Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Qupperneq 3
Jj'V FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997
HLJÓMPLjjTU
Erykah Badu - Baduizm
Flöt lagasmíði
★★1
A»vK-a\ > packj
I
^AtA: ■
Erykah Badu heitir ung
söngkona sem vakið hefur
talsverða athygli upp á
síðkastið. Á þessum nýja
geisladiski hennar, „Badu-
izm“, er ekki að finna neinar
upplýsingar um hana, svo aö
ekki verður reynt að bæta úr
þvl á þessum vettvangi. Tón-
listin er sett saman af söng-
konunni og ýmsum hjápar-
kokkum hennar. Undirleikur
allur virðist tölvuforritaður og er býsna faglega að verki staðið hvað
það varðar. Trommuleikur, sem er greinilega gerður af kunnáttu-
semi, verður þó tilbreytingarsnauður og líflaus til lengdar. Tónlist-
in flokkast fyrst og fremst sem R&B (rytmablús) en er með smá hip-
hop formerkjum, eftirásettum plöturispum sörpuðum (sömpluðum)
sándum og öðru af slíkum toga.
Erykah er mjög efnileg söngkona, minnir jafnvel stundum á Billy
Holiday. Hún sér sjálf um bakraddir sem koma nokkuð við sögu
eins og tíðkast í svona músik. Þaö er auðheyrt að söngkonan ætti
ekki erfitt með að svissa yfir í aðrar tegundir tónlistar, svo sem
djass. (Það vottar fyrir smá djassi í sumum lögimum.) Það sem dreg-
ur geisladisk þennan niður í stjörnugjöf er aðallega flatneskja laga-
smlðanna og skortur á tilbreytingu. Þótt skemmtilegum vinnu-
hrögðum bregði fyrir í útsetningum öðru hverju nægir það ekki til
að halda athyglinni út heila plötu. Ingvi Þór Kormáksson
WetWetWet-10
en
sviplaus
Skoska hljómsveitin Wet
Wet Wet hefúr nánast stundað
einstefnuakstur siðan hún tók
að sér að syngja Troggs-lagið
Love Is All Around fyrir kvik-
myndina Fjögur brúðkaup og
jarðarfor fýrir svo sem þrem-
ur árum. Það náði slíkri hylli
að ekkert lag hefur verið jafn
lengi í efsta sæti breska vinsældalistans. Og siðan hefur Wet Wet
Wet verið á rólegu nótunum.
Á plötunni 10 er lítillega gefið í. Einkanlega í laginu Maybe I’m
in Love sem er útsett fyrir stórsveit. Þar á eftir fylgir síðan gamli
smellurinn Beyond the Sea, handaríska útgáfan af La Mer, sem
Bobby Darin gerði vinsælt fyrir langa löngu. Þessi tvö lög saman
spyrt eru áheyrilegasti hluti plötunnar. Annað er vandað en ósköp
sviplaust. Fátt er eftir af hressilegu hljómsveitinni sem sendi frá sér
Sweet Little Mystery fyrir áratug. Og vel á minnst: Titill nýju plöt-
unnar vísar til þess að Wet Wet Wet er tíu ára á þessu ári. Þá er hún
jafnframt plata númer tíu sem hljómsveitin lætur frá sér fara.
Ásgeir Tómasson
Ýmsir flytjendur - Sæluvikulög 1997 ★★
Hefðbundin ís-
lensk dægurlög
Ef gefa ætti stjömur fyrir
frammistöðu fengi Kvenfélag
Sauðárkróks fjórar fyrir að
halda uppi með glæsibrag einu
árlegu dægurlagasamkeppn-
inni hér á landi. En þær mætu
konur fyrir norðan hafa haldið
úti árlega á Sæluvikunni á ______________________________
Sauðárkróki dægurlagasam-
keppni sem alltaf er að verða stærri í sniðum. Á Sæluvikulög 1997
eru lög sem komust í úrslitakeppnina í ár ásamt sigurlaginu i fyrra,
Þúsund kossar, sem kóngurinn fyrir norðan, Geirmundur Valtýs-
son, samdi. Geirmundur tók þá ákvörðun að vera ekki með að þessu
sinni, gefa öðram tækifæri, og því kom það í hlut prestsins í ná-
grenni Sauðárkróks, séra Sigurðar Ægissonar, að taka við fyrstu
verðlaununum fyrir lag sitt og texta Þú og ég, einfalt og meðtækilegt
lag sem er vel flutt af reyndum keppnissöngvurum, Guðrúnu Gunn-
arsdóttur og Eyjólfi Kristjánssyni.
Á Sæluvikulög 1997 era ellefu lög og það sem fyrst kemur upp í
huga manns eftir að hafa hlustað á plötuna er það hversu lík þau
era þrátt fyrir að vera eftir mismunandi lagahöfunda og flutt af ólík-
um flyljendum. Virðist komin upp viss forskrift að lögum sem eiga
erindi í íslenska dægurlagakeppni. Stærsti áhrifavaldurinn er
greinilega Eurovision-söngvakeppnin og er það miður að íslenskir
lagahöfimdcir skuli, þegar þeir senda lag í keppni, standa í þeirri
meiningu að árangursríkast sé að fara troðnar slóðir. Þá er ekki síð-
ur við dómnefnd að sakast, sjálfsagt hafa einhver lög sem hafa fram-
leika að leiðarljósi verið innan um aðsend lög, en ekki fundið náð
fyrir augum dómnefndar. Á meðan svo er munu lagahöfundar halda
áfram að vera í sömu sporum.
Það er sameiginlegt með lögunum á Sæluvikulög 1997 að ekkert
eitt sker sig úr. Inn á milli má heyra ágæta lagasmíð eins og í Dag-
ur sem er eftir Einar K. Pálsson. Reyndir lagahöfúndar eins og Torfi
Ólafsson og Sverrir Stormsker hafa aftur á móti gert betur.
Hilmar Karlsson
Dapurt vor hjá norskum
tónlistarmönnum
A-ha, gamlar stjörnur úr norsku tónlistarlífi. Ný plata Magne
Furuholmen nær ekki eyrum gömlu A-ha-aðdáendanna.
Það sem af er þessu
ári hafa einungis tvær
plötur með norskum
listamönnum náð gull-
plötulágmarkinu í Nor-
egi, það er tuttugu og
fimm þúsund eintaka
sölu. Plötumar eru með
Jan Eggum og Kari
Bremnes. Þetta þykir
með eindæmum lélegur
árangur. í blaðinu Ver-
dens gang var nýlega
reynt að leita skýringa
og þar var sú nærtæk-
asta talin vera að ein-
faldlega væri gefið út
allt of mikið af plötum
sem fólk hefði ekki
áhuga á að kaupa.
Fyrir tveimur til
þremur árum taldist það
til stórsölu ef fimmtíu
þúsund eintök seldust af
einni og sömu plötunni.
Nú verða menn að sætta
sig við helminginn. Alls
var gefin út fimmtíu og
ein plata fyrstu fimm
mánuði ársins. Fjórtán
þeirra höfðu úm síðustu
mánaðamót selst í tíu
þúsund eintökum eða
meira. Tuttugu og sex
titlar náðu ekki fimm
þúsund eintaka mark-
inu. Þar á meðal var
plata með Magne Furu-
holmen sem eitt sinn lék
með A-ha. Slakasti ár-
angurinn af öllu slöku
var hjá fyrrverandi Evr-
óvisionsöngkonunni
Merete Tröan sem hafði selt plötu
sína Sött og salt í aðeins tvö hund-
rað eintökum hálfum öðram mán-
uði eftir að hún kom út.
í Verdens gang er rennt yfir aðr-
ar orsakir þess að sala norskra
platna virðist hafa hranið nú í vor
frá því sem verið hefur undanfarin
ár. Þegar frá er talin sú meginá-
stæða að smekkur útgefenda og al-
mennings virðist ekki fara lengur
saman er nefnt að geislaplatan á í
sívaxandi samkeppni við aðra
miðla. Unglingar kaupa aðallega
safnplötur. Margar litlu hljómplötu-
útgáfurnar, sem til skamms tíma
hafa gefið mörgum skapandi lista-
mönnum tækifæri, hafa ýmist lagt
upp laupana eða era fjár-
hagslega máttlausari en
fyrr. Norskt tónlistarfólk
er ekki í takt við smekk al-
mennings, tónleikahald
gengur verr en áður og
fólk virðist verja fé sínu til
kaupa á dýrari hlutum en
oft áður.
Eitt og annað
selst
í Verdens gang er reynd-
ar bent á að hinar og þess-
ar plötur seljist þótt þær
teljist ekki lengur nýjar á
markaðinum. Af plötunni
Melis hafa til dæmis selst
sjötíu og sjö þúsund ein-
tök, þar af um tuttugu og
fimm þúsund frá áramót-
um. Hljómsveitin DDE hef-
ur náð 235 þúsundum af
sinni nýjustu plötu og sjö-
tíu og sjö þúsund eintök
höfðu selst af Strump-
asmellum-2 um síðustu
mánaðamót.
Eitt virðist hafa komið á
óvart á norska plötumark-
aðinum. Hljómsveitin
Trang Födsel, sem á rætur
að rekja til háskólanema í
Björgvin, hefur náð að
selja þrettán þúsund ein-
tök plötunnar Hybel, mun
meira en búist hafði verið
við. Aðstandendur hljóm-
sveitarinnar þakka góðar
viðtökur þrotlausri vinnu
við tónleikahald um landið
endilangt, viðtölum í öllum héraðs-
fréttablöðum og -útvarpsstöðvum
sem á annað borð sýna hljómsveit-
inni áhuga og ýmiss konar kynning-
um öðrum. Þótt vaxtarbroddarnir í
norskri dægurtónlist hafi verið fáir
og smáir á þessu vori stendur þó ei
nn og einn græðlingur upp úr.
-át
Danska
lagið '97
Hótel Stykkishólmur og
undirbúningsnefnd fjölskyldu-
hátíðarinnar Danskra daga
hafa ákveðið að efna til dægur-
lagakeppni i tilefni hátíðarinn-
ar. Öllmn er heimil þátttaka
en skilafrestur er til 18. júní og
stefnt er að því að æfingar á
lögunum hefjist um næstu
mánaðamót. Lögunum skal
skilað á hljóðsnældum, leikn-
um og sungnum, ásamt texta-
og hljómablaði, auk grófra
hugmynda höfundar um út-
setningu lagsins fyrir hefð-
bundna hljómsveit auk blást-
urshljóðfæra. Þessu skal
einnig fylgja umslag, merkt
heiti lagsins sem inniheldur
nafn höfundar. Nöfn höfúnda
verða ekki kunngerð fyrr en
lokakvöldið, 16. ágúst. Skilyrði
er að a.m.k. hluti texta lagsins
sé á dönsku.
Höfúndar laganna sem í úr-
slit komast sjá um útsetningar
í samráði við hljómsveit
keppninnar. Þeir veija jafn-
framt söngvara sjálfir og bera
alla ábyrgð á þeim, þ.m.t. fjár-
hagslega, ef einhver er.
Nánari upplýsingar gefur
Karl Jónsson á Hótel Stykkis-
hólmi í síma 438-1330 eða í
heimasíma 438-1727.