Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 2. MAI1997 lyridbönd 37 Courage under Fire: Heiður, hugrekki og sannleikur I Courage Under Fire segir frá Serling ofursta, sem lendir í þeirri ógæfu að eiga sök á því að skjóta á vinveittan skriðdreka í Persaflóa- stríðinu. Hann er sendur í skrif- stofuvinnu í Pentagon. Hann er þjakaður af sektarkennd, en yfir- maður hans fullvissar hann um stuðning sinn og herinn virðist ekki ætla að gera hann að blóraböggli. Honum er fengið það verkefni að meta fyrstu tilnefhingu sem kona fær til heiðursmerkis fyrir hug- rekki í hardaga, en í stað þess að hleypa tilnefningunni möglunar- laust í gegn ávinnur hann sér óvild yfirmanna sinna með því að krefjast rannsóknar á því sem honum virð- ist vera ósamræmi í frásögnum vitnanna. Yfirmaður hans hótar því Denzel Washington leikur höfuös- manninn Nathaniel Serling. Hann er hér ásamt leikstjóra myndarinnar, Edward Zwick. að draga til baka stuðning sinn og vernd fyrir innra eftirliti hersins vegna mistaka hans i stríðinu og Serling verður að reyna að vemda heiður sinn um leið og hann leitar sannleikans. Sannleiksleit Eitt af aðalþemunum í myndinni er leitin að sannléikanum og mis- munandi útgáfur hans. Handritið er undir áhrifum frá mynd Akiro Kurosawa, Rashomon, sem snýst um Qórar persónur sem allar segja mismunandi útgáfur af sannleikan- um um glæp, og er þessi frásagnar- aðferð notuð í myndinni, þegar Serl- ing ofursti er að yfirheyra vitni og reyna að komast að sannleikanum um atburðina sem hann er að rann- saka. Denzel Washington leikur Serling ofursta, og Meg Ryan leikur Karen Walden, konuna sem tilnefnd er til heiðursmerkis. Aðrir leikarar era m.a. Lou Diamond Phillips og Scott Glenn, en leikstjóri er Edward Zwick, sem áður hefur leikstýrt Denzel Washington í þrælastríðs- myndinni Glory. Aðrar myndir Zwick eru About Last Night, Leav- ing Normal og Legends of the Fall, en hann átti einnig þátt í að skapa sjónvarpsþættina Thirtysomething og My So-Called Life. Leikararnir settir í þjálf- unarbúðir Til að undirbúa leikarana fyrir hlutverkin voru þeir skólaðir í að- ferðum hersins og hegðun her- manna. Meg Ryan fékk þjálfun í þyrluflugi og Denzel Washington fékk þjádfun í að stjóma skriðdreka og fékk m.a.s. að skjóta úr Abrams skriðdreka. Lou Diamond Phillips, Seth Gilliam, Matt Damon og Tim Guinee, sem leika hermennina í þyrlusveit Karen Walden, voru sett- ir í grannþjálfun hjá hernum í þrjár vikur. Tökur fóra fram í og við Austin og E1 Paso, borgimar í Texas, tæpum fimm árum eftir lok Persaflóastríðsins. Veðrið fór ansi illa með tökuliðið því að hvirfilbyl- ur gjöreyðilagði svíðsmynd fyrir þeim og mikill sandstormur tafði tökur eirinig. í eyðimörkinni í Texas vora mynduð bardagaatriðin í myndinni og allt var gert til að láta þau líta sem eðlilegast út. UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT Gunnar Oddsson knattspyrnumaður Með allttfSHireinu er Hfó^sík „Ég geri nú ekki mikiö að því að leigja mér myndbandsspólur, við leigjum þetta eina til tvær i mánuði. Það fer allt eftir stemn- ingunni hvemig mynd- ir maður nær sér í, gaman og drama sitt á hvað. Ég sá Jade nú nýlega, mér fannst hún ágæt. Hún var mjög spenn- andi og kom á óvart. Ég horfði líka á Benjamín dúfu með guttanum mínum um dag- inn og fannst hún alveg þrælgóð. Svo höfum við nokkrir kunningjam- ir haft það fyrir reglu að horfa á Með allt á hreinu einu sinni á ári til að koma okkur í gott skap. Hún er alveg klassík og ein af mínum uppáhalds- myndmn. En annars er ég enginn svakalegur vídeómaður. Ég fer heldur ekki mikið í bíó, það er alltaf svo mikið að gera að það gefst ekki tími til þess. Ég sá Djöflaeyjuna síðast þegar ég fór í bíó en það er orðið tölu- vert langt síð- an. Hún var þrælgóð. Ég reyni þó yfir- leitt að sjá nýjar íslenskar kvik- myndir þegar ég fer á annað borð í bíó.“ Hetjan, kapteinn Karen Waiden (Meg Ryan), í hópi félaga sinna. Skriðdrekamir voru 40 ára gamlir breskir hlunkar sem var breytt þannig að þeir litu út eins og Abrams og T-54 skriðdrekar. Átta fyrram hermenn úr Persaflóastríð- inu vora fengnir til að stjóma skrið- drekunúm og sumir af bestu þyrlu- flugmönnum Bandaríkjanna vora fengnir til að stjóma þyrlunum. Úskarsverðlaunahafi Denzel Washington sást síðast í kvikmyndahúsum í myndinni The Preacher’s Wife, en árið áður en hann lék í Courage Under Fire, lék hann í þremur myndum - Crimson Tide, Virtuosity og Devil in a Blue Dress. Hann hlaut óskarsverðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki í Glory, en áðm hafði hann hlotið til- nefningu fyrir túlkun sína á Steven Biko í Cry Freedom. Þriðju tilnefn- inguna fékk hann fyrir Malcolm X, en meðal annarra mynda hans eru Philadelphia, The Pelican Brief, Much Ado About Nothing, Miss- issippi Masala, Mo’ Better Blues og Power. Meg Ryan vakti fyrst heims- athygli fyrir hlutverk sitt sem eigin- kona orrastuflugmanns í Top Gun, en hún hefur einkum hlotið frægð fyrir leik sinn í rómantísku gaman- myndunum When Harry Met Sally, Sleepless in Seattle, French Kiss og I.Q., en hún hefur einnig tekist á við alvarleg hlutverk og hlaut mikið lof fyrir túlkun sína á drykkjusjúkri móður í When a Man Loves a Wom- an. Af öðrum myndum hennar má nefna Promised Land, Innerspace, D.O.A., The Presidio, Joe Versus the Volcano, The Doors, Prelude to a Kiss, Flesh and Bone og Restoration. -PJ John Travolta - Ferillinn John Travolta er í dag einn af hæstlaunuðu leikuram í heiminum og hefur hver myndin af fætur annarri sem hann hefur leikið í slegið í gegn, nú síðast Michael, sem sýnd er í Sam-bíóunum. í Phen- omenon, sem er i efsta sæti mynd- bandalistans leikur hann bifvéla- virkja sem öðlast óútskýranlegan kraft. John Travolta fæddist 18. febrúar 1954 í Englewood, New Jers- ey og er hann yngstur sex systkina. Faðir hans, Salvatore var dekkja- sölumaður og fyrram atvinnumað- ur í amerískum fótbolta. Móðir hans, Helen, er írsk-amerísk, fyrr- um dansari og leiklistarkennari. Þegar John Travolta var sextán ára gamall fékk hann leyfi hjá foreldr- um sínum til að fara í leiknám. Árið 1975 fékk hann hlutverk leðurjakka- töffarans Vinnie Barbarino í sjón- varpsmyndaflokknum, Welcome Back, Kotter. Það var leikur hans í þessum sjónvarpsþáttum sem gerði það að verkum að hann fékk aðal- aBLB e£3BBHLJai— John Travolta í hiutverki sínu í Phenomenom. hlutverkið í Saturday Night Fever. Fyrir leik sinn fékk hann sína fyrstu tilnefningu til óskarsverð- launa. Ekki minnkuðu vinsældir hans þegar hann lék í Grease, en eftir það fór að síga á ógæfuhliðina og mörg mögur ár vora framundan hjá honum. Það var ekki fyrr en Quentin Tar- antino hafði samband við hann og bauð honum að leika í Pulp Fiction að John Travolta náði sér á strik og var hann fljótur að vinna sig upp metorðastigann í Hollywood, enda hefur hann sýnt stórleik í hverri myndinni á fætur annarri. John Travolta býr í Flórída ásamt eigin- konu sinni, leikkonunni Kelly Preston og syni þeirra. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem hann hefur leikið í: The Devil's Rain, 1975 Carrie, 1976 Saturday Night Fever, 1977 Grease, 1978 Moment by Moment, 1978 Urban Cowboy, 1980 Blow Out, 1981 Staying Alive, 1983 Two of a Kind, 1983 Perfect, 1989 The Expert, 1989 Look Who's Talking, 1989 Look Who's Talking Too, 1990 The Tender, 1991 Look Who's Talking Now, 1993 Pulp Fiction, 1994 Get Shorty, 1995 White's Man Burden, 1995 Broken Arrow, 1996 Phenomenon, 1966 Michael, 1996 -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.