Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Síða 5
Phoenix-hátíðin í hættu Hin árlega Phoenix-tónlistarhátíð er í hættu þar sem mótshöldurum var neitað um leyfi til að halda hana af heilbrigðis- og umhverfisástæðum. Hátíðin á að fara fram á Long Mar- ston rétt hjá Stratford en yfirvöld þar á bæ hafa áhyggjur af því að öryggi verði ekki nægilega vel tryggt. Einnig var rætt um hugsanlega há- vaðamengun. Þrátt fyrir þessa neit- un eru mótshaldarar enn sannfærðir um að hátíðin fari fram. Meðal þeirra sem eiga að stíga á svið á há- tíðinni eru The Charlatans, David Bowie, Skunk Anansie og Spiritu- alized. Massive Attack með smáskífu Hljómsveitin Massive Attack, sem væntanleg er til íslands fijótlega, gefur út smáskífú þann 7. júlí í takmörkuðu upplagi í tengslum við tónleika sína á Glastonbury-hátíðinni. Á diskinum verða tvö ný lög, Risingson og Super Predators. Nýju plötunni, sem átti að koma út í september, hefur hins vegar verið frestað þangað til í janúar af ótil- greindum ástæðum. Plata tileinkuð Clash Þessa dagana standa yfir upptökur á plötu sem er tiieinkuð hljómsveitinni The Clash og er áætl- að að hún komi út í haust Meðai listamannanna sem munu leika á plötunni eru Bush, Frosted, Gold- finger og Silverchair. Einnig er ætlunin aö halda tónleika, sem verða tileinkaðir þessari hljómsveit, þann 26. september í Los Angeles. Ágóðinn af þeim tónleikum rennur til barnaspítala Los Angeles. Bassaleikari Small Faces látinn Ronnie Lane, bassaleikari og einn af stofhendum hljómsveitarinnar Small Faces, lést á heimili sínu í Trini- dad í Coloradofylki 51 árs að aldri. Hann hafði lengi átt við vanheilsu að stríða. Lane stofnaði Small Faces á sjö- unda áratugnum ásamt Steve Marriott, Ian MacLagan og Kenny Jones. Hljómsvein vakti athygli fyrir að koma með þenn- an svokallaða cockney-hreim inn í breska poppið. Eftir að hljómsveitin lagði upp laupana 1975 reyndi Lane fyrir sér einn en sá ferill varð ekki langur því hann greindist fljótlega með MS-sjúkdóm- inn sem dró hann að lokum til dauða. Gifti sig og hélt svo tónleika Það var nóg að gera hjá Noel Gallagher í Oasis um síðustu helgi. Á föstudaginn var gekk hann að eiga kærustu sina til margra ára, Meg Matthews. Brúðkaupið fór fram i Las Vegas og segir sagan að lag með Bítl- unum hafi verið spilað þar að þeirra ósk. Brúðkaupsnóttin var hins vegar varla liðin þegar Gallagher þurfti að kveðja brúði sína og halda áleiðis til Tíbet þar sem hann tróð upp einn og sjálfur án liðsinnis hljómsveitar sinnar. Þótti honum takast svo vel til að áhorfendur söknuðu varla ann- arra í hijómsveitinni. Það er því hugsanlegt að Gallagher eigi ein- hverja framtíð fyrir sér sem sóló- isti. Liam í slagsmálum Bróðir Noels, Liam, lenti hins vegar í öllu meiri hasar. Hann sat á bar ásamt nokkrum félögum sín- um úr hljómsveitinni þegar nokkrir unglingar fóru að hrópa ókvæðis- og ögrunarorð að hon- um. Einn gekk meira að segja svo langt að elta Liam á salemið. Þar bmtust út áflog með þeim afleið- ingum að Liam skrámaðist all- nokkuð. Lögreglan var kvödd á staðinn en enginn var handtekinn eða fluttur á sjúkrahús. Talsmaður Oasis sagði það augljóst að ungling- amir hefðu verið að leita að slags- málum. Hann gat ekkert sagt um hvort Liam hygðist ákæra piltana. Um h. a Greip á Selfossi Stórhljómsveitin Greip mun leggja land undir fót og spila á Gjánni á Selfossi annað kvöld. Hún ætlar að reyna að herja mikið á landsbyggðina í sumar og Sunn- lendingar verða fyrstir til að njóta þess. Hljómsveit þessi gaf nýlega út lagið Horfðu á sumarið sem nýt- ur töluverðra vinsælda. Hljóm- sveitina skipa Guðbjörg Ingólfs- dóttir söngkona, Einar, söngvari og gitarleikari, Kristinn Gallagþer á bassa, Þórður á trommur og sjálf- ur Ofur-Baldur á hljómborð. Reggae on lce fyrir norúan Mikið verður um að vera hjá Reggae on Ice næstu daga. Annað kvöld brunar hljómsveitin norður yfir heiðar. Fyrst spilar hún á Ráð- hústorginu að degi til og síðan í Massive Attack í Kaplakrika Stórtónleikar verða hcddnir í Kaplakrika þann 16. júní. Stærsta nafnið, sem þar kemur fram, er án efa Massive Attack en einnig koma fram GusGus og teknógúrúinn Darren Emerson úr hljómsveitinni Underworld. Massive Attack var stofnuö 1987 í borginni Bristol. Liðsmenn hennar eru G. Marshall (Daddy G.) á hljómborð, A. Wolves (Mus- hroom), einnig á hljómborð, og Robert Delnaja (3-D) söngvari. Áður en Massive Attack var stofnuð voru þeir allir í rapp- hljómsveitinni Wild Bunch. Hljómsveitin sló ekki venflega í gegn fyrr en 1991 með laginu Unfinished Sympathy. t fram- haldi af því kom úr fýrsta breið- skífa sveitarinnar, Blue Lines, sem telst fyrsta fullmótaða tripphopp platan. Sú plata var m.a. valin plata ársins af tímarit- inu The Face. Önnur breiðskífa sveitarinnar kom út 1994 og bar nafnið Protection. Hún festi sveitina endanlega í sessi í bresku tónlistarlífi. Tónleikasvæðið í Kaplakríka verður opnað kl. 18. Öll meðferð áfengis er bönnuð. Aldurstak- mark er 14 ár. Sjallanum á Akureyri um kvöldið. Þar verður spilað með fullu trukki til kl. 3 og einnig stendur hún fyr- ir óvæntri uppákomu. Þess má einnig geta að hljómsveitin spilar 17. júní um kvöldið, fyrst kl. 20.30 í Lækjargötunni og síðan kl. 22.30 í Keflavik. Ultra í Grindavík Hljómsveitin Ultra mun skemmta Grindvíkingum annað kvöld þegar hún spilar á Sjó- mannastofunni Vör. Hljómsveitin hefur verið að spila víðs vegar um landiö undanfarið viö ágætar und- irtektir. Sniglabandið norður Sniglabandið mun skemmta Norðlendingum eins og því einu er lagið um helgina. í kvöld spilar það í Hlöðufelli á Húsavík og ann- að kvöld fá Dalvíkingar að njóta skemmtunar þess þegar það spilar í Víkurröst þar í bæ. Geisladiskur er væntanlegur með Sniglaband- inu á næstu vikum og ber hann heitið Ágúst kemur kl. tvö. ITýtt í slensk Q Reggae on lce í dag kemur út nýr diskur með hinni léttleikandi hljómsveit, Reggae on Ice. Þetta er annar disk- urinn sem hún gefur út á jafnmörg- inn árum en sá fyrri, I berjamó, seldist vel í fyrra. Meðal laganna á nýja diskinum er Ég vil sem hefur hljómað grimmt á útvarpsstöðvum undanfarið og fór inn á íslenska list- ann með látum í síðustu viku. Hljómsveitin verður með útgáfutón- leika í Ráðhúsinu á sunnudag. Tón- leikamir hefjast kl. 20 og er aðgang- ur ókeypis. Gumpurinn Á þriðjudag kom út ný plata með hljómsveitinni Gumpnum sem ber nafnið Á móti sól. Þar eru m.a. lög- in Reykjavíkurborg og Flottur en þau hafa hljómað nokkuð á útvarps- stöðvum undanfariö. Hljómsveitin gefur sjálf út plötuna og hyggur á mikla spilamennsku í allt sumar. Bestu barnalögin Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, kemur út platan Nokkur bestu bamalögin sem, eins og nafhið gef- ur til kynna, inniheldur mörg skemmtilegustu og bestu barnalögin sem komið hafa út á ýmsum plötum í gegnum árin. Um 30 lög em á plöt- unni og ættu flestir krakkar að þekkja þau vel.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.