Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 3
JjV FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 HLJÓMPLm Arturo Sandoval - Danzón ★★★★ ARTURO SANDOVAL /> Aít t (Oanci: On') Margréttuð stórveisla Meðan beðið er eftir nýjum geisladiskum er gott að hlusta aðeins á einn góðan, rúmlega árs gamlan. „Danzón“ ne&iist hann og er með kúbverska trompetleikaranum Arturo Sandoval, fyrrverandi liðsmanni hljómsveitarinnar Irakere. Frá því að Sandoval settist að í Bandaríkjun- um árið 1990 hefur hann verið iðinn við að senda frá sér alis konar mús- ík; latin - djass, popp, klassik, bræðing o.fl. Á þessum diski leikur hann tónlist heimalands sins og er hún afar fiölbreytiieg. Á honum er boöið upp á fjöruga kamivalstemningu og uppnmalegan afrískan trumbuslátt, bóleró, cha-cha-cha og auðvitað danzón; áhrif ffá spænskri gítartónlist, dægurlög í mjúkri suðrænni sveiflu og bræðings- og salsaskotinn stór- sveitardjass... og er þá ekki allt upptalið. Fjöldi góðra tónlistarmanna lætur í sér heyra á diskinum. Þama er hin gamalreynda söngkona Vikki Carr og önnur yngri, en ekki síður reynd, Gloria Estefan. Leikarinn og trommarinn heimskunni, Bill Cosby, syngur í tveimur lögum og leikur á timbales. Aðrir frægir em slagverks- leikarinn Giovanni Hidalgo, hinn frábæri píanisti Danilo Perez frá Panama og saxafónleikarinn Ed Calle. Ekki má svo gleyma Sandoval sjálfúm sem auk þess að blása snilldarlega í trompet að venju leikur hér á als oddi, syngur (og dansar eflaust líka) og leikur einnig á slagverk. Þessi geisladiskur er margréttuð stórveisla fyrir eynrn og keppnisdans- arar gætu efalitiö líka notast við sum lögin, nema lengd þeirra og hraði fer trúlega fremur eftir formúlum djass- og sontónlistar en samkvæmis- dansa. Ingvi Þór Kormáksson INXS - Elegantly Wasted ★★ Litríkur miðframherji Stefha INXS á plötunni Elegantly Wasted er sem fyrr rokk með þéttum danstakti. Tónlist sem ákaflega auðvelt er að endurhljóðblanda lítillega og þar með er komið diskó af gamla skólanum. Og fljótt á litið er nýja platan með þeim betri sem INXS hefúr sent frá sér á tæplega tveggja áratuga ferli. Nokkur lög öðnun fremur hifa plötuna upp og gera það að verkum að gæði hennar verða að teljast í góðu meðallagi. Fyrst skal frægt telja titil- lagið sem raunar er afskaplega dæmigert fyrir Mjómsveitina. Don’t Lose Your Head er prýðilegt rokklag og úr rólegri kantinum ber Searching af. INXS hefur verið litt áberandi hin síðari ár þegar frá er talin fyrsta flokks frammistaða söngvarans og lagahöfúndarins Michaels Hutchences á síðum slúðurblaða fyrir kvennafar og ljúft lífemi. En slíkt hefúr greini- lega engin áhrif á tónlistarmanninn Hutchence. Hann er samur og fyrr, ágætis söngvari og textar hans eru yfirleitt vel þolanlegir. Og sjálfsöryggi hefúr hann nóg. Án slíks miðframherja væri hljómsveit eins og INXS ærið litlaus. Ásgeir Tómasson •%ónlist 17 Sumar med Þriðja plata Progidy er á leiðinni um mánaðamót júní og júlí en margir hafa beðið hennar með óþreyju. Skífan mun heita The Fat of the Land en höfúðpaur sveitarinn- ar, Liam Howlett, á þó enn eftir aö semja eitt lag á hana. Howlett missti af fyrstu spilun plötunnar þann 15. maí því hann var að vinna að lagi sem hann telur vera örugga smáskífu. Á nýju plöt- unni, sem kemur til með að heita Nuaryan, verða 10 lög, þar á meðal Firestarter og Breathe. Segja menn mikinn hip- hop brag yfir gripnum þannig að samvinna Progidy-félaga við Skin í Skunk Anansie hefúr ekki haft mikið að segja. Og áfram með Progidy. Framkvæmdastjórar plötufyrirtækja og annað mektarfólk var flutt sér- staklega með þyrlu í hlöðu nokkra á ensku landsbyggðinni til að fá nasaþef af nýju plötunni. Þar mætti þeim bóndi nokkur sem kvaðst vera aðdáandi sveitarinnar og krafðist þess að sýna þeim verðlaunanautið sitt. Fræga fólkið tók vel í það og var öllum mikið skemmt að sögn vitna. Predikarar í frí Manic Street Preachers hafa til- kynnt aö þeir hyggist taka sér frí frá tónleikahaldi í óákveðinn tíma með- em þeir vinna að sinni nýjustu breið- skífla. Henni er ætlað að fylgja í fót- spor Everything Must Go sem gerði það gott í fyrra. Rolling Stones höfðu samband við sveitina og báðu hana um að koma fram með lag í nýja kvikmynd sem fyrrverandi gítarleik- ari Rollingana, Brian Jones, er að gera. Þeir afþökkuðu pent, of mikið aö gera. Djöfladýrkun? Beiðni kristinna hópa um bann við tónleikum Marilyn Manson í Newport í Bretlandi var hafnað en þeir hafa haldið fram að sveitin styðji djöfladýrkun. Rúmlega 400 manns höfðu hótað að mótmæla við tónleikana en talsmaður hljómsveit- arinnar segir af og frá að hún styðji djöfladýrkun, hér sé aðeins um líf- lega sviðsffamkomu að ræða. Bowie og Drbital David Bowie hefur verið að reyna að fá Orbital til að koma með sér fram á tónleikum i Phoenix í Banda- ríkjunum. Samningaviðræður munu ganga vel en Bowie bað tvímenning- ana einnig um að endurhljóðblanda Little Wonder frá síðasta ári. Orbital gafst ekki timi til þess. Tvöföld bókun DJ Shadow varð að draga til baka þátttöku sína í Tribal Gatherins- danshátíðinni þar sem hann átti að vera staddur í hljóðveri á sama tíma. Þessi mikli hip-hop kóngur frá San Francisco mun halda tónleika viða í Evrópu í sumar ásamt röppurunum í Latryx. Vinir Bjarkar Björk mun koma fram á tónleikum til styrktar Tíbet og mun verða hægt að fá þá í breiðskífúformi um næstu jól. Aðrir sem einnig munu koma fram eru Radiohead, Foo Fighters, Blur, Michael Stipe & Mike Mills, Be- astie Boys, Alanis Morissette og margir fleiri. Fugees hélt tónleika á Haítí áöur en haldið var til íslands og voru yfir 75 þúsund manns mætt til að hlusta á sveitina. Tónleikamir voru haldnir í höfuðborg Haítí, Port au Prince, og var hugmyndin aö ágóðinn af þeim rynni til góð- gerðarmála en meðlimir sveit- ÍJ2JJÍJ LULU£lH arinnar eiga ættir sínar aö rekja til Haití. Aftur á móti viröist sem svo að peningamir séu horftiir. Menningarmálaráðherra Haítí, Raoul Peck, var kallaður fyrir þingið í sl. viku til að gera grein fyrir hvar peningamir kynnu að vera en ekkert kom út úr þvi. Fugees dvaldi 5 daga á Haítí. Hljómsveitarmeðlimir heimsóttu þar m.a. fátækrahverfi höfuö- borgarinnar og fengu orðu frá forseta landsins, Rene Preval. Heyrst hefur aö Wyclef Jean, einn af meðlimum Fugees, hafi beðið tónleikahaldara að gæta peninganna sérstaklega en hann þekkir spillinguna sem viðgengst á Haítí mjög vel. Af ööra er það að frétta aö Wyclef gefur út sína fyrstu sóló- plötu, Wyclef Jean Presents the Carnival, þann 23. júní nk. Þar veröur m.a. að finna nýja útgáfu af gamla Bee Gees-laginu Stayin’ Alive og hip-hop útgáfu af kúbverska laginu Guantanamera. Tvö af lögunum era síöan sungin á kreólatungu Haítíbúa. Meðal gesta á plötunni má nefna hans úr Fugees, Laúryn Hill Pras, auk Neville-bræðra, og Fíl-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.