Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Qupperneq 11
I>"V FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997 T Sleepers: tyndbönd 29 Sleepers segir frá íjórum strákum sem ólust upp í Brooklyn á sjöunda áratugnum. Þeir léku sér á götun- um og mynduðu sterk vináttubönd þar til einn daginn að hrekkjabragð þeirra fer úr böndunum. Fyrir vikið eru þeir dæmdir í níu til átján mán- aða vistar á betrunarheimili, þar sem þeim er misþyrmt og nauðgað af vörðum undir stjóm kvalasjúks hrotta að nafni Sean Nokes. Ellefu árum síðar hefur leiðir skilið. Einn er orðinn blaðamaður og annar lög- fræðingur, en hinir tveir eru skemmdir dópistar og glæpamenn. Þegar þeir sjá Sean Nokes á bar eitt kvöld brýst heiftin fram og þeir drepa hann í allra augsýn. Þegar fé- lagar þeirra heyra af réttarhöldun- um setja þeir í gang áætlun sem miðar að því að fá rétt- lætinu full- nægt gagnvart vörðunum sem kvöldu þá áratugi áður. Til þess þurfa þeir hjálp Föður Bobby, ávallt hefur grátið örlög þeirra. Nöturleg saga Umfjöllunarefni myndarinnar Sleepers er nöturlegt, en sagan vakti athygli margra stórleikara og eru þar fremstir í flokki tvöfaldir óskarsverðlaunahafamir Robert De Niro, sem leikur prestinn, og Dustin Hoffman, sem leikur verjanda tví- menninganna. í hlutverki lögfræð- ingsins er Brad Pitt, og Jason Pat- rick leikur blaðamanninn. Þá er Kevin Bacon í hlutverki hins ógeð- fellda Sean Nokes. Leikstjóri og framleiðandi er enn einn ósk- arsverðlaunahafmn - Barry Levin- son, en meðframleiðandi hans er fyrrum félagi Sigurjóns Sighvats- sonar, Steve Golin. Barry Levin- son tryggði sér strax sess með- al hæfíleika- ríkustu leik- stjóra Bandarikj- anna með fyrstu mynd Dustin Hoffman leikur lög- fræðing sem óvænt fær tæki- færi lífs síns. sem UPPAHALDS MYNDBANDIÐ MITT ■ ■ Einar Orn Benediktsson „Ég hef átt mér uppá- haldsmynd í ein 17 ár en ég vissi ekki að hún væri til á mynd- bandi fyrr en fyrir stuttu. Myndina sýndi ég í Fjalakettinum á sínum tíma á vegum Kvikmyndaklúbbs framhaldsskólanna. Þetta er klass- ísk japönsk mynd í svart/hvítu sem heitir Oni Baba. Hún fjallar um mæðgur sem lokka samuræja út í hátt sefgras þar sem þeir falla ofan í stóra holu og drepast. Síð- an hirða þær búning- ana þeirra og selja þá. Það kemur hins vegar babb í bátinn þegar yngri konan verður hrifin af einu fóm- arlambinu. Ég er annars alæta á myndir. Ég fer sjaldan í bíó þannig að ég er alltaf svolítið á eft- ir. Eg sá t.d. kvikmyndina Trainspotting u.þ.b. hálfu ári eftir að hún var sýnd í bíó og fannst hún virkilega góð. Það gekk eitt- hvert æði yfir þegar hún var sýnd og fólk löngu búið að fá leið á þvi að tala um hana þegar ég loksins sá hana og fór að tjá mig um hana. Önnur mynd sem mér er einnig í fersku minni heitir Repo Man og er með Harry Dean Stanton í aðal- hlutverki. Hún fjallar um menn sem hirða bíla af fólki sem ekki hefur staðið í skilum. Ætli það eigi ekki eft- ir að verða algengt á íslandi í kjölfar nýju bílalánanna.“ sinni, Diner, sem gerðist í heimabæ hans, Baltimore, eins og tvær af öðr- um mynda hans, Tin Men og Avalon. Hann fékk óskarsverðlaun- in 1988 sem besti leikstjórinn fyrir Rain Man og 1991 gerði hann Bugsy, sem tilnefnd var til 10 óskarsverð- launa. Aðrar myndir hans eru Good Morning Vietnam, The Natural, Young Sherlock Holmes, Toys, Jim- my Hollywood og Disclosure, en næsta mynd hans er Sphere, sem eins og Disclosure er byggð á sögu eftir Michael Crichton. Fyrsta hlutverk Kevin Bacon í kvikmynd var í National Lampoon’s Animal House, en stuttu síðar fékk hann hlutverk undir stjóm Barry Levinson í Diner og síðan í Footlo- ose, og þá var hann orðinn stjama. Síðast var hann í hlutverki fanga sem sætir illri meðferð í Murder in the First, en meðal annarra mynda hans eru Criminal Law, Apollo 13, The River Wild, A Few Good Men og JFK. Tvöfaldir óskarsverð- launahafar Robert De Niro hóf leikferil sinn undir stjóm Brian De Palma í The Wedding Party 1969. Fjórum árum síðar hafði hann tvisvar hlotið gagnrýnendaverðlaun New York fyrir hlutverk í Bang the Dmm Slowly og Mean Streets. 1974 hlaut hann óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki í myndinni The Godfather Part II, og 1980 hlaut hann óskarsverðlaunin fyrir túlkun sína á boxaranum Jake La Motta í Raging Bull. Þá hefur hann hlotið óskarsverðlaunatilnefningar fyrir leik sinn í Taxi Driver, The Deer Hunter, Awakenings og Cape Fear. Á löngum leikferli hefur hann m.a. leikið í Once Upon a Time in Amer- ica, Goodfellas, Casino, Brazil, The Mission, The Untouchables, Angel Heart, Midnight Run, Guilty By Jason Pat- rick (Rush, Geroni- mo), sem von er á í að alhlutverki í hasar- myndinni Speed II, en fremstur í flokki ungu mann- anna Suspicion, Night and the City, Back- draft, This Boy’s Life, Mad Dog and Glory, A Bronx Tale, Mary Shelley’s Frankenstein, Heat og The Fan, en nýjustu myndir hans eru Marvin’s Room og Copland, þar sem hann leikur á móti Sylvester Stallone. Dustin Hofftnan hefur einnig hlot- ið óskarsverðlaun tvisvar, fyrir Kramer vs. Kramer og Rain Man. Hann hlaut ósk- arsverðlaunatilnefningu fyrir fyrstu mynd sína, The Graduate, og einnig fyrir myndirnar Midn- ight Cowboy, Lenny og Tootsie. Meðal annarra mynda hans eru Little Big Man, Straw Dogs, Papillon, All the President’s Men og Marat- hon Man. Blaðamanninn Brad Pitt, sem er kominn í hóp fremstu leikara sinnar kynslóðar eftir hlutverk í Thelma and Louise, Kalifomia, A River Runs Through It, Interview with the Vampire, Legends of the Fall, Johnny Suede, Cool World, True Romance, Seven og 12 Monkeys. Robert De Niro leikur prest sem er trúnaðarvin- ur drengjanna fjögurra. To Gillian on Her 37th Birthday To GiUian on Her 37th Birthday er stjömum skrýdd kvikmynd sem fengið hefur ágætar viðtökur hjá gagnrýnendum. Hér á landi fer hún beint á myndband án viökomu í kvikmyndahúsi. Meðal leikara eru MicheUe Pfeiffer, Peter GaUagher, Kathy Bates og hina unga Claire Danes sem er svo eftir- minnUeg í Romeo and Juli- et. Myndin fjall- ar um David Lewis sem varð fyrir því að eig- inkona hans lést. David ræð- ur ekki við eig- inkonumissinn og ræðir við hana sem hún væri enn lifandi, gerir ekki mun á draumi og veruleika. Þetta hefur vitaskuld mikU áhrif á fjölskyldu hans og vini og ekki síst á dóttur hans sem þarf ekki aðeins að takast á við móðurmissi heldur einnig að horfa upp á föður sinn fjarlægjast sig svo mjög að hætta er á að hún tapi honum einnig. TU einhverra ráða þarf hún að grípa en hvemig er hægt að bjarga þeim sem viU ekki láta bjarga sér? Skífan gefur To Gillian on Her 37th Birthday út og er hún leyfð öllum ald- urshópum. Útgáfudagur er 18. júní. •tiscut-a—— rantinniuxsRT aUKKDLMð." Michael Collins Unforgettable Neil Jordan er breskur leikstjóri sem sendir frá sér hverja úrvals- myndina á fætur annarri. Fyrstu tvær kvikmyndir hans, Company of Wolves og Mona Lisa, fengu gey- sigóðar viðtökur og komu honum á blað. Síðan kom smálægð en Jordan sló síðan eftirminnilega í gegn með Crying Game. í kjölfarið kom Interview with a Vampire og nú síðast Michael CoUins sem feng- ið hefur mjög góðar viðtökur hvar sem hún hefur verið sýnd. Michael CoU- ins var íri sem helgaði líf sitt baráttunni fyrir sjálfstæði ír- lands. Hann fæddist í lok 19. aldar og hóf snemma afskipti af stjórnmálum. Barátta hans fyrir aðskilnaði ír- lands frá Bretlandseyjum gerði hann að goðsögn meðal almennings. Hann var mjög slyngur ræðumaður og átti auðvelt með að blása í brjóst samlöndum sínum sigurvUja en það fór mikið fyrir brjóstið á Englend- ingum. Með hlutverk Michaels CoUins fer Liam Neeson. Aðrir leikarar eru Julia Roberts, Alan Rickman, Steph- en Rea og Aidan Quinn. Warner-myndir gefa Michael Collins út og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudagur er 19. júní. Unforgettable er vísindaskáld- sögutryUir sem John Dahl leikstýr- ir en hann gerði hina eftirminni- legu The Last Seduction þar sem Linda Fiorentino sýnd okkur hvern- ig leika á hættulega konu. Hún launar Dahl greiðann með því að leika í Unforgettable taugasérfræð- inginn Mörthu Briggs, sem hefur verið að gera tU- raunir á sviði minnis- flutn- inga. Annar læknir, David Krane, kemst að þess- um til- raunum hennar og þar sem lát- in kona hans er sú eina sem getur sannað fyrir yfirvöldum að hann myrti hana ekki þá hefur hann mikinn - hug á að reyna minnisflutning á lát- inni eiginkonunni yfir í hans minni en slíkt hefur ekki verið gert áður. Það er Ray Liotta sem leikur lækn- inn. Sam-myndbönd gefa Unfor- gettable út og er hún bönnuð börnum innan 16 ára. Útgáfudag- ur er 16. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.