Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Blaðsíða 11
3QbS&
GUR 6. JUNI 1997
myndbönd
25
Djöflaeyjan:
Lífiá íThulekampi
Danni (Sveinn Geirsson) Tómas (Gísli Halldórsson) og Grettir (Guömundur
Ólafsson) horfa á yfirnáttúrleg slökkvistörf.
Djöflaeyjan var sýnd við feiki-
mikla aðsókn í Stjömubíói í haust
og vetur, en hún er stórmynd á ís-
lenskan mælikvarða og án efa
stærsta verkefni sem íslenskur
kvikmyndagerðarmaður hefur tekið
sér fyrir hendur. Hún er byggð á
hinum vinsælu skáldsögum Einars
Kárasonar, Þar sem Djöflaeyjan rís
og Gulleyjan. Forsaga myndarinnar
hefst árið 1981 í Kaupmannahöfn
þar sem Einar Kárason var að byrja
á ritun sagnanna. Friðrik Þór Frið-
riksson, leikstjóri Djöflaeyjunnar,
heimsótti hann og þeir gerðu með
sér samning um að Einar Kárason
myndi skrifa með Friðriki handrit-
ið að Skyttunum, fyrstu alvörukvik-
mynd Friðriks Þórs, og í staðinn
myndi Friðrik leikstýra síðar meir
kvikmynd eftir sögum Einars.
Fimmtán ámm síðar náði Friðrik
Þór loksins að klára sinn hluta af
samningnum þegar kvikmynd hans,
Djöflaeyjan, var tekin til sýningar.
Sú dýrasta á íslandi
Djöflaeyjan er dýrasta íslenska
kvikmynd sem gerð hefur verið og
kostaði eitt hundrað sextíu og sex
milljónir króna í framleiðslu. Mynd-
in fjallar um lífið í braggahverfínu
Thulekampi og gerði Árni Páll Jó-
hannsson leikmyndahönnuður sér
lítið fyrir og byggði heilt bragga-
hverfi vestast á Seltjamamesinu.
Einnig var sett upp íþróttamót með
þúsund aukaleikurum sem gerast
átti á gamla Melavellinum. Þá spil-
ar tónlistin stórt hlutverk í mynd-
inni, sérstaklega dægurtónlist sjötta
áratugarins og hafði Björgvin Hall-
dórsson umsjón með því að velja
lögin sem í myndinni eru. Hann
syngur einnig mörg þeirra og samdi
titillag myndarinnar, Þig dreymir
kannski engil.
Friðrik Þór er án efa fremstur
meðal jafningja i íslenska kvik-
myndaiðnaðinum, og sá islenskra
kvikmyndaleikstjóra sem mesta at-
hygli hefur vakið á alþjóðlega vísu.
Hann er sjálfmenntaður kvik-
myndageröarmaður og var byrjaður
að gera stuttmyndir strax í mennta-
skóla. Hann var í forsvari fyrir
Hreyfimyndafélagið 1974- 1978 og
átti stóran þátt í að koma kvik-
myndahátíð Reykjavíkur á fót 1978.
Á fyrri hluta níunda áratugarins
gerði hann nokkrar merkilegar
heimildarmyndir, svo sem Hring-
veginn, Rokk í Reykjavík og Kúreka
norðursins, en fyrsta kvikmynd
hans í fullri lengd var Skytturnar
(1987), sem m.a. vann til verðlauna á
kvikmyndahátíðum í Brussel og
Lúbeck og var íslenska framlagið til
óskarsverðlaunanna það árið.
Myndin fjallaði um raunir tveggja
ólukkulegra hvalveiðimanna í
Reykjavík.
Friðrik Þór slærígegn
Það var ekki fyrr en fimm árum
síðar sem önnur kvikmynd Friðriks
Þórs leit dagsins ljós, en það var
Böm náttúrunnar, sem átti eftir að
afla honum alþjóðlegrar viðurkenn-
ingar og festa hann í sessi sem at-
hyglisverðasta íslenska leikstjór-
ann. Myndin fjallaði um aldrað par,
sem hittist á elliheimili og ákveður
að stinga af og halda á æskuslóðir
sínar. Óhætt er að segja að myndin
hafi farið sigurför um heiminn. Hún
vann til alls 23 alþjóðlegra verð-
launa, þar á meðal á kvikmyndahá-
tíðum í Montréal, Japan og nor-
rænu kvikmyndahá-
tíðinni í Reykjavík
1993, ásamt því að
vera tilnefnd til ósk-
arsverðlauna sem
besta erlenda myndin
1992.
1994 gerði hann
nostalgíska mynd
sem byggðist að
nokkru leyti á eigin
æskuminningum. Sú
mynd var Bíódagar
og enn vann hún til
fjölda verðlauna á er-
lendri grund og var
m.a. valin besta nor-
ræna myndin 1994 og
var framlag íslend-
inga til óskarsverð-
launanna. Næsta
verkefni hans var
vegamyndin Á köld-
um klaka, sem var al-
þjóðlegt samstarfs-
verkefni bandarískra,
þýskra, svissneskra,
danskra og íslenskra
aðila og skartaði stór-
leikurum á borð við
Masatoshi Nagase,
Fisher Stevens og Lili
Taylor, en myndin
var m.a. tilnefnd til
Felix-verðlaunanna
sem besta mynd Evr-
ópu 1995-1996.
-PJ
Baddi kemur heim frá Ameríku. Frá vinstri: Karólína (Sigurveig Jónsdóttir), Danni (Sveinn Geirsson), Baddi (Baltasar Kormákur) og
Hverageröur (Pálína Jónsdóttir).
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
Sigurlaug M. Jónasdóttir sjónvarpsþulur
„Mitt uppáhalds-
myndband er Much
Ado about Nothing
sem er létt og
skemmtileg mynd og
húmorísk að hætti
Shakespeares.
Myndin er mér líka sér-
staklega minnisstæð
vegna þess að ég bjó ásamt
eiginmanni
mínum og
syni í litlu
þorpi í
Toscana-hér-
aði á Ítalíu
um tíma.
Einu sinni
sem oftar sett-
umst við inn
á veitingastað
til að fá okkur
góðan ítalsk-
an mat. Freyr
sonur minn
átti erfitt með
að sitja kyrr
og var að
sniglast í
kringum eitt
borðið á
staðnum og
eins og góðri
móður sæmir
fór ég og náði
í hann svo
hann truflaði
ekki gestina.
Um leið og ég
sneri mér frá borð-
inu sá ég að þetta var
ekki ómerkara fólk
en Kenneth
Brannagh,
Emma Thompson og
Denzel Washington.
Því verður ekki neit-
að að ég kiknaði i
hnjánum og róaðist ekki fyrr en
eftir eitt
rauðvíns-
glas. Við
fréttum svo
daginn eftir
að þau
væru að
æfa atriðið
þar sem
riddararnir
koma í höll-
ina eftir
frægðarför
sína og við
fylgdumst
með þeirri
æfingu.
Þetta var
mjög
skemmti-
legt og
nokkuð sem
ekki gerist
á hverjum
degi þannig
að myndin
er mér mjög
minnisstæð
fyrir vikið.“
House Arrest
ílÉfél 'S'Zé, ;3É M „ % % '•
The Crow 2 The Craft
House Arrest er fjörmikil gaman-
mynd um Beindorf-fjölskylduna. í
fljótu
bragði
virðist allt
í lagi hjá
fiölskyld-
unni eða
það héldu
bömin,
Grover og
Stacy
Beindorf,
þar til for-
eldrar
þeirra
segja þeim
frá vænt-
anlegum
skilnaði.
Börnin eru alls ekki tilbúin að
sætta sig við þetta og taka því til
eigin ráða við að skipuleggja og
hrinda í framkvæmd áætlun til að
foreldramir sjái að sér. Þau lokka
foreldra sina einfaldlega niður í
kjallara og læsa þá þar inni. Þar
mega þeir dúsa þar til þeir hafa
leyst málin og hætt við skilnaðinn.
Þetta snilldarbragð vekur mikla at-
hygli hjá skólafélögum bamanna og
því ekki að nota kjallarann og koma
fleiri foreldrum þar fyrir...
í aðalhlutverkum eru Jamie Lee
Curtis, Kevin Pollack og Jennifer
Tilly en fleiri kunnum leikurum
bregður fyrir.
Sam-myndbönd gefa House Arrest
út og er hún leyfð öllum aldurs-
hópum. Útgáfudagur er 9. júní.
Fyrir tveimur árum var The
Crow gerð en myndin hafði verið
mikið i frétt-
um þar sem
aðalleikar-
inn, hinn
efnilegi
Brandon Lee,
lést af voða-
skoti á síð-
ustu dögum
kvikmynda-
tökunnar.
Það lá við að
aðstandendur
myndarinnar
hættu við allt
saman en
létu þó slag standa og myndin náði
óvænt miklum vinsældum. The
Crow 2 er óbeint framhald. Að sjálf-
sögðu er Brandon Lee ekki 1 hlut-
verki krákunnar heldur Vincent
Perez en auk hans leika Mia Kirs-
hner, Ian Dury og Iggy Pop stór
hlutverk í myndinni.
Myndin gerist í hinni fyrrum
glæstu Los Angeles borg sem nú er
orðin samnefnari glæpa og sama-
staður lýðs sem heldur íbúunum í
heljargreipum ótta og óhugnaðar.
Ungur faðir og bam hans verða
fómarlömb lýðsins en i dauðanum
finnur faðirinn engan frið og fyrir
tilstilli hinna dularfullu afla
krákunnar fær hann tækifæri til
hefnda.
Myndform gefur út The Crow 2 og
er hún bönnuð börnum innan 16
ára. Útgáfudagur er 10. júní.
Það getur verið varasamt að fást •
við svartagaldur, það fá fiórar vin-'
konur að
kynnast í The
Craft. Þær
vilja fara eig-
in leiðir og
eru lítið fyrir
það að hafa
samskipti við
aðra. Þær
stöllur falla
heldur ekki í
kramið hjá
öðrum stúlk-
um. Allar
hafa þær
áhuga á þeirri
dulúð sem fylgir göldrum og hafa
yfir vissum krafti að ráða. Þegar
þær fiórar sameina krafta sína tekst
þeim að leysa úr læðingi öfl sem
gera það að verkum að þær geta lá-
tið allar óskir sínar rætast og eru
þær ósparar að láta krafta sína
bitna á skólafélögum sem ekki
höfðu virt þær viðlits áður. Áður en
varir snýst samt skemmtunin yfir í
andhverfu sína þegar þær stöllur
fara að ætlast til of mikils.
í hlutverkum vinkvennanna fiög-
urra eru fiórar ungar leikkonur, Fa-
iruza Balk, Neve Campell, Robin
Tunney og Rachel True. Þær tvær
fyrstnefndu hafa verið á uppleið að
undanfórnu og þykja eiga bjarta
framtíð fyrir sér.
Skífan gefur The Craft út og er
hún bönnuð börnum innan 16 ára.
Útgáfudagur er 11. júní.