Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 5
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997 5 DV Akureyri: Sóttu þýfi og áfengi um borð til Rússanna DV, Akureyri: Lögreglan og tollgæslan á Akur- eyri fóru í fyrradag um borö í rúss- neskan togara, sem er til viðgerðar hjá Slippstöðinni á Akureyri, vegna rökstudds gruns um að áfengi væri selt frá skipinu og einnig að þar væri að fmna þýfi. Niðurstaða leitar um borð í skip- inu var að þar fundust nokkrar flöskur af vodka en einnig eitt reið- hjól og hitablásari sem skipverjar gátu ekki gert grein fyrir. Þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem lögregla og tollgæsla þurfa að hafa afskipti af Rússunum, þeir þykja um of „hirðusamir" þeg- ar þeir bregða sér í land og á tíðum of örlátir á vodkann til þeirra sem vilja kaupa hann ódýrt. -gk „Halló Akureyri" skal hún heita DV, Akureyri: Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á Akureyri boðuðu til skyndifundar vegna hugmynda um að breyta ætti nafni hátíðarinnar „Halló Akur- eyri“ sem haldin hefur verið í bæn- um um verslunarmannahelgina undanfarin ár. Á fundinn mættu auk fundarboð- enda m.a. bæjarstjóri, sýslumaður, fulltrúar úr bæjarstjórn og bæjar- ráði og fleiri fuUtrúar bæjaryfir- valda auk þeirra sem á einn eða annan hátt koma að hátíðinni, s.s. skátar og björgunarsveitarmenn. Fundarmenn voru sammála um að sameinast í framkvæmdum og skipulagi verslunarmannahelgina 1997 á Akureyri til að hún mætti verða til sóma fyrir þá sem að henni kæmu. Þá virðist samstaða rikja mUli allra aðila um að hátiðin gengi áfram undir nafninu „Halló Akureyri“,“ segir Guðmundur Birg- ir Heiðarsson sem á sæti í undir- búningsnefnd hátíðarinnar. -gk Akureyri: Játaði 7 milljóna fjárdrátt DV, Akureyri: Fyrrverandi framkvæmdastjóri Flutningamiðstöðvar Norðurlands hefur verið kærður til sýslmnanns- embættisins á Akureyri fyrir fjár- drátt. Skömmu eftir að maðurinn lét af störfum hjá fyrirtækinu í vor eftir um tveggja ára starf þar kom í ljós við bókhaldseftirlit að ekki var allt með felldu. Nánari athugun leiddi í ljós að framkvæmdastjórinn fyrr- verandi hafði dregið sér rúmlega 7 milljónir króna. Hann mun hafa ját- að brot sitt greiðlega og lýst yfir vilja til að endurgreiða fjárhæðina en málið hefur samt sem áður verið sent yfirvöldum og fer dómstólaleið- ina. -gk Borgarnes: Mikill hraðakstur Lögreglan í Borgarnesi hefur ver- ið í miklum önnum siðustu dagana vegna mikils hraðakstur. Síðan um helgi hafa um 30 ökumenn verið teknir, þar af margir á á 120-130 km hraða. Einn var tekinn á nálægt 140 km hraða skammt frá Akranesi og þarf sá líklega að sjá á eftir skírteini sínu um einhverja hríð. -sv Fréttir Varnarliðið: Yfir 100 í afleysingar DV, Suðurnesjum: „Það verða alla vega rösklega 100 manns ráðnir í sumarstörf. Þetta eru eingöngu afleysinga- störf,“ sagði Baldur Guðjónsson, deildarstjóri hjá ráðningardeild Vamarmálaskrifstofunnar í Njarð- vík, við DV. Verið er þessa dagana að ganga frá ráöningu þessa fólks hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli í sumar. Baldur segir að undanfarin ár hafi verið ráðnir á milii 100 og 120 manns í sumarstörf til að leysa af íslenska starfsmenn hjá varnar- liðinu í sumarfríum þeirra. Það er mest námsfólk sem sækir um vinnu hjá varnarliðinu. Sama fólkið kemur ár eftir ár á meðan það er í skóla. -ÆMK C-328f Fagor ísskápur m. frysti að neðan Hxbxd 147x59, 5x60 C-330f Fagor kæliskápur m. frysti að neðan Hxbxd 170x59, 5x60 C-328f Fagor ísskápur m.frysti að ofan Hxbxd 147x59, 5x60 Kc-2966 Gorenje ™ kæliskápur 284L Hxbxd 143(138)x59, 5x60 Kf-2766no Gorenje ísskápur með frysti að ofan, 190/68L Hxbxd 143x59, 5x60 Kf-2766no Gorenje ísskápur með frysti að neðan, 205/61L Hxbxd 155x59,35x60 RONNING Borgartúni 24 • S: 562 4011 Græjaðu bílinn fyrir sumarið ATT V / WWQ WC 35- »4 fOWf* CO nÁ'itXWS *f 7wim 'X -;.}T auto mvsmi casftie mcgtvsn HtCHrOWER ÍJSmsx^J CQ DP800 • Útvarp 18 FM/ 6 AM stöðvar • Sjálfvirk innstilling stöðva A.T.M. • Geislaspilari 1 Bit. • Magnari 4x35w • Bassa og diskant stilling • Loudness tenging f/magnara • Klukka • Laus framhlið CQ R111 Útvarp 18 FM/ 6 AM stöðvar Sjálfvirk innstilling stöðva A.T.M. Segulband - Auto Reverse Magnari 4x15w Bassa og diskant stilling Klukka JAPtSS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI Akranes: Málningarþjónustan Metro / Hljómsýn • Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga • Heliissandur: Verslunin Blómsturvellir • Bolungarvík: Laufið • ísafjörður: Póllinn Sauðárkrókur: Verslunin Hegri • Akureyri: Radíóvinnustofan / Radíónaust/ Metro / Tölvutæki-Bókval • Húsavík: Ómur • Seyðisfjörður: Kaupfélag Héraðsbúa / Pétur Kristjánsson Egilsstaðir: Rafeind / Kaupfélag Héraðsbúa • Neskaupstaður: Tónspil • Vopnafjörður: Verslunin Kauptún • Höfn: Rafeindaþjónusta B.B. • Selfoss: Kaupfélag Árnesinga Vestmannaeyjar: Brimnes/Tölvubær • Keflavík: Rafhús • Reykjavík: Nesradíó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.