Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Menntaskólinn í Reykjavík: Stefnum nú á að vinna spurningakeppnina - segir Þórarinn Oli Olafsson í Menntaskólanum í Reykjavík er starfandi Skólafélagið sem er félag ailra skráðra nemenda í MR. Þar ber Þórarinn Óli Ólafsson hið virðulega heiti inspector scholae og er formaður Skólafélagsins. Og hann segir að nóg sé við að vera í þessum gamla og virðulega skóla. „Hér starfar þriggja manna stjóm, auk þess sem níu aðrir mynda miðstjóm. Þetta er fólkið sem hittist vikulega á fundum og skipuleggur félagslifið hvern mánuð fyrir sig. Það er alltaf eitt- hvað að gerast hér í skólanum á hverju kvöldi. Svo erum við með mörg ráð þar fyrir utan sem sjá um hitt og þetta, eins og t.d. Skólablaðið eða Herranótt sem einmitt er að fara að setja upp sýningu 6. mars. Annars höldmn böli og gerum ýmislegt. T.d. er þessi vika listavika, einhver list- viðburður á hverju kvöldi. Við emm að reyna að draga fram þá listamenn sem skólinn á. Eitt- hvað kemur samt til með að breytast í skipulaginu á næsta ári út af lögun- um um frjálsa félags- aðild.“ Þórarinn segir þátttök- una mjög misjafna. „Það fer eftir því hvað mikið er að gera í skól- anum. Sé t.d. mikið um próf og verk- efni í fimmta bekk má búast við slakri aðsókn fimmtubekkinga. Annars eru yngri bekkimir langöflugastir í félagslíf- inu, mun öflugri en þeir eldri. En í heildina litið er aðsókn mjög ásætt- anleg, söngvakeppnin okkar í síð- ustu viku var t.d. ótrúlega vel heppnað kvöld.“ Þórarinn segir að m.a. sé verið að undirbúa „Islenskt dagsverk". „Þá fá öll nemendasamtök á íslandi leyfi tii að skrópa i skólanum gegn þvi að fara út á vinnumarkaðinn og vinna sér inn pening sem síðan fer í að byggja upp menntakerfið á Ind- landi.“ En á hvað annað skyldi vera lögð mest áhersla þessa dagana? „Við ætlum auðvitað að vinna „Gettu betur“, þetta er þjóðarstoltið hér í skólanum! -ggá Þórarinn Óli Ólafsson, inspector scholae í MR, segir nóg við að vera í skólanum enda vinnur heili her fólks við að halda uppi öflugu félagslífi. DV-mynd Hilmar Þór Fjölbrautaskólinn í Ármúla Frjálsa félagsaðildin gerir okkur erfitt fyrir - segir Daníel Scheving Hjá nemendafélagi Fjölbrauta- skólans í Ármúla varð Daníel Scheving fyrir svörum þegar spurt var hvað væri efst á baugi í félags- málum nemenda. „Það er einna helst árshátíðin sem við erum að undirbúa núna. Svo erum við líka að gefa út blað. Það er kannski ekki stórt miðað við hvað sumir aðrir skólar gera en þetta er stærsta blað sem við höfum gefið út.“ Daníel sagði að í ár gæti skólinn ekki haft stóra árshátíðarsýningu eins og oft hefði verið. „Það er út af því að í ár var félags- aðildin í nemendafélaginu gefin frjáls og aðeins helmingur af nem- endum skólans lét skrá sig. Samt fá þeir sem skrá sig ódýrara inn á skemmtanir skólans, ódýrari bækur í bóksölu skólans og fleira. En það sem gerir okkar skóla sérstakan er að hér er svo mikið af fólki sem komið er yfir þennan hefðbundna framhaldsskólaaldur. Það er héma lyfjatæknibraut, sjúkraliðabraut og fleira. Það gengur ekki neitt að virkja þetta fólk enda er þetta fjöl- skyldufólk. Sömuleiðis gengur illa að virkja þann stóra hóp krakka utan af landi sem er í FÁ.“ En hvað hefur nemendafélagið fyrir stafhi þegar það er ekki að undirbúa árshátíðir og gefa út blöð? „Nemendafélagið hefur verið í svolitlu uppnámi að undanfornu en það hafa verið böll, söngvakeppni og listakvöld. Við fengum krakka úr Daníel Scheving hjá nemendafélagi Fjölbrautaskólans í Ármúla segir skól- ann vera sérstakan að mörgu leyti, mikið sé um eldra fólk og krakka utan af landi sem erfitt sér að virkja í félagsstarf. DV-mynd Hilmar Þór skólanum, sem eru að gera ýmislegt sniðugt, til að koma fram, það kom mjög vel út en það var illa mætt. En nú fer skólaárið aö verða búið og brátt fer að líða að kosningum. Bar- áttan var hörð í fyrra en út af frjálsu félagsaðildinni er minna spennandi að taka þetta að sér. Það er ekki úr eins miklu að moða.“ -ggá Kvennaskólinn í Reykjavík: Skemmtilegt og gefandi að starfa með nemendafélagi - segir Katrín Kaaber „Starf nemendafélagsins gengur út á aö hafa nógu mikið félagslíf fyr- ir nemendur. Sömuleiðis geta nem- endur leitað til skólaráðsfulltrúa hafi þeir kvörtun fram að færa gagnvart skólanum," sagði Katrín Kaaber hjá nemendafélagi Kvenna- skólans í Reykjavík þegar Tilveran spjallaði við hana. Er það þá bara fullt starf að vera í forsvari fyrir nemendafélag? „Það er það í rauninni en svo koma tímabil sem eru sérstaklega erfið. Nú er verið að undirbúa árs- hátíðina en í sl. viku var t.d. lista- kvöld og ræðukeppni.“ En eru nemendur duglegir að mæta? „Já, í flestum tilfellum eru þeir það. Það koma að vísu einstöku kvöld sem mistakast en það gerist bara. Helst eru það vídeókvöldin sem virðast ekki ganga upp. En yfir- leitt gengur þetta vel.“ Nú er Katrín gjaldkeri nemenda- félagsins, hvað kom henni til að gefa köst á sér? „Þetta er bara rosalega skemmti- legt og gefandi starf og eykur fjöl- breytnina í skólastarfínu. Við erum nýbúin að hafa leiksýningu, það verður sýning á árshátíðardaginn og svo eru það Tjamardagamir. Það em opnir dagar þegar skólastarfið er brotið upp og krökkunum skipt niður í hópa til að þeir geti gert eitt- Katrín Kaaber er gjaldkeri nemenda- félags Kvennaskólans, eða. Keöj- unnar eins og það er kallað. Eins og annars staðar er nóg um aö vera í Kvennó, m.a. eru að fara af stað svonefndir Tjarnardagar. DV-mynd Hilmar Þór hvað sem þeir hafa áhuga á. Það hef- ur gefist mjög vel og þetta er allt mjög gaman.“ -ggá Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. mars 1997 er 23. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 2. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 23 verður frá og með 10. mars n.k. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 4.693,00 Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. september 1996 til 10. mars 1997 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. mars 1997. Reykjavík, 25. febrúar 1997. SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.