Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 nlist, Á síðasta áiri kom hljómsveitin Sóldögg fram á sjónarsviðið með út- gáfu fimm laga plötu sem bar nafn- ið KLÁM. Platan seldist sæmilega og þá sögðust strákamir komnir til að vera. Núna eru þeir. Þorsteinn J. kallaði lag þeirra Frið eitt geggjaðasta lag sumarins þegar þeir komu fram í 19-20 síðast- liöinn föstudag. Staða lagsins á ís- lenska listanum segir meira en mörg orð og Ásgeir (gítarleikari og lagasmiður) segir bókanir sumars- ins aldrei hafa verið fleiri á tveggja ára ferli hljómsveitarinnar. Hei, þeir lifa á þessu (eiga ekki frí fyrr en helgina eftir verslunarmanna- helgi). Eina ísienska lagið... ...á Pottþétt 8 (úr íslensku Pott- þétt safnplöturöðinni) verður Frið- ur með Sóldögg. Að vísu mætti fara mörgum orðum um þessa stefhu út- gáfufyrirtækjanna sem standa að út- gáfunni en það verður ekki gert hér. Sóldögg hefúr greinilega eitthvað fram að færa sem stenst fyllilega samanburð við erlendu listamenn- ina sem fá fost sæti á annarri hvorri Pottþétt-plöhmni sem kemur út á tveggja mánaða fresti. Friöur er eftir gítarleikarann Ás- geir en aðrir í Sóldögg eru söngvar- inn Bergsveinn, hljómborðsleikar- inn Stefán, trommuleikarinn Bald- vin og fjórði bassaleikarinn Jón Ómar (ör bassaleikaraskipti hljóm- sveitarinnar hafa verið umtalsefhi, ekki síst innan sveitarinnar). Text- ann að laginu á Hafþór, fyrrum söngvari í Sonum Raspútíns (sem ekki hefur heyrst frá í lengri tíma). Textinn fjallar um hinar ýmsu leið- ir til innri ffiðar og má sem dæmi nefna:... að fella fullorðinn fausk og lúberjann ... og ... nautnin út lungnafylli af nikótíni... Sóldögg lætur ekki staöar numið við útgáfu lagsins Friður á safn- plötu þetta sumarið því nú þegar er búið að taka upp annað lag sem hef- ur fengið vinnuheitið Obbosí til út- gáfu í sumar og stór plata er vænt- anleg frá henni í haust. Byrjaðir að taka upp Þegar er búið að semja nægilegt efni á heila plötu og eitthvað af því er þegar komið á band eða i staf- rænt form, tilbúið til útgáfu í haust. Eins og öllum góðum hljómsveitum sæmir á Sóldögg í stórkostlegum erfiðleikum með að lýsa eigin tón- smíðum. Óhefðbundin stemning- arpopphljómsveit var það næsta sem blaðamaður DV komst í lýs- Hljómsveitin Sixties Útgáfutónleikar 2. júní sl. kom út geisladiskur á vegum Nemendafélags MH. Diskur- inn ber nafhið TÚN sem stendur fyrir Tónlist úr Norðurkjallara. í kvöld verða haldnir útgáfutónleikar á Nelly’s Café til þess að kynna efhi disksins. Þar koma fram hljómsveit- imar Stjömukisi, Self realisation in the experience of sensual love, Hugh Jazz og Electrique. Tónleik- amir hefjast kl. 22 og standa til 0.30' Sixties Hljómsveitin Sixties verður á fljúgandi ferð um helgina. í kvöld leikur hljómsveitin fyi'ir dansi í Gjánni á Selfossi á miklu bítlaballi. Annað kvöld verða þeir félagar með annað bítlaball í Hafurbiminum í Grindavík. Sixties era um þessar mundir að leggja síðustu hönd á nýja plötu sem kemur út i lok þessa mánaðar. Buttercup á Gauknum Hljómsveitin Buttercup leikur á Gauki á Stöng um helgina. Hún gaf nýlega út smáskífu með laginu „Er heimurinn það sem þú ætlar þér?“ Þetta lag hefur hljómað nokkuð á útvarpsstöðvum undanfarið og verður því fylgt eftir með uppákom- um um allt land í sumar. Greifarnir Hljómsveitin Greifamir er aftur komin á kreik og hefur að eigin sögn aldrei verið sterkari en nú. í kvöld verður hún á Höfðanum í Vestmannaeyjum og annaö kvöld mun hún sþila í Stapanum í Njarð- vík. Fólki er ráðlagt að mæta snemma því aðsókn hefur verið góð undanfarið þar sem Greifamir hafa verið að spila. Línudans Mikið verður um að vera fyrir kántríaðdáendur um helgina. í kvöld verður línudansball í Kántrý- bæ og annað kvöld verður annað eins í Reiðhöllinni í Hafharfirði. Á siðamefnda staðnum verður Ómar Ragnarsson meðal gesta og skemmt- ir áhorfendum. ingu á lagasmíðunum. En hvað er óhefðbundin stemningarpopphljóm- sveit? Ég veit það ekki, líklega eitt- hvað sem skýrist heilmikið með út- komu plötunnar í haust. Upptökumar hafa hingað til farið ffam undir tryggri stjóm Adda 800 (sem kostar miklu meira í dag) í Sýrlandi. Að sjálfsögðu verður allt efni, sem hljómsveitin gefur út fyrir íslenskan markað, á íslensku þó þeim félögum þyki oft auðveldara að bulla textabrot á ensku til að byrja með. Bull á ensku hljómar nefnilega ekki eins fáránlega og bull á íslensku. Textinn er síðan sam- viskusamlega samsettur á íslensku, svona til að við hin skiljum bullið. Taldir til stærri... ... spámanna þegar kemur að tón- leikahaldi. „Við erum geggjaðir live“ segir Bergsveinn. Em þeir að taka stórt upp í sig? Eins og Ásgeir sagði verður nóg að gera í spila- mennskunni hjá þessum strákum í sumar og því ekki ólíklegt að þú eigir eftir að reka augu og eym í þá einhvem tíma á næstu vikum. Ef þú getur ekki beðið þá spilar hljómsveitin í Hreðavatnsskála annað kvöld í sama stuði og venju- lega (ef hún verður ekki í örlítið meira stuði). Þeir sem ekki dansa þurfa ekki að leita lengra en í útvarpið til að heyra í Sóldögg og þeir sem eru út- varpslausir eða hafa einfaldlega ekki áhuga á íslensku útvarpi verða víst að bíða þolinmóðir eftir haustinu. Þá kemur stóra platan. GBG Nýr gítar- leikari Guns N'Roses Guns N’Roses hafa ráðið gitarleikarann Robin Mnk sem áður var hjá Nine Inch Nails. Hann mun koma í stað- inn fyrir Slash á næstu plötu hljómsveitarinnar. Einnig hef- ur verið staðfest að Mike Cl- ink muni stjóma upptökum á plötunni en hann gerði það einnig á plötunni „Use Your Dlusion." Haft var eftir tommuleikaranum Matt Sor- um nýlega að hljómsveitin ætti mikið til af efni og „15 mjög sterk lög“, eins og hann oröaði það. Chuck D í sjónvarpið Chuck D, sem er betur þekktur sem meðlimur í Public Enemy, hefur verið ráöinn til fréttastofú Fox sjón- varpsstöðvarinnar í Kanada. Þar á hann aö einbeita sér að velferðar-, félags- og menntun- armálum. Ráðning hans er hugsuð sem tilraun til að laða yngri áhorfendur að sjón- varpsstöðinni. Evita Söngleikurinn Evita eftir Andrew Ll- oyd Webber verður frumsýndur næst- komandi fimmtudag, 12. júni. Sama dag kemur út plata með tónlistinni úr söng- leiknum. Þorvaldur Bjami Þorvaldsson hefur veg og vanda af tónlistinni en flytjendur em Andrea Gylfadóttir, Egill Ólafsson, Björgvin Halldórsson og nýst- imin Baldur Trausti Hreinsson og Vig- dís Hrefna Pálsdóttir ásamt kór. Jónas Friðrik sneri söngtextanum á íslensku. 14 fóstbræður 14 fóstbræður em eflaust einn vinsæl- asti og ástsælasti sönghópur sem starf- að hefur hérlendis. Þeir gáfu út tvær plötur um miðjan 8. áratuginn en þær hafa nú verið ófáanlegar í mörg ár. Nú er komin geislaplata með úrvali af söngsyrpum af þessum tveimur plötum. Uppmnalegar hljóðritanir hafa veriö endurunnar af Sigurði Rúnari Jóns- syni. Útgáfudagur er 12. júní. Pottþétt 8 Pottþétt útgáfuröðin heldur áfram af fullum krafti. Þessi áttunda plata inni- heldm 37 splunkuný lög og flytjendur em m.a. Skunk Anansie, U2, Spice Girls, Depeche Mode o.fl. Útgáfúdagur er 10. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.