Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Blaðsíða 2
36 LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 ESf’lLF bílar_________________________________________________________________ Kynningarakstur - Dodge Ram skúffubíll: Virðulegur og traustlegur fjallagöslari Á snjó nýtur Dodge Ram sín afburöavel og flýtur lengi. Pegar þaö dugar ekki lengur er bara aö hleypa úr og svamla síöan áfram. DV-myndir Brynjar Gauti Skúffubílar eiga miklum vinsæld- um að fagna í Ameríku; eru þar kallaðir trukkar og notaðir fyrir heimilisbíia og í daglegt snatt, jafn- vel af þeim sem hafa ekki annað að láta í skúffuna en úlpuna sína við og við. íslendingar hafa í mörgum tilvikum frekast keypt skúffubíla af því að þeir hafa verið á dágóðu verði miðað við það sem þeir hafa upp á að bjóða þó að stundum séu fmheitin minni en menn vildu gjarnan hafa. Ekki hefur mikið verið hérlendis um ameríska skúffubíla. Minnsta gerðin frá Ford hefur verið hér í nokkrum mæli en minna um stærri gerðimar; þó hefur F-150 aðeins sést hér á götunum. Chevrolet-skúffubíl- ar af yngri gerðum eru hér nánast ekki til. Nokkuð er hér um Dodge Ram og það er einmitt einn þannig sem við skoðum hér i dag. Þessir bílar eru gjarnan keyptir til að breyta þeim og þessi er engin undantekning. Þó er hann í sjálfu sér ekki mikið breyttur; miklu nær að segja bætt- ur. Hann er ekkert hækkaður á grind heldur aðeins um 4 sm á fjöðr- um. Aftur á móti var vel klippt úr til að koma 38 tomma dekkjum fyr- ir og það eru í rauninni þau sem hækka bílinn upp. Fyrir bragðið ruglast þyngdarpunkurinn í sjálfu sér ekki og fjöðrunin breytist ekki nema að því skapi sem svarar belg- meiri dekkjum. Það fer siðan eftir því hve mikið loft er haft í þeim hvaða áhrif þau sem slík hafa á fjöðrunina. Þetta gerir að sjálfsögðu kröfu um brettakanta sem eru breiðir og svip- miklir og klæddir innan með frauði til að grjótkastið brjóti ekki upp úr þeim. Milli þeirra eru stigbretti sitt hvorum megin, á bitum sem soðnir eru inn á grind til að hreyfast með bílnum en jagast ekki í vindingnum sem gjarnan verður á skúffubílum, ekki síst amerískum, milli skúffu og húss. Fullur af endurbótum Teikningin í Dodge Ram skúffu- bílum er mjúk og ávöl og þessar breytingar bæta bílinn ágætlega frá upprunalegri mynd þannig að útlit bílsins verður virðulegt og traust. Þó þannig að hver fjallagöslari get- ur talist fullsæmdur af því þar sem það gefur jafnframt hugmynd um kraft og dugnað. Undir því stendur þessi bíll með ágætum. Ávalar línur vélarhúss og bretta gefa líka betri sýn fram af bílnum og til hliðanna þannig að dauðu punktunum fækk- ar, séð frá ökumanni. En áfram með endurbætumar: TO þeirra heyra loftlæsing á fram- hásingu, Dana 44, en að aftan er Chrysler 9 1/4 hásing frá framleið- andanum sjálfum. Þá er billinn með óveðursljós og tveggja geisla kast- ara að framan en vinnuljós að aftan. Milli vatnskassahlífar, sem er til- tölulega opin, og vatnskassa er sér- stakt hlifðarnet til varnar því að fá eitthvað í vatnskassann. Sérstakir bitar eru framan og aftan fyrir drullutjakk og rafmagnsúttök fram- an og aftan, t.d. fyrir spil. Skúffan TOYOTA COROLLA LIFTBACK XLI Árgerð 1995, ekinn 23 þús. km, grárað lit, beinskiptur, 5 gíra, rafdrifnar rúður, samlæsing, einn eigandi. Verð kr. 1.190 þús. Upplýsingar í síma 562 4900 og eftir kl. 19 í síma 564 4431. Þessi bfll er vel Ijósum búinn og útispeglar ágætir. Þó bfllinn sé aöeins eilítiö hækkaöur á fjöörum en ekkert á grind er vel hátt undir hann. er klædd með plastbyrðingi, svokölluðum bedliner, en rifflaður gúmmídúkur í gólfi svo þaö sem þar er haldist kyrrt. Skúffuhúsið er fest með fjórum klemmum og allt raf- magn í því 1 einni innstungu þann- ig að fljótlegt er að kippa því af ef það hentar eða setja það á aftur. Bremsuhádjós er í afturglugga skúffuhússins. Enn er ótalinn NTM-bdasími og CB-talstöð, að ógleymdu GPS-stað- setningartæki. Breytingarnar voru að mestu unnar hjá Fjallabdum - Stáli og stönsum, en aUar breyting- ar á rafmagni, viðbótarraftæki og þess háttar eru frá Tæknivélum. Dekkin eru frá BUabúð Benna. Lipur í akstri Frammi í eru þrjú sæti þar sem maður situr hátt og vel, með góðan stuðning, líka undir læri. Bakið á miðsætinu má leggja alveg fram á sessuna og þá er það armhvUa fyrir þá í ytri sætunum en jafhframt er það góð hirsla fyrir ýmsa muni sem gjarnan eiga ekki athvarf. Aftur í er þriggja manna bekkur sem í sjálfu sér er með þokkalega breiðri sessu en séu þeir í framsætunum ekki þeim mun tUlitssamari (eða minni) er lítið fótarými aftur í og þar fer ekki vel um fuUvaxna. Hins vegar er bíllinn það breiður að þennan bekk má í viðlögum nota fyrir legu- bekk (fyrir einn) og láta fara sæmi- lega um sig. Bekkinn má feUa í einu lagi upp að sætisbakinu og þá skap- ast mikið rými aftur í fyrir aUs kon- ar farangur. Ökumaður hefur góða yfirsýn yfir umhverfi sitt og ekki spUlir að útispeglamir eru stórir og góðir. Það er þægUegt að aka þessum bU og þrátt fyrir stærðina er hann ekki stirðbusalegur. Hann leggur mjög vel á (eins og amerískum „trukk- um“ er títt) og öU svörun er lipur. Þó verður þess aðeins vart, þegar lagt er á alveg í borð, að hjólin nar- ti einhvers staðar í þannig að slaka verður á. Ki-aftur er yfirdrifiö nógur í 5,9 lítra 230 ha. vélinni og sjálf- skiptingin svarar mjög vel. Þó verð- ur að varast að skipta niður með botngjöf (kickdown) þegar ekið er í yfírgír því bíllinn hleypur þá yfír yfirgirinn og skiptir sér niður í ann- an með miklum vélarsnúningi óg látum. Eins og vera ber með aldrifsbU af þessu tagi er hægt að setja hann í framdrifið á ferð hvenær sem er þó að driflokurnar séu sjálfvirkar. Vígalegur aftan fyrir, meö breiöa brettakanta og drullusokka og vinnuljós á efri hornum; bremsuháijós í afturrúöu á skúffuhúsi. Skúffan er meö plastbyröingi innan í og gúmmímottu á gólfinu. Handvirkar driflokur em betri en sjálfvirkar ef þennan eiginleika vantar. Skipting mUli drifa er líka handvirk og verður að stöðva bUinn til að skipta, samt er skiptingin stirð og heldur leiðinleg. - í sam- bandi við framdrifið má líka geta þess að mér þótti ljósið í mælaborð- iriu, sem gefur til kynna hvenær framdrifið er á, óþægilega stórt og skært. Það er engin hætta á að það fari fram hjá manni þó minna væri oghógværara. Dekkin ójöfn og hopp- andi Á þjóðvegi er þessi bUl í essinu sínu, enda fyrst og fremst hannaður fyrir þess háttar akstur, hvað sem aldrifinu viðvikur. Þó er verulegur ljóður á þessu eintaki af bU - óeðli- lega mikið misvægi og gúlpar á dekkjunum þannig að á eðlUegum þjóðvegahraða hossast maður og hoppar. Þetta er ekki hristingur eins og orsakast af rangri eða ónógri jafnvægisstiUingu, enda standa jafnvægisklossar í röðum eins og heiðursmerki á flotaforingja innan í felgunum. Þetta hoss er svo óþægUegt að mér finnst frágangssök að una því og hlýt að trúa því að seljandi dekkjanna leggi sig fram um að finna viðunandi lausn á vandanum. Að öðru leyti eru dekkin gripmik- U og mjúk. Þau grípa mjög vel, hvort heldur er í átaki eða hemlun, jafnvel á töluverðum klaka. BUlinn flýtur mjög vel á þeim, eftir þvi sem við varð komið að prófa í kynninga- rakstri; þó er skylt að taka fram að undirritaður fór ekki í þær torfær- ur að hann byggist fyrir fram við að þurfa að hleypa úr dekkjunum, sem heldur ekki varð. Átak í lágadrifi ! djúpum snjó er afar traustvekjandi og öflugt og ekki spUlir að vita sig geta með tveimur handtökum skeUt loftlæsingu á framdrifið. Fjöðrunin var það sem mér líkaði lakast. BUlinn er tUtölulega mjúkur að framan, jafnvel dálítið dúandi, og talað hefur verið um að setja undir hann stffari dempara. Aftur á móti hefur hann greinUega trukkafiöðr- un að aftan, eins og skúffubUar með tóma skúffu gjarnan hafa, þannig að jafnvel á ójöfnu malbiki kemur hann nokkuð í bakið á manni. Hefði ég haft þennan bU lengur með hönd- um og verið öruggari um dekkin hefði ég prófað að minnka loftið í þeim að aftan tU að vita hvort þetta hefði ekki skánað, án þess að koma fram á öðrum eiginleikum bUsins. I sjáffu sér „átu“ dekkin aUar minni háttar ójöfnur en um leið og reyndi á fiöðrunina fannst mér hún ekki eins skemmtUeg og ég hafði vænst. Qtrúlega nettur stórbíll Stundum er talað um smábUa sem séu ótrúlega stórir að innan. Þegar Dodge Ram er annars vegar má snúa þessu við: Þetta er ótrúlega nettur stór bíll. Þeir sem á annað borð hafa þörf fyrir bíl með þessu lagi gera sjáffum sér greiða ef þeir gleyma ekki að skoða þennan bU áður en þeir ákveða kaup annars staðar. Um óbreyttan Dodge Ram hefur verið fiaUað áður i DV-bUum og vis- ast tU tæknUýsingar þar. Þó er vert að geta þess að heUdarlengd bUsins er 5,69 m en breidd, að brettakönt- um fráteknum, rétt um tveir metr- ar. Lengd skúffu er 1,98 m. Hjólahaf er 3,53 metrar og eigin þyngd þessa tiltekna bUs, eftir breytingar, er 2.390 kg. Um verð er erfitt að segja með fullri nákvæmni. Grunnverð er rétt um þrjár mUljónir, skúffuhúsið kostar um 230 þúsund krónur og helstu breytingar um 670 þúsund, samtals um fiórar mUljónir. Síðan koma tU ýmsar viðbætur, ljósabún- aður og annað sem hér er ekki talið tU verðs. S.H.H. I -■ '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.