Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Síða 12
30 í< tyndbönd FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997 UYNDBAm j\ th \ ★★'i Violent Tradition: Bræður munu berjast Lögga og tveir fyrrum þjófar mynda leynilega sér- sveit með það hlutverk að berjast gegn glæpum með öllum tiltækum ráðum og taka við þar sem armur laganna nær ekki. Þjófamir voru ástfangið par í glæpafjölskyldu í Hong Kong, en nú er hún ástfangin af löggunni. Þau standa þó öll saman (mismikið þó) gegn fyrrum félaga þjófanna úr Hong Kong-mafíunni og það er mikið lamið, skotið og slegist. John Woo, sem gerði Broken Arrow, leikstýrir en hann hefur átt sín meistarastykki í yfirgengilegum hasarmyndum í Hong Kong. Þessi er ein slík endurunn- in en sú hét Once a Thief. Hann rænir grunnsöguþræðinum úr eigin mynd en atburðarásin er þó allnokkuð öðruvísi. Hann fer aðeins út úr eigin skothríðarstíl og sækir i staðinn í smiðju Jackie Chan með skemmtilega útfærðum bardagaatriðum og húmor. Hins vegar er hann ekki alveg á heimavelli þar - Jackie Chan gerir þetta betur og Woo er og verður alltaf bestur þegar hann murkar lífið úr hundruðum manna í ofsafengnum skotbardögum. Leikararnir eru óþekktir en standa sig ekkert áberandi illa og það má hafa ágæta skemmtun af myndinni. Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: John Woo. Aöalhlutverk: Sandrine Holt, Ivan Sergei, Nicholas Lea og Michael Wong. Bandarísk, 1995. Lengd: 96 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ First Wives Club: Hopp og hí Bette Midler, Goldie Hawn og Diane Keaton leika þrjár miðaldra konur sem lenda í þeirri ógæfu að eig- inmenn þeirra yfirgefa þær fyrir yngri konur. Eftir að þær hafa fengið að vorkenna sér um stund renn- ur berserksgangur á þær og þær snúa vörn í sókn. Þær plotta grimmi- legar hefndaraðgerðir og koma sínum fyrrverandi á vonarvöl og stofna síðan meðferðar- og ráðgjafarstofnun fyrir konur í hjónabandserfiðleik- um. Fyrst og fremst er þessi mynd afar ófyndin, enda er meiri tíma eytt í volæði hinna ýmsu persóna en kómískar aðstæður. Þegar myndin reynir síðan að vera fyndin misheppnast það oftast, meðal annars vegna þess að hún er alltof fyrirsjáanleg til að geta komið áhorfandanum á óvart. Erfitt er að hlæja að brandara þegar maður fattar hann áður en hann er sagður. Leikstjórinn er einhver lúði sem greinilega hefur ekk- ert þorað að leikstýra stjörnunum þvi að þær gera lítið annað en annað hvort emja af volæði eða hoppa og skrækja í fremur neyðarlegum og al- gjörlega óskipulögðum hamagangi. Sumir aukaleikaranna komast skammlaust frá sínu. Hollywood á greinilega erfitt. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Hugh Wilson. Aöalhlutverk: Goldie Hawn, Bette Midler og Diane Keaton. Bandarísk, 1996. Lengd: 98 mín. Öll- um leyfð. -PJ S4yrKl eírirfréiti Snyfes .Mw/íwA íiímCdft# The Sccrct Of Boanlttlsh The Secret of Roan Inish: Þjóðsaga ***★ Hér segir frá írsku stelpunni Fiona, sem fer að búa hjá ömmu sinni og afa 1 litlu sjávarþorpi á norðvest- urströnd írlands. Eftir að hafa heyrt þjóðsöguna um selkonuna verður hún sannfærð um að litli bróðir hennar, sem hvarf á haf út í vöggu sinni, sé enn á lífi. Hér er um einstaklega fallega og vel gerða mynd að ræða. Leikstjóri myndarinnar er snillingurinn John Sayles (Lone Star), en hann nýtir næmi sitt til hins ýtrasta til að koma til skila ein- stakri menningunni í litla írska sjávarþorpinu á þann hátt að áhorfand- inn fái innsýn í hana og skilning á henni. Persónumar eru skýrar og heilsteyptar og í flestum tilvikum áhugaverðar, og aflir leikarar eru með besta móti. Að öðrum ólöstuðum er þó Jeni Courtney langbest í hlut- verki Fionu. Frábær tónlist og hrífandi kvikmyndataka, þar sem ein- staklega fallegt landslag leikur stórt hlutverk, hjálpa til að gera mynd- ina að því listaverki sem hún er. Horfið á The Secret of Roan Inish og síðan Free Willy og þá sjáið þið muninn á Hollywood og alvöru kvik- myndagerð. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: John Sayles. Aðalhlutverk: Jeni Courtn- ey, Eileen Colgan, Mick lally og Richard Sheridan. Bresk, 1993. Lengd: 103 mín. Öllum leyfð. -PJ The Craft Unglingahrollvekja Sara er nýja stelpan í skólanum og hún kynnist fljótlega þremur stelpum sem eru utangátta i skól- anum. Þær eru nornir en hafa ekki yfír mikilli kynngi að ráða. Hún er hins vegar náttúruleg norn og innkoma hennar hefur nomahringinn þeirra í hæstu hæðir. Eftir að þær hafa fengið að leika sér með mishættulega galdra í nokkurn tíma sér Sara að gamanið er að fara úr böndunum en hinar nomim- ar eru ekki á þeim buxunum að afsala sér nýfengnum hæfileikum sin- um og snúast gegn henni. Hún þarf því að berjast fyrir lífi sinu. Hér er verið að reyna að búa til svala unglingahroflvekju með dynjandi rokktónlist og ungum, glæsilegum líkömum. Myndin er hins vegar of heimsk til að vera svöl og full tepruleg til að vera hryllileg. Hins vegar má hafa gaman af nomastælunum, sérstaklega er Fairuza Balk hið ágætasta skass og skemmtilega geggjuð. Sum hókus pókus atriðin eru nokkuð vel gerð og flott og þá er tónlistin sæmilega vel valin. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Andrew Fleming. Aðalhlutverk: Robin Tunn- ey, Fairuza Balk, Neve Campbell og Rachel True. Bandarísk, 1996. Lengd: 97 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Myndbandalisti vikunnar / • © • / mL/• o « 1 jy iy**±&m* —— 2G.maí til 1. júní SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 1 3 Long Kiss Goodnight Myndform Spenna 2 4 2 Jingle All the Way Skífan Caman 3 2 3 Jack Sam-myndbsnd Gaman 4 3 2 - • " i Fear ClC-myndbönd Spenna 5 5 5 ; Courage under Fire Skífan Spenna • 7 5 Associate Háskólabíó Gaman 7 6 4 Dragonheart ClC-myndbönd Spenna 8 Ný 1 Rich Mans Wife 1 Sammyndbönd i , Skífan , Sam-myndbönd Spenna 9 9 7 Chain Reaction Spenna 10 8 « ; Phenomenon Drama 11 Ný i Violent Tradition Bergvík Spenna 12 i 10 6 Tin Cup Warnermyndir r Gaman 13 11 ; 3 Emma Skrfan Gaman 14 x 13 X 12 TimetoKill Warnermyndir : , Skífan Spenna 15 Ný ; i ; Pest Gaman 16 i 14 ' 3 X Assassination File r 1 ClC-myndbönd Spenna 17 ’ 12 : 8 ; Substitute Háskólabíó • Spenna 18 ; 15 : 4 ; X-Files: Tempus Fugit Skífan ; Spenna 19 20 2 ' "... First do no Harm„ ; Bergvík ' Drama 20 i6 : 8 ; Black Sheep ClC-myndbönd Gaman Þriöju vikuna í röð er spennumyndin The Long Kiss Goodnight í efsta sæti myndbandalistans. Þaö þarf aö fara aftur í áttunda sætiö til aö finna nýja mynd, er þaö Rich Man’s Wife, sakamálamynd um unga fallega eiginkonu auökýfings sem dag einn veröur ekkja þegar maöur hennar er myrtur. Ekki nóg með þaö, hún er grunuö um morðið. Tvær aðrar nýjar myndir eru á listanum, Violent Tration, sakamála- mynd frá einum athyglisveröasta spennumyndaleik- stjóra nútímans, John Woo og Pest, sem er gaman- mynd meö John Leguizamo (To Wong Foo....) í aöal- hlutverki. Á myndinni má sjá Robin Williams í hlut- verki hins t(u ára Jacks, í samnefndri mynd sem er í þriöja sæti listans. The Lonp Kiss Goodnignt Gena Davis og Samu- el L Jackson Húsmóðirin Sam- antha Caine þjáist af minnisleysi og man ekkert frá tímanum áður en hún flutti i hverfið fyrir átta árum. Samt sem áður lýstur æ oftar niður í huga henn- ar leifturmyndum sem hún á erfitt með að átta sig á hvaðan koma. Smám saman gerir hún sér þó grein fyrir að þessar myndir eru í raun hennar eigin minningabrot frá tíma þegar hún var einhver önnur kona. Hún ræður spæjara til að komast til botns í því og þar með hefst rannsókn á flóknu og víðfeðmu máli. JingleAHTheWay Arnold Schwarzenegger og Sindbad. Það er flðið að jólum og hjá flestum er jóla- undirbúningi lokið. En þannig er það ekki í til- felli Howards Langston. Howard elskar eigin- konu sína Liz og soninn Jamie en hefur ekki haft tima til að sinna þeim sem skyldi. Nú á að bæta úr og finna einu jólagjöfina sem sonur hans vill, Hvirfii- manninn. Það reynist afls ekki auðvelt því þegar Howard fer af stað hefúr jólagjöfin verið uppseld í fjórar vikur, fer nú i hönd við- burðarikur aðfangadag- ur. öjáw MúiJm Robin Williams og Di- ane Lane Jack er tíu ára dreng- ur sem eldist Qórum sinnum hraðar en eðli- legt er. Hann hefúr not- ið vemdar og ástríkis foreldra sinna og hefur ávaflt haft einkakenn- ara. Jack vill sem skilj- anlegt er leika sér við aðra stráka og því er hann sendur í fyrsta sinn i skóla og sest á bekk með öðrum tíu ára krökkum. í fyrstu virð- ist þetta ekki ætla að ganga upp því skólafé- lagar hans líta á hann sem viðrini og eiga erfitt með að umgang- ast hann, en Jack býr yfir skynsemi og lífs- hamingju sem fleytir honum yfir erfiðasta hjallann. ' Fear Reese Whitherspoon og Mark Wahlberg. Nicole er ung stúlka sem á í miklum vand- ræðum með að sætta sig við afskiptasemi fóð- ur síns. Hún vill fara eigin leiðir og dreymir um að hitta drauma- prinsinn. Kvöld eitt þeg- ar hún er úti með bestu vinkonu sinni hittir hún David, ungan mann sem í fyrstu virð- ist eins og sniðinn út úr draumaheimi. hennar. Þau ná strax saman og Nicole er mjög ástfang- in. En ungi maðurinn er ekki allur þar sem hann er séður, en það reynist enginn barna- leikur að losna við hann. ( • .ÍJ»-Þ l'Hif í Courage underRre Denzel Washington og Meg Ryan. Undirofurstinn Nath- an Sterling verður fyrir því um nótt í Persaflóa- stríðinu að sprengja upp, fyrir slysni, bandarískan skrið- dreka. Herinn ákveður að þagga málið niður og kallcu- Sterling heim. í kjölfarið er honum falið að rann- saka dauða flugstjóra sem er um það bfl að verða fyrsta konan til að hljóta æðsta heið- ursmerki Bandaríkja- hers. Vitnum ber ekki saman um atvik þau sem leiddu til dauða hennar og tilraunir Sterlings til að komast að hinu sanna ýfa gömul sár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.