Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Blaðsíða 5
JjV FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 Oktettinn Supertramp hljómar ótrúlega Ifkt og f gamla daga þótt tveir áratugir séu liðnir sfðan hljómsveitin var upp á sitt besta. Sumar hljómsveitir láta líða svo langan tíma milli þess sem þær senda frá sér plötur með nýju efni að flestir halda að þær séu hættar. (Alltaf verða áttatiu prósent þjóðar- innar jafnhissa þegar ný Mezzofor- teplata kemur út: Ha, voru þeir ekki löngu hættir?!) Rick Davies, hljóm- sveitarstjóri Supertramp, fagnar því að á þessu ári eru tíu ár liðin síðan síðasta hljóðversplata hijómsveitar- innar kom út með því að senda frá sér nýja, Some Things Never Change. Titillinn þýðir Sumt breytist aldrei og sennilega á það við um hljómsveitina Supertramp. Það leynir sér að minnsta kosti ekki þegar hlustað er á plötuna hvaða hljómsveit er á ferð. Þó er annar að- almaðurinn frá velmektardögunum löngu horfinn á braut. Roger Hodg- son, gítarleikari, söngvari og laga- höfundur, tók pokann sinn 1982 og hefur sáralítið komið við sögu hljómsveitarinnar síðan. Mikið breytt liðsskipan Auk Davies eru ennþá tveir aðrir liðsmenn Supertramp eftir sem tóku þátt í sigrunum á áttunda áratugn- um, þeir John Helliwell, tré- og málmblásturshljóðfæraleikari, og Bob Siebenberg trommuleikari. Nýir menn í sveitinni eru ásláttar- hljóðfæraleikarinn Tom Welsh (áður með hljómsveit Joe Cocker), Cliff Hugo bassaleikari (áður með Ray Charles), gítaristinn Carl Ver- heyen, trompet-, básúnu- og hljóm- borðsleikarinn Lee R. Thomberg (áður með Tower of Power og Rod Stewart) og loks hljómborðs- og gít- arleikarinn Mark Hart sem í eina tíð lék með Crowded House. Hart semur tvö lög plötunnar Some Things Never Change með Rick Davies og syngur jafnframt nokkur lög. Nýju plötuna tók hópurinn upp á þremur mánuöum í hljóðveri í Los Angeles og síðan vom lögin hljóðbl- önduð í New York. Vinnan við laga- smíðarnar var öllu lengri. „Ég verð annað tveggja að láta mig hverfa eða læsa mig inni með- an ég er að semja,“ segir Rick Davies. „Það að semja lag og texta krefst þess að ég einbeiti mér gjör- samlega. Fyrst koma alls kyns óhljóð, óboðleg stef og samhengis- lausar hugmyndir. Loks fæðist ein- hver lína sem vit er í og þá er hægt að fara að byggja upp lagið í kring- um hana.“ Leitin að rátta óminum Rick Davies hefúr unnið að lög- unum á Some Things Never Change í tuttugu ár. Ótrúlega langan tíma þegar haft er í huga að platan var síðan hljóðrituð á ársfjóröungi. Ým- ist samdi hann þau heima hjá sér eða í smáhýsi í Cotswold á Englandi. Ýmist notaðist hann við óraftnagnað píanó eða Wurlitzer. „í upphafinu reyndi ég alltaf að fá laglínumar til að hijóma eins og þær væru leiknar á gítar með blústilþrifum. Fyrst notaði ég Hohner píanó. Síðar notaðist ég við Wurlitzer sem hefúr ásamt flyglum orðið eins konar vörumerki fyrir Supertramp," segir Davies. í hljóðverinu kom Jack Douglas til sögunnar og stýrði upptökunum. Hann hefur meðal annars unnið með Aerosmith og John Lennon. „Jack er enginn „cut og paste“ mað- ur. Hann vinnur upptökumar á gamaldags hátt og er sérstaklega limkinn við að láta þær hljóma lif- andi,“ segir Rick Davies. „Þá hefur hann gott eyra fyrir útsetningum. Veit hvaða hljóðfæri hæfa hvaða lagi. Með slíkan mann við stjómvöl- inn öðlast lögin manns dýpt og um- fang. Djassaður trompet á einhveij- um stað sem maður leiddi ekki einu sinni hugann að getur gerbreytt hversdagslegu lagi og gert það minnisstætt. Þetta kann Jack Dou- glas.“ Gamalgrónir Ferill Supertramp hófst árið 1969. Af tónlistarmönnunum, sem þá hófu leikinn, er Rick Davies einn eftir. Hann byrjaði reyndar að velta fyrir sér tónlist átta ára heima í Swindon á Englandi þegar foreldr- amir gáfu honum gamlan radíófón. Síðan tóku við nokkrar hljómsveit- ir. Sú fyrsta varð til í listaskóla og þar léku þeir saman Rick og Gilbert O’Sullivan sem síðar átti eftir að gera garðinn frægan. Ferill Supertramp reis hæst á seinni hluta áttunda áratugarins. Þá sendi hijómsveitin frá sér plöt- una Breakfast in America sem reyndar er í hópi mest seldu platna heims. Hún var til dæmis í efsta sæti bandarískra vinsældalista í sex vikur sumarið 1979 og hefúr til þessa dags selst í hátt í átján millj- ónum eintaka. Þessar vinsældir em meðal annars að þakka smáskífu- lögunum þremur sem á plötunni em, það er Logical Song, Goodbye Stranger og titillaginu sem öll nutu vinsælda imdir lok áttunda áratug- arins. Áður hafði Supertramp sent frá sér nokkrar stórar plötur sem hlutu góðar viðtökur og vinsamlega gagn- rýni þótt þær seldust ekki í slíkum upplögum að nægði til að koma þeim í efstu sæti listanna. Þetta vom plötumar Crime of the Cent- ury (1974), Crisis? What Crisis? (1975) og Even in the Quitest Moments (1977). Lög af þessum plöt- um, sem slógu í gegn, vora til dæm- is Dreamer, Bloody Well Right, Give a Little Bit og It’s Raining Again sem sló í gegn þegar platan Famous Last Words kom út árið 1982. Eftir það hefur verið fremur hljótt um Supertramp þótt nokkrar plötur hafi komiö út með hijómsveitinni. Plötur sem hafa hinn dæmigeröa Supertramp-hijóm þótt liðsskipan sveitarinnar hafi tekiö miklum breytingum I áranna rás. -ÁT- ffinlist, *★ ★ Fleiri harmleikir Trommuleikari Nine Inch Nails’ mun taka við kjuðunum í Hoel af Patti Schemel í nokkrum ef ekki öllum lögum sveitarinnar á næstu breið- skífú hennar. Eiimig hefur heyrst að Infinite Sadness muni koma nálægt gerð skíf- unnar. Courtney Love hefur tilkynnt að hún vilji „dimman Los Angeles-stíl“ á plötuna. Annars er það að firétta að sjálfsvíg Kurt Cobain heldur áfram að draga dilk á eftir sér. Tvær stúlkur í Lille í Frakk- landi skutu sig til bana og skildu eftir miða þar sem þær sögðu tónlist Cobain segja þeim að deyja og því þyrftu þær að hlýða. Ice T í bíó Ice T er á leiðinni á hvita tjaldið enn á ný og nú í fylgd Burt Reynolds. Annars er það af honum að frétta að hann er nú á stórri hljómleikaferð um Bretland. Hljómsveitin Soma kveður sér hljóðs TJ’ e i g i r a Nýtt íslenskt Hljómsveitin Soma er rúmlega ársgömul og hefur verið að spila víðs vegar um höfuðborgina í vet- ur. Hljómsveitin er að senda frá sér geisladisk þann 2. júní og ber gripurinn nafnið Föl. Á diskinum er aö finna 13 lög. Meðlimir Soma era Guðmundur, sem sér um söng, Snorri sem leikur á git- ar, Þorri á hljómborð, Kristinn á bassa, Jónas á trommur og Hall- dór Sölvi á gítar. Soma gefur sjálf út diskinn en Skífan dreifir. Út- gáfutónleikamir verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum þann 5. júní. Danshúsið í kvöld leikur Hljómsveit Geir- mundar Valtýs fyrir dansi en annað kvöld er það Hljómsveit Birgis Gunn- laugssonar sem heldur uppi fjörinu. Hótel ísland í kvöld er lokað á Hótel íslandi vegna einkasamkvæmis en annað kvöld verður sjómannadagurinn hald- inn hátiðlegur. Boðið verður upp á fjolda skemmtiatriða, m.a. Bragga- blús, Söngsystur og stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar. Kynnir verður Hermann Gunnarsson en Sniglaband- ið leikur fyrir dansi. Gullöldin Gömlu brýnin, þeir Svenni og Halli, leika fyrir dansi í kvöld og ann- að kvöld. Morrissey undarlegur Morrissey er aftur kominn fram á sjónarsviðið með sína fyrstu plötu, Maladjusted, siöan hann skipti við útgáfúfyrirtæki. Bandarísk blöð hafa fengið mjög imdarlega fréttatilkynn- ingu senda í pósti ásamt skíf- unni, undirritaða af Stoney Hando. Fregnir herma að Ston- ey Hando sé í raun Morrisey sjálfúr en í tilkynningunni seg- ir meðal annars. „Morrissey hefur engan áhuga á stjómmál- um í heiminum og kýs frekar að umgangast dýr en menn. Hann hefúr engan áhuga á nú- tíma liftiaðarháttum og býr á Spáni.“ Frekar skrítið, ekki satt?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.