Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Blaðsíða 6
útlönd LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 stuttar fréttir Dópiö útbreitt Nærri fjórðungur Breta á í aldrinum 16 til 29 ára viður- I kennir að hafa neytt ólöglegra | fíkniefna á síðastliðnu ári og | sjöundi hver á síðastliðnum mánuði. Þetta kemur fram í nýrri könnun. Tuddar teknir í bakaríið Mary Robinson, fyrrum for- seti irlands, er óðum að koma sér fyrir í nýju starfi mannrétt- indastjóra SÞ. Hún segist ekki munu hika við að segja þeim ríkjum til syndanna sem gera sig sek um alvarleg brot og koma fautalega fram. Reykingar drepa Þegar áriö 2000 rennur upp munu tóbaksreykingar hafa orð- ið tuttugu milljónum Evrópu- búa að aldurtila frá árinu 1950, segir lungnasérfræðingur. Töivur tímaþjófar Alls kyns tæknivandamál stela sem svarar þremur vinnu- vikum á ári af hverjum einasta manni sem notar tölvu í vinn- unni, segir í breskri könnun. Kaffið í hættu E1 Nino-hafstraumurinn i Kyrrahafi er byrjaður að skaða kafFiuppskeru víða um heim. Blóðið drýpur Duftkennt efni sero Napolíbú- ar telja vera storkiö blóð vernd- ardýrlings síns fór að drjúpa samkvæmt áætlun í gær, eins og það gerir tvisvar á ári. Bretar ekki með Robin Cook, herra Bretlands, utanríkisráð- sagði í gær að Bretar yrðu ekki með þeg- ar sameigin- leg mynt Evr- ópusambands- ríkjanna verð- ur innleidd 1999. Hann sagði þó að erfltt yrði að halda sig frá henni ef vel gengi. Arafat kvartar Yasser Arafat, forseti Palest- ínumanna, sagðist í gær ætla að kvarta yflr því á fundi með ut- anríkisráðherrum arabaríkja að ísraelskum námsmönnum skyldi leyft að dvelja á heimil- um Palestínumanna í Jerúsal- em í stað landnemanna sem lögðu þau undir sig. Uppálapp í Weimar Kohl Þýskalandskanslari og Chirac Frakklandsforseti komu samskiptum ríkjanna aftur í eðlilegt horf á fundi í Weimar. Reuter Farþegar lýsa aðstæöum í lestarslysi þar sem sex fórust: Biðu í 10 mínútur í svörtu reykjarkófi Sex manns týndu lífi og allt að 170 slösuðust þegar troðfull farþegalest ók á tóma vöruflutningalest í South- all í vesturhluta Lundúna skömmu eftir hádegi í gær. Það tók slökkviliðsmenn tvær og hálfa klukkustund að losa sextán farþega úr undnu braki lestarvagn- anna sem þeýttust þvers og kruss yfir teinana við áreksturinn, eins og þeir væru leikfóng. Þyrlur voru notaðar til að flytja þá mest slösuðu á sjúkrahús. Hraðlestin var á leið frá suður- hluta Wales til Paddingtonstöðvar í Lundúnum. „Aðeins nokkrum sekúndum eftir að lestin fór út af sporinu flugu gler- brot um allt. Vagninn sem ég var í fór út af og eldur kom upp í hon- um,“ sagði Mark Cole, fréttamaður BBC, sem var um borð í lestinni. „Það var reykur um allt.“ Stjórnandi vörulestarinnar slapp óskaddaður frá árekstrinum. Farþegar sögðu að mikill ótti hefði gripið um sig og að algjör ringulreið hefði ríkt á slysstað. Þeir þurftu að bíða i allt að tíu mínútur í vögnunum fullum af svörtum, svíðandi reyk áður en hægt var að opna dyr lestarinnar. íbúi í nágrenninu sem hraðaði sér á slysstað sagðist hafa séð jap- anska ferðamenn ráfa með fram brautarteinunum'i losti. Annar sjónarvottm- sagði að höf- uð eins farþeganna hefði sneiðst af við slysið. „Fremsti vagninn lagðist á hlið- ina. Vagnar númer tvö og þrjú eyðilögðust algjörlega,“ sagði sjón- arvotturinn Tony Mair sem aðstoð- aði við að bjarga fimmtán farþegum úr flakinu. „Það var hræðilegt að horfa upp á þetta." Rannsókn var þegar hafin á or- sökum slyssins. Þetta er versta járn- brautarslys í Bretlandi frá því í des- ember 1988. Þá fórust 35 manns þeg- ar þrjár lestir lentu saman skammt utan við Clapham Junction lestar- stöðina í suðurhluta Lundúna. Reuter Það var ófögur sjón sem blasti viö björgunarmönnum í vesturhluta Lundúna í gær þar sem farþegahraðlest ók á vöruflutningalest. Sex farþegar fórust og vel á annað hundrað slösuðust, margir hverjir alvarlega. Það tók björgun- armenn margar klukkustundir að ná hluta farþeganna út úr braki lestarinnar. Símamynd Reuter Rannsóknin á dauða Díönu prinsessu: Lífvörðurinn man ekkert Lífvörðurinn Trevor Rees-Jones, eini maðurinn sem komst lífs af úr bílslysinu þar sem Díana prinsessa og unnusti hennar létust, sagði frönskum rannsóknardómara í gær að hann myndi ekkert eftir slysinu. Að sögn heimildarmanns sem þekkir vel til rannsóknar málsins, sagði lífvörðurinn að hann myndi ekkert frá því hann steig upp í Mercedes-bifreiðina kvöldið örlaga- ríka i París. Þar með má segja að vonir Hervés Stephans rannsóknar- dómara um að komast til botns í slysinu hafi að engu orðið. Ekki hef- ur verið hægt að yfirheyra Rees-Jo- nes fyrr. Heimildarmaöurinn sagði að Rees-Jones hefði geta svarað ein- hverjum spurningum, hann myndi þó til dæmis ekki eftir því hvort annar bíll hefði átt þátt í slysinu, eins og sumir sjónarvottar hafa haldið fram. Lifvörðurinn, sem slasaðist mjög illa þegar bíll pririsessunnar lenti á steinstólpa í undirgöngum i París á flótta undan ljósmyndurum, mundi aftur á móti að hann hefði ekki tek- ið eftir neinu óvenjulegu í fari bíl- stjórans, Henris Paul. Hann lét lífið í slysinu. Rannsókn leiddi í ljós að Paul var með þrisvar sinnum meira áfengis- magn í blóðinu en leyfilegt er, auk þess sem leifar af þunglyndislyfjum fundust einnig í blóði hans. Franska lögreglan sagði í gær að ljósmynd, sem birtist á Internetinu á fimmtudag og átti að sýna Díönu prinsessu skömmu eftir slysið, væri fölsuð. Reuter Nýr ofurörgjörvi Intel, sem framleiðir örgjörva, eða sjálft hjartað í flestum einkatölvum af öðrum gerðum en Macintosh, set- ur innan tíðar á markað nýja gerð af örgjörva sem er miklu hraðvirkari en þeir örgjörvar sem nú þekkjast, auk þess að vera miklu smærri. Talið er að örgjörvinn muni valda byltingu í framleiðslu á gagnvirkum sjónvarpstækjum sem hægt er að tengja við Internetið, farsíma, staf- ræn mynd- og hljóðupptökutæki, auk tölva. Nýi örgjörvinn verður 1 næstu kynslóð farsíma frá Ericsson og Nokia og í fartölvum frá sömu fyrir- tækjum. Hann mun gera notendum mögulegt að tengjast Internetinu þvar sem þeir kunna að vera staddir og mun að sögn auka mjög afkasta- getu þessa búnaðar og gæöi í hvers konar gagnaflutningum um Intemet- ið, svo sem eins og við sendingu og móttöku myndefnis. -Reuter New York og vöruverð erlendis London 5000 '3W 4800 4fWt 4400 4200 J J Á S Frankfurt 4500 : 4000 fej 3500 SS^SSS 3000 4001,85 Hong Kong 17930,09 J J Á ' S 1562,5 Á S | Bensín95okt. [ 230 mmsmm JUK/M Irft 220 ■MH 210 Wwm I V/ 200' \J 1 190 218,5 $/t r j Á S Hráolía '■ WBBB8EBMI ■ oc umtmmggiSsmsfflá 20 « I 15 " V . tunnaj J Á S Motzfeldt fær grænt Ijós í stjórninni Grænlenska heimastjómin samþykkti formlega í gær ,að • Jonathan Motzfeldt tæki við i stjómarfor- ystunni af Lars-Emil Jo- hansen sem nú hverfur til annarra starfa. Þá hefur sú breyting’ einnig verið gerð á stjóminni að Benedikte Thorsteinsson lætur af embætti atvinnu- og félagsmálaráðherra. Við starfi hennar tekur Mikael Petersen. Jonathan Motzfeldt, sem er 58 ára gamall, varð fyrsti formaður grænlensku heimastjórnarinnar árið 1979. Hann þurfti að hætta vegna fjármálahneykslis árið 1991. Rokke kaupir Rússafisk í risatogara DV, Ósló: Norski sægreifinn Kjell Inge Rokke hefúr ákveðið að leggja risatogaránum American Mon- arch í rússneskri landhelgi og kaupa þar fisk til vinnslu um borð. Togaranum, sem er einn hinn stærsti í heimi, verður því ekki beitt við veiðar heldur bara vinnslu. Rekke hefur'Stt í miklu basli með að finna verkefni fýrir togarann. Lengi stóðu vonir til að kvóti fengist viö Chile en sú von brást og er skipið nú á leið- inni til Noregs eftir meira en árs legu í aðgerðaleysi l .banda- rískri höfn. Gríðarlegt tap er ormð á út- gerðinni enda hefur aldrei kom- ið fiskur um borö í skipið. Tog- arinn kostaði Rokke um fjóra milljarða íslenskra króna. Áætl- að er að vinna 250 tonn af þorski um borð á sólarhring. Reiknað er með að verð á Russaþorski muni hækka fyrir vikið. : -GK Þýskir hvetja til rannsóknar á tilræði f Kaíró Þýsk stjómvöld hvöttu þau egypsku i gær til að rannsaka að fullu tilræðið í miðborg Kaíró á fimmtudag þar sem tíu manns létust, þar á meðal níu þýskir ferðamenn. Þýska utanríkisráðuneytiö varaði jafnframt Þjóöverja við að ferðast til hættulegra svæða í Egyptalandi. Geðtruflaður maður og bróðir hans vörpuðu bensínsprengjum og skutu á 33 þýska ferðamenn sem voru í langferðabil. Aðspuröur um hvort þýsk stjómvöld væm ánægð með rannsókn Egypta á árásinni, sagði talsmaður utanríkisráðu- neytisins í Bonn: „Nei, svo sannarlega ekki.“ Karl Bretaprins þakkar fyrir sig Karl Bretaprins þakkaði í gær bresku þjóðinni, svo og heimsbyggðinni allri, fyrir þá hluttekningu «3 sem hún sýndi við frá- fall Díönu prinsessu. Prinsinn lofaði einnig hugrekki tveggja sona þeirra Díönu, Vilhjálms og Harrýs. Karl var i Manchester í gær þar sem hon- um var vel tekið. Hann hefur ekki áður komið fram opinber- lega frá því Díana var jöröuð. Reuter
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.