Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
*•»
,8 tónlist
** *
ísland
— plötur og diskar—
t 1. (-) Pottþétt7
Ýmsir
% 2. (1 ) Pop
U2
$ 3. ( 2 ) Boatmans Call
Nick Cave
f| 4. ( 3 ) Romeo & Juliet
Úr kvikmynd
t 5. (12) Evita
Ur kvikmynd
f 6. ( 9 ) Stoosh
Skunk Anansie
í 7. (6 ) Fólkerfífl
Botnleðja
t 8. (16) Strumpastuð
Strumparnir
| 9. ( 8 ) Falling Into You
Celine Dion
110. ( 5 ) Blur
Blur
111. (14) Spice
Spice Girls
# 12. ( 7 ) No Doubt
Tragic Kingdom
* 13. (10) Live
Secret Samadhi
* 14. (Al) Seif .
Páil Oskar
# 15. ( 4 ) Grammy Nominees 1997
Ýmsir
f 16. (13) Secrets
Toni Braxton
117. (Al) Earthling
Bowie
118. (Al) í,Álftagerði
Alftagerðisbræður
$19. (19) Best of Beethoven
Beethoven
120. (- ) íslensku tónlistarverðlaunin
Ýmsir
London
-lög-
I 1.(1) Mama/Who Do You Think You Are
Spice Girls
f 2. (- ) Isn't it a Wonder
Boyzone
t 3. (- ) lf I Never See You Again
Wet Wet Wet
| 4. ( 2 ) Don't Speak
No Doubt
i 5. ( 4 ) Encore Une Fois
T Sash!
t 6. ( - ) Fresh!
Gina G
t 7. (- ) Love Guaranteed
Damage
| 8. ( 3 ) Rumble in the Jungle
Fugees
t 9. ( - ) The Real Thing
Lisa Stansfield
t 10. (- ) It's Over
Clock
New York
t 1.(2) Can't Nobody Hold Me down
Puff Daddy
| 2. ( 1 ) Wannabe
Spice Girls
t 3. ( 4 ) You Were Meant for Me
Jewel
I 4. ( 3 ) Un-Break My Heart
Toni Braxton
| 5. ( 5 ) ln My Bed
Dru Hill
t 6. ( 7 ) Every Time I Close My Eyes
Babyface
| 7. ( 6 ) I Belive I Can Fly
R. Kelly
$ 8. ( 8 ) Don't Let Go
En Vogue
$ 9. ( 9 ) For You I Will
Monica
t 10. (-) GetItTogether
702
Bretland
I 1. (-) Pop
U2
| 2. ( 1 ) Spice
Spice Girls
# 3. ( 2 ) Everything Must Go
Manic Street Preachers
t 4. ( -) B-Sides, Seasides & Freerides
Ocean Colour Scene
# 5. ( 3 ) Ocean Drive
Lighthouse Family
t 6. ( -) Very Best of the Bee Gees
Bee Gees
t 7. ( -) Evita
Various
t 8. ( -) Dreamland
Robert Miles
( 9. ( 8 ) Older
George Michael
t 10. ( -) The Healing Game
Van Morrison
Bandaríkin .
-plöturog diskar-
• 1. (-)Pop
U2
12.(3) Unchained Melody/The Early...
Leann Rimes
t 3. ( 4 ) Falling Into You
Celine Dion
t 4. ( 6 ) Pieces of You
Jewel
$ 5. ( 5 ) Tragic Kingdom
No Doubt
t 6. ( 7 ) Spice
Spice Girls
k 7. ( 2 ) Secret Samadhi
Live
t 8. (10) Bringing Down the Horse
The Wallflowers
| 9. ( 8 ) Baduizm
Erykah Badu
#10. ( 9 ) Blue
Leann Rimes
Tónlistin eykur
áhriíamáttinn
Ein rómaðasta ástarsaga okkar tíma hefur nú
verið færð nær nútímanum. Það var leikstjórinn
Baz Luhrmann (Strictly Ballroom) sem sá um
framkvæmdina á þessari geggjuðu hugmynd.
Leikrit Shakespeares, Rómeó og Júlía hefur ver-
ið fært nær nútímanum og það tekst frábærlega
(þó undirritaður skrifi ekki kvikmyndagagnrýni
í DV).
Kvikmyndatakan og búningamir eiga sinn þátt
í þessari kúvendingu sem hefði samt ekki verið
fullkomin ef hughrifin sem tónlistinni fylgja
hefðu ekki verið til staðar. Tónlistin úr myndinni
stendur vel ein og sér, eykur veralega á áhrifa-
mátt myndarimiar og gerir það að verkum að
áhorfandinn getur endurlifað myndina í hugan-
um með því einu að hlusta.
Valinn maður í hverju rúmi
Þrettán lög með þrettán listamönnum prýða
ostinn (Original Sound Track = O.S.T.) úr Rómeó
og Júlíu. Þó vantar að hluta stemmningstónlist-
ina sem Nellee Hooper bjó til uppfyllingar. Ef við
tökum röðina sem platan býður upp á er hljóm-
sveitin Garbage fyrst með lagið #1 Crush, sem út-
varpshlustendur landsins ættu að vera farnir að
þekkja nokkuð vel og því ekki ástæða til að fjöl-
yrða um það.
Everclear fékk innblástur sinn eftir að hafa séð
myndina og samdi lagið Local God. Gavin Friday
samdi lagið Angel til að auka á ljóma Júliu í
myndinni og hljómsveit Nellee Hooper, One Inch
Punch ásamt Justin Warfield lýsir reiðinni milli
stríðandi fylkinga Montague og Capulet- ættanna
með laginu Pretty Piece Of Flesh.
Söngkonan Desiree syngur ástarlag myndar-
innar Kissing You, sem hún sést syngja í mynd-
inni. Undir þeim ljúfu tónum verða Rómeó og
Júlía ástfangin. The Butthole Surfers fengu að sjá
óklippta útgáfu af myndinni og lögðu til lagið
Whatever (I had a dream) - augljóst innblásturs
lag. The Cardigans (peysumar) frá Svíþjóð leggja
til léttleikann með laginu Lovefool sem náði vin-
sældum fyrir nokkru síðan og fyrrum söngkona
Soul II Soul Kym Mazelle tífaldar þennan létt-
leika með endurgerð Nellee Hooper af laginu
Young Hearts Run Free frá 1976.
Quindon Tarver syngur ólíklegustu útgáfuna
af danssmellinum Everybodys Free (To Fell
Good), nefnilega ofurrólega gospel-útgáfu sem er
sungin við giftingarathöfn þessa rómantískasta
pars allra tíma. Mundy leggur til hip hop-lagið To
You I Bestow og hljómsveitin Radiohead setur
sinn svip á myndina með laginu Talk Show Host
sem spilar undir við súrrealískan fréttaflutning
sögumanna myndarinnar.
Rómeó
í nútímanum
Sænska pían Stina Nordenstam lýsir síðan upp
sjónarsviðið með laginu Little Star af plötu sinni
And She Closed Her Eyes, sem kom út árið 1994.
The Wannadies (með nafn sem smellpassar) spila
síðan undir tragískum endi myndarinnar, lag
þeirra heitir You & Me Song.
Kvikmyndagagnrýnandi er undirritaður ekki,
en að hans mati er myndin uppvakning fyrir
komandi kynslóðir og hristir vel upp í þeim sem
þekkja verkið. Tónlistin eykur á áhrifamáttinn
svo um munar. Það er ekki ólíklegt að þessi ost-
ur seljist álíka vel og Pulp Fiction-osturinn.
Spumingin er: Vilt þú upplifa myndina áður en
hún kemur út á myndbandi? -GBG
8 Vt-'Í'-.'i
* > v - TV /
Fyrrum söngkona Soul II Soul, Kym Mazelle er með endurgerð Nellee Hooper af laginu Young Hearts
Run Free frá 1976 í nútímauppfærslu leikritsins Rómeó og Júlfu sem nú er sýnd í Regnboganum.
T0N1ISIARM01AR
Dylan í tónleikaferð
Það telst alltaf til tíöinda þegar
gamli jaxlinn Bob Dylan fer í tón-
leikaferð. í lok þessa mánaðar
mun hann hefla tónleikaferð um
Norður-Ameríku en hann mun
aðallega leika í háskólum og litl-
um sölum. Ekki hefur enn komið
fram hvort tónleikamir verða
„órafmagnaðir" eða ekki.
Folk Implosion gefur út
Á morgun kemur út ný plata
með Folk Implosion sem sló í
gegn með plötunni Natural One.
Nýja platan mun heita Dare to Be
Surprised. Þrátt fyrir frægðina
ætlar sveitin að halda sig hjá litlu
og óþekktu útgáfufyrirtæki.
U2 við sama hey-
garðshornið
írska hljómsveitin U2 stökk
beint upp í toppsæti bandaríska
vinsældalistans með plötu sinni
Pop. Þetta er þriðja U2 breiðskíf-
an sem fer á topp bandaríska vin-
sældalistans.
Bono lýsti því nýlega yfir í við-
tali við Time að honum fyndist
lítið varið í þá tónlist sem kölluð
er rokk. „Það er fáranlegt að þeir
sem spila pönk/rokk séu í upp-
reisn gegn foreldrum sínum enda
eru þeir að leika sömu tónlist og
foreldrarnir voru að hlusta á,“
sagði Bono í Time.
Stjörnur starfa saman
Þeir félagar Thurston Moore og
Steve Shelley úr Sonic Youth hafa
gengið til samstarfs við Mark
Arm úr Mudhoney og Ron As-
heton úr The Stoogies. Hljóm-
sveitin, sem þeir hafa stofnað,
heitir Wilde Rattz og er ætlunin
að gera nýjar útgáfur af lögum
með The Stoogies. Sú sveit var
ein af „glansrokksveitum" átt-
unda áratugarins. Þessi tónlist
verður síðan notuð í mynd um
„glansrokkið" sem Don nokkur
Fleming er að gera og mun hún
kallast Velvet Goldmine.
B.I.G. gefinn út
Þrátt fyrir að rapparinn B.I.G.
hafi verið myrtur á dögunum ætl-
ar útgáfufyrirtækið Arista samt
sem áður að gefa út nýja plötu
með honum. Platan heitir Life Af-
ter Death og þykir mörgum sem
B.I.G. hafi farið ansi nærri þvi að
spá fyrir örlögum sínum.
Stóra nafnið
U2 eru óvéfengjanlega stóra
nafhið í poppheiminum í dag. Nýi
diskurinn þeirra, Pop, rýkur á
topp vinsældalista um allan heim.
U2 náði því afar sjaldgæfa afreki
að ná lagi beint í 1. sæti íslenska
listans, Staring at the Sun. Nýi
diskurinn hefur þegar verið fram-
leiddur í 4,5 milljónum eintaka og
hefur náð toppsætinu í 21 landi
nú þegar. Þar á meðal eru stórir
markaðir eins og Bandaríkin,
Bretland, Ástralía, Kanada,
Frakkland, Þýskaland, Irland,
Ítalía, Japan, Holland, Nýja-Sjá-
land, Spánn og Svíþjóð. Hljóm-
sveitin U2 er þessa dagana að
undirbúa tónleikaferð sem hefst
þann 25. apríl í Las Vegas. Sveitin
áformar að heimsækja 40 lönd á
14 mánaða ferðalagi, meðal ann-
ars Sarajevo 23. september og
verður í London á Wembley 22. og
23. ágúst í sumar.
.. |
I