Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 27 Fréttir Erfitt að finna skýringu á fjölgun líkamsárása - segir Svanur Geirdal, yfirlögregluþjónn á Akranesi DV, Akranesi: „Það er mjög erfitt að finna skýringarnar á þessari fjölgun. Maður sér ekki mikinn mun á fólkinu í bænum frá degi til dags. Þetta er eitthvað sem liggur í loft- inu. Það er einhver ókyrrð í fólki, meiri spenna,“ sagði Svanur Geir- dal, yfirlögregluþjónn á Akranesi, við DV. Lögreglan á Akranesi hafði í nógu að snúast á síðasta ári ef miðað er við uppgefnar tölur yfir lögreglumál hjá embættinu. Lög- reglumálin voru 1420 og eftirlits- ferðir 4450. Borið saman við 1995 voru lögreglumál 1317 og eftirlits- ferðir 4380. í þeim 11 flokkum sem heyra undir lögreglmnál er fjölgun mest i líkamsárásum og skemmdar- verkum. Líkamsárásir 1995 voru 40 en 1996 voru þær 62. Hafði því fjölgað um 55%. 70 skemmdarverk voru 1995 en 1996 voru þau 98 og hafði fjölgað um 40%. Aðspurður um fjárveitingar til embættisins sagði Svanur að þær mættu vera meiri. „Við þurfum að fylgjast vel með yfirtíðinni. Við fáum fjárveitingu til hennar og þurfum að passa að hún fari ekki úr böndunum. Varðandi tækja- búnað fáum við það sem við þurf- um. Við erum nýbúnir að fá nýja bifreið og á útmánuðum fáum við aðra fyrir rannsóknarlögreglu- manninn. Þá er búið að tölvuvæða hjá okkur,“ sagði Svanur. Ef teknar eru frá tölur í sam- bandi við líkamsárásir og skemmdarverk virðist flest í góðu lagi hjá lögreglunni á Akranesi. Umdæmið er þægilegt og menn Svans fylgja því eftir. Þeir eru með bestu útkomuna á landinu við skoðun á bifreiðum og útkoma er góð, bæði hvað varðar slysa- tiðni og ástand bíla. -DVÓ Svanur Geirdal yfirlögregluþjónn viö nýju bifreiðina, Dodge Ram, árgerö 1996. DV-mynd Daníel Aövörunarskilti á Reykjanesbraut: FLUGLEIÐIR Hjólförin orðin hættuleg í bleytu og hálku Heppinn áskrifandi DV hlýtur vinning á miðvikudag EEul Eitt skiltanna viö brautina. aíí&’: .'h' DV-mynd ÆMK DV, Suðurnesjum: „Hjólfórin á Reykjanesbraut eru oröin dýpri en almennt er miðað við í stöðlum hjá okkur. Þau geta verið hættuleg, sérstaklega í bleytu og hálku. Við höfum sett upp aðvörun- arskilti sem er í raun neyðarúr- ræöi. Þverhallinn er ekki það mikill aö hjólforin tæmi sig og þetta verk- efni verður sett i forgangsröð hjá okkur í sumar og kaflinn malbik- aður,“ sagði Jónas Snæbjömsson, forstöðumaður Vegagerðarinnar í Reykjanesumdæmi. Það kostar 40-50 milljónir að malbika kaflann. Reykjanesbrautin er orðin hættu- leg á köflum vegna hjólfaranna. Vegagerðin hefur sett upp stór og mikil appelsínurauð skilti þar sem vegfarendur eru varaðir við þessari hættu. Hjólförin mælast 25 mm djúp en mörk Vegagerðarinnar eru 15-20 mm. Skiltin voru sett upp á þremur stöðum, - rétt við flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, við Voga og á Strand- heiði. Vegalengdin er rúmlega 7 km. Merking á skiltunum sést frá báð- ar þótt þeir hafi þá verið komnir um áttum. Ekki fengust peningar til niður fyrir mið Vegagerðarinnar. að malbika umrædda kafla sl. sum- -ÆMK Borgarnes: Flutninga- bíll valt Stór flutningabíll með vagn fór út af veginum við gatnamót Ólafsvíkurvegar og Vesturlands- vegar skammt fyrir ofan Borgar- nes aðfaranótt laugardags. Hann fór yfir veginn og út af þar sem hann valt á hliðina. Vagninn, sem var fullur af fiski, stóð eftir uppi á veginum. Vagninn var af- fermdur og bíllinn var sóttur daginn eftir en hann var tiltölu- lega lítið skemmdur. -em St. Petersburg beach, Florida Olar potti DV og Flugleiða?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.