Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1997, Page 12
« myndbönd
FÖSTUDAGUR 2. MAÍ 1997
I>V
MYNDBAHDA
wamm
Antonia's Line
Sveitasæla ★★*
Antonia’s Line er hollensk mynd sem hlaut ósk-
arsverðlaunin árið 1996 sem besta mynd á erlendu
tungumáli. Hún hefst á því að gamla konan Antonia
ákveðuj: að bjóða fiölskyldunni sinni til sín í síðasta
sinn og deyja siðan. Myndin rekur síðan lífshlaup
hennar frá því að hún sneri aftur tU litla sveitabæjar-
ins síns eftir seinni heimsstyrjöldina ásamt dóttur
sinni. í gegnum tíðina bætast í fjölskylduna tveir ættliðir í viðbót ásamt vin-
um, viðhöldum, eiginmönnum og þroskaheftum vinnuhjúum. Einnig koma
við sögu vondir sveitalubbar. Antonia’s Line er ekkert sérstaklega merkUeg
mynd og oft er hún ekkert fyndin heldur, bara bjánaleg. Persónusköpun er
fremur einfeldningsleg og sveitalubbaklisjurnar eru stundum ansi áberandi.
Hins vegar er hún einnig oft nokkuð skondin og stimdum jafnvel faUega
mæðuleg, og leikaramir standa sig flestir með prýði. Með því að reyna að
leiða hjá sér gaUana og láta þá ekki fara í taugarnar á sér má oft hafa prýð-
isskemmtun af myndinni, en eftir stendur að óskarsverðlaunin voru mistök.
Það voru gerðar margar mun betri það árið.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Marleen Gorris. Aðalhlutverk: Willeke Van
Ammelrooy og ýmsir fleiri. Hollensk, 1995. Lengd: 98 mín. Bönnuð innan
16 ára. -PJ
Substitute
Harðhausahasar ★
Kærasta málaliðans Shale er kennari í framhalds-
skóla í Miami þar sem unglingaklíkur vaða uppi.
Hún lendir upp á kant við voldugustu klíkuna með
þeim afleiðingum að ráðist er á hana og brotin á
henni önnur hnéskelin. Shale svindlar sér inn í skól-
ann sem forfallakennari og kemst fljótlega að því að
þama er ekki um neina venjulega unglingaklíku að
ræða, heldur þrautskipulagðan eiturlyfjahring.
Hann kallar því á nokkra félaga sína og fær hjálp
þeirra við að berja og skjóta alla vondu kallana í
spað. Myndin er með eindæmum kjánaleg og það
fyndnasta er að svo virðist sem leikstjórinn og leikaramir haldi að af-
urðin sé eitthvað ofursvalt og flott. Reyndar er einn svaltn og flottur
karakter í myndinni, leikinn af William Forsythe, sem er að verða einn
af athyglisverðustu harðhausum í aukahlutverkum nú orðið. Aðrir leik-
arar em slappir en þurfa svosum ekki að sýna mikið. Tom Berenger er
ekki burðugur leikari en passar ágætlega í aðalhlutverkið. Spennan er
lítil því að myndin er mjög fyrirsjáanleg, og hasarinn hefur ekkert fram-
yflr allar hinar hasarmyndirnar.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Robert Mandel. Aðalhlutverk: Tom Ber-
enger, Diane Venora og Ernie Hudson. Bandarísk, 1996. Lengd: 112 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Phenomenon
★< Viðundur
John Travoita leikur vélvirkjann George Mailey,
ósköp venjulegan mann sem býr í smábæ og þjáist af
óendurgoldinni ást. Á afmælisdegi hans verður hann
fyrir einhverri óútskýranlegri reynslu sem verður til
þess að heiiastarfsemin hjá honum kemst á flug. Hann
getur ekkert sofið, les margar bækur á dag, fær snjall-
ar hugmyndir og gerir uppfinningar. Hann getur meira
að segja hreyft hluti með hugarorkunni. Viðbrögð fólks
við nýjum hæfileikum hans era misjöfn. Margir vilja
nýta sér hæfileika hans en verða jafnframt hræddir við
hann og hann einangrast meðal bæjarbúa. Það er
margt sniðugt í þessari mynd og oft gaman að fylgjast með íjörinu í kring-
um hæfileika vélvirkjans og viðbrögðum umhverfisins við þeim. Hins veg-
ar eru persónurnar frekar staðlaðar og óáhugaverðar og enginn leikaranna
kemst á neitt flug, ekki einu sinni Travolta, sennilega af því að hann fékk
ekkert að dansa í myndinni. I stað þess að leiða til lykta ýmsar spurning-
ar sem vakna um snilligáfuna og aðlögunarhæfni hans, er Malley látinn
drepast úr heilaæxli og myndin koðnar niður í eintómar tregafiðlur og
táraflóð í lokin. Mynd sem fjallar um jafn stórbrotna hluti ætti að geta skil-
ið meira eftir sig.
Utgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Jon Turteltaub. Aðalhlutverk:
John Travolta. Bandarísk, 1996. Lengd: 118 mín. Öllum leyfð.
-PJ
Black Sheep
Hrikalegur hrakfallabálkur ★★
Chris Farley og David Spade hafa átt gott samstarf
um árabil. Þeir vöktu athygli fyrir atriði sín í Satur-
day Night Live-þáttunum og héldu samstarfi siðan
áfram í kvikmyndinni Tommy Boy. Black Sheep er
önnur kvikmynd þeirra félaga. Eins og áður er Chris
Farley hrakfallabálkur hinn mesti og stígur ekkert
alltof mikið í vitið, en David Spade, sem er jafn
grannur og nettur og Farley er feitur og klunnaleg-
ur, fylgist með og kryddar húmorinn með stóískri
kaldhæðni og eitruðum athugasemdum. Hér er
Farley að eyðileggja kosningabaráttu bróður síns og
Spade er fenginn til að hafa hemil á honum, með ansi takmörkuðum ár-
angri auðvitað. Þeim tekst ansi vel upp hér - allavega má hlæja að
mörgum atriðunum. Sérstaklega er Chris Farley oft spaugilegur og
hann er mjög fær í likamstjáningunni og notar allan sinn stóra líkama
til að ná fram kómískum áhrifum. Hins vegar eru aukaleikarar allir
fremur ámátlegir og þá er alloft skotið yfir markið í aulahúmomum.
Þetta er þó ansi gott af grínmynd að vera.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Penelope Spheeris. Aðalhlutverk:
Chris Farley og David Spade. Bandarísk, 1995. Lengd: 83 mín. Öllum
leyfð.
-PJ
FYRRI
VIKA
1
2
7
Ný
3
5
5
4
6
VIKUR
Á LISTA
2
2
2
l
1
3
6
7
5
3
3
6
4
3
5
4
ÚTGEF. TEG.
Sam-myndbönd Ðrama
ClC-myndbsnd Gaman
Háskólabís Spenna
Skífan Spenna
Sam-myndbönd Spenna
Warner myndir Spenna
ClC-myndbönd Gaman
ClC-myndbönd Spenna
ClC-myndbönd Spenna
Myndform Spenna
Skífan Gaman
Skffan Spenna
Skífan Spenna
Warnermyndir Spenna
Sktfan , Gaman
Sam-myndbönd Spenna
Skífan Spenna
Háskólabíó , Spenna
ClC-myndbönd Krollur
Myndform Spenna
TITILL
Phenomenon
Black Sheep
Substitute
Chain Reaction
Fan
Time to Kill
Nutty Professor
Twister
Escape from L.A.
Feeling Minnesota
Multiplicity
Stiptease
Lone Star
Eraser
Beautiful Girls
Heaven's Prisoners
Solo
Fargo
Bordello of Blood
Funeral
Engar breytingar eru á efstu sætunum tveimur á myndbanda-
listanum, en í þriðja sæti er ný mynd, Chain Reaction. Um er
að ræða spennumynd með Keanu Reeves í aðalhlutverki, en
þess má geta að Keanu Reeves leikur einnig aðalhlutverkið í
Feeling Minnesota, sem er í tíunda sæti listans. Auk Chain
Reaction eru tvær aðrar nýjar myndir á listanum, en þær eiga
varla eftir að gera stóra hluti, þar sem þær eru í tveimur
neðstu sætum. Vert er þó að minnast á The Funeral, sem um
leið og hún kom út á myndbandi hér á landi var sett í kvik-
myndahús á Bretlandseyjum þar sem hún fékk yfirleitt ágæta
dóma. The Funeral er sakamálamynd, leikstýrt af Abel Fer-
rera, sem er þekktur fyrir að fara eigin leiðir í gerð sakamála-
mynda. í aðalhlutverki er Christopher Walken, en hann hefur
leikiö áöur fyrir Ferrera, meðal annars í King of New York.
Phenomenon
John Travolta og
Robert Duvall
Hinn hlédrægi
George verður fyrir
því að einhvers
konar eldingu lýst-
ur niður í hann og
vankar hann. Þegar
hann rankar við sér
áttar hann sig á því
að áður óþekkt orka
hefur hreiðrað um
sig í líkama hans og
huga, orka sem ger-
ir honum kleift að
sjá og finna fyrir
óorðnum hlutum
jafnframt því að
hann getur nú
hreyft hluti úr stað
með huganum. Þeg-
ar hæfileikar hans
spyrjast út vekur
það upp misjöfn
viðbrögð.
Black Sheep
Chris Farley og
David Spade
Mike Donnelly er
með afbrigðum
óheppinn og er í
raun eitt stykki
gangandi stórslys.
Nú hefur Mike
ákveðið að aðstoða
bróður sinn við að
vinna rikisstjóra-
kosningar. Þegar A1
sér að pólitískur fer-
ill hans er kominn í
hættu fær hann leti-
blóðið Steve Dodds,
til að aðstoða sig við
að koma bróður sín-
um úr umferð tíma-
bundið. Steve sam-
þykkir en áttar sig
fljótt að hann er að
gera hrikalegustu
mistök lífs síns.
The Substitute
Tom Berenger og
Diane Verona
Kennslukona við
framhaldsskóla í
Fiórída hefur sagt
forsprakka glæpa-
klíkunnar í skólan-
um strið á hendur
með þeim afleiðing-
um að á hana er ráö-
ist. Unnusti hennar,
málaliðinn Shale,
ákveður að ráða sig
sem forfallakennara
í hennar stað í því
skyni að ganga á
milli bols og höfuðs á
glæpaklíkunni.
Hann kemst hins
vegar fljótt að því að
klíkan er í raun
hlekkur í vel skipu-
lagðri eiturlyfjadreif-
ingu og ákveður að
kalla félaga sína til
liðs við sig.
Chain Reaction
Keanu Reeves og
Morgan Freeman
Vélvirkinn Eddie
Kasalivich og vís-
indakonan Lily
Sinclair era í flokki
vísindamanna sem
hafa fundið upp nýja
tegund orku.
Skömmu eftir að
uppfinningin er gerð
er rannsóknarstofan
eyðilögð í spreng-
ingu og yfirmaður
þeirra er myrtur.
Eddie og Lily eru
grunuð um ódæðið
og eina von þeirra er
að valdamikill emb-
ættismaður leggi
þeim lið, en það er
allsendis óvíst að
hann sé á þeirra
bandi.
The Fan
Robert De Niro
og Wesley
Snipes
Farandsölumaður-
inn Gil hefur sjúk-
legan áhuga á hafna-
bolta og þegar uppá-
haldslið hans festir
kaup á stórstjörn-
unni Bobby Ray-
burn, fara undarleg-
ir hlutir að gerast i
höfði Gils. Þegar
Bobby stendur ekki
undir væntingum
ákveður Gil að taka
til sinna ráða og
koma stjömunni aft-
ur á beinu brautina.
Brátt fara áform Gils
að taka á sig óhugn-
anlega mynd, til að
mynda er morð í
hans augum aðeins
leikur.