Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Qupperneq 4
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 DV
i8 %ón!ist
Island
1.(6)
2.(1 )
3. (-)
4. (5)
5. (- )
6. ( 4 )
| 7.(2)
8. (14)
9. (7)
10.(11)
11. (Al)
12. (13)
13. (-)
14. (11)
15. ( 3 )
16. ( 9 )
17. (-)
18. (10)
19- (—)
20. (18)
Spice
Spice Girls
Stoosh
Skunk Anansie
Forever
Wu Tang Klang
Falling into You
Celine Dion
Óskalög sjómanna
Ýmsir
Pottþétt 7
Ýmsir
Dig Your Own Hole
Chemical Brothers
Paranoid and Sunburnt
Skunk Anansie
Colour + Shape
Foo Fighters
Romeo & Juliet
Úr kvikmynd
Live in Paris
Celine Dion
Pop
U2
One Fierce Beer Coastcr
Bloodhound Gang
Homework
Daft Punk
The Score
Fugees
Tragic Kingdom
No Doubt
Ultra
Depeche Mode
In it for the Money
Supergrass
Best of
Tchaikovsky
Older
George Michael
London
-lög- _-
t 1. ( - ) MmmBop
Hanson
$ 2. (1 ) I Wanna Be the only One
Eternal Featuring BeBe Winans
t 3. (- ) Paranoid Android
Radiohead
| 4. ( 2 ) Time to Say Goodbye
Sarah Brightrnan and Andrea Boc..
I 5. ( 4 ) Closer than Close
Rosie Gaines
| 6. ( 3 ) You're not Alone
Olive
t 7. ( 5 ) l'H Be there for You
The Rembrandts
| 8. ( 6 ) Lovefool
The Cardigans
t 9. (- ) Six Underground
Sneaker Pimps
t 10. (- ) Waltz away Dreaming
Toby Bourke with George Michacl
New York
-lög-
I 1. (1 ) Mmmbop
Hanson
t 2. ( 4 ) Return of the Mack
Mark Morrison
I 3. ( 3 ) Say You'll Be there
Spice Girls
I 4. ( 2 ) Hypnotize
The Notorious B.I.G.
t 5. ( 8 ) The Freshmen
The Verve Pipe
t 6. ( 7 ) I Belong to You
Rome
$ 7. ( 5 ) You Were Meant for Me
Jewel
# 8. (- ) G.H.E.T.T.O.U.T.
Changing Faces
t 9. ( - ) It's Your Love
Tim McGraw
t 10. (- ) Hard to Say l'm Sorry
Az Yet Featuring Peter Cetera
Bretland
plötur og diskar
t 1. ( - ) Open Road
Gary Barlow
t 2. (-) DoltYourself
Seahorses
| 3. ( 2 ) Spice
Spice Girls
$ 4. ( 1 ) Blood on the Dance Floor
Michael Jackson
t 5. ( -) Always on My Mind
Elvis Presley
t 6. (10) Romanza
Andrea Bocelli
t 7. ( -) Before the Rain
Eternal
t 8. ( -) Direction Reaction Creation
The Jam
| 9. ( 4 ) Republica
Republica
» 10. ( 5) White on Blonde
Texas
- Bandaríkin
----íJb- plötur og diskar
| 1. (1 ) Spice
Spice Girls
| 2. ( 2 ) Butterfly Kisses
Bob Carlisle
t 3. (- ) I Got Next
Krs-One
| 4. (- ) l'm Bout It
Soundtrack
# 5. ( 3 ) Life after Death
The Notorious B.I.G.
| 6. ( 6 ) Middle of Nowhere
Hanson
| 7. ( 5 ) Carrying Your Love with Me
George Strait
| 8. ( 4 ) Share My World
Mary J. Blige
t 9. ( - ) Hourglass
James Taylor
110. (- ) The Colour and the Shape
m EaoJRflliteis,...................
Plata ársins:
Faith no More
Það eru nú liðin 18 ár frá því að Roddy Bottum,
Mike Bordin og Billy Gould komu fyrst saman til
að stofna hljómsveitina Faith no More. Margt hef-
ur breyst, jafnt innan hljómsveitarinnar sem
utan. Faith no More er hljómsveit sem tekur
endalausum breytingum en heldur sig samt alltaf
við grunnhugmyndina. Spurningin hlýtur þá að
vera: Hvaða grunnhugmynd leyfir slíkar breyt-
ingar án þess að frá henni sé skeikað?
Úr öllum áttum
Lítum aðeins á þessa þrjá stofnendur Faith no
More. Roddy Bottum er klassískt menntaður pí-
anóleikari sem hefur unun af hreinni popptónlist
og gúmmífatnaði. Billy Gould er pönkari í grunn-
eðli sínu og keyrir bassann áfram á þeim grunni.
Mike Bordin er síðan margtakta trommari sem er
á kafi í djassinum.
Grunnhugmyndin? Hún var að taka alla þá
ólíku þætti sem hver og einn bjó yfir inn í laga-
smíðamar, líka þætti þeirra sem seinna gengu til
liðs við sveitina.
Ný plata Faith no More heitir Album of the
Year er sjötta hljóðversplata sveitarinnar, sú
fjórða með söngvaranum Mike Patton. Með því
að taka þennan geggjaða söngvara og textasmið
inn í sveitina hefur Faith no More aukið svo um
munar á andstæður ólíkra þátta liðsmanna
sinna. Patton lýsir sjálfum sér þannig að hann
eigi meira sameiginlegt með snúnu fólki, ræsis-
rónum og geðsjúklingum en hann eigi sameigin-
legt með ákveðnum rokkstjörnum nútímans.
Nýr gítarleikari
Enn víkkar gmnnhugmyndin síðan út með
komu nýs gítarleikara inn í hljómsveitina. Hann
heitir John Hudson og er sagður viljugur til að
prófa hvað sem er í tónlistinni. Hinir meðlimirn-
ir hafa alla vega tekið honum opnum örmum og
segja einstaka hæfileika hans njóta sin einstak-
lega vel í þessu fjarskylda samsuðuhópi tónlistar-
manna.
Það skiptir allt máli í tónsköpun Faith no
More. Patton virðist endalaust geta teygt rödd
sem í fyrstu virtist ekki til mikils megnug. Gould
og Bordin eru taktteymi sem á sér engan líkan í
rokkheiminum. Samsuða þeirra kemur sífellt á
óvart, hvort sem um er að ræða funk, pönk, rokk
eða ballöður. Stundum er jafnvel hægt að dansa
við tónlist þeirra (ef þú ert margliðaður, ert með
sjötta skilningarvitið í lagi og hefur grætt í þig of-
virkan gangráð).
Á fleygiferð
Allt frá byrjun hefur verið mikið umtal um
hljómsveitina Faith no More. Þeir hafa verið
poppuð topp 10 hljómsveit, gengiö allt of langt í
tónleikahaldi, verið þungarokkstjömur, slegist,
hætt og sæst. Á ferðalögum sínum hafa þeir tælt,
hrætt og gengið fram af tónleikagestum sínum
um allan heim.
Hljómsveitin hefur aldrei hvikað frá grunnhug-
mynd sinni. Samsuðan er málið. Tónlistarstefnur
koma og fara. Faith no More tekur sitt lítið af
hverju og heldur sínu striki, alveg sama hvað á
þá reynir.
Nýja platan reynir á þetta allt saman. Þeir
segja kraftinn enn til staðar í bland við allt það
sem datt i hug við gerð plötunnar. Svo er aldrei
að vita hvað slíkum hópi manna dettur í hug.
Dettm- þér eittthvað í hug?
GBG
Dylan kominn af sjúkrahúsi
Boh Dylan er kominn
af sjúkrahúsi. Hann
þurfti að leggjast inn 25.
maí sl. eftir skyndilega
hjartabilun þegar hann
var á tónleikaferð.
Hjartasérfræðingar eru
vongóðir um að hann
muni ná sér á 4-6 vikum
ef hann fer hægt í sakim-
ar. Bob Dylan var léttur
á sér þegar hann kom þó
að hann viðurkenndi að
hann hefði haldið að
þetta væri hans síðasta.
„Ég er mjög feginn aö
mér líður miklu betur
núna. Ég hélt ég myndi
bráðum hitta Elvis,“
sagði hann. Þess má að
lokum geta að þrátt fyrir
veikindin stendur enn til
að Bob fari í tónleikaferð
um Bandaríkin með Ani
DiFranco. Sú ferð hefst í
byrjun ágústmánaðar.
Wyclef stórorður
Wyclef í Fugees hellti úr
skálum reiði sinnar yfir
þjófnaðinum á peningunum
sem komu inn fyrir tónleika
sem sveitin hélt í Port-au-
Prince á Haítí. DV sagði frá
þessum þjófnaði í síðustu
viku. „Við viljum aðeins
vita hver ber ábyrgð á
þessu,“ sagði Wyclef í sam-
tali við MTV-sjónvarpsstöð-
ina. „Fólkið á Haítí er ekki
heimskt. Það veit að Fugees
stakk ekki peningunum í
eigin vasa því það veit að
við vorum að gera þetta í
góðgerðarskyni. Við eram
brjáluð yfir þessu. Þegar ég
kem heim til New York
mun ég hringja út og gefa
þeim tvær vikur til að koma
fram með peningana. Mér
þætti afskaplega leiðinlegt
að fara þangað og ná í þá
sjálfur. Ef allt annað bregst
mun ég gera það.“
Courtney Love
selur húsið
Courtney Love hefur
selt húsið í Seattle sem
hún og Kurt Cobain
bjuggu saman í. Hún setti auglýs-
ingu í Seattle Times og nokkrum
dögum seinna keypti ónefnd fjöl-
skylda, sem býr í Seattle, húsið.
Húsið var selt á 3 milljónir dollara
(rúmlega 210 milljónir ísl. kr.). Þess
má geta að fyrirtæki í Minneapolis,
sem selur ýmsa minjagripi um rokk-
stjömur, segist hafa til sölu skeiðina
sem Kurt Conain er sagður hafa not-
að við heróínneyslu sína. Skeiðin er
seld á 350.000 krónur.
Radiohead með
nýtt myndband
Carl Perkins á sjúkrahús
Þegar ein gamalreynd rokk-
stjarna útskrifast af sjúkrahúsi
leggst önnur inn. Carl Perkins,
sem sló 1 gegn með laginu Blue
Suede Shoes árið 1956 (gcif það út á
undan Presley) var lagður inn á
Memphis- sjúkrahúsið nýlega til
þess að hægt væri að rannsaka
stíflu í slagæð á hálsi. Að sögn
Reuters-fréttastofunnar líður hon-
um betur nú og er að jafna sig en
illa leit út með hann á tímabili.
Radiohead hefur hingað
til verið með mjög frumleg mynd-
bönd og nú er eitt þeirra komið út.
Myndbönd þeirra við lögin Fake
Plastic Trees og High and Dry vöktu
mikla athygli og nú er komið mynd-
band við lagið Paranoid Android.
Líklega verður aðeins hægt að sjá
myndbandið á MTV þangað til plata
þeirra, O.K. Computer, kemur út
síðar í mánuðinum.
Rokk-
stokk
’97
Hljómsveitakeppnin Rokk-
stokk verður haldin í Reykja-
nesbæ 11.-12. júlí. Keppnin
mun fara fram víðs vegar um
bæinn, bæði fostudag og laug-
ardag. Bestu hljómsveitimar
komast á geisladisk sem verður
gefinn út eftir keppnina. Glæsi-
leg verðlaim em í boði. Má þar
nefna að besta hljómsveitin fær
utanlandsferð í verðlaun á
hljómleikahátíð. Besti trommu-
leikarinn, bassaleikarinn, gít-
arleikarinn, hljómborðsleikar-
inn og söngvarinn fá sérstök
verðlaun og auk þess verður
frumlegasta hljómsveitin valin.
Skráning í keppnina stendur
nú yfir og þurfa þátttökutil-
kynningar að hafa borist til fé-
lagsmiðstöðvarinnar Ungó,
pósthólf 396, 230 Keflavík, fyrir
15. júní nk. Einnig er hægt að
skrá sig í síma 421-4222, 897-
5354 (Nonni) og 421-3933 (Kiddi).
Þátttökugjald er 1000 kr. fyrir
hvem hljómsveitarmann.
Keppendur þurfa að senda með
þátttökutilkynningunni spólu
með þremur frumsömdum lög-
um, auk myndar af hljómsveit-
inni.
Hljómsveitin má ekki hafa
gefið út geisladisk áður. Ald-
urstakmark í keppninni er 16
ár. Nánari upplýsingar er hægt
að fá á Netinu á slóðinni
http://www.ok.is/rokkstokk.