Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1997, Page 15
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 1997 15 Karlmennska og karlmennska Á dagleið minni um Dyflini skundaði ég iðulega framhjá rak- arastofu Declan’s og kíkti inn um gluggann. Þar sátu nefnilega að- algæjarnir af börunum og klúbbunum kvöldið áður og biðu þolinmóð- ir eftir að Declan (eða einhver) snyrti á þeim skeggin, hökutoppana, bartana og þriggja- dagabroddana. Yfirvegaðir og ekki óstífrr gerðu þeir hvað þeir gátu til að líta út fyrir að vera að gera eitthvað allt annað en að sitja á hárgreiðslu- stofu, afsakið HJÁ „Skeggin, og öll umhirðan sem þeim fylgir, eru einmitt gott dæmi um að karlmennskan er ekki eitt- hvað sjálfsprottið heldur er karl- mennskan ekki síður falin í bún- ingi, útliti, tísku oggóðum rakara.u Kjallarinn Ulfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur RAKARA, og láta setja á sig andlit. (Leikstjóri Guðjón Pedersen sagði um sýningu sina Listaverkið að hefði hún verið um konur hefði hún allt eins getað gerst á hár- greiðslustofu...) Þó að írskir karl- menn hafi orð fyrir að vera fremur mjúkir; tilfmninganæmir, ljóðræn- m og mennmgarvm- samlegir, þá er karl- mennskan þeim ekki síður mikilvæg en meðbræðrum þeirra um víðan heim. Umhiröan viö- kvæmara mál Mér flugu í hug þess- ir morgnar (kannski nær hádegi) í Dublin þegar Hilmir Snær Guðnason leikari tjáði alþjóð að munur- inn á unglingi og karlmanni lægi i skegginu. Að hann væri ekki leiður á Þreki og tárum held- ur leiður á því að vera sautján ára og að hann lang- aði í skegg. íslendingum, sem hafa andað að sér íslendingasögum frá upphafi, er mikilvægi skeggs- ins vel kunn og iþróttamaðurinn Jón Arnar Magn- ússon heldur uppi heiðri hetja með því að stökkva hæð sína (og meira) í loft upp með aðstoð langrar stang- ar, vandlega skreyttur skeggi. (Af hverju skyldu ólympíumenn hafa verið svona tregir til að viðurkenna stangarstökk sem kvennaíþrótt?) Meðan skeggið heldur áfram að vera karlmennskutákn virðist um- „í auglýsingum og kvikmyndum eru karlmenn aö uppgötva ánægj- una af því aö sýna sig en ekki bara sjá aöra...“ segir Úlfhildur m.a. í grein sinni. hirðan öllu viðkvæmara mál. Karl- mennskan á nefnilega ekki að vera tilbúin heldur sjálfsprottin (líkt og skegg) samkvæmt hefðinni og þvi er snurfusun og vesin ekki beint viðeigandi; allt slíkt minnir óþægi- lega á snyrti-ritúöl kvenna, og kvenmennska, eins og við vitum, er allt annað mál en karhnennska. En þarna verður þetta einmitt svo skemmtilegt. Skeggtíska sú sem nú ríður húsum er indælt dæmi um hvað þessar vel þekktu skilgrein- ingar á karlmennsku og kven- mennsku eru orðnar leiðigjamar. Skeggin, og öll umhirðan sem þeim fylgir, em einmitt gott dæmi um að karlmennskan er ekki eitt- hvað sjálfsprottið heldur er karl- mennskan ekki síður falin í bún- ingi, útliti, tísku og góðum rakara. Karlmennskan er ekki lengur gefm, heldur er hún tekin, og tekin upp og tekur sig vel út, til dæmis í skeggi. Skegg, sérstaklega sá skeggstíll sem tískan krefúr i dag, er þá ekkert annað en karl- mennsku- drag, uppáklædd karl- mennska. Náttúrulífsmyndin fer halloka Það viðhorf að karlmaðurinn sé einhvers konar náttúrulífsmynd fer æ meira halloka fyrir vaknandi vit- und um að karlmenn eru líka menn, með sínar tilfinningar, vandamál og tískusveiflur. Þetta kemur einmitt fram í leikritinu Listaverkið sem nú prýðir litla svið Þjóðleikhússins þar sem karlmenn ræða sig og sin mál af meira innsæi og tilgerðarleysi en hefð er fyrir. Karlmenn á götum úti eru að verða æ meira augnayndi, vel klæddir og meðvitaðir um útlit og líkamsburð. Karlmenn eru æ meiri þátttakendur í hversdaglegri um- ræðu um hárgreiðslustofur og óvin- sælan hárvöxt. í auglýsingum og kvikmyndum eru karlmenn að upp- götva ánægjuna af því að sýna sig en ekki bara sjá aðra; að vera stolt- ir af sínum daglegu ferðum til Declan’s og njóta þess að sitja í glugganum og sýna að þeir eru bara menn með mönnum. Úlfhildur Dagsdóttir Kinnhestar og kjaftshögg Maður hefði haldið að spéfugl- inn sköllótti, Hallgrímur Helga- son, kynni að lesa í húmor og háð eða hefur hann aldrei lesið i litt- eratúr á sinni stuttu poppuðu ævi? Mig rak satt að segja í rogastans þegar ég las pistil HH í DV í gær urn „Einkalif’. Þama talar bitur maður, hugsaði ég. En af hverju er HaUgrímur allt í einu svona sár, hann sem er svo mikill grínari? „Bitrar konur“ er svo talað um í „PS“-pistli hinn daginn. Aldrei heyrir maður talað um „gamla bitra menn“. Nei, þeir fá sér bara ungar konur þegar biturðin eða öllu fremur elli sækir að þeim og dettur engum í hug að þeir séu lengur bitrir. Varla hefði ég samt verið unga konan í lífi þessa manns sem hér um ræðir miklu lengur, fertug manneskjan, guð sé oss næstur, enda bara 25 ár á milli okkar, hvað þá þegar hann, þessi andans unglingur, kæmist á tíræð- isaldur. Einu sinni var ég semsé unga konan hans SAM, eins og alþjóð nú reyndar veit, eða hann gamli mað- urinn minn öllu heldur, svo skrýt- ið sem það nú hljómar. Aldrei hvarflaði þó að mér að býtta hon- um út fyrir annan yngri; nei, Diddi minn, skyldi ekki enda sem gamall bitur, forsmáður karl og meðlags- laus í ofanálag; hann sem hefur ekkert nema ellilífeyrinn. Vegna hvers yfirgaf ég þennan síunga sjarmör eiginlega? Sannar- lega fyrir yngri manneskju, barns okkar. „... að launa einhverja gamla kinnhesta,” segir HH. Það skyldu þó aldrei vera að honum rataðist satt orð á munn? „sem koma engum við nema þeim sjálf- um eða þeim sem þáðu þá“ — með þökkum, vitaskuld, eða hvað? Fjöllyndur maður, marglynd kona Vissulega eru margar hliðar á máli þessu. SAM er fjöllyndur mað- ur og ég ekki síður marglynd kona og fmnst mér HH afgreiða svo stór- ar sálir sem við SAM erum ansi bil- lega. Frásagan af lífi mínu með rit- höfundinum er einungis toppurinn af ísjaka þeim sem SAMlíf þetta var í raun. Skal HH vera málefnalegur en ekki persónulegur og gagnrýna það sem málið snýst um: málaferlin sjálf. Ég bar svo sannarlega lof og prís á sjálft dándimennið SAM. Gengið var lengi á eftir mér þar til ég lét til leiðast að tjá mig opin- berlega í Nýju lífi með þessum hætti sem reið ung kona. En er rýn- irinn HH ekki dálítið hlutdrægur; var grallarinn ekki veislustjóri í brúðkaupinu góða? Ekki man ég þó til þess að SAM hafi yfírhöfuð þekkt til listaspírunnar HH í minni tíð; eru þó einungis 3 ár síðan við skildum. í upphafi kynna okkar SAM sæll- ar minningar bað ég hann um að raka af sér 25 ára gamalt skegg, varð hann ljúflega við bón minni enda kvaðst ég ekki mundu kyssa garp- inn annars. Þar sýndi hann mér sitt rétta andlit fyrst. Svo ekki er þetta í fyrsta sinn sem ég afhjúpa goðið. HH talar um „slysin I garð fórn- arlambanna", eins og málsnillingur- inn kemst að orði. í „PS“-pistli er svo talað um að „eyðileggja karl- menn“ með því að opinbera mis- gjörðir þeirra. SAM hefur verið full- fær hingað til um að skapa það orð sjálfúr sem af honum hefur farið í gegnum tíðina og þarf ekki aðra til þess; kunstner-temperament heitir það víst á góðu máli og þykir bara nokkuð fínt temperament. Það er ekki einkamál foreldra þegar barn líður fyrir vanrækslu föður og verð- ur fyrir aðkasti jafn- aldra sinna vegna þess. SAM hefúr stórskaðað bam sitt þegar og þarf ekki mín skrif tU. Um þetta við- kvæma mál okkar SAM hefur verið hvískrað i 3 ár og er kominn tími til að ég segi mína meiningu. Um mannorð hvers var SAM sjálfur að hugsa þegar hann reit bersöglisævi- sögu sina sem hann kallar skáldsögur til að firra sig hugsan- legri lögsókn ætt- ingja sem annarra, en alþjóð veit, og viðurkennir hann sjálfur fúslega, að er uppvaxtarsaga hans sjálfs og var verðlaunaður fyrir vikið. SAM hefur tröllriðið fjölmiðlum með til- finningamálum sínum í hart nær hálfa öld. Þagði í þrjú ár í nýútkominni bók, „Árin eftir sextugt", ræðir SAM um ellina. Ekki minnist hana einu orði á það að hann eignaðist „gulhnola" 63 ára gamall sem telst nú meiri tíðindi en hjónaband á gamals aldri. HH tekur nokkuð stórt upp í sig þegar hann þykist vita af hvaða hvötum ég tala. Og ekki man ég að ég hafi haft orð um það að ég hyggist byrja nýtt líf eða hvort ég hafi yfir höfuð sagt skilið við hið gamla og sé þarmeð orðin ein af framliðnu konunum hans SAM. Ég leitaði til opinberra aðila í viðleitni minni til að ná fram rétti barns okkar. Því fer víðs fjarri að ég taki SAM „af lífi“; hann á 9 líf rétt eins og kötturinn; ég vakti fólk til umhugsunar um þessi mál sem eru réttlætismál barna fyrst og ffernst og í framhjáhlaupi afhjúpaði mann sem leikur tveimur skjöldum í þjóðfélagi voru. Þeir sem hreykja sér hátt hrapa lágt, segir í góðri bók. Það verður að viðurkennast að SAM liggur einkar vel við höggi. í sjónvarpsþætti um ímynd karlpeningsins sl. vetur var hann innt- ur eftir því hvað gerði hann svona ungan í anda. Svaraði hann stutt og laggott: „Mátu- legur skammtur af kæruleysi"! Ég þagði þó í þrjú ár. Það tekur enginn fyrir munn mér framar, það kenndi sjálfur meistar- inn mér, SAM, enda frægur að endemum fyr- ir það að tala þegar aðr- ir þegja eins og hann sjáliúr minnir af og til á. í kjallaragrein, sem rithöfundurinn sendi DV nýverið og DV sjálft var svo hugulsamt að birta um sama leyti og Nýtt líf kom út, út- málar faðirinn umhyggju sína fyrir börnum: „ástríki og agi í bland“ er heillavænlegast og helst engar gjaf- ir! Lesendur kenndu að þama tal- aði ábyrgur og ástríkur faðir. Svo eyðilegg ég þessa ímynd hans! Ja svei! Nei, ég held að SAM hafi veitt sjálfum sér þama náðarhöggið. Hin hlið málsins, ágæti Hallgrim- ur, er þessi, svo ég vitni í SAM sjálfan i bréfi til Sýslumannsins í Reykjavík dagsett 14. apríl 1994 og ræðir hann hér um umgengni sína við telpuna sem „andstæða hag hennar og þörfum", en barnið hafði hann ekki séð þá í 7 mánuði: „Ég held henni væri fyrir bestu að frekari samskipti bíði þess tíma þegar hún getur sjálf ákveðið hvað hún vill og hvernig hún vill haga umgengni við föður sinn - ef hann þá verður ofar moldu, sem er mikið vafamál." Enn er SAM ofar moldu og það eina sem ég hef farið fram á er að hann gegni fóðurskyldum sínum meðan hann er enn á meðal vor. En ég sé nú á viðbrögðum HH að slíkt getur farið fyrir brjóstið á stöku karli. En sem betur fer þurfa fæstar konur að leita til dómstóla til að draga feðurna til barna sinna. Ragnhildur Bragadóttir „Einu sinni var ég semsé unga konan hans SAM, eins og alþjóð nú reyndar veit, eða hann gamli maðurinn minn öllu heldur, svo skrýtið sem það nú hljómar. “ Kjallarinn Ragnhildur Bragadóttir móðir Með og á móti Samúðarverkfall með Vestfirðingum Hafa fulla heimild „Það rignir yfir okkur mót- mælum Vinnuveitendasam- bandsins og hótunum um lög- sókn, fjársektir og skaðabóta- greiðslur. Þetta gerist vegna þess að félagar okkar, sem þeir segja „svokall- aða verkfalls- verði“, hafa reynt að koma í veg fyrir að vinnuveitend- ur brjóti verk- fallið á bak aft- ur. I vinnulög- gjöfinni er það skýrt tekið fram að verka- lýðsfélögin og reyndar vinnuveitendur líka í sínu verkbanni hafi nokkuð frjálsar hendur með fram- kvæmdir um það aö aögerðirn- ar haldi. Viö höfum ekkert ann- að gert og hvergi stofnað lífi og limum í hættu, heldur eingöngu Pétur Sigurösson, forsetl Alþýöusam- bands Vostfjaröa. verið að sjá til þess að fram- kvæmd verkfallsins gengi fyrir sig með eðlilegum hætti. Það hefur þó komið berlega í ljós á undanförnum árum að vinnu- veitendur vilja í senn stjórna lagasetningiun, framkvæma lög- in, dæma eftir þeim og jafnvel skipa sýslumönnum og lögreglu fyrir verkum. Ef vinnulöggjöfin á að ganga upp og verkalýðsfé- lögin að framkvæma þann þrýsting með vinnustöðvunum sem ætlast er til með lögunum, þá er útilokað annað en að verkaklýðsfélögin hafi fulla heimild til þess að koma í veg fyrir verkfallsbrot og reyna eft- ir megni með alls konar stöðv- unum á atvinnurekstri að kom- ast að því hvort verið sé að fremja verkfallsbrot." Lengir verkfallið „Það er ekkert verkfall um borð í vestfirskum bátum eða togurum. Meira að segja í blönduðum félögum verkafólks og sjómanna hefur ekki komið til álita að boða verkfall sjó- manna. Þeir eru því í full- um rétti að sinna sínum störfum. Sum þess- ara skipa hefðu undir öllum kring- umstæðum landað utan Vestfjarða og því er fráleitt að halda því fram að gengið sé í störf verk- fallsmanna. Manni dettur óneit- anlega í hug hvort stéttarfélög annars staðar á landinu telji yf- irleitt hagsmunum sinna félags- manna betur borgið með því að gera verkfall gagnvart skipum skráðum hér fyrir vestan. Það gæti orðið til þess að skip og kvótar flyttust frá Vestfjörðum inn á þeirra félagssvæði. Ef skráningin er flutt eða skipin seld virðist mér að samúðin félli niður. Mér virðist sem svokallaðar samúðaraðgerðir geri ekkert annað en lengja þetta verkfall og torvelda lausn þess. Þá er mér óskiljanlegt hvernig Dags- brún og Hlíf geta boðað verkfall til að þrýsta á um miklu meiri hækkanir hér á Vestfjörðum en þau hafa sjálf samið um.“ -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.