Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Qupperneq 9
É FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997
1!» helgina
Kjukkan tifar í
Árbæjarsafni
- afmæiissýning Úrsmiðafélags Islands
Á sunnudaginn kl. 14
verður opnuð sýningin
Klukkan tifar í húsinu
Þingholtsstræti 9 í Ár-
hæjarsafni í tilefni 70
ára afmælis Úrsmiðafé-
lags íslands.
„Gamla handverkið
verður í hávegum haft
á þessari sýningu.
Þarna verða til sýnis
gamlir munir sem okk-
ur er mikið I mun að
varðveita. Elstu mun-
irnir eru líklega frá þvi
um 1800, t.d. er þarna
Borgundarhólms-
klukka sem Jesper
Jach smíðaði en hann
var uppi 1808-1891.
Einnig eru margir
munir frá því um síð-
ustu aldamót og má
nefna Bakkaúrin
svokölluðu, vasaúr
sem seld voru í Eyrar-
bakkaverslun á sínum
tíma og voru fyrstu
vasaúrin sem voru það
ódýr að þau gátu orðið
almenningseign. Á sýn-
ingunni eru þrjár gerð-
ir af þeim úrum sem
sýna vel þróunina í úr-
smíði á þessum tíma.
Fyrstu úrin voru
þannig að það varð að
opna þau og trekkja
með lykli og vísana
þurfti að færa með
fingrunum. Nægilegt
var að nota neglurnar
til að færa vísana á
þeirri gerð sem á eftir
Klukka sú sem Magnús gaf borginni og vildi aö stæöi í
Ráöhúsi Reykjavíkur. DV-myndir Hilmar Þór.
kom en síðan komu
til sögunnar úr sem
voru trekkt á þann
máta sem við þekkj-
um í dag,“ segir Axel
Eiríksson, úrsmiður
og formaður sýning-
arnefndar Úrsmiðafé-
lagsins.
„Verkstæði hins
kunna úrsmiðs Magn-
úsar Benjamínssonar
verður til sýnis en
hann smíðaði nokkr-
ar klukkur og vasaúr.
Á sýningunni er m.a.
að finna klukku sem
hann gaf Reykjavík-
urbæ á sínum tíma
en hún stóð lengi vel í
Eimskipafélagshús-
inu. í gjafabréfi
Magnúsar kom fram
að hann hafði hugsað
sér að í framtíðinni
myndi klukkan
standa í Ráðhúsi
Reykjavíkur og við
erum að vonast til að
okkur takist nú að
vekja áhuga borgar-
stjórnar á þessari
klukku og að henni
verði fundinn góður
staður í Ráðhúsinu."
Erum komin í
hring
„Tækninni hefur
auðvitað fleygt fram í
úrsmíðinni eins og
öðru en hún er mjög
Axel Eiríksson, úrsmiöur og formaöur sýningarnefndar Ursmiöafélagsins,
lifandi iðngrein í dag. Það má
segja að við séum komin í hring
þvi þó rafdrifin úr séu ráðandi
þá hafa gömlu sjálfvinduúrin öðl-
ast vinsældir á ný. Ungt fólk í
dag er mjög hrifið af gömlum
úmm og algengt er að það komi
með fermingarúr foreldra sinna
og hiðji um að láta laga þau.
Sama má segja um gömlu hillu-
klukkurnar sem voru vinsæl
brúðargjöf fyrir 40 árum eða svo
en hafa ekki fengist í langan
tíma. Nú eru þær mjög vinsælar
og algengt að við fáum þær inn
til lagfæringar," segir Axel Ei-
ríksson.
Dagskrá sýningarinnar hefst í
Lækjargötu 4 (í Árbæjarsafni) á
sunnudaginn en þar verður spil-
uð harmoníkutónlist og flutt
ávörp. Síðan verður gengið að
Þingholtsstræti 9 þar sem gest-
um er boðið að skoða sýninguna
og fylgjast með úrsmiðum að
störfum.
Einfaldleikinn er orðinn mikilvægur þáttur t verkum írisar Elfu.
íris Elfa í Gerðarsafni
íris Elfa Friðriksdóttir opnar sýn-
ingu í Listasafni Kópavogs, Gerðar-
safni, á morgun kl. 15.
Sýningin er í beinu framhaldi af
síðustu einkasýningu hennar. Eins
og þá notar hún nú þau efni sem
hver hugmynd krefst. Hún vinnur
verk sín í steypu auk þess sem hún
notar blúndur, perlur og flísar í
verk sin. Myndverk írisar Elfu hafa
róast með árunum og einfaldleikinn
orðinn mikilvægur þáttur í þeim.
Með því gerir hún meiri kröfur til
hugmyndarinnar að baki hvers
myndverks og að þau geti staðið
sjálfstætt og óstudd án þess fegurð-
arskrums sem einkennir nútímann.
íris Elfa hlaut myndlistarmennt-
un sína í Myndlista-og handiöaskóla
íslands 1980-84 en sótti framhalds-
nám til Maastricht í Hollandi
1984-86. Hún hefur áður haldið fjór-
ar einkasýningar auk fjölda sam-
sýninga, t.d. í Svíþjóð, Hollandi og
Þýskalandi.
Sýningin er opin daglega kl. 12-18
en henni lýkur 6. júlí.
Ljósmyndasýning Vilmundar
Vilmúndur Kristjánsson sýnir nú
ljósmyndir í Gallerí Myndási að
Skólavörðustíg 41 en sýningin
stendur til 20. júní.
Á sýningunni eru ljósmyndir
teknar með heimasmíöuðum
myndavélum og er eingöngu notað
títuprjónsgat í stað linsu. Lýsingar-
tími verður því mjög langur og
áhrifin draumkennd. Hér er um að
ræða skarpar myndir, unnar af
þekkingu og fyrirsjá.
Myndavélamar sem notaðar vom
við tökumar eru á sýningunni
ásamt öllum upplýsingum um pin-
hole-tækina sem Vilmundi hefur
tekist að komast yfir. Vilmundur
hefur unnið með þessa tækni í um
áratug og er sýningin afrakstur
þess. Hann hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum en þetta er fyrsta
einkasýning hans.
Enginn aðgangseyrir er á sýning-
una en hún er opin á venjulegum
verslunartíma.
IEIKHUS
Þjóðleikhúsið
Listaverkið
fostudag kl. 20.30
laugardag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Fiðlarinn á þakinu
föstudag kl. 20.00
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
íslenska Óperan
Evita
laugardag kl. 20.00
sunnudag kl. 20.00
mánudag kl. 20.00
Loftkastalinn
Á sama tima að ári
laugardag, kl. 23.30.
Hermóður og Háðvör
Að eilífu
laugardag, kl. 20.00.
Grétar Laufdal, sem rekur diskótekiö Rocky, er ætíö á faraldsfæti meö allar
sínar græjur og góöa tónlist í farteskinu. Þessi helgi veröur engin undan-
tekning hjá Grétari því aö annaö kvöld ætlar hann aö halda uppi stuöinu á
dansleik í Festi í Grindavík.
27