það má segja að Café Karolína sé fyrsta eiginlega kaffihúsið á Akureyri en fleiri opnuðu líka skömmu síðar. Hingað á Café Karolinu kemur alls konar fólk, lista- menn, skólafólk og þverskurður af öðmm bæj- arbúum. Það er líka mikið um að hingað komi Vignir Már Þormóösson viö kaffivélina fólk sem er að kynna sér listalífið í Gilinu og skreppur inn í kaffi í leiðinni. Mér finnst Akureyringar hafa verið að til- einka sér í auknum mæli síðustu árin að fara á kaffihús. Þeir gefa sér meiri tíma en áður til að sækja slíka staði. Það er oft talað um kaffi- húsamenningu og mörgum finnst vera „kúltúr" í kring- um það að fara á kaffihús, til að ræða málin, lesa blöð og hafa það rólegt. Svo má auðvitað segja að það sé viss „kúltúr" í kringum kaffið sjálft. Hér á Karólínu erum við með fjölmargar tegundir af kaffi, t.d. expressó, Rúbín og Kenýakaffi svo eitthvað sé nefnt. Við fáum allt okkar hráefni frá Kaffibrennslu Akureyrar og þess er gætt aö hráefnið sé fyrsta DV-mynd gk flokks.“ - En vilja Akureyringar bara ekki fá sinn Braga? „Það er að breytast, yngra fólkið vill t.d. öðmvísi kaffi en gula Bragakaffið sem eldra fólkið er hrifnara af. Annars er smekkur fólks á kaffi auðvitað misjafn eins og gefur að skilja og þá er um að gera að reyna að koma til móts við óskir fólksins.“ DV, Akureyri:___________________________________ „Það er held ég ekki hægt að tala mikið um kaffihúsamenningu á Akureyri en þó held ég að þetta sé eitthvað að breytast. Það er t.d. ekki mikið um að fólk fari út á kvöldin til að setjast niður á veitingastöðum til að drekka kaffi,“ segir Gunnar Jakobsson sem segist vera geysilega mikill kaffimaður og hefur drukkið morgunkaffi á Hótel KEA i 25 ár. „Ég kem yfirleitt þrisvar til fjórum sinnum í viku hingað. Það sem ég er fyrst og fremst að sækjast eftir er að fá gott kaffi að drekka og svo auðvitað að hitta félagana við hring- borðið. Kaffi er gott hér, ég vil hafa það bragð- mikið og þannig er það hér á Súlnabergi. Ég kem yfirleitt hingað á KEA upp úr klukkan átta á morgnana enda vakna ég alltaf snemma. Yfirleitt er það sama kjaminn sem mætir hérna og einn úr hópnum skilst mér að sé búinn að koma hingað í kaffi 1-2 sinnum á dag í yfir 30 ár. Ég drekk mikið kaffi en fer sáralítið á önn- ur kaffihús. Þó ég hafi sagt að kaffihúsamenn- ing sé ekki mikil hér á Akureyri þá eru hér , auðvitað kaffihús eins og t.d. Café Karolína í ’ Listagilinu og svo er auðvitað hægt að fá kaffi á kránum llka. Mér skilst að það sé að aukast að fólk fari á kaffihús en þetta er miklu minna en t.d. i borginni," segir Gunnar. „Vil fá minn græna Braga" DV, Akureyri:_________________________________ „Ef ég fæ minn græna Braga er ég sáttur við lífið og ég tel mér trú um að það sé boðið upp á grænan Braga hér,“ segir Kristinn G. Jóhannsson, einn riddaranna við hringborðið á kaffiteríu Hótels KEA. Kristinn segist lengi hafa drukkið kaffi á Hótel KEA, fyrst á menntaskólaárum sín- um en síðan var langt hlé á þegar hann flutti úr bænum. En áriö 1980, þegar hann flutti aftur til bæjarins, tók hann aftur upp fyrri siði og mætir á hring- borðið alla laugar- dags- og sunnudags- morgna. Níels Halldórsson, fyrrum verðlagseftir- litsmaður, gerðist son. DV-mynd gk „riddari" fyrir nokkrum árum en segist reyndar vera drekkandi kaffi allan daginn. „Ég er svo vel liðinn að mér er alls staðar boðið kaffi þar sem ég kem. Ég drekk t.d. kaffi í Akureyrarapóteki, KEA-Nettó, Hagkaupi og Brynju og svo auðvitað í KA-heimilinu og hinu heimili mínu, heima hjá mér. Hingað á hringborðið kem ég aðallega til aö hlusta enda skemmtileg sam- setning manna hér við borðið oftast," segir Ní- els sem mætir á hring- borðið daglega. Og Kristinn botnaði þetta: „Ég er mjög sátt- ur við kaffið sem boðið er upp á hér. Annars er ég drekkandi kaffi allan daginn og alltaf grænan Braga.“ Kristinn G. Jóhanns-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.