Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1997, Qupperneq 8
FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1997 IjV
22 utn helgina
Milljónamæringarnir 5 ára
Annað kvöld fagna Milljóna-
mæringamir fimm ára afmæli
sínu með gleðilátum og stórdans-
leik í Óperukjallaranum. Sjarmör-
inn Bjarni Ara er aðalsöngvari
sveitarinnar en Páll Óskar og Stef-
án Hilmarsson verða sérstakir
gestir á afmælisfagnaðinum.
„Við Ástvaldur Traustason höf-
um verið í hljómsveitinni frá upp-
hafi en þeir Birgir Bragason og
Jóel Pálsson komu til liðs við
sveitina fyrir þremur árum. Veig-
ar Margeirsson spilar svo með
okkur á sumrin en hann er við
nám í Bandaríkjunum. Við getum
lofað góðri sveiflu á morgun, pró-
grammið verður mjög blandað og
þeir sem til þekkja ættu að vita
hvers má vænta af þeim Bjama,
Páli Óskari og Stefáni. Það eru að
koma út tvö ný lög með Milljóna-
mæringunum og auðvitað munu
þau hljóma í Óperukjallaranum
Þaö má búast viö grenjandi gleöi í
Óperukjallaranum annað kvöld
þegar Milljónamæringarnir fagna
fimm ára afmæii sínu. Hijómsveit-
ina skipa nú Steingrímur Guö-
mundsson, Ástvaldur Traustason,
Birgir Bragason, Jóel Pálsson,
Veigar Margeirsson og Bjarni Ara-
son.
annað kvöld," sagði Stein-
grímur Guðmundsson sem
m.a. spilar á indverskar
tablatrommm- í öðru nýju
laganna.
Bogomil Font er upphaf-
lega hvatamaðurinn að
hljómsveitinni og þessari
ímynd sem féll ótrúlega vel í
kramið hjá landsmönnum.
HQjómsveitin náði fljótt mikl-
um vinsældum og í kjölfarið
fylgdi platan Ekki þessi leið-
indi sem hljómaði oft og mik-
ið á öldum ljósvakans. Páll
Óskar Hjálmtýsson tók við af
Bogomil Font sem söngvari
Milljónamæringanna og ekki
minnkuðu vinsældir þeirra
við þá breytingu. Það sam-
starf gat af sér geisladiskinn
Milljón á mann sem sló ræki-
lega í gegn. Eftir að Páll Ósk-
ar hætti hafa margir söngvar-
ar spreytt sig með sveitinni,
m.a. Nuno og Felix Bergsson.
Árið 1996-97 söng Stefán
Hilmarsson með hljómsveit-
inni. Afrakstm'inn varð þrjú
lög á plötunni Salsaveisla ald-
arinnar. Síðan í febrúar á
þessu ári hefur Bjami Ara-
son verið aðalsöngvari Millj-
ónamæringanna.
Kirkjulistahátíð
1997
Sýning Kirkjulistahátíðar
1997 á hugmyndum að nýjum
myndverkum í kirkjur hefur
verið framlengd til 10. júni
vegna fjölda óska. Sýningin hef-
ur vakið mikla athygli enda er
hún óvenjuleg um margt. Þama
em sýndar tillögur listamanna
að myndverkum í níu nýjustu
kirkjur Reykjavíkurprófast-
dæma ásamt skýringum arki-
tekta á kirkjubyggingunum
sjálfum.
Sýningin er unnin þannig að
mynd af módeli af tillögunni er
skönnuð inn í mynd úr kirkj-
unni. Þannig er hægt að sjá
hvemig myndverkið liti út ef
það yrði fullgert á þann hátt
sem listamaðurinn hugsar sér.
Engin skuldbinding er um end-
anlega útfærslu verkanna og af
hálfu aðstandenda hátíðarinnar
er sýningin fremur hugsuð sem
innlegg í hugmyndabanka en
sem ákveðnar tillögur um
myndverk í einstakar kirkjur.
Gleöisveitin Hunang, sem glatt hefur hjörtu dansfífla meö glimrandi sveiflu
í gegnum tíöina, spilar og skemmtir á Café Amsterdam i kvöld og annaö
kvöld. Hljómsveitina skipa þeir Jóhann Ingvason, Jakob Jónsson, Karl Örv-
arsson, Hafsteinn Valgarösson og Jón Borgar, sem skipt hefur um stööu viö
Ingólf trommuleikara sem er lengst til hægri á myndinni.
Um helgina verður haldið dans-
listamót í íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Þátttakendur eru nemendur 12
ára og eldri frá skapandi dansskól-
um víðs vegar af landinu. Á mótinu
gefst nemendum tækifæri til að
þjálfa sig í ýmsum greinum danslist-
arinnar. Má þar nefna klassískan
ballett, nútimadans, djassdans og
dansspuna undir leiðsögn úrvals-
danskennara.
Danslistamót var haldið í fyrsta
sinn á Sauðárkróki 1994 að frum-
kvæði Arnar Inga Gíslasonar fjöl-
listamanns. Þau hafa síðan verið
haldin á Akureryri og Selfossi. Til-
gangur danslistamótsins er að efla
og styrkja listrænan dans en jafh-
framt verða ungmennin reynslunni
ríkari. Mótinu lýkur með fjöl-
breyttri danssýningu úr smiðju
hvers skóla. Danssýningin hefst kl.
16 í íþróttahöllinni á Akureyri og er
ókeypis aðgangur.
Um helgina veröur haldið
danslistamót á Akureyri sem endar
meö sýningu kl. 16 á sunnudag.
Smiðisgripir
í Skotinu
í sýningaraðstöðimni
Skotinu í Félagsmiðstöð
aldraðra við Hæðargarö 31
sten’dur nú yfir sýning á
smíöisgripum eftir Leif Sig-
urðarson. Leifur er fæddur
1921 á Stokkhólma í Skaga-
firði og ólst hann þar upp.
Hann lærði rennismíði og
starfaði við það en hefur
fengist við margs konar
sköpun I gegnum tíðina.
Elstu verk hans eru frá 1945.
Síðastliðin ár hefur hann
m.a. nýtt sér aðstöðu og fé-
lagsskap sem býðst við út-
skurð i félagsmiðstöðvunum
og á sýningunni eru afar fjöl-
breytileg verk unnin í tré og
málma. Útskornir og renndir
mimir, s.s. loftvogir, klukk-
ur, skrín og lampar úr reyni-
við, birki og mahóníi og
margháttuð málmsmíði, s.s.
skartgripir, neftóbaksdósir,
ístöð, beislisstangir og svip-
ur úr ýmsum málmum.
Sýningin stendur til 21.
júní og er opin alla virka
daga frá kl. 10-16.
Danslistamót á Akureyri
MESSUR
Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Altarisganga. Organleikari Kristín G.
Jónsdóttir. Fermd verður í guðsþjón-
ustunni Svandís Lilja Egilsdóttir,
Túngötu 3, ísafirði. Prestarnir.
Áskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Ámi
Bergur Sigurbjörnsson.
Breiðholtskirkja: Messa kl. 11. Dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprest-
ur þjónar. Samkoma Ungs fólks með
hlutverk kl. 20. Gísli Jónasson. Digra-
neskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Prestur sr.
Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn
syngur. Organleikari Marteinn H.
Friðriksson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta
kl. 10.15. Sr. Gylfi Jónsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 20.30. Prestur sr. Guðmundur Karl
Ágústsson. Organisti Lenka Mátéová.
Prestarnir.
Fríkirkjusöfhuðurinn í Reykjavík:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pavel
Smid. Sr. Bryndís Malla Elídóttir
þjónar í forfóllum safhaðarprests.
Grafarvogskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Grafarvogskirkju syngur. Org-
anisti Hörður Bragason. Prestamir.
Grensáskirkja: Messa kl. 11. Prestur
sr. Halldór S. Gröndal. Organisti Ámi
Arinbjamarson.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr.
Karl Sigurbjömsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Sumarferð
kirkjunnar til Þingvalla. Brottfor með
rútu kl. 11 frá kirkjunni. Gengið um
Þingvöll frá Leynistíg. Sr. Heimir
Steinsson leiðir gesti um Þingvöll og
til guðsþjónustu í Þingvallakirkju kl.
14. Komið heim kl. 16. Leiðsögumaður
sr. Þórhallur Heimisson. Takið með
nesti.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Organ-
isti Pavel Manasek. Sr. Tómas Sveins-
son.
Hjallakirkja: Vegna framkvæmda í
Hjallakirkju og sumarleyfa starfsfólks
kirkjimanr er fólki bent á helgihald
og þjónustu í Breiðholtskirkju eða
öðrum kirkjum í Kópavogi. Prestam-
ir.
Hveragerðisprestakall: Guðsþjón-
usta á Heilsustofnun NLFÍ kl. 11. Jón
Ragnarsson.
Kirkja heyrnarlausra: Messa í
Grensáskirkju kl. 14 sunnudaginn 8.
júní. Táknmálskórinn syngur undir
stjóm Júlíu Hreinsdóttur. Sr. Miyako
Þórðarson.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Kór Kópavogskirkju syngur. Org-
anisti Öm Falkner. Ægir Fr. Sigrnr-
geirsson.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups: Messa kl. 11.
Laugameskirkja: Vegna sumarleyfa
er minnt á guðsþjónustu í Áskirkju.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Óháði söfhuðurinn: Gönguguðsþjón-
usta kl. 10. Athugið breyttan messu-
tíma. Gengið á Akraijall að lokinni
guðsþjónustu. Kvöldverður að lokinni
sundferð að Hlöðum á Hvalfjarðar-
strönd. Mæting til messu í göngu-
skóm og galla.
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Guðs-
þjónustunni verður útvarpað beint.
Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Sr. Irma
Sjöfii Óskarsdóttir prédikar. Félagar
úr Skagfirsku söngsveitinni flytja tón-
list undir stjórn Björgvins Valdimars-
sonar. Organisti Kjartan Siguijóns-
son. Sóknarprestur.
Seltjamameskirkja: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hildur Sigurðardóttir.
Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Prestur
sr. Hjalti Guðmundsson. Bátsferð úr
Sundahöfn kl. 13.30.