Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Blaðsíða 5
- danshátíð í Bretlandi Danstónlistarhátíðin Tribal Gathering verður haldin í þriðja skiptið 24. mai næstkomandi. Fyrsta árið sem hátíðin fór fram sóttu hana um 20.000 manns og i fyrra seldust allir 30.000 miðarnir upp löngu fyrir hátíðina. í ár verð- ur hátíðin haldin rétt fyrir utan Luton. Þar verður komið upp 9 danstjöldum sem hvert rúmar eina stefnu innan danstónlistarinnar (jungle/drum&bass, house, techno, electro, trance, trip hop, hip hop, ambient o.s.frv. - eitthvað fyrir alla). Tribal snýst ekki bara um tónlist- ina heldur verð- ur einnig hægt að fara í bíó, sirkus, teygju- stökk, ferðast um á Intemet- inu og margt fleira. Hverjir verða á svæð- inu? Tribal hefst á hádegi laugardag- inn 24. maí og lýkur kl. 8.30 morg- uninn eftir - stendur stanslaust í rúma tuttugu tíma - maraþond- ans fyrir þyrsta á því sviði. Fulltrúar okkar ís- lendinga á Tri- bal eru fjöllistamennirnir í Gus Gus sem spila í Planet Earth-tjaldinu. Aðrir sem koma fram á Tribal Gathering em: Daft Punk, Orbtial, Kraftwerk, DJ Shadow (í fyrsta skipti live), Fluke, Hardfloor, Fait- hless, Moloko, Red Snapper, Roni Size og T-Power. Endurkoma Kraftwerks er kraftaverk út af fyrir sig. Þeir munu spila á Tri- * bal eftir tuttugu » ára hlé og verður hljóðverið þeirra frá því í gamla daga endurbyggt sem sviðsmynd fyrir tón- leika þeirra. Hver man ekki eftir þýsku danstöppunum í Kraftwerk? Þeir koma aftur fram eftir margra ára hlé á hátíðinni. 23 Frönsku félagarnar í Daft Punk ættu aö gleðja dansunnendur. Aragrúi plötusnúða verður síðan á svæðinu og má þar á meðal nefna Laurent Garnier, Sven Vath, Andrew Weatherhall, James Lavelle, Jeff Mills, Masters at Work, DJ Kr- ust og Grooverider. Þeir sem hafa áhuga á að fara geta snúið sér til Ferðaskrifstofu stúdenta. Sætaframboð er tak- markað, so dance I say...! Hinir alíslensku Gus Gus verða á hátíðinni. U2 tóku upp: 3-irtsberg Fregnir hafa borist af því að rokkgoðin í U2 hafi tekið upp út- gáfú af lagi sínu, Miami, þar sem Beat skáldið Allen Ginsberg þuldi upp textann við lagið án undirleiks. U2 ætlar sér ekki að gefa út þessa upptöku en ekki er vitað hvort Ginsberg var myndaður við upptök- ur sem fóm fram stuttu áöur en hann lést úr krabbameini 5. apríl sl. írsku rokkaramir notuðu upptökur af Martin Luther King og Lou Reed á ZooTV tónleikaferðinni frægu. Þess má einnig geta að ný plata U2, Pop, hefur þegar selst í rúmlega fimm milljónum eintaka út um all- an heim. Ozzy gefst aldrei upp Það er ekki á hirm aldna ofúr- rokkara Ozzy Osboume logið. Hann gefur sig ekki með að Mailyn Manson fái að spila á tónleikum hans (Ozzfest) í New Jersey og nú er hann að gefa út geisladisk með upptökum frá Ozzfest í fyrra. Á diskinum er að finna tónlist með Coal Chamber, Biohazard, Sepultmra, Slayer og auðvitað Ozzy sjálfúm, svo örfáar bárujámshetj- ur séu nefndar. The Clash heiðruð Plata þar sem ýmsar sveitir taka lög með hinni goðsagnakenndu pönksveit The Clash kemur út þann 21. september. Til dæmis mun spútnikgrúppan Bush taka lagið Janie Jones, 311 munu gera sína útgáfu af White Man in Hammersmith Palais, Rancid munu taka fyrir lagið Cheat og The Mighty Mighty Bosstones munu kyrja Rudie Cant Fail. Enn fremur er líklegt að Green Day, Jewel og Tricky muni láta til sín taka á plötunni. Þá mundi Tricky taka fyrir London Calling og Jewel taka fyrir hið ógurlega lag Should I Stay or Should I Go. Rekinn úr Skid Row Sebastian Bach, (fyrrverandi) söngvari Skid Row virðist hafa verið rekinn úr hljómsveitinni. Bassaleikari sveitarinnar, Rachel Bolan (fyrrverandi félagi Bach) úr Skid Row viðurkenndi í viðtali við aðdáendur sína á Intemetinu að Skid Row væri farinn að æfa með nýjum söngvara. Hann gaf ekkert út hver þessi söngvari væri að öðm leyti en því að hann væri frá New Jersey þar sem æfingamar stæðu yfir. Óvíst mun vera hvort hljómsveitin skiptir um nafn í kjölfar þessara breytinga en Bach hefúr lýst því yfir á vefsíðu sinni að hann sé ekki að hætta af fúsum og frjálsum vilja og hann hafi ekki talað við félaga sína í sveitinni sið- an í ágúst 1996. „Mig langar hins vegar mjög til þess að gera nýja Skid Row plötu,“ segir hann á vef- síðu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.