Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1997, Síða 7
JL*V LAUGARDAGUR 1. MARS 1997 45 Bílasýningin í Genf: Tveir nýir frá Audi ogVW Það birtast tveir nýir „þjóð- verjar" á alþjóðlegu bílasýning- unni í Genf í næstu viku er Volkswagen-samsteypan frum- sýnir þar tvo nýja bíla. Audi sýnir nýjan A6 og líkt og með aðra nýja bila frá Audi verð- ur boðið upp á þrjú stig búnaðar: Advance, Ambition og Ambiente. Grunngerð A6 verður með hliðar- loftpúða í sætum og loftræsti- kerfl eða loftkælingu sem stillir sig sjálf eftir þvi hvort sólin skín eða ekki. í Genf getur líka að líta stationgerð Passat, eða Variant, eins og langbakurinn heitir þar á bæ. Til viðbótar auknu farmrými er þessi nýi Passat Variant með tvo loftpúða, hliðarloftpúða, strekkjara á öryggisbeltum bæði við fram- og aftursæti og ABS- hemla. Þaö eru spennandi línur í hinum nýja A6 og þaö gæti veriö aö hönnuðir A6 hafi litið á teikn- ingarnar hjá þeim sem hönnuðu nýja Passatinn hjá VW. Toyota: Eldur stöðvaði framleiðsluna einn dag Eldsvoði hjá einum af undir- verktökum Toyota eina helgina á dögunum varð til þess að stöðva þurfti framleiðsluna hjá aðal- verksmiðjum Toyota í heilan dag. Margir bílaframleiðendur, og þar hefur Toyota verið í farar- broddi, hafa tekið upp þá stefnu að liggja ekki með mikinn lager til smíðinnar í verksmiðjunum en fá hlutina jafnóðum og þeirra er þörf. Eldur sem kviknaði í einu af dótturfyrirtækjum Toyota, Ais- hin Seiki Co. Ltd. á laugardag í fyrri viku, varð til þess að af- greiðsla á hemlahlutum stöðvað- ist og varð að hætta framleiðslu í öllum verksmiðjum þeirra nema einni heilan dag. Aishin, sem selt hefur 90% af framleiðslu sinni til Toyota, sagð- ist ekki geta annað allri fram- leiðslu á hlutum til hemla fyrir Toyota, vegna þess að þeir hefðu ekki varaafl til að byggja á. í frétt frá Toyota kemur fram að þeir haíi i samstarfi við Ais- hin Seiki komið á fót framleiðslu- línu til að mæta þörf á jöfnunar- ventlum í hemlakerfi, en alls tóku 19 fyrirtæki, þar á meðal Aishin, að sér að leysa málið uns framleiðslan fer aftur á fulla ferð hjá Aisin. Merkjamystíkin gengur út í öfgar - segir sænskur ritstjóri og hvetur fólk til að velja sjálfstætt þegar það kaupir bíl Tin i ínrf f AiitÁi fmw/. i Jag vill att DU ska köpa ••_____ RATF bil! Hvemig velur fólk bíla þegar það fer að kaupa bíl? Þannig spyr Alrik Söderlind, ritstjóri reynsluaksturs í sænsku útgáfunni af auto motor & sport, og hann svarar því í raun sjálfur: Þaö velur bíl eftir sögusögn- um og af hræðslu við að vera öðra- vísi og gera eitthvað afbrigðilegt, ekki af kaldri rökhyggju eða eigin meðvituðum dómi. Þessi úttekt Alriks er skemmtileg og áhugaverð, ekki síst fyrir það að hún hvetur fólk til að gera sjálfstætt mat og láta ekki fóðrast af hug- myndum annarra. Þessu fylgir sjálfslýsing mannsins: nískur eins og andskotinn en bara til þess að geta veitt sér það sem hann raun- verulega vill. Vill heldur kaupa Bang & Olufsen en borða dýran mat. Hefur með mestu ánægju átt Skoda coupé, Trabant og Alfasud. En nú ætlar hann að selja „sudd- ann“ og kaupa Renault Scénic, af hreinni skynsemi. Hann byrjar grein sína á að lýsa því yfir að 10 gerðir af bílum njóti 55% allra bilakaupa. En ekkert er gott bara af því það er almennt, seg- ir hann. Spyrjið bara rússneskan eiganda Lödu Samara. Hann heldur áfram að lýsa því að í raun sé lítill munur á bílum nú til dags og sá sem vogi sér að skyggnast fram hjá „merkjatöfranum" sjái inn í spenn- andi heim. Síðan heldur hann áfram að gefa viðteknum „gæða- merkjum" gúmoren. Merki getur sætt ákveðnum skyldum og að vissu marki verið ákveðin ábyrgð. Volvo gerir bíla sem standa sig vel í árekstri. BMW er öflugur framleið- andi á tæknisviðinu. Benzar era góðir. En Volvo 343 var „ekta skíta- bíll sem hét Volvo,“ segir hann. Þeg- ar fyrsta kynslóð Mercedes Benz E- klassabila kom fram komu óánægð- ir leigubílstjórar saman utan við verksmiðjumar og mótmæltu. Imyndin er stundum dýr En merkjamystíkin getur líka gengið á hinn veginn, segir Alrik. Seat er framleiddur að gæðakröfum Volkswagen. Skoda Octavia er fín- iríis Audi sem illa launaðir Tékkar hafa smíðað. Verðlagningin hefur ekki allt að segja. ímyndin er stund- Nýi jeppinn frá Mercedes Benz Mercedes Benz hefur sent frá sér fyrstu opinbera myndina af nýja Benzjeppanum, sem menn kalla M- klassa, en þetta á að vera alhliða fjölnotabíll eða „All-Activity Vehic- le“, en bUlinn verður smíðaður í Bandaríkjunum. Þessi nýi jeppi kemur í sölu í haust og reiknað er með verði frá 30.000 dollurum á Bandaríkjamarkaði eða sem svarar 2,1 milljón króna. Símamynd Reuter um dýr. Nýi Passatinn er betri en Audi 4 og kostar minna, segir hann. Síðan gengur hann á röðina, pikkar út bíla i tilteknum flokkum, reiknar þá út eftir ískaldri peninga- formúlu, að viðbættri úttekt á rými og haganleik. Reikningsformúlan er einfold: reksturskostnaður (elds- neyti, skattur, trygging, viðhald, dekk, olía,) plús afskrift (samkvæmt listaverði bílasalanna - ekki patent- tölu skattstjóra) plús kaupverð og 7% vextir á það, deilt með 15 þús. km ársakstri, og út úr þessu fær hann kílómetraverð bílsins. Lítiun nú aðeins á hverju hann teflir sam- an: Audi A3 Audi A3 og Volvo S40. Audi hefur vinninginn. Hann er ódýrari þegar öllu er á botninn hvolft - rúmgóður og bjartur, með meiri öryggistilfinn- ingu en Volvoinn. Citroen Berlingo og Volvo 945 (langbakur). Þennan Citroén þekkj- um við ekki hér frekar en aðra af því merki nýlega en þetta er eins konar íjölnotabíll/langbakur. Hann er einnig til undir merki Peugeot og heitir þá Partner. Alrik segir hann skemmtilegan í akstri, rúmgóðan og þægilegan, og fjárhagslega miklu hagkvæmari en Vollann sem hann á fá falleg orð um. Renault Scénic í næsta flokki ber Alrik Söderlind saman Renault Mégane Scénic og Volkswagen Golf langbak, báða með tveggja lítra vél. Hann byrjar á að hæla Golfinum á hvert reipi en klykkir út í þeim pistli með þvi að segja að allir sem framleiða bíla í Golfílokkinum, Escort, Astra, Corolla, Almera, 323 eða hvað þeir nú allir heita ættu að skrúfa niður skiltin sin og loka færiböndunum þangað til þeir hafi sínar stælingar á Mégane Scénic klárar. Síðan tekur hann til að lofa Scénic og endar með að benda á, og vísar til allra þeirra sem efast um árekstursþol róman- skra bíla holt og bolt, að Scénic er eini bíllinn í „Golfklassanum", eins og hann kallar það, sem hefur feng- ið ágætiseinkunn í árekstraprófi auto motor & sport. Skoda Octavia Þá telur A.S. að Skoda Octavia 1,6 sé betri kaup en Saab 900 2,0 og seg- ir m.a. að nýr Skoda Octavia sé rétta valið fyrir alla þá sem vilja kaupa góðan bíl fyrir lítið. Að vísu sé hann ekki áttunda kraftaverkið en í honum fái menn þýsk fram- leiðslugæði úr höndum illa lau- naðra Tékka. Það eina sem Octavi- an hefur ekki til jafns við Saabinn er aftursætið sem er ekki þægilegt fyrir fullorðna. En að öðru leyti ef- ast hann ekki um Octaviuna sem er með sömu botnplötu og Audi A3 og með sömu vél. Volkswagen Passat Að endingu ber Alrik Söderlind saman Volkswagen Passat TDi og Saab 900 2,0. Og þar er Passatinn sigurvegari. Hann er svo hrifinn af Passatinum, með 110 ha. dísilvél sem eyðir aðeins 5,8 1 á hundraðið í blönduðum akstri, en er þar að auki þægilegur, hagnýtur og skemmtileg- ur, ekki síst miðað við verðið, að allir aðrir bílar, frá Saab 9000 2,0 og niður úr, eru að hans dómi hrein- lega úr sögunni. Hann klykkir út með því að und- irstrika enn á ný að við eigum ekki að vera of „merkileg" með okkur þegar við veljum nýjan bíl. En það séum við raunar, upp til hópa. Úr því að öll framleiðslumerki VAG- samsteypunnar (Volkswagen Audi Seat Skoda) eru framleidd eftir sömu gæðakröfum, stundum jafnvel tæknilega séð sömu bílamir með mismunandi merkjum, hvers vegna ættum við þá að borga aukreitis fyr- ir að það standi „Audi“ á bílnum okkar? Endursagt úr auto motor & sport Sérpantanir Aukahlutir - Varahlutir Jeppabreytingar ^uSSr BFGoodrich Cherokee Laredo 4,0 ‘88, blár/grár, ssk., álf., ek. 177 þús. km, rafdr. rúöur, cent-. Verð 1.080.000. Tilboö 795.000. Vagnhöföa 23 Sími 587-0-587 Opel Astra Wagon 1,6 GL ‘96, græns., ssk., toppgr., sumar-/vetrard., ek. aðeins 9 þús. km. Verð 1.490.000. Tilboö 1.340.000. Toyota Touring 4x4 XLi ‘92, rauður, 5 g., ek. 98 þús. km. Verð 1.050.000. Tilboö 895.000. Toyota Corolla XLi ‘94, grásans., 5 d., 5 g., ek. 38 þús. km. Verð 1.100.000. Tilboö 970.000. Toyota Corolla special series ‘92, hvítur, 5 g., rafdr. rúöur, centr. Verð 840.000. Tilboð 740.000.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.