Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Síða 6
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997 DV
20 tfln helgina
*
VilTINGASTAfl I
s A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
1693. Opið 11.30-22.30 alla daga.
* Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
1 17.30-23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstfg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
1 11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd„
I 11.30-23.30 fd. og ld.
S Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
; Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
| 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
A næstu grösum Laugavegi 20, s.
552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
; ' v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
| Op. 18-22 md,- fid. og 18-23 föd.-sd.
Café Ópera Lækjargötu 2, s. 552
! 9499/562 4045. Opið 18-1 fd. og ld„
1 11.30-1 v.d.
Carpe Diem Rauðarárstíg 18, s. 562
; 3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
| 7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
| og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
j 552 2028. Opið md.-ld. frá 11.30-21
og sd. frá 16-21.
|l Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
!f 9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld„
íj 12-23.30 sd.
! Hornið Hafnarstræti 15, s. 551
3340. Opið 11-23.30 alla daga.
i Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
p 1440. Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
I 568 9509. Opið 11-22 alla daga.
i Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
§ 552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d„ 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
§ 5-23, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
f 5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d„
; 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
i Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d„
Súlnasalur 19-3 ld„ Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d„ 10-1
ld. og sd.
Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
8 Opið 11.30-22.30 aÖa daga, ld. frá
8 11.30-23.30.
I Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
; Opið 11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Livingston Mávur
s Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
! 17.30-23 v.d„ 17.30-23.30 fd. og ld.
Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
8 5022. Opið 17-21.45 v.d„ 17-22.45
fd„ ld. og sd.
Kina-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d„
; 17.30-23 fd„ 15-23 ld„ 17-22 sd.
Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
f 2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
!!; s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
| 11-03 fd. og ld.
Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og ld.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
I 1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
Lœkjarbrekka Bankastræti 2, s.
; 551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
5 fid.-sd. 11-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
■ 562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
Marhaba Rauðrárstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
1 17.30-23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
I 7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d„
112-14 og 18-03 fd. og ld.
Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
1.00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhlíð, s. 562 0200. Opið
| 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
Primavera Austurstræti, s. 588
8555. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
11.30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
! Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Singapore Reykjavíkurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
! Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
jj Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
■ 551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
I 11.30-23.30 fd.ogld.
| Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
f 551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
I Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
| 562 1934. Opið fid,- sud„ kaffist. kl.
8 14-17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
I 7200. Opið 15-23.30 v.d„ 12-02 a.d.
i Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs-
; i götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
-
Kópavogskirkja:
Á sunnudaginn verður leikritið
Heimur Guðríðar - síðasta heim-
sókn Guðríðar Símonardóttur í
kirkju Hallgríms, eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur, sýnt í Kópavogs-
kirkju. Sýningin hefst kl. 17.
Leikritið Heimur Guðríðar var
frumsýnt á Kirkjulistahátíð í
Reykjavík í júní 1995 og hefur verið
sýnt í hátt á annað ár í fjölmörgum
kirkjum víða um land og hvarvetna
verið mjög vel tekið.
í leikritinu er á áhrifamikinn
hátt rakin ævi- og píslarsaga Guð-
ríðar Símonardóttur sem var ein-
stök fyrir margra hluta sakir. Þessi
sjómannskona úr Vestmannaeyjum
var í hópi tæplega 400 íslendinga
sem rænt var í Tyrkjaráninu 1627.
Hún var ein fárra sem náðu aftur
heim til íslands. Á heimleið frá Al-
sír kynntist hún ungum mennta-
manni í Kaupmannahöfn, Hallgrími
Péturssyni, sem síðari tíma menn
þekkja fyrst og fremst sem Passíu-
sálmaskáldið. Sambúð þeirra, sem
hófst í trássi við lög og rétt, stóð til
æviloka og hefur löngum vakið
þjóðinni forvitni og jafnvel hneyksl-
un.
Með helstu hiutverk í sýningunni
fara Margrét Guðmundsdóttir og
Helga Elínborg Jónsdóttir, sem báð-
ar leika Guðríði á ólíkum æviskeið-
um, og Þröstur Leó Gunnarsson er í
hlutverki Hallgríms. Tónlist er eftir
Hörð Áskelsson og leikur hann sjálf-
ur á hið nýja orgel Kópavogskirkju.
Höfundur
leikritisins,
Steinunn
Jóhannes-
dóttir, er
einnig leikstjóri
sýningarinnar.
Kópavogsbær
styrkir sýninguna
og aðgangseyrir fyrir
eldri borgara og nem
endur er 500 kr.
í leikritinu Heimur
Guðríðar er rakin
ævi- og píslarsaga
Guðríðar Símon-
ardóttur.
Guðríðar
(slandsvinirnir The Dubliners skemmta landanum um helgina.
Dubliners á íslandi
íslendingar hafa löngum verið
hrifnir af irskri þjóðlagatónlist og
nú um helgina gefst tækifæri á að
berja hina frægu írsku skemmti-
krafta The Dubliners augum. í
kvöld og annað kvöld munu þeir
halda tónleika í Danshúsinu
Glæsibæ og hefjast tónleikarnir kl.
22 bæði kvöldin.
The Dubliners eru sannkallaðir
íslandsvinir, síðast skemmtu þeir
landanum á „Bjórdaginn" svo-
nefnda árið 1989. Miðaverð á tón-
leikana er 2000 kr. og hægt er að
panta miða og borð með fyrirvara.
Schubert-hátíðin í Garðabæ:
Ljóðaflokkurinn
Vetrarferð
Fimmtu tónleikar Schubert-há-
tíðarinnar í Garðabæ verða haldnir
laugardaginn 22. mars kl. 17. Þar
mun hollenski barítonsöngvarinn
Hans Zomer flytja ljóðaflokkinn
Vetrarferð eftir Franz Schubert.
Við hljóðfærið er Gerrit Schuil.
Tónleikamir eru haldnir í Kirkju-
hvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ.
Menn hafa löngum litið svo á að
í Vetrarferð risi sköpunargáfa
Schuberts hæst. Hann samdi þessa
24 lög árið 1827, rúmu ári áður en
hann dó, við ljóð eftir Wilhelm
Múller. Efni Vetrarferðar er gamal-
kunnugt. Ungur maður þjáist fyrir
ást sem ekki fæst endurgoldin og
reynir í örvæntingu sinni að
horfast í augu við staðreyndimar.
Loks ákveður hann að kveðja þann
heim sem hann lifði og hrærðist í
og halda i torsótta ferð út í myrkrið
- út í hið óþekkta.
Hans Zomer er einn af virtustu
söngvurum Hollendinga i dag.
Hann á að baki þrjátíu ára söngfer-
il og hefur komið fram víða um
lönd. Á ferli sínum hefur hann
einkum lagt áherslu á sígildan
ljóðasöng og flutning kirkjutónlist-
ar en hann hefur fyrir margt löngu
síðan getið sér frægðarorð fyrir ein-
söng sinn í hinum miklu kirkjukór-
verkum Bachs. Hann kemur nú
fram í fyrsta skipti á íslandi en
hann og Gerrit Schuil hafa marg-
sinnis flutt Vetrarferð Schuberts á
tónleikum í Hollandi og var flutn-
ingur þeirra á verkinu hljóðritaður
árið 1990. Miðaverð á tónleikana er
1.400 kr.
Hollenski barítonsöngvarinn Hans
Zomer kemur nú fram í fyrsta skipti
á Islandi.
Sigurður Þórir Sigurðsson opnar tvær sýningar:
Oliumalverk og
Á morgun opnar listmálarinn
Sigurður Þórir Sigurðsson tvær
sýningar. í norræna húsinu verða
eingöngu olíumálverk en í Gallerí
Ófeigi Skólavörðustíg 5 verða
myndir unnar í vatnslit og gvassi.
Sýningin hjá ófeigi opnar kl. 14 en
í norræna húsinu kl. 16.
Sigurður er fæddur og uppalinn
í Reykjavík. Hann stundaði nám
vatnslit
við Myndlista- og handíðaskóla Is-
lands 1968-1970 en árið 1974 fór
hann til náms við Konunglegu
listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn og var þar til 1978.
Sigurður hefur haldið fjölda
einkasýninga hér heima og erlend-
is ásamt fjölda samsýninga. Hann
hefur einnig stundað kennslustörf
en hefur sinnt listsköpun eingöngu
Hugarburður, olía á striga, eftir Sigurð Þóri Sigurðsson.
frá árinu 1995. Myndefni Sigurðar
er maðurinn og hans nánasta um-
hverfi. Einnig kemur fram í mynd-
unum sú óvissa og ógn sem mann-
inum stafar af tilvist sinni og þeim
andlegu og efnislegu hlutum sem
hann tileinkar sér. Sýningarnar
standa til 6. apríl.