Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1997, Side 7
DV FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
0n helgina
Iðnnemar sýna
í Hafnarborg
Þessa dagana stendur yfir
nemendasýning hönnunar-
brautar Iönskólans í Hafnar-
firði. Á sýningunni eru verk
sem unnin hafa veriö í vetur.
Munirnir sem eru til sýnis eru
af ýmsu tagi, allt frá úrum til
húsgagna, unnir úr ýmsu efni.
Tilgangur sýningarinnar er
Karlakór
Dalvíkur á
Norðurlandi
Karlakór Dalvíkur heldur
vortónleika á þremur stöðrnn
á Norðurlandi um helgina.
Hinir fyrstu verða í Dalvíkur-
kirkju í kvöld kl. 21. Á morg-
un verða tónleikar kl. 16 í
Blönduóskirkju og annað
kvöld í Miðgarði i Skagafirði.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt; einsöngur, tvísöngur
og fjöldi innlendra og er-
lendra laga. Sljórnandi kórs-
ins er Jóhann Ólafsson, und-
irleikari er Helga Bryndís
Magnúsdóttir og einsöngvari
er Jónas Þór Jónasson.
að kynna verkin og höfunda
þeirra en jafnframt að kynna
hönnunarbrautina við Iðnskól-
ann í Hafnarfirði og það nám
sem þar er hægt að stunda.
Sýningin er í Hafnarborg í
Hafnarfirði og lýkur á mánu-
dag. Hún er opin frá kl. 12-18.
Tónskóli Sig-
ursveins flytur
í dag flytur Tónskóli Sigur-
sveins höfuðstöðvar sínar í nýtt
húsnæði skólans við Engjateig í
Reykjavík. Af því tilefhi verður
efnt til skrúðgöngu með blásara-
sveit skólans í broddi fylkingar.
Gengið verður frá gamla skóla-
húsinu við Hellusund inn að
Engjateigi 1. Gangan leggur af
stað kl. 17. Gengið verður upp
Hellusund, út Bergstaðastræti,
upp Skólavörðustíg, niðm-
Frakkastíg, inn Bergþórugötu,
niður Snorrabraut, upp Lauga-
veg, niður Kringlumýrarbraut
og inn Engjateig.
Tónskóli Sigursveins var
stofnaður 30. mars árið 1964 og
fór kennslan fyrst fram heima í
stofu hjá stofhandanum og skóla-
stjóranum, Sigursveini D. Krist-
inssyni, og öðrum kennurum
skólans. Nú 33 árum síðar fagna
nemendur og kennarar skólans,
700 talsins, þessum tímamótum.
Á nemendasýningunni er aö finna marga glæsilega muni á borö viö
þennan stól sem er hannaöur af Kára Frey Unnsteinssyni.
Ríkey í Ráðhúsinu
Á morgun, kl. 15, opnar Ríkey Ingimundardóttir
myndlistarkona 37. einkasýningu sína í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Á þessari sýningu eru aðallega brenndar
leirlágmyndir sem lýsa Reykjavík og ýmsum frægum
persónum en einnig er þar að finna skúlptúra og mál-
verk.
Ríkey hefur unnið sem myndhöggvari, listmálari og
keramiker á eigin vinnustofu síðan hún útskrifaðist
úr Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands árið 1983. Listakonan hefur
unnið með ólík efni og form. Ríkey
hefur haldið sýningar víða erlend-
is, s.s. i Bandaríkjunum, Lúxem-
borg, Noregi og Færeyjum.
Brennd leirlágmynd af Árna
Tryggvasyni ieikara og þeim Bessa
Bjarnasyni og
Arna í hlutverkum
Mikka refs og Lilla
klifurmúsar eftir Rík-
eyju Ingimundardóttur.
Vinningshafar í spurninga- og lita
leik Krakkakiúbbs DV og Kjöríss.
Toon Struck-tölvuleikir.
1.-2.
Sigurður Rúnar, nr. 3277
Tómas A. Rizzo, nr. 2619
BTgTHvur
Litabók, endurskinsmerki, límmiðar
og Hlunkaávísun frá Kjörís.
3.-10.
Sólveig Ólafsdóttir, nr. 10278
Ragnhildur Björgvinsdóttir, nr. 9119
Hlynur Freyr Þorgeirsson, nr. 9089
Tryggvi Rúnar Guðnason, nr. 5677
Ólafur Hjörtur Kristjánsson, nr. !
Óskar Elías Sigurðsson, nr. 5950
Hjördís Pétursdóttir, nr. 6906
Karólína Árnadóttir, nr. 5230
Krakkaklúbbur DV og Kjörfs þakka öllum
sem tóku þátt i leiknum kærlega fyrir.
Vinningarnir veröa sendir vinningshöfum
f pósti næstu daga.
m
Kór íslensku óperunnar heldur tónleika á sunnudaginn til fjáröflun-
ar fyrir söngferö til Ítalíu.
r
Tónleikar í Islensku óperunni
Kór íslensku óperunnar mun
halda tvenna tónleika í ís-
lensku óperunni á sunnudag-
inn, kl. 16 og 20. Tónleikamir
eru haldnir í tilefni af söngferð
sem kórinn leggur upp í þann
9. júní til Norður-Ítalíu. Þar
mun kórinn halda alls ferna
tónleika. Stjómandi kórsins er
Garðar Cortes, John Beswick
leikur á píanó og einsöngvari
er Ólöf Kolbrún Harðardóttir.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt en þar er m.a. að finna ís-
lensk lög eftir Jón Ásgeirsson,
Jón Leifs, Jón Nordal, Kalda-
lóns, Árna Thorsteinsson og Sig-
fús Einarsson. Einnig óp-
erukóra eftir Carl Orff,
Mascagni, Verdi, Wagner, Gers-
hwin og Jón Ásgeirsson.
SÝNINGAR
Gallerí Homið, Haöiarstræti 15. 31. mai
kl. 17-19 opnar Hildur Waltersdóttir listmálari
sýningu á fjölda málverka sem unnin eru á sl.
12 mánuðum. Sýningin er opin alla daga kl.
11-23.30 til 18. júní.
Gallerí, Ingólfsstræti 8. Roni Hom opnar
sýningu á verkum sínum 31. mai kl. 17 og
henni lýkur 29. júní. Galleríið er opið aila
fimmtudaga til sunnudaga fi-á kl. 14 tU 18.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70. Sýning á
verkum frnnsku grafíklistakonunnar Ninu
Kerola. Opið virka daga 10-18 og laug. 10-16 til
14. júní.
Gallerí Regnbogans, Hverfisgötu 54.
Sýning á verkum Sigurðar Örlygssonar opin
virka daga frá kl. 16-24 og Crá kl. 14-24 um
helgar.
Gailerí Slunkarlki, Aöalsúæti 22 fsa-
firði Sýning á kolateikningum og grafikverk-
um eftir Ragnheiði Jónsdóttur er opin
fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18 til 1. júní.
Gallerí Sýnirými. í Galleríi Sýniboxi:
Morten Kildevæld Larsen; í Galleríi Barmi:
Stefan Jónsson, berandi er Yean Fee Quay;
Galleri Hlust Halldór Bjöm Runólisson og
„The Paper Dolls"; í Gallerí 20 m2: veggmál-
verk eftir Tuma Magnússon. Opið kl. 15-18
miðv.-sun. til 8. júní.
Gallerí Sölva Helgasonar, Sölvabar i
Lónkoti, Slcttuhlið í Skagafirði. Sýning á
verkum Brynju Ámadóttur til 28. júni.
Gerðuberg. Föstudaginn 30. maí kl. 15 opn-
ar Jón Jónsson málverkasýningu. Opið
fimmtud. til sunnud. frá kl. 14-18.
Gimli, Stokkseyri. Sýning á verkum eftir
Elfar Guðna opin um helgar frá kl. 14-22 og
virka daga frá kl. 17-22 til 1. júní.
Hafnarborg, Hafharfirði Nemendasýning
hönnunarbrautar Iðnskólans í Hf. til 2. júní.
Opiö kl. 12-18 alla daga nema þriöjudaga.
ísafoldarhúsið, Þingholtsstræti 5. Heidi
Kristiansen sýnir myndteppi. Vinnustofan er
opin alla virka daga frá kl. 12-18.
Kjarvalsstaðir Sýningin íslensk myndlist
til 31. ágúst. Opið alla daga frá kl. 10-18.
Listasaíh ASÍ, Ásmundarsalur, Freyju-
götu 41.Sigríður Sigurjónsdóttir og japanski
ljósmyndarinn Takashi Homma opna sýningu
á verkum sínum laugardaginn 31. maí. Opið
alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18 til 15.
júní.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7. Sýn-
ing á verkum safnsins til 1. júní. Opiö þriö. til
sun. kl. 11-17. _
Listasafn fslands, Bergstaðastræti 74.
Safti Ásgríms Jónssonar, vatnslitamyndir,
febrúar-mai. Safitið er opið um helgar, kl.
13.30-16.
Listasafh Kópavogs, Gerðarsafn,
Hamraborg 4. Málverk og teikningar Önnu-
Evu Bergmann til 8. júní. Opiö alla daga nema
mánud. frá 12-18.
Listhúsið í Laugardal. Gallerí Sjöfn Har.
Myndlistarsýning á verkum eftir Sjöftt Har.
Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl.
11-14.
Lástasafh Siguijóns Ólafssonar, Laugar-
nesi. Sérstök skólasýning með völdum verk-
um eftir Sigurjón. Opið lau. og sun. kl. 14 og
17 og eftir samkomulagi.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustfg 5. Finn-
inn Harri Syrjánen er með sýningu á verkum
sinum. Opið mán.- fós. frá kl. 10-18 og lau. frá
kl. 11-14.
Listasetrið 1 Kirkjuhvoli, Akranesi. Sýn-
ing á textílverkum eftir Philippe Ricart.
Stendur til 8. júní. Opið daglega frá kl. 15-18.
Mokka, Skólavöröustíg 3A. Sýning Helga
Sigurðssonar stendur til 6. júní. Opið alla
daga nema sunnudaga frá kl. 14-23.30.
Norræna húsið. Sýning á skartgripum eft-
ir 56 norræna gullsmiði opin daglega kl. 14-19
til 8. júní.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg. Sýning á mál-
verkum og teikningum eftir Birgi Snæbjöm
Birgisson og Sigtrygg Bjama Baldvinsson.
Opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18
til 8. júni.
Ráðhús Reykjavíkur. 31. maí verður opn-
uð sýning á verkum Ríkeyjar Ingimundardótt-
ur myndlistarkonu. Opið frá kl. 15-18 til 9.
júní.
Safnhúsiö í Botgamesi. Sýning Gríms
Marínós stendur til 2. júni.
Sjóminjasafh íslands, Hafharfirði. 31.
maí verður opnuð sýning á 20 olíumálverkum
eftir Bjama Jónsson listmálara. Sýningin
stendur yfir sumartímann. Frá 1. júni til 30.
september er Sjóminjasafhiö opið aúa daga frá
kl. 13-17.
Snegla listhús, Grettisgötu 7. í gluggum
stendur yfir kynning á verkum Sigríðar Erlu
úr jarðleir. Opið virka daga kl. 12-18 og kl.
10-14 laugard.
SPRON, Álfabakka 14, Mjódd. Sýning á
verkum Aðalheiðar Valgeirsdóttur til 8. ágúst.
Opið frá mánudegi til fóstudags, frá kl. 9.15-16.
Stofnun Áma Magnússonar, Ámagarði.
Sunnudaginn 1. júní kl. 13 hefst sumarsýning
handrita 1997. Opið daglega kl. 13-17 til ágúst-
loka.
Tehúsið, Vesturgötu 3. Laugardagskvöld-
ið 31. mai opnar Þórdís Alda Siguröardóttir
myndlistarmaður sýningu á verkum sínum
sem stendur til 29. júni og er opin allan sólar-
hringinn í gegnum glugga Tehússins.
ASH Gallerí Lundi, Varmahlfö Skaga-
firði. Sunnudaginn 1. júní opnar Sigurrós
Stefánsdóttir sýningu á verkum sínum. Opið
alla daga kl. 10-18 til 20. júní.
Safhaðarheimili Reykholtssóknar. Sýn-
ingar dr. Jónasar Kristjánssonar um Snorra
Sturluson og verk hans og málverkasýning
Vignis Jóhannssonar myndlistarmanns
standa til 15. júní. Opið daglega ftá kl. 10 til 20.
Gunnar Þorleifsson heldur málverkasýn-
ingu í menningarmiöstööinni Grindavik frá
29. maí til 9. júni. Opið kl. 17-22 virka daga og
kl. 14-22 um helgar.