Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.1997, Side 12
26
íyndbönd
MYNDBAM
Enn ein frá Almodovar ★★
Hér segir frá rithöfundinum Lea, sem er afar ein-
mana og óhamingjusöm, þar sem eiginmaður henn-
ar er aldrei heima. Hún skrifar rómantískar ástar-
sögur undir dulnefni en upp á síðkastið hefur þung-
lyndi hennar og áfengisneysla gert henni erfitt um
vik og sögur hennar verða myrkari. Hún fer að
skrifa bókmenntagagnrýni fyrir dagblaðið E1 Pais og
vekur hrifningu ritstjórans. Við sögu koma
taugatrekktar móðir og systir hennar, heimilishjálp-
in hennar og útgefandi hennar, sem bæði eiga vand-
ræðaunglinga fyrir syni. Almodovar hefur gert ansi
margar myndir, sem oftast eru gamansamar myndir
með all-villtum söguþráðum og einkennilegmn persónum. í síðustu
mynd sinni fór hann yfir strikið og úr varð hálfgert bull, en hér söðlar
hann algjörlega um. Persónurnar eru tiltölulega eðlilegar og lítil gaman-
semi í handritinu. Þar með er myndin ekkert sérstaklega áhugaverð og
vantar þann sjarma sem Almodovar hefur yfirleitt léð myndum sínum,
en á hinn bóginn plumar Huldublómið sig sæmilega sem fremur róleg
lífsreynslusaga konu, sem reynir að gæða líf sitt meiningu.
Flor De Mi Secreto (Huldublómið). Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri:
Pedro Almodovar. Aðalhlutverk: Marisa Paredes og Imanol Arias.
Spænsk, 1995. Lengd: 105 mín. Öllum leyfð. -PJ
BufRð lemur rússnesku mafíuna ★*
Jean Claude Van Damme er mjög af-
kastamikill og leikur í a.m.k. tveimur
slagsmálamyndum á ári. Hér leikur hann
franskan rannsóknarlögreglumann sem
dag einn horfir upp á fórnarlamb morðs, se
nákvæmlega eins og hann. í ijós kemur að um er að
ræða tvíburabróður sem hann vissi ekkert af, og sem
flæktur var í rússnesku mafíuna í Little Odessa í
New York. Hann fer því vestur um haf til að leita
uppruna síns og er auðvitað fljótlega hundeltur af
bæði rússnesku mafíunni og alríkislögreglunni.
Myndin er heimsk, illa leikin og óspennandi eins og við er að búast.
Bæði Van Damme og Natasha Henstridge sýna litla leikhæfileika en því
flottari líkama. Sorglegt er að sjá Jean-Hugues Anglade, þann ágæta leik-
ara, í lúðalegu aukahlutverki. Á móti göllunum koma margar flottar bar-
dagasenur og eltingaleikir, þar sem kvikmyndavélin er notuð vel og má
sennilega þakka það leikstjóranum Ringo Lam. Sérstaklega er atriðið í
sánunni ómissandi fyrir þá sem hafa gaman af að horfa á sveitta og
stælta karlmannslíkama hnoðast hálfnaktir á hver öðrum.
Maximum Risk. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Ringo Lam. Aðalhlutverk:
Jean-Claude Van Damme og Natasha Henstridge. Bandarísk, 1996. Lengd:
97 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Greddugrín * ®
Rushon og Nikki eru búin að vera saman í sjö vik-
ur, en hafa ekki enn gert það. Þegar þau fara út eitt
kvöldið vill Nikki taka vinkonu sina Lysterine með
og Rushon fær því vin sinn með sem herra fyrir
hana. Sá heillar Lysterine upp úr skónum og þau
skilja Rushon og Nikki ein eftir í ibúðinni hennar.
Hjá háðum pörunum stefnir í ástríðufulla ástarleiki
en ýmislegt verður þó til að tefja, þar á meðal smokkavandræði. Booty
Call er afar lítið fyndin og þaðan af síður kynæsandi. Fyndnin virðist
helst eiga að ganga út á fíflalæti og ofleik en í höndum hrikalega lélegra
leikara verður þetta bara neyðarlegt. Kynlífsatriðin eru alltof hvítþveg-
in til að vera á nokkurn hátt áhugaverð og þá er lítið eftir til að gleðj-
ast yflr. Indversku búðarlokurnar redda myndinni hálfri stjömu.
Booty Call. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Jeff Pollack. Aðalhlutverk: Jamie
Foxx, Tommy Davidson, Vivica A. Fox og Tamala Jones. Bandarísk, 1997.
Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Háloftahasar ★★
Teri Halloran er flugfreyja í Boeing júmbó-þotu.
Aðeins fáeinir jólaferðalangar em í vélinni, en þar á
meðal era fjórir lögreglumenn með tvo fanga á leið
til Los Angeles. Þegar annar þeirra reynir að yfir-
buga lögreglumennina brýst út bardagi sem endar
með þvi að hann og allir lögreglumennimir liggja í
valnum ásamt báðum flugmönnunum. Hinn fanginn,
flöldamorðinginn Ryan Weaver, læsir restina af
áhöfninni og farþegana inni í áhafnarklefanum meðan flugfreyjan sest í
flugstjórasætið. Flugvélin stefnir beint inn í mikinn storm og Hafloran
þarf að komast klakklaust i gegnum hann, forðast að verða drepin af
geðsjúkum flöldamorðingja og lenda vélinni. Þrátt fyrir aðstæður sem
ættu að geta skapað góða spennu er myndin lítið eftirminnileg og at-
burðarásin öll fremur fyrirsjáanleg og óáhugaverð. Sæmilegir leikarar
gera myndina að þolanlegri afþreyingu. Lauren Holly er ágæt sem svita-
storkin og skrámuð ofurhetja á hlýralausum bol og Ray Liotta er hæfi-
lega geðbilað illmenni.
Turbulence. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Robert Butler. Aðalhlutverk: Ray
Liotta og Lauren Holly. Bandarísk, 1997. Lengd: 96 mín. Bönnuð innan 16
ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 11. JÚLÍ 1997 T^’IT
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 1 2 Sleepers Háskólabíó Spenna
2 6 2 Glimmer Man Warner myndir Spenna
3 2 4 First Wives Club ClC-myndbönd Skífan Gaman
4 3 3 Djöflaeyjan Gaman
5 4 4 Craft Skffan Spenna
6 mmmmt 7 7 Long Kiss Goodnight Myndform Spenna
7 5 3 Secrets and Lies Háskólabíó Drama
8 Ný 1 1 1 Maximum Risk ‘ Skífan Spenna
9 8 5 Rich Man's Wife Sam-myndbönd Spenna
10 13 'j 2 J Matilda ffl - J Skrfan Gaman
11 10 3 Unforgettable Sam myndbönd Spenna
;V' 12 11 3 First Kid Sam-myndbönd Gaman
13 9 3 Michael Collins Warner myndiir Drama
VA 14 B 6 í Fear f ClC-myndbönd ' Spenna
15 14 7 Jack Sam-myndbönd Gaman
16 . ; 6 Jingle All the Way Skrfan ; mmm Gaman
17 9 Associate Háskólabíó Gaman
18 Ný i : { Crucible Skífan 1 Drama
19 Ný i ; Casualties Myndform Spenna
20 18 5 Pest Skffan Gaman
Spennumyndin The Sleepers situr sem fastast í topp-
sæti myndbandalistans aöra vikuna í röð. Litlar breyt-
ingar hafa orðiö á myndbandalistanum frá því í síðustu
viku. íslenska myndin Djöflaeyjan skaust þá upp í þriðja
sæti listans en situr nú í því fjórða. Spennumyndin The
Glimmer Man með hasarmyndaleikaranum Steven
Seagal ( aðalhlutverki er eina nýja myndin á listanum.
Sú mynd er í ööru sæti. Á listanum er nokkuð jöfn skipt-
ing milli gaman- og spennumynda en þar eru tvær gam-
anmyndir og þrjár spennumyndir. Á myndinni hér til
hliðar sjást þeir Steven Seagal og Keenan Ivory Wayans
í hlutverkum sinum i The Glimmer Man.
Sleepers
Kevin Bacon, Robert
De Niro, Dustin
Hoffman og Brad Pitt.
Sleepers er saga flög-
urra manna sem ólust
saman upp í hverfi í
New York sem nefnt var
Vítiseldhúsið vegna þess
hversu illræmt það var
fyrir glæpi. Drengimir
flórir bindast sterkum
vináttuböndum og
bralla ýmislegt saman.
Einn daginn fer eitt
prakkarastrik þeirra úr
böndunum og drengim-
ir em handteknir fyrir
vikið. Þeir em síðan
sendir á heimili fyrir af-
brotaunglinga. Sú dvöl á
eftir að reynast þeim
dýrkeypt því yfirfanga-
vörðurinn er ofbeldis-
fullur og vægðarlaus
hrotti sem misnotar
drengina. Mörgum
árrnn síðar ákveða
drengimir að leita
hefnda.
The Glimmer
Man
Steven Seagal og
Keenan Ivory Wayans.
Steven Seagal leikur
fyrrverandi leyniþjón-
ustumanninn Jack Cole.
Hann reynir nú að upp-
lýsa dularfuU og sérstak-
lega hrottaleg morð í Los
Angeles. Honum reynist
erfitt að hafa hendur í
hári morðingjans og
neyðist til að hefla sam-
starf við lögreglumann-
inn Jim Campell. Þeir
Cole og Campell komast
að því að málið er flókn-
ara en þá gat órað fyrir.
Svo virðist sem moröing-
inn tengist einhveijum
valdamiklum aðilum
sem vifla ekki að málið
upplýsist. Ekki liður á
löngu þar til Cole áttar
sig á því að málið virðist
einnig teygja anga sína
inn í fortíð hans.
FirstWives
Club
Goldie Hawn,
Bette Midler og
Diane Keaton.
Þær Elisa, Annie og
Brenda hafa verið vin-
konur lengi. Þær eiga
það sameiginlegt að
hafa allar fómað eigin
frama í þágu eigin-
manna sinna og svo
einnig það að eigin-
mennimir hafa fómað
þeim fyrir yngri konur.
I fyrstu brotna þær
saman undan þessu
reiðarslagi en smám
saman fer reiðin og í
kjölfarið segir
hefnigimin til sín. Eft-
ir að hafa ráðið ráðum
sínum setja þær i gang
eitursnjalla og alveg
sprenghlægilega áætl-
un ...
Djöflaeyjan
Baltasar Kormákur,
Gísli Halldórsson
og Sigurveig Jóns-
dóttir.
Kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar,
Djöflaeyjan, er byggð á
samnefndri skáldsögu
Einars Kárasonar.
Þetta er grátbrosleg ör-
lagasaga flölskyldunn-
ar í Thule- kampnum
og annarra flölskyldna
sem bjuggu í bragga-
hverfmu í Reykjavík
eftir að herinn yfirgaf
þá. Við fáum að kynn-
ast töffaranum Badda,
spákonunni Karólínu,
Tomma gamla, og
mörgum öðrum hvunn-
dagsheflum sem settu
svip sinn á kostulegt
mannlífið í bragga-
hverfinu og eiga sér
margar hverjar fyrir-
myndir í raunvem-
leika sjötta áratugar-
ins.
The Craft
Fairuza Balk og
Neve Campbell.
Þegar Sara flyst tii
Los Angeles hefiir hún
nám við skóla þar sem
hún kemst fljótlega í
kynni við þrjár undar-
legar vinkonur. Þær
hafa allar verið að
fikta við galdra án þess
að ná þeim árangri
sem þær vonuðust eft-
ir. En í Söm finna þær
þann aukakraft sem
þarf til að láta galdr-
ana virka. Skyndilega
öðlast vbikonurnar
kraft til að láta allar
sínar heitustu óskir
rætast. En það sem
upphaflega átti að vera
til gamans snýst brátt í
andhverfu sína þegar
þær fara að misnota
kraftinn.