Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Síða 5
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 Listasafn Kópavogs: íslendingur, Portú- gali og Skoti Nýverið VciFópnuð í Listasafni Kópavogs sýning sem ber heitið Fjarvera/nærvera. Hún er hingað komin fyrir atbeina sýningastjórans Michaels Tarantinos sem valdi til þátttöku tvo erlenda listamenn, þau Christine Borland frá Skotlandi og Juliao Sarmentofrá Portúgal og einn íslenskan, Kristján Guðmundsson. Kristján Guðmundsson hefur um árabil unnið þrívíð verk úr graflt og pappír. Hann skilgreinir verk sín sem teikningar en verk hans geta þó varla talist teikningar. Auk teikn- inganna hefur Kristján fengist við bókagerð, skúlptúr og nú síðast ljóðagerð. Tvö verk eftir hann, Áfengt ljóð - létt, Áfengt ljóð - sterkt, voru nýverið sett upp í Áfengisverslun Kópavogs við Dal- veg í tengslum við sýninguna. Cristine Borland starfar í Glas- gow. í verkum sínum fæst hún við ýmis kerfi sem mikið ber á í nú- tímaþjóðfélagi. Efhiviðinn sækir hún í lögregluskýrslur og réttar- höld, réttarvísindi og læknisfræði. í nýjustu verkunimi kannar hún tengsl lífs og dauða, mannslíkamans og ómennskunnar og veltir fyrir sér flóknu samspili lífs og vísinda. Juliao Sarmento býr og starfar í Sintra í Portúgal. Líkami konunnar og augnatillit áhorfandans hefur Sýning í Lækjargötu: Ljósmyndir og Ijóð úr Reykjavík í Lækjargötu 4 stendur nú yfir á vegum Árbæjarsafns sýningin Reykjavík - ijósmyndir og ljóð. Sýn- ingin samanstendur af Ijósmyndum frá Reykjavík og ljóðum sem með einum eða öðrum hætti fjaila um Reykjavík, borgarmyndina eða myndir. Sigurjón Baldur Hafsteins- son myndamannfræðingur og Garð- ar Baldvinsson bókmenntafræðing- ur settu upp sýninguna. í tilefni sýningarinnar hefúr verið gefið út ritið Völundarhús sjónlinanna eftir Garðar Baldvinsson. Sýningin er opin aila daga nema mánudaga frá 9 til 17. í Lækjargötu stendur nú yfir sýning á Ijósmyndum og Ijóöum sem öll tengjast Reykjavík meö einhverjum hætti. „í minningu Njálsbrennu" eftir Magnús Pálsson. Ritvélarnar eru 11, ein fyr- ir hvern sem lést i brennunni. L-iö í númeraplötunni táknar Rangárvaija- sýslu og 1010 er áriö sem Njálsbrenna átti sér staö. DV-mynd ÞÖK Listasafn íslands: Fornsögumar í íslenskri myndlist Listasafni íslands stendur nú yfir sýning á málverkiun, grafik og höggmyndum sem byggðar eru á ís- lenskum fornritum. Sýningin ber yf- irskriftina „Sögn í sjón, myndlist og miðaldabækur íslands“ og er haldin á sameiginlegum vegum Listasafii fslands, Norræna hússins og Stofn- unar Áma Magnússonar á íslandi. Bókmenntaarfúr íslendinga, og þá einkum fomsögurnar, hafa hingað til ekki leikið stórt hlutverk i ís- lenskri myndlistarsögu. Með tilliti til þess hversu veglegan sess fom- sögumar hafa ávallt skipað í menn- ingu okkar kemur það nokkuð á óvart. í sýningarskrá fjallar Aðal- steinn Ingólfsson listfræðingur um þetta ogkemst að þeirri niðurstöðu að líklega hafi íslenskir myndlistar- menn verið of niðursokknir í nú- tímaleg viðfangsefni eða erlenda listastrauma til þess að geta gert fomsögunum skil í list sinni. Frá þessu vom þó undantekningar. Til dæmis leitaði Einar Jónsson mynd- höggvari víða fanga í fornhók- menntunum og þær vom honum oft yrkisefni í verkum hans. Þrátt fyrir þessi orð sýningar- skrárinnar er sýningin heilsteypt og yfirgripsmikil. Þar getur að líta verk eftir marga af helstu lista- mönnum þjóðarinnar, allt frá Kjar- val til Friðriks Þórs Friðrikssonar, en nafntoguö mynd hins síðar- nefnda „Njálsbrenna" er meðal verka á sýningunni. -kbb iif/n helgina ** * lengið verið meginviðfangsefhið í verkum hans sem oft hafa erótískan undirtón. Verk listamannanna em í þrem- ur aðskildum sölum og mynda í raun sjálfstæðar sýningar. í grein í sýningarskrá bendir Michael Tar- antino á ýmislegt í listsköpun lista- mannanna sem tengir verk þeirra þótt það sé ekki alltaf ljóst við fyrstu sýn. Sýningin Fjarvera/nærvera stendrn- til 24. ágúst. Hún er opin alla daga nema mánudaga frá 12 til 18. LEIKHÚS I 1 Borgarieikhúsið Trlstan og ísól Föstudag kl. 20.00 Sunnudag kl. 20.00 - lokasýnlng ! íslenska óperan Evtta Föstudag kl. 20.00 Laugardag kl. 20.00 I Loftkastalinn Á sama tfma aö ári Laugardag kl. 20.00 Hafnarfjarðar- | leikhúsið : ( Hermóöur og Hávör Að eilffu Laugardag kl. 20.00 Nýtt úrval mhHki,fjöldamif^ allan af fróðíegu ^skemjVitilegu efni m.a.: *l^fá bónjjann í heimilissf^FÍHm /&* * Þfgar Nof^WK^fíka hrann . hi°nci,n8 *|?ð umgangásUérfióa I <*iágrannaQo . / gkynlíf eftjlrþáfneignir / <6 Úrvalskeq^sgatá / ^ Háskafaé/^ fnolinu / ’SÓdýrt - ' ’30 /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.