Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Síða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 Sviðsljós Charlie Sheen lesin ákæra Leikarinn og ofstopamaður- inn Charlie Sheen hefur nú ver- ið ákærður fyrir að lúskra á kærustunni sinni. Hann mætti {yrir dómara í gær til að hlýða á ákærana. Umrætt atvik átti sér stað i desember síðastliðnum á heimili leikarans. Aö sögn kærustunnar var hann svo harðhentur að hún missti með- vitund. Síðan hafði hann i hót- unum við hana. Sonurinn ekki beint hrifinn Þriggja vikna gamall sonur stórleikarans Pierces Brosnans lét sér fátt um finnast um afrek gamla mannsins i nýjustu myndinni hans, eldfjallatryllin- um Dante’s Peak. Brosnan fór með þann stutta og kærastuna á forsýningu og svaf ungi herra- maðurinn allan tímann. Það verður ekki leyft í framtíðinni. Friðrik krónprins: Litaði á sér hárið en stelpurnar þekktu hann Friðrik krónprins af Danmörku, sem er orðinn 28 ára og er kafari í hemum, er þreyttur á þvi að þekkj- ast alltaf úti á götu og litaði því hár- ið á sér ljóst. En dönsku stelpumar þekktu sinn mann er hann steig inn á bar og fréttin barst skjótt út. Krónprinsinn var vinsæll fyrir í heimalandinu en það að hann skyldi gerast svo djarfur að lita á sér hárið gerði hann enn vinsælli. Friðrik hefur átt margar vinkon- ur gegnum árin og að sögn danskra blaða hittir hami enn margar af þeim sem hann hefur verið ástfang- inn af. Hafi þær eignast kærasta eða eiginmann hefur sá hinn sami einnig orðið vinur Friðriks. Krón- prinsinn hikaði aldrei við að sýna sig opinberlega meö stúlku sem hann var orðinn alvarlega ástfang- inn af, sama hvaö hirðinni eða fjöl- skyldunni fannst um sambandið. Friðrik krónprins Maria Montell. En síðustu unnustu Friðriks, Kötju, var ekki boðið í opinberar veislur konungsfjölskyldunnar og sagði hún honum upp síðastliðið haust. Friðrik gat ekki leynt ástar- sorginni en virðist nú, út á við að minnsta kosti, vera að jafna sig. Hann sést nú oft með söngkon- unni Mariu Montell. Þau era hrifin af sams konar tónlist og eiga marga sameiginlega vini en þau hafa aldrei verið kærastupar, að því er fullyrt er. Friðrik hefur ekki miklar áhyggj- ur af klæðaburði sínum. Eftir margra klukkustunda flugferð frá Bandarikjunum til Danmerkur mætti hann á blaðamannfund á Kastrap í kakíbuxum og köflóttri skyrtu, í leðurstígvélum og með hárið út í loftið. Sumir hefðu að minnsta kosti rennt greiðu í gegn- um hárið, benda blöðin á. ítalska klámstjarnan llona Staller, betur þekkt sem La Cicciolina, er nú farin að sýna á sér kroppinn í gömlu Júgóslavíu. Hér er hún í góöum félagsskap í borginni Split VÍð Adríahafið. Símamynd Reuler Mick Jagger og Jerry Hall á tískusýningu. símamynd Reuter Allt í lagi hjá Mick Rollingurinn Mick Jagger virðist vera búinn að ná sáttum við eigin- konuna, fyrram tískufyrirsætuna Jerry Hall. Eins og lesendur muna er ekki langt síðan hún henti hon- um á dyr fyrir framhjáhald. Þau sáust hins vegar saman á tískusýn- ingu hinnar hugmyndaríku Vivi- enne Westwood í Lundúnum um helgina. Þar var m.a. deilt um ung- an aldur sýningarstúlknanna. Sum- ar voru bara þrettán. Húllumhæ í Hollywood: Gillian verðlaunuð GUlian Anderson þykir víst kyn- þokkafyllsta kona í heimi. Um það má þó deila en hftt er nokkuð víst að hún er góö leikkona, svo góð reyndar að samtök bandarískra kvikmyndaleikara sáu ástæðu til að verðlauna hana fyrir frammistöð- una í Ráðgátum. Það gerðist í miklu húllumhæi vestur í Hollywood á laugardags- kvöld. Margir frægir og minna frægir leikarar fengu styttu fyrir vel unnin störf, bæði í kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum. Þar má nefna Geoffrey Rush, sem leikur að- alhlutverkið í áströlsku kvikmynd- inni Undrinu sem nú er verið að sýna í Reykjavík, og Juliu Louis- Dreyfus, sem fer með aðal- kvenhlut- verkið í sjónvarps- þættinum Seinfeld sem margir kannast Gillian Anderson er Stöð ánægð með sinn hlut. 2 Símamynd Router Leikara- félagið varð fyrst fagfélaga til að afhenda verð- laun sín en á eftir fylgja leikstjórar og handritshöfundar. Verðlaunaaf- hendingum þessum er að sjálfsögðu ætlað að kynda upp fyrir ósk- arsverðlaimin sem allir þrá. Þau verða afhent 24. mars. Miðvikudaginn 12. mars fylgir hin sívinsæla fermingargjafahandbók DV Þessi handbók hefur þóft nauSsynleg upplýsinga- og innkaupabók fyrir alla þó sem eru í leif að fermingargjöfum. Þeir sem hafa óhuga ó að koma ó framfæri efni í þefta blað eru beðnir að hafa samband við Gyðu Dröfn í síma 550-5000 sem allra fyrst. Auglýsendum er bent ó að hafa sam- band við Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, í síma 550-5720, hið fyrsta svo unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu. ATH.: Skilafrestur auglýsinga er til 28. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.