Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.1997, Blaðsíða 36
FRÉTTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Veðrið á morgun:
Éljagangur
og snjókoma
Á morgun er gert ráö fyrir suð-
vestan golu eða kalda og élja-
gangi og snjókomu um landið
vestanvert. Austan til á landinu
verður hæg suðlæg átt og létt-
skýjað. Hiti nálægt frostmarki
allra vestast en frost 2 til 6 stig
austan til.
Veðrið í dag er á bls. 36
Verkfallsundirbúningur hafinn af fullum krafti:
Útlit fyrir sam-
stöðu félaganna
við Faxaflóa
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
„Við munum að sjálfsögðu sam-
hæfa okkar aðgerðir þeim sem Dags-
brún fer út í enda er það svo margt
sem tengist hjá þessum félögunum,"
sagði Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar í Hafharfirði, í morg-
un.
í dag er síðasti dagurinn sem
landssambönd ASÍ gáfu vinnuveit-
endum tO að ganga frá samningum
þegar þau komu sameinuð til samn-
inga fyrir 11 dögum. Að öðrum kosti
sögðu þau að hæfist undirbúningur
verkfallsaðgerða og hann er þegar
hafinn.
í gær var haldinn fundur forystu-
manna verkalýðsfélaganna við Fax-
aflóa og formaður Einingar á Akur-
eyri sat einnig fundinn ásamt
fleirum. Þar voru verkfaUsaðgerðir
ræddar og forystumenn Dagsbrúnar,
sem virðast komnir lengst í þeim
undirbúningi, skýrðu áætlanir sín-
ar.
„Menn hafa sýnt ótrúlegt lang-
lundargeð í þessu samningaþófi en
nú er það á þrotum og þess vegna
ekki annað að gera en að undirbúa
aðgerðir," sagði Kristján Gunnars-
son, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, í morgun.
Fyrir utan verkamannafélögin
eru iðnaðarmannasamböndin líka
að hefla undirbúning verkfalla.
Þannig sagðist Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðarsam-
bandsins, þegar vera farinn að und-
irbúa verkfóU hjá rafiðnaðarmönn-
um.
VerkfaUsundirbúningur Dags-
brúnar er kominn lengst og hefur fé-
lagið boðað atkvæðagreiðslu um
verkfall hjá Mjólkursamsölunni sem
hæfist 9. mars. Gerist ekkert í kjara-
samningunum er síðan boðuð at-
kvæðagreiðsla um aUsherjarverkfaU
hjá Dagsbrún 23. mars.
í dag verður haldinn afar þýðing-
armikUl fundur hjá formönnum
landssambanda ASÍ. Svo gæti farið
að á fundinum yrðu teknar einhverj-
ar ákvarðanir varðandi aðgerðir.
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur hefúr undanfama daga rætt við
nokkur fyrirtæki sem standa utan
Vinnuveitendasambandsins og að
sögn hafa þær viðræður verið mjög
jákvæðar. Það er það eina sem eitt-
hvað hefur miðað í samningavið-
ræðunum. -S.dór
Sjónvarpsmálin:
Starfsfólk
uggandi
„Við tókum ákvörðun um að
hætta útsendingum Stöðvar 3 og
munum senda dagskrá Sýnar út á
rás Stöðvar 3 næstu daga. Erlend-
um birgjum verður nú send til-
kynning um samruna fyrirtækj-
anna og í framhaldinu verður gerð
úttekt á því hvaða samningar eru
í gildi á vegum Stöðvar 3. Að því
loknu getum við tekið afstöðu um
það hvaða efni við höldum áfram
með og hvað ekki,“ sagði Páll
Baldvin Baldvinsson, dagskrár-
stjóri Stöðvar 2, við DV í gær-
kvöld.
* Páll Baldvin sagði engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um starfs-
mannahald en fundað yrði með
starfsmönnum Stöðvar 3 í dag.
Staða þeirra fjögurra sem fóru frá
Stöð 3 á dögunum er enn óljós að
sögn Páls.
„Það mun taka okkur nokkra
daga að átta okkur fullkomlega á
stöðunni. Þetta hefur gerst það
hratt að menn eru ekki enn búnir
að átta sig á því hvernig þetta er
vaxið,“ sagði Páll.
Ásdís Höskuldsdóttir, fjármála-
stjóri Stöðvar 3, sagði við DV í gær
að starfsfólk Stöðvar 3 væri ugg-
andi um sinn hag. Það vissi ekkert
um hver framvinda mála yrði en
«•» vonaðist þó að mál myndu skýrast
nú í morgunsárið.
-sv
DV, Akureyri:
Mokveiði hefur verið á loðnu-
miðunum suður og vestur af land-
inu undanfarna daga þótt inn á
milli hafi veiði verið fremur
dræm, eins og t.d. í nótt.
Samtök flskvinnslustöðva gáfu
út í gær að heildarveiði á vertíð-
inni næmi 803 þúsund tonnum og
er þá eftir að veiða 414 þúsund
tonn miðað við útgefmn loðnu-
kvóta. Menn eru ekki á einu máli
um hvort það mun takast, en Lár-
us Grímsson, skipstjóri á Júpíter
ÞH, er í hópi þeirra sem telja að
möguleiki sé á að ná kvótanum
áður en veiðum lýkur eftir um það
bil mánuð.
Sjá nánar bls. 7
-gk
Ingvar
Helgason hf.
Sœvarhöfða 2
Sími 525 8000
I gær var haldinn fundur nokkurra verkalýösleiðtoga í húsakynnum Dagsbrúnar. Á þeim fundi skýröu Dags-
brúnarmenn frá verkfallsundirbúningi sínum. Auknar líkur eru á aö verkalýösfélögin við Faxaflóa hafi samflot
komi til verkfallsaögeröa.
DV-mynd GVA
Rann undir
hjól strætis-
vagns
Kona slasaðist nokkuð er hún
hrasaði þegar hún var að reyna að
ná strætisvagni við Höfðabakka í
gær. Konan féll með vinstri fót
undir hjól vagnsins og voru tölu-
verðir áverkar á fætinum. Önnur
kona, sem var inni í vagninum,
datt þegar bílstjórinn hemlaði er
hann varð hinnar konunnar var.
Meiðsl þeirrar sem inni í vagnin-
um var voru talin minni háttar.
-sv
FA^STEF^IR
>A ENN I
FLÓASARPAGA!
Guöjón Valdimarsson, skipverji á
Þerney, stjórnar loönufrystingu um
borö í skipi sínu í Reykjavík.
DV-mynd ÞÖK
Loðnufrysting Granda:
150 tonn á |
sólarhring i
- senn hrognataka
Loðnufrysting stendur nú sem
hæst og hjá Granda hf. í Reykjavík
er loðnan fryst um borð í þremur
frystitogurum félagsins sem liggja
við bryggju. Guðjón Valdimars- .
son, skipverji á Þerney, stjórnar
loðnufrystingunni um borð í skip-
inu og eru afköstin í togurunum
þremur að sögn hans um 150 tonn |
á sólarhring.
Búið er að flokka loðnuna þegar t
hún kemur um borð í Þerney. Þar
er hún vigtuð og sett í 9 kg kassa
sem frystir eru í plötufrystitækj-
um skipsins og þvínæst komið fyr- þ
ir í frystilest skipsins sem tekur
23.500 kassa, eða um 630 tonn af
loðnuafurðum að sögn Guðjóns.
Loðnufrystingin stendur í dag og
næstu daga, en þvínæst hefst ,
hrognataka. Alls hafa rúmlega 17
þúsund tonn af loðnu verið fryst á
landinu.
Loðnuvertíðin:
Aflinn
yfir 800
þúsundtonn I
Hlúö aö konunni eftir slysiö.
DV-mynd S