Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.1997, Síða 9
DV FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 Gamanleikurinn Glæpur og glæpur: Leikfélagiö Leyndir draumar frumsýnir gamanleikinn Glæpur og glæpur eftir August Strindberg í Höföaborgarleik- húsinu á morgun. Á morgun frumsýnir áhugaleik- hópurinn Leyndir draumar gaman- leikinn Glæpur og glæpur eftir Aug- ust Strindberg í Höfðaborgarleikhús- inu í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. í Glæp og glæp veltir Strindberg fyrir sér hinni siðferðilegu ábyrgð og sækir efni í eigið líf sem var oft á tíð- um umbrotasamt. Hann var þrí- kvæntur en allar eiginkonur hans voru af þeirri gerð sem hann jafn- framt fyrirleit. Þetta er mjög leik- rænt verk, samansett úr sálfræðileg- um og hversdagslegum þáttum. í því kemur fram barátta milli ástar og haturs og leyfir Strindberg sér að slaka á eitt augnablik, gera grín að sjálfúm sér og hið einstrengingslega í fari hans lætur undan síga fyrir ærslafullri skopstælingu. I fyrsta sinn hár á landi Strindberg er lítt þekktur fyrir gamanleiki sína enda skrifaði hann aðeins tvo og er þetta annar þeirra. Glæpur og glæpur, sem er nú fært upp í fyrsta sinn hér á landi, var slurifað í Lundi í ársbyrjun árið 1899 og tóku skrifin aðeins þrjár vikur. Verkið var fyrst sýnt í Stokkhólmi árið 1900 við mikinn fognuð áhorf- enda. Reyndar púuðu nokkrir sið- vandir leikhúsgestir af hneykslun yfir einu atriðanna en voru yfir- gnæfðir af dynjandi lófataki. Láta leikhúsdraum sinn rætast á kvöldin Áhugaleikhópurinn Leyndir draumar var stofnaður árið 1995. Þar er eingöngu að finna fólk yfir 25 ára aldri sem sinnir vinnu sinni á daginn en lætur leikhúsdraum sinn rætast á kvöldin. Einar Bragi þýddi leikritið en leikstjóm er í höndum Ingu Bjarna- son, sem hefur dágóða reynslu af Strindberg og hefur áður sett upp leikritið Hin sterkari með Alþýðu- leikhúsinu og leikið Fröken Júlíu í samnefndu leikriti, bæði hér heima og í Evrópu. Tríó Reykjavíkur í Hafnarborg Tríó Reykjavíkur heldur tón- leika í Hafnarborg nk. sunnu- dag en tríóið skipa þau Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og og Peter Máté píanóleikari. Á efnisskrá verða þrjú næturljóð eftir Ernest Bloch, tríó nr. 1 í F- dúr eftir Camille Sain-Saáns og tríó op. 70 nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. Tónleikamir eru tileinkaðir minningu Bjöms Ólafssonar sem hefði orðið áttræður þann 26. febrúar. Bjöm Ólafsson var einn af frumkvöðlum íslensks tónlistarlífs frá því um miðja öldina og fi-am á áttunda áratug- inn. Hann gegndi starfi konsert- meistara í Sinfóníuhljómsveit íslands um tuttugu og tveggja ára skeið, auk umsvifamikillar kennslu og flutnings kammer- tónlistar. Ut í vorið á Hvolsvelli Á morgun ætlar karlakvartettinn Út í vorið að halda söngtónleika í fé- lagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Efn- isskrá þeirra félaga mótast mjög af þeirri hefð sem ríkti á meðal ís- lenskra karlakvartetta fyrr á öldinni og hefur einkum verið sótt í sjóði Leikbræðra og M.A. kvartettsins. Kvartettinn var stofnaður í lok október 1992 en hann skipa þeir Einar Clausen, Halldór Torfason, Þorvaldur Friðriksson og Ásgeir Böðvarsson. Við hljóðfærið situr Bjarni Þ. Jón- atansson en hann er jafiiframt þjálfari og leiðbeinandi kvartettsins. Tónleikamir á morgun hefjast kl. 16.00. -ilk Tónlist um helgina Trúbador á ferð Rúnar Þór verður í Kántríbæ á Skagaströnd í kvöld og á Feita dvergnum á laugardagskvöldið. Brilljantín á Fógetanum Dúettinn Brilljantín er skip- aður þeim Ingvari Valgeirssyni gítarleikara og söngvara og Sig- urði Má hljómborðsleikara og söngvara. Þeir félagar munu skemmta gest- um Fógetans í kvöld og næstkom- andi laugardagskvöld. Dansað í Glæsibæ Gömlu jaxlamir í Lúdó og Stef- án munu leika fyrir dansi á Dans- húsinu í Glæsibæ í kvöld og laug- ardagskvöldið 1. mars. Skáld-Rósa á fjalimar á Hvammstanga Anna Sigríður, eiginkona Páls Melsteð, segir Helgu, systur Páls, til verka ■ leikritinu Skáld- Rósa. Elín Jónsdóttir er í hlutverki Önnu og Sólrún Árna- dóttir í hlutverki Helgu. í kvöld frumsýnir Hvamms- tangaleikflokkurinn Skáld- Rósu. Höfundur verksins er Birgir Sig- urðson en leikstjóm er i höndum Harðar Torfasonar, trúbadors og leikara. Sögusvið Skáld-Rósu eru Vellir i Norður-Múlasýslu og Vestur-Húna- vatnssýslu á fyrri hluta nítjándu aldar. Þar segir af lífi skáldkonunn- ar Rósu Guðmundsdóttur. í Skáld- Rósu fylgjumst við með lífi Rósu frá því hún kemur sem vinnukona til Páls Melsteð að Ketilstöðum. Þau felldu hugi saman en var ekki ætlað að eigast. í leikritinu bregður fyrir glettni og trega, gleði og sorg. Tíðarandinn er ekki hliðhollur aðalpersónunum sem glögglega kemur í Ijós I gegn- um hliðarpersónur verksins. Leikendur verksins eru 23. *•» helgina -Ár •íéx' LEIKHÚS Þjúdleikhúsið Litli Kláus og Stóri Kláus sunnudag kl. 14.00 Kennarar óskast fóstudag kl. 20.00 sunnudag kl.20 Villiöndin laugardag kl. 20.00 Þrek og tár sunnudag kl. 20.00 Leitt hún skyldi vera skækja föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 í hvítu myrkri sunnudag kl. 20.30 Borgarleikhúsið La Cabina 26 - Ein föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Fagra veröld föstudag kl. 20.00 Trúðaskólinn sunnudag kl. 14.00 Dómínó föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 17.00 Barpar fostudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 Konur skelfa fóstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 sunnudag kl. 20.00 Frátekið borð laugardag kl. 16.00 íslenska óperan Káta ekkjan föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Fame sunnudag kl. 20.30 Leikfélag Akureyrar Kossar og kúlissur föstudag kl. 20.00 Undir berum himni laugardag kl. 20.30 Hermóður og Háðvör Birtingur föstudag kl. 20.00 laugardag kl. 20.00 Loftkastalinn Áfram Latibær sunnudag kl. 14.00 sunnudag kl. 16.00 Á sama tima að ári fostudag kl. 20.00 sunnudag kl. 20.00 Allatantou laugardag kl. 20.00 Skemmtihósið Ormstunga laugardag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30 Höfðaborgin Glæpur og glæpur laugardag kl. 20.00 Leyndarmál laugardag kl. 20.00 Kaffileikhúsið íslenskt kvöld fóstudag kl. 21.00 Möguleikhúsið Snillingar i Snotraskógi laugardag kl. 14.00 Leikfélag Selfoss Leikhúsveisla Föstudag kl. 20.30 laugardag kl. 20.30 sunnudag kl. 20.30 Leikfélag Hvammstanga Skáld-Rósa fostudag kl. 21.00 sunnudag kl. 15.00 Leikfélag Fljótsdalshér- aðs Þetta snýst ekki um ykkur laugardag kl. 20.30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.